Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 2002
DV
Fréttir
Lýðræðishetjan og friðarverðlaunahafinn Aung San Suu Kyi:
Akveðin í að færa
þjóð sinni frelsi
Baráttukonan Aung San Suu Kyi,
leiðtogi Lýðræðisbandalagsins í
Burma, helsta stjómarandstöðuflokks-
ins, hefur ekki setið auðum höndum
eftir að hafa verið leyst úr tuttugu
mánaða stofufangelsi á mánudaginn.
Sjálf segir hún að vistin hafi veitt sér
góða hvíld og að hún taki því endur-
nærð til óspilltra málanna við að
vinna að uppbyggingu raunverulegs
lýðræðis í landinu. Hún sagði í viðtali
fyrr í vikunni að þrátt fyrir að hafa
ekki haft tækifæri til að ræða náið við
sitt fólk í Lýðræðisbandalaginu þá
væri hún meira en tilbúin til að taka
við stjóm landsins, eins og hún var
kosin til í lýðræðislegum kosningum
árið 1990. Hún sagði einnig að frelsi
sínu væru engin takmörk sett og að
hún væri frjáls ferða sinna og gæti tal-
að við hvem þann sem hún vildi. Það
hefur hún líka nýtt sér og þegar hitt
sendiherra stórveldanna á fundum að-
eins degi eftir að hún var látin laus.
Tákn um nýja dögun
„Frelsi mitt er tákn um nýja dögun
í Burma og ég vona svo sannarlega að
það birti fljótlega til,“ sagði Kyi, sem
vann til friðarverðlauna Nóbels árið
1991, fyrir áralangt friðsamlegt fram-
lag sitt til lýðræðisbaráttunnar í
Burma. „Ég vonast til að geta uppfyllt
væntingar þjóðarinnar ekki síður en
skyldur mínar gagnvart Lýðræðis-
bandalaginu," bætti Kyi við en lét
jafnframt í það skína að hún væri ekki
sátt við þá afstöðu herforingjastjórnar-
innar að frelsi hennar væri aðeins
byrjunin á lýðræðislegri þróun í land-
inu. „Ég vil lýðræði án tafar og lít því
'aðeins á frelsi mitt sem fjarlæga
draumsýn," sagði Kyi.
Fullt traust milli fylkinga
Þegar Kyi var spurð hvenær hún
héldi að lýðræði kæmist á í Burma,
sagist hún vona að það yrði innan
fárra ára. „Viðræður milli herforingja-
stjómarinnar og stjórnarandstæðinga
eru þegar hafnar og hafa í raun staðið
um nokkurn tíma. Að mínu mati eru
þær komnar á það stig að fljótlega
verður hægt að byija á nánari stjóm-
málalegri útfærslu.
Við erum komin yflr versta hjall-
ann og búin að byggja upp fullt traust
milli fylkinga. Ég hlakka því til fram-
haldsins og vona að það gangi fljótt
fyrir sig,“ sagði Kyi og notaði tækifær-
ið til að þakka Razali Ismail, fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna, fyrir framlag
hans til viðræðnanna. „Þetta hefði
aldrei gengið án hans og aðstoðar
Sameinuðu þjóðanna og ég er honum
ákaflega þakklát. Hann á heiður skil-
inn.“
Viðreisn lýðræðisins
Sjálfur sagðist Razali álíta að lýð-
ræðislega kjörin stjórn myndi ekki
taka við stjómartaumunum í landinu
fyrr en að nokkrum árum liðnum.
„Herstjómin hefur þegar lýst vilja sín-
um á því að koma á lýðræði i landinu
og ég trúi því að svo verði. Þeir verða
þó að gera nánari grein fyrir ætlunum
sínum og hvemig þeir hyggjast útfæra
breytingarnar. En þetta er augljóst
merki um vilja herforingjastjórnar-
innar og vonandi byijunin á viðreisn
lýðræðisins i Burma eftir áratuga
langt einræði hersins," sagði Razali.
