Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2002, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2002, Síða 23
LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 2002 33 V_____________________________________________________________________________________Helgarblað Edvard Vogt er fæddur árið 1923, hann á kanadíska konu og 4 böm og býr í Björgvin í Noregi. Hann tók lög- fræðipróf frá Óslóarháskóla 1950, magisterspróf („lisensíat") í guð- fræði (1957) og kirkjurétti (1959) í Róm, hlaut doktorsgráðu í heim- speki i Róm 1962. Vogt sat í þýsku fangelsi 1943, var meðlimur af SIS (Secret Intelligence Service) og MO- org, hinni vopnuðu andspyrnu- hreyfingu i Noregi, 1943-44, korpor- áll í norska fótgönguliðinu í Svíþjóð 1944-45 og síðan í Noregi. Ritari Æskulýðssambands Vinstriflokks- ins 1947-48, tók kaþólska prests- vígslu 1956, var prófessor við Al- þjóðlega félagsfræðiháskólann í Róm 1957-59, aðalritari við Institut International de Sociologi 1959-64, ráðgjafi fyrir Vatikanið 1965-73, dós- ent í skipulagsfræðum við Verslun- arháskóla Noregs 1970-87, dósent í lögfræði við Björgvinjarháskóla frá 1987 og prófessor frá 1992, á eftir- launum frá 1994. Ritaskrá hans hef- ur að geyma u.þ.b. 100 verk. Játningar hryðjuverkamanns Nú er mál að ég horfist í augu við staðreyndir: Ég er hryðjuverkamaö- ur, og glœpir mínir eru ekki fyrndir. Það er hœgt að dœma mig og glœpa- nauta mína til dauða meó leynileg- um skyndiréttarhöldum við nýju hermdarverkadómstólana í Banda- ríkjunum. Þar yrói auðsannað að ég hef stundað njósnir og gefió upp sprengjuskotmörk fyrir alþjóðlega hermdarverkanetið SIS. Síðar gekk ég sannanlega í norsku hryðjuverka- samtökin Milorg, þar sem ég tók meöal annars þátt í sprengjutilrœó- um. Þótt minn þáttur vœri aó vísu þaó eitt aó flytja dýnamít, varðar það dauöarefsingu. Ef til vill teldist það mér til málsbóta að 1944 neitaói ég að framkvæma skipun um að taka uppljóstrara nokkurn af lífl. Eina vöm mín er réttarblinda: Ég hélt að andspyrna væri skylda æskufólks í ólöglega hemumdu landi. Daglegar fréttir frá Palestínu hafa komið mér í skilning um ann- að. Samkvæmt hemámsveldinu eru það Palestínumenn sem búa ólög- lega á landi sem tilheyrir hinum ísraelska kynþætti. Samkvæmt áþekkri kenningu „Blut-und-Boden“ á hermdarverkatímabili æsku minnar var Noregur eðlilegur hluti af hinu stórgermanska framtíðar- ríki. Andspymuhreyfing okkar átti minni rétt á sér en aðgerðir Palest- ínumanna gegn hemámsvaldinu. Við vorum hemumin bara í nokkur ár, og ekki voru íbúar heilla þorpa brytjaðir niður eins og i Deir Yass- in - eða í Quiba, þar sem Ariel Sharon var að verki með samþykki Ben-Gurions. Ekki sölsuðu heldur þýskir landnemar undir sig norska jörð. Ég og aðrir hryðjuverkamenn urðum að lokum að flýja til Svíþjóð- ar, eins og Palestínumenn til Lí- banons, en þýsku hershöfðingjun- um tókst ekki að slátra okkur í ílóttamannabúðum þar eins og Ariel Sharon gerði í Sabra og Chattila. Að þessu leyti er mikil réttarbót og öryggi að nýju dómstól- unum í Bandaríkjunum, sem sam- kvæmt lögum mega dæma okkur og alla aðra heimsins terrorista. Fjöldi hryðjuverkamanna er mikill og því rökrétt að dómstólar þessir byrji á þeim sem hafa fr'amið hryðjuverk gegn Bandaríkjunum og þeim her- námsríkjum sem þau eru í banda- lagi við. Svo kemur ugglaust röðin að okkur sem frömdum hryðjuverk gegn óvinum Bandaríkjanna. hinna hernumdu linni ekki, en það sé forsenda þess að þeir megi setjast