Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2002, Page 36
36
Helqarblað H>"Vr LAUGARDAGUR II. MAÍ 2002
>
o
Stj órnmálamenn
gleymast mjög hratt
/1/iðtali kemur Davíð Oddsson
forsætisráðherra víða við. Ræðir um Evr-
ópusambandið, ríkisábyrqð til íslenskrar
erfðaqreininqar, samskipti við fjölmiðla,
borqarmál oq skáldskap.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON SEGIR AÐ skoöanakönnun
forsætisráðuneytisins um viðhorf íslendinga til Evrópu-
sambandsins sé ekki marktæk. Það er ljóst að ágreining-
ur er milli ykkar i Evrópumálunum. Hversu alvarlegur
er hann?
„Við erum hvor með sínar áherslurnar en samein-
umst um niðurstöðu ríkisstjórnarinnar sem er að sækja
ekki um inngöngu I Evrópusambandið. Við Halldór
erum ekkert að rífast um þetta og samkomulag milli
okkar er gott. Halldór hefur heldur aldrei sagt að hann
vilji að ísland fari inn í Evrópusambandið, þótt hann tali
nú ansi nærri þvi.
Það er rétt hjá Halldóri og öðrum að sú skoðanakönn-
un sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir forsætisráðu-
neytið þarf ekki aö segja af neinni nákvæmni hver af-
staða landsmanna er til ESB á þessari stundu. Það sem
hún gefur til kynna hins vegar er að ef menn fara út í
samninga við ESB og leggja niðurstöðuna undir þjóðar-
atkvæðagreiðslu þá verður samningurinn felldur með 90
prósent atkvæða. Þarna skiptir fiskveiðistefna sam-
bandsins griðarlega miklu, fólk setur hana greinilega
fyrir sig. Meira að segja Úlfar Hauksson, starfsmaður
Evrópusambandsins, sem virðist sanntrúaður Evr-
ópusinni, viðurkennir að endanleg ákvörðun um fisk-
veiðar íslendinga verði tekin í Brussel en ekki á Islandi.
Frá þessu verða ekki veittar undanþágur, ólikt því sem
menn hafa verið að reyna að gefa i skyn. Því fyrr sem
menn átta sig á því, því minni tíma eyða þeir í þessa vit-
leysu.
Menn eru aö deila um hversu mikið aðild að ESB
muni kosta okkur. Ég segi að hún muni kosta 10-12 millj-
arða á ári, aðrir nefna eitthvaö lægri tölur. Hér í ráðu-
neytinu höfum við farið yfir okkar tölur og sjáum ekki
betur en þær standist. Sú tala sem ég nefni miðast við
gjald eftir stækkun ESB. Ég tek eftir því að fréttastofa
útvarps lætur eins og hægt sé að miða við tölur sem eru
greiddar fyrir stækkun sambandsins. Það er ekki hægt.
Þær tölur munu næstum því tvöfaldast eftir stækkun-
ina.“
- Andstæðingar þínir hafa gjarnan sagt að þú viljir
ekki umræðu um Evrópusambandið. Nú segist þú vilja
umræðu. Er það misskilningur að þú hafir ekki viljað
umræðuna eða hefur þér snúist hugur?
„Þeir sem hæst tala hér á landi um kosti Evrópusam-
bandsins láta gjarnan eins og þeir sem tala um Evrópu-
sambandið og eru á móti inngöngu séu ekki að taka þátt
í umræðunni. Það séu bara þeir sem tala um Evrópu-
sambandið og segjast vilja fara í Evrópusambandið sem
eru þátttakendur í umræðunni. Ég skil ekki þessi rök.
Ég vil umræðuna því þá mun koma í ljós hvað við get-
um fengið og hvað við getum ekki fengið. Ég hef alltaf
sagt: Ef menn bjóða mér upp í dans þá verða þeir að hafa
í huga að ég gæti tekið boðinu. Þetta lærði ég á mínum
yngri árum. Ég var lélegur dansari og ef kona bauö mér
upp í dans og ég sagði já takk gat hún átt von á því að
ég trampaði á tánum á henni. Það er hættan.“
- Nú hefur forseti íslands lýst þeirri skoðun sinni að
Islendingar hafi ekkert að gera í Evrópusambandinu. Ef
forseti íslands er sameiningartákn þjóðarinnar, á hann
þá að þínu mati að tjá sig um svo viðkvæmt deilumál?
