Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR II. MAÍ 2002
Helqarblaö J3V
33
H-
Friðrik saxar grænmetið sem fer
bæði í skötuselsréttinn <>)> svart-
fuglsréttinn. Friðrik velur
einfalda matreiðsluaðferð þar
sein þéttur fiskurinn fær að
njóta sín.
Friðrik segir slæmt að ofelda
skötusel, hann verði þurr og
niissi bragð eins og annar ofeld-
aður fiskur. Möguleikar í eldun
skötusels séu þó fjölmargir og
þar spialr alls kvns grænmeti
stórt hlutverk.
Svartfugl er meðhöndlaður á
svipaðan hátt og annað kjöt.
Friðrik segir mikilvægt að
hreinsa alla fitu af briiigunum
því hún gefi helst lýsisbragð.
DV-myndir Hari
Ástralskt sumarvín og
Banfi Gentine frá Italíu
- er val Sverris Eyjólfssonar
Sverrir Eyjólfsson hjá Lind valdi vín frá Italíu,
gamalgrónu vínræktarlandi, og Ástralíu sem er
nýrri í vitund íslendinga sem vínræktarland en hef-
ur slegið rækilega í gegn á undanförnum árum fyrir
vín.
Ef við byrjum á aðalréttinum, skötuselnum, þá
varð Rosemount GTR hvítvín frá Ástralíu fyrir val-
inu en það á rætur að rekja til Hunter Valley.
Rosemount er í dag i eigu Southcorp sem er
langstærsti framleiðandi vína í Ástralíu og þótt víð-
ar væri leitað. Rosemount er stofnað 1969 af Bob
Oatley. Philip Shaw, sem þykir snillingur á sínu
sviði, hefur aðallega séð um gerð vína fyrir Ros-
emount og gerir enn. Rosemount-vínlínan hefur und-
anfarin ár verið gríðarlega vinsæl hjá landanum.
Rosemount GTR er nýtt vín í þeim hópi. GTR stend-
ur fyrir Gewurztraminer Riesling en vínið er blanda
úr tveimur þrúgum sem eru hvað þekktastar í Al-
sace-héraðinu í Frakklandi. Verða áhugamenn um
vín ekki sviknir frekar en af öðrum Rosemount-vín-
um. Rosemount GTR er ekki hefðbundið vín. Það er
fölgrænt, ilmurinn er ferskur með keim af sumar-
blómum. Sætur keimur sem minnir á
Gewurztraminer kemur vel fram með tón af fersk-
leika frá Riesling-þrúgunni. Rosemount GTR er mik-
ið sumarvín. Auk þess að passa vel við sköutselsrétt-
inn hans Friðriks hentar þetta vín vel með austur-
lenskum mat og hvers konar fiski. Rosemount GTR er
sérlega ljúft á fallegum sumarkvöldum á veröndinni
eftir vel heppnaða grillmáltíð. Rosemount GTR kost-
ar 1.360 krónur hjá ÁTVR.
Sverrir valdi Centine frá Toskana á Ítalíu með
svartfuglinum. Centine kemur frá einum af
virtasta framleiðanda Italíu, Castello Banfi í
Montalcino, vingarði í eigu Mariani-fjölskyld-
unnar. Saga Banfi nær aftur til 1950 ogjiefur
orðstir þeirra i vínframleiðslu vaxið hratt.
Þekktust vina Castello Banfi eru trúlegast
risarnir Brunello di Montalcino og Castello
Banfi „Summus", en bæði vínin éru fáanleg
hjá ÁTVR. Castello Banfi hefur verið útnefndur
vínframleiðandi ársins á hverju ári á Ítalíu frá
1994. Banfi Centine er blanda úr þremur þrúgum
- 60% Sangiovese, 20% Cabernet Sauvignon og
20% Merlot. Þessi blanda gerir Banfi Centine að
mjög skemmtilegu matarvíni sem hentar vel
með fjölbreyttum mat. Krafturinn kemur með
Sangiovese, ilmurinn af Cabernet og mýktin og
ávöxturinn frá Merlot. Centine hefur bjartan
rauðan lit, mikinn ávöxt í lykt og í bragði er
vínið langt, ferskt og í mjög góðu jafnvægi. Gott
er að drekka Centine með pasta eða grillkjöti,
bæði rauðu og hvítu kjöti. Banfi Centine kostar
1.480 krónur hjá ÁTVR.
Umsjón
I laukur Lárus
Hauksson