Talsmaður herstjómarinnar sagði i
gær aö ráðamenn hersins yrðu fljót-
Friöarboðinn Aung San Suu Kyi
„Ég vonast tii að geta uppfylit væntingar þjóöarinnar ekki síöur en skyldur mínar
gagnvart Lýöræöisbandaiaginu, “ segir Kyi, sem af sumum þykir of föst fyrir og
jafnvel ósveigjanleg gagnvart ríkjandi herforingjastjórn.
lega tilbúnir til samningaviðræðna við
Kyi, en vitað er að leynilegar viðræð-
ur hafa verið í gangi að frumkvæði
Sameinuðu þjóðanna, eöa allt frá því í
október árið 2000, stuttu eftir að Kyi
var hneppt í stofufangelsi á heimili
hennar í Rangoon.
Engin tímasetning
Kyaw Win, háttsettur foringi í
leyniþjónustu hersins, sagði eftir að
Kyi hafði verið leyst úr haldi að engin
ástæöa væri til annars en ætla að við-
ræður hæfust fljótlega, en bætti við að
engin tímasetning hefði verið ákveðin.
Þetta vom fyrstu opinberu viðbrögð
herstjómarinnar, en umræddur Win
vildi þó ekki staðfesta neitt um fyrri
viðræður eða ræða hvort þær hefðu
farið fram. „Ég vil aðeins segja það að
fullur trúnaður og traust ríkir milli
stjómvalda og Kyis. Annars hefði hún
aldrei verið látin laus,“ sagði Win.
Þegar Kyi var sjálf spurð um stööu
mála, sagði hún að helsta breytingin
lægi í afstöðu herforingjastjórnarinn-
ar til Lýðræðisbandalagsins og hugs-
anlegs samstarfs. „En það er ekki bara
fyrir Lýðræðisbandalagið sem við
berjumst fyrir auknu lýðræði og frelsi
heldur fyrir fólkið. Þetta varðar alla
þjóðina og ég er mjög ósátt við það hve
hægt gengur að fá pólitíska fanga
leysta úr haldi. Það er mjög mikil-
vægt, ekki aðeins vegna mannúðar-
sjónarmiða heldur líka pólitískt séð,“
sagði Kyi.
Lýðræöi verði tryggt
Frelsi Kyis var innilega fagnað af
þúsundum stuðningsmanna hennar
heima fyrir og sama er að segja um
þjóðarleiðtoga viða um heim. Meðal
þeirra eru Bush Bandaríkjaforseti sem
vill þó sjá meiri breytingar áður en
samskiptabanni verði aflétt.
Bandarísk stjómvöld hafa þó gefið
fulltrúa Burma leyfi til að sækja al-
þjóðlega ráðstefnu um eiturlyfjavand-
ann sem hefst í Washington í næstu
viku og hefur það vaidið nokkru
flaðrafoki innan bandariska þingsins.
Tom Lantos, sem sæti á í utanríkis-
málanefnd, segir það algjör mistök að
létta samskiptabanninu með þessum
hætti áður en nokkur vissa sé fyrir
því að lýðræði verði tryggt. Bandarísk
stjómvöld segja aftur á móti að þátt-
taka fulltrúans frá Burma, sem sé yfir-
maður fikniefnaeftirlitsins í landinu,
hafl löngu verið ákveðin og í engum
tengslum við frelsun Kyis.
Aukinn alþjóðaþrýstingur
Það er öllum ljóst að aukinn þrýst-
ingur alþjóðasamfélagsins og svo að
segja algjör einangrun herstjórnarinn-
ar, hefur gert henni mjög erfltt fyrir
og í raun þvingað herforingjana til að
láta undan þrýstingi.
Aðeins gott samband við Kína hefur
fram að þessu gert þeim mögulegt að
halda völdum í þau þrettán ár sem lið-
in eru frá blóðugri valdatöku fyrir
rúmum þrettán árum, en síðan hafa
Evrópusambandslöndin auk Banda-
ríkjanna slitið öll samskiptatengl við
Burma vegna meintra mannréttinda-
brota.
Herstjórninni tókst þó með tíma-
bundinni aðstoð Kínveija, Indveija og
Taílendinga að halda aðeins í horfinu,
en með auknum áhrifum Bandaríkja-
manna í Asíu í kjölfar hryðjuverka-
árásanna hefur svo enn hallað á
ógæfuhliðina og herstjómin því knúin
til viðræðna við Kyi.
Allt eða ekkert
Kyi nýtur mikillar hylli meðal al-
mennings, ekki aðeins sem helsti tals-
maður lýðræðis í landinu, heldur
einnig sem dóttir sjálfstæðishetjunnar
Aung Sans hershöíðingja, sem þátt tók
í sjálfstæðisbaráttu landsins og tekinn
var af lifi af andstæðingum sínum ár-
ið 1947 þegar Kyi var aðeins tveggja
ára.