að „samningum milli deiluaðila“. Aldrei er okkur bent á að leiðtogar Palestínumanna á hernumdu svæð- unum eru í sömu stöðu og leiðtogar andspymuhreyfingar okkar undir hernámi Þjóðverja, og að það sem ísrael krefst mundi samsvara því að þessir leiðtogar hefðu afhent Þjóð- verjum - ekki aðeins okkur, hryðju- verkamennina í Milorg, heldur einnig yfirráð yfir Óslóborg, öll bestu „búsetusvæði“ landsins og rétt til eftirlits í landinu öllu. í norskum fjölmiðlum eru stríðs- glæpir ísraels, sprengjuárásir og markvissar skothríðir gegn grjót- kastandi bömum daglega skýrðir sem skiljanleg „viðbrögð" við hryðjuverkum Palestinumanna. Aldrei er sett fram krafa um íhlut- un og að Ariel Sharon, sannur að Norski lagaprófessorinn og guðfrœðingurinn Ed- vard Vogt horfir á sam- tímaviðburði frá óvœnt- um sjónarhóli í grein í Dagbladet í Noregi hryðjuverkum, ásamt terrorflug- mönnum sínum og einkennisklædd- um bamamorðingjum, verði dreg- inn fyrir Haagdómstólinn eða hina nýju bandarísku dómstóla. Þann 4. desember síðastliðinn fékk fréttamaður sjónvarps loks þá hugmynd að hafa tal af ísraelska sendiherranum sjálfum en ekki hin- um heiladauða talsmanni hans. Ár- angurinn varð fleðuleg vella um hörmungar hins saklausa hemáms- veldis. Þessum aðlaðandi sendi- herra var - eins og öllum ísraelsk- um leiðtogum sem komið hafa í nánd við norska hljóðnema - hlíft við skuldaskilum fyrir 55 ára brot ísraels á öllum ályktunum Samein- uðu þjóðanna og ákvæðum bæði þjóðréttar og stríðsréttar. Siðferðilegt sjálfsmorð Meðan ég sat í fangelsi árið 1943 hitti ég gyðinga á leið í gasklefana og reyndi sem „gangastrákur" að létta þeim lífið af veikum mætti. í grein sem ég skrifaði 1948 gagn- rýndi ég ríkisstjómina harkalega vegna tregðu hennar til að viður- kenna Ísraelsríki. Árið 1957 kannaði ég sjálfur ástandið i ísrael og birti grein í amerísku tímariti þar sem ég lét í ljós alvarlegar áhyggjur af framtíð ísraels sjálfs og af gyðingum og menningu gyðinga utan ísraels, því að samtök þeirra létu í sívax- andi mæli misnota sig til stuðnings við afbrot Ísraelsríkis. Þetta var ein fyrsta gagnrýna greinin eftir ísra- elsvin í viðurkenndu alþjóðlegu málgagni og Jewish Agency í Paris gerði sitt ýtrasta til að draga úr áhrifum hennar. En greinin hlaut stuðning frá fulltrúum ýmissa máls- metandi hópa gyðinga, m.a. Der Bund í PóÚandi og The Jewish Council í Bandaríkjunum. Við sem ólum í brjósti heitan draum um mannúðlegt Ísraelsríki sem athvarf fyrir ofsótta gyðinga grátum í dag það siðferðilega sjálfs- morð sem ríkið er langt komið að fremja. Það er ótrúlegt að meðal þeirra sem eru ábyrgir fyrir áfram- haldandi glæpaverkum er virtur norskur rabbíni sem nú á sæti í rík- isstjórn ísraels. Helgi Haraldsson þýddi Hver er „Palestínuvandinn"? Já, svona er hægt að hafa alvar- leg mál í flimtingum. Beiskjufyndni verður einatt þrautalendingin þegar fréttamenn nútímans Eifskræma raunveruleikann með skilningsleysi sínu á hyldjúpri örvæntingu Palest- ínumanna sem í síauknum mæli eru flæmdir frá landi sínu og jörð feöra sinna. í rösk 50 ár hafa norsk- ir fréttamenn verið gjallarhom fyr- ir snilldarlegan áróður Israels- manna. Að undanfórnu hefur mátt merkja vissa framför, þótt enn haldi norskir fjölmiölar áfam að tyggja það í okkur að „Palestínuvandinn" sé í þvi fólginn að hryðjuverkum verð frá kr. 1.990 c.\4++Vl' ais\áttur ÖRNINNP* STOFNAÐ 1925 Skeifunni 11, Sími 588 9890

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.