„Ég ætla ekki að hafa afskipti af því hvernig hann
heldur á sínu embætti. Ef hann fer hins vegar að tala
mikið um pólitik þá svara menn honum og þá er hann
kominn í pólitískar þrætur og deilur. Um leið breytist
eðli embættisins. Vill þjóðin það? Það er ekki mitt að
svara því. Ég tek hins vegar eftir því aö þegar forsetinn
lýsti skoðunum sem voru Samfylkingunni þóknanlegar
þá mættu Samfylkingarmenn og sögðu að forsetinn
mætti tjá sig að vild en um leið og hann fór að tala um
efni sem þeim likaði ekki þá mátti hann ekki lengur tjá
sig. Þegar Norðurlandaráð bað forsetann að tala um lýð-
ræðisþróun í heiminum og alþjóðahyggju þá hlaut hann
að tala eins og hann gerði. Eða átti hann kannski að fara
að tala um veðrið?"
Ríkið hefur grætt á Kára
- Víkjum aðeins að ríkisábyrgð til íslenskrar erfða-
greiningar. Greinilega mjög umdeilt mál og eftir því er
tekið að vinur þinn, Jón Steinar Gunnlaugsson, hefur
skrifað gegn þessari ákvörðun.
„Ekki bara það, heldur hefur hann hellt sér yfir mig.
Hann er mjög hneykslaður á þvi að ég skyldi hafa for-
ystu um þessa ríkisábyrgð og lét mig sannarlega heyra
það í löngu samtali örskömmu eftir að ég kom til lands-
ins frá Víetnam. Þegar ég heyrði í honum sagði ég: „Jón
minn, ég heyri að ég er kominn heirn." Til þess eru vin-
ir manns að segja manni nákvæmlega hvað þeim býr í
brjósti. Ég veit að Jóni Steinari er mjög umhugað um
mína pólitísku velferð og gagnrýni hans er alltaf sett
fram af einlægni og þunga.“
- Maður hefur heyrt fólk fullyrða að þetta sé vonlaust
fyrirtæki sem muni ekki skila árangri. Hefuir þú
óbilandi trú á fyrirtækinu?
„Það eru augljóst að margir óska þess innilega að
þetta fyrirtæki fari illa. Mér finnst ótrúlegt að svokallað-
ir vísindamenn skuli taka upp á því að senda út í heim
níðgreinar um fyrirtækið. Ég skil ekki hvernig það fólk
er innréttað. Hvaða tilfmningum er það að svala með
þannig framgöngu? Mér finnst þetta fyrirtæki vera
kraftaverki líkast og óska þess innilega aö það beri
ávöxt. Það er margt sem bendir til þess, en þó er ekki
hægt að ganga að því sem vísu fremur en flestu öðru.
Fram að þessu hefur ríkið bara grætt á Kára Stefáns-
syni. Það hefur haft gríðarlegar skatttekjur af því fólki
sem Kári hefur fengið hingað til lands og borgað há
laun. Hingað til hefur hann hyglað okkur en við ekki
honum.“
- Eruð þiö vinir?
„Við erum gamlir skólafélagar, vorum oft á öndverð-
um meiöi og erum það stundum enn að vissu leyti. Við
erum ekki í nánasta vinahóps hvor annars en ég hef
gaman af að tala við Kára og umgangast hann. Hann er
vísnamaður ágætur og sögumaður mikill. Mjög sérstak-
ur maður. Hann er ekki auðveldur maður og kannski
stundum full flókinn fyrir sjálfan sig. Hann á til að vera
hranalegur við fólk umfram öll efni. Afar erfiður en það
á við um marga afburðamenn og Kári er afburðamaður."
Er ekki skemmtikraftur
- Víkjum að öðru fyrirtæki, Ríkisútvarpinu. Er þar
ekki allt í rúst?
„Ekki held ég það en þar eru fjárhagsörðugleikar sem
leysast, 200 milljónir sem út af standa, sem eru kannski
„kortersárgjald" aö Evrópusambandinu, svo talað sé af
nokkrum galsa. Hugsanlega er úvarpið fullstaðnað og að
mínu áliti hefði það gott af að fara í gegnum breytingar.