Þrátt fyrir það hefur hún ekki alveg
verið laus við gagnrýni og finnst sum-
un sem hún hafa verið helst til föst á
sínu og ósveigjanleg í afstöðu sinni
gagnvart hugsanlegri samvinnu við
herforingjastjómina, þar sem krafa
hennar hefur verið allt eða ekkert.
Með hjálp Malæjans, Razali Ismail,
fulltrúa SÞ, hefur síðan komist hreyf-
ing á málið og fyrstu blikur á lofti um
breytingar í lýðræðisátt eftir fjörutíu
ára herstjórn í landinu frá árinu 1962.
Þá tók Ne Win herforingi völdin i sín-
ar hendur og kom á sósíalískum ríkis-
búskap.
Spor í rétta átt
Að flestra dómi er frelsi Kyis spor í
rétta átt, en eins og hún segir sjálf
ekki nóg til að fagna sigri. Hún er
reyndar ýmsu vön í samskiptum sín-
um við herforingjana og tekur því
nýrri slökunarstefnu þeirra með
nokkrum fyrirvara, enda hefur hún
meira og minna verið í gjörgæslu
þeirra allt frá árinu 1989.
Þá var hún nýkomin til landsins eft-
ir átján ára útiveru eftir að hafa fyrst
flutt með móður sinni til Delhi, þar
sem móðir hennar tók við stöðu sendi-
herra Burma í Indlandi. Þar eignaðist
hún góða vini eins og þá Rajiv og
Sanjay, syni Indiru Gandhi. Árið 1964
lá leið hennar síðan til Englands þar
sem hún stundaði nám í heimspeki,
stjómmálum og hagfræði við Oxford-
háskóla, en þar kynntist hún eigin-
manni sínum, háskólakennaranum
Michel Aris.
Önnur lota sjálfstæðisbaráttu
Árið 1988, eftir að hafa búið í Japan,
Bhutan og síðan Englandi og eignast
þar tvo syni, fór hún aftur heim til
Burma til að vera við sjúkrabeð móð-
ur sinnar. Mikill órói var þá í landinu
og flykktist fólk út á götur höfuðborg-
arinnar, Rangoon, til að mótmæla
slæmu efnahagsástandi og heimtaði
lýðræði frá ríkjandi herforingjastjórn.
„Sem dóttir foður míns gat ég ekki
horft upp á neyðina og óréttlætið í
landinu," sagði Kyi seinna í viðtali og
bætti við að þetta hefði í raun verið
önnur lota sjálfstæðisbaráttu þjóðar-
innar.
Hún hellti sér af krafti út í barátt-
una gegn ríkjandi valdhöfum og var
fljótlega komin í fremstu röð stjórnar-
andstæðinga, gagntekin áhuga og inn-
blæstri um réttlátara samfélag, með
friðsamar baráttuaðferðir þeirra Ma-
hatma Gandhis og Martins Luther
Kings að leiðarljósi. Með það i fartesk-
inu fór hún víða um land og boðaði
friðsama baráttu fyrir lýðræði og
frelsi. Sú barátta endaði með blóðbaði
í september árið 1988 eftir að herinn
hafði tekið til sinna ráða.
Afgerandi sigur
Tveimur árum síðar boðaði her-
stjómin til kosninga í maí árið 1990,
þar sem friðarboðinn Aung San Suu
Kyi vann afgerandi sigur, þrátt fyrir
að hafa á þeim tima dvalið í stofufang-
elsi, en eins og áður sagði neitaði her-
stjómin að gefa eftir völdin og stendur
nú frammi fyrir einu versta efnahags-
ástandi í sögu landsins og kröfu fólks-
ins um lýðræði.
Árið 1999 varð Kyi fyrir miklu áfalli
þegar eiginmaður hennar lést úr
krabbameini. Herforingjastjómin gaf
henni fararleyfi til Bretlands til að
vera við sjúkrabeð hans, en það þáði
hún ekki af hræðslu við að fá ekki að
hverfa heim aftur. Þá hafði hún verið
aðskilin frá eiginmanninum í þrjú ár
og fékk þetta mikið á hana.