Það er ekki samkomulag innan ríkisstjórnarinnar um
breytingar, menn virðast trúa því að kyrrstaða sé það
besta. Ég er ekki trúaður á það en þrýsti ekki á um
breytingar."
- Finnst þér fréttastofa útvarps stundum vera þér
andsnúin?
„Ég er ekkert upptekinn af því. En þar fóru menn út
af sporinu í hlægilegum fréttatíma um skoðanakönnun
Félágsvísindastofnunar. Það var eins og menn hefðu
misstu fótanna, þeim varð svo um og ó. Kannski hefur
fulltrúi Gailup hrært svona upp í þeim. Hann virðist
hafa komist í uppnám, eins og Evrópusambandið væri á
hans vegum, sem mér er ókunnugt um. En framvegis
hlýtur maður að skoða kannanir hans með tilliti til
þess.“
- Fjölmiðlamenn kvarta stundum undan því að þú
stjórnir ferðinni í samskiptum við þá.
„Það er meira og minna ímyndun. En það eru ótrúleg-
ustu hlutir sem ég er sagður stjórna. Ég sat heima með
konunni á fóstudagskvöldi og sá Gunnar Smára í íslandi
í dag segja að ég væri núna að atast i Kvikmyndasjóði út
af Þorfinni Ómarssyni og væri búinn að setja á mikla
rannsókn. Ég starði eins og naut á nývirki og Ástríður
spurði undrandi: „Ekki ertu eitthvað-að stússast í
þessu?" Ég var jafnvel hræddur á tímabili að hún tryði
því. Ég vissi ekkert um málið og ætlaði að kynna mér
það daginn eftir en hafði ekki tíma til þess. Svo sá ég í
DV að málið snýst um óreiðu á reikningsfærslum sem ég
hef aldrei heyrt um. Maður hugsar með sjálfum sér
hvort fólk ætli virkilega að trúa því að ég sé niðri í for-
sætisráðuneytinu með Þorfinn Ómarsson á heilanum?"
- En hvað segirðu um þá gagnrýni sem stundum heyr-
ist að þú mætir ekki öðrum í kappræðum í sjónvarpi?
„Ég geri það fyrir kosningar og finnst það nóg. Ég hef
ekki áhuga á stjórnlausum umræðum þar sem menn
keppast um að taka tima hver af öðrum og sá er talinn
hafa unnið umræðuna sem lengst hefur haldið orðinu.
Ef menn eru að biðja mig um að taka þátt í því að mæta
í þætti til að segja: „Má ég, má ég“ þá geta þeir fengið
aðra í það. Það virðist næg eftirspurn eftir því að taka
þátt i slíku. Ekki ætla ég að taka af þeim plássið. Ég ætti
ekki að fá laun sem forsætisráðherra ef ég tæki að mér
að vera skemmtikraftur úti í bæ.“
Óstjórn R-listans
- Víkjum að borgarmálum. Hvað heldurðu að valdi
því að R-listinn hafi fremur ríflegt forskot á D-listann?
„Ég átta mig ekki alveg á því. Mér finnst það ósköp
dapurlegt því það vantar allar forsendur fyrir því. Síð-
ustu átta ár hefur borgin haft mestu tekjur sem sögur
fara af en á þessum mestu velgengnisárum þjóðarinnar
hefur R-listanum tekist að setja allt á annan endann í
fjármáium. Mér datt ekki í hug að þau myndu verða
svona fljót að þvi. Nýjustu tölur sýna að þeir sem kjósa
R-listann koma Helga Hjörvar að og þeir sem kjósa D-
lista koma Gísla Marteini að. Ég er ekki í vafa hvað ég
mundi gera i því efhi.“
- Margir nefna þá skýringu að Ingibjörg Sólrún sé það
sterkur leiðtogi að enginn geti velt henni úr sessi. Hvert
er þitt mat á henni sem stjórnmálamanni?
„Hún hefur ýmsa kosti en hún stjórnar ekki borginni.
Það eru allt aðrir menn sem þar stjórna."
- Hverjir?
„Lautinantarnir sem þarna eru ráða ferðinni. Besta