En hún hefur ekki látið bugast og
nú ellefu árum eftir að hún hlaut frið-
arverðlaun Nóbels, sem synir hennar
móttóku fyrir hennar hönd, er hún
enn ákveðnari í baráttu sinni, ákveðin
í að færa þjóð sinni frelsi.
Kirkjuumsátri lokiö
Fimm vikna umsátri israelska
hersins um Fæðingarkirkjuna í Bet-
lehem lauk á fóstudagsmorgun. Á
annað hundrað manns, þar á meðal
kirkjunnar menn og óbreyttir borgar-
ar, höfðu leitað skjóls í kirkjunni.
Fyrstir til að yfirgefa kirkjuna voru
þrettán palestínskir vígamenn sem
voru eftirlýstir af ísraelum. Þeir voru
fluttir rakleiðis til Ben Gurion-flug-
vallar þaðan sem flogið var með þá til
Kýpur. Aðrir 26 palestínskir baráttu-
menn voru fluttir með langferðabílum
tfl heimastjórnarsvæðisins á Gaza.
Fólkið sem hafðist við í kirkjunni bjó
við mjög þröngan kost mestallan tím-
ann, þar sem bæði vatn og matur voru
af skornum skammti.
Sjálfsmorðsárás í ísrael
Palestínumaður
varð fimmtán ísrael-
um að bana þegar
hann sprengdi sig í
tætlur á Ijölmennum
skemmtistað í bæn-
um Rishon Letzion
skammt frá Tel Aviv
á þriðjudagskvöld. Tugir manna særð-
ust einnig í árásinni. Þetta var fyrsta
sjálfsmorðsárásin i Israel í þrjár vik-
ur. Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, hraðaði sér heim frá Was-
hington þar sem hann var til að ræða
við Bush Bandaríkjaforseta. Að venju
kenndi hann palestínskum yfirvöld-
um og Yasser Arafat, forseta Palest-
ínumanna, um árásina.
Tvö flugslys í vikunni
Á annað hundrað manns létu lífið í
tveimur flugslysum í vikunni. Kín-
versk farþegaþota steyptist í hafið
þegar hún var að koma inn til lend-
ingar í Peking á þriðjudag og fórust
allir sem um borð í vélinni voru, 112
manns. Sama dag flaug egypsk far-
þegaþota á hæð þegar hún var að búa
sig til lendingar á flugvellinum í Tún-
is. t því slysi fórust tuttugu manns en
nokkrir tugir manna sluppu lifandi.
Kallsberg situr áfram
Anfinn Kallsberg,
lögmaður Færeyja,
tilkynnti á þriðju-
dagskvöld að hann og
stjóm hans myndu
sitja áfram, þrátt fyr-
ir að hafa ekki lengur
meirihluta í færeyska
lögþinginu, þar sem tilraunir hans til
að mynda breiða samsteypustjórn
höfðu ekki borið árangur. Fylkingar
stjórnar og stjórnarandstöðu hafa
sextán þingmenn hvor eftir kosning-
amar í apríllok. Leiðtogar stjórnar-
andstöðuflokkanna voru óhressir með
ákvörðun lögmannsins og á miðviku-
dag héldu stjórnmálaforingjar áfram
viðræðum sínum en hvorki gekk né
rak.
Kosningum ekki frestaö
Stjómvöld í Hollandi ákváðu í vik-
unni að fresta ekki þingkosningunum
15. mai, þrátt fyrir morðið á stjóm-
málamanninum Pim Fortuyn í síð-
ustu viku. Öfgasinnaður dýravemd-
unarsinni hefur verið ákærður fyrir
að myrða Fortuyn, sem var lengst til
hægri í hollenskum stjómmálum og
barðist meðal annars gegn veru út-
lendinga í landinu. Flokki Fortuyns
hafði verið spáð miklu fylgi í kosning-
unum.
Chirac sigraði Le Pen
Jacques Chirac var endurkjörinn í
embætti Frakklandsforseta um síð-
ustu helgi þegar hann sigraði hægri-
ofstækismanninn Jean-Marie Le Pen
með yfirburðum, fékk 82 prósent at-
kvæða gegn átján prósentum andstæð-
ingsins. Maður hafði gengið undir
manns hönd, jafn hægrimenn sem
vinstri, til að tryggja sigur Chiracs.
Margir vinstrimenn greiddu honum
þó atkvæði sitt með óbragð í munnin-
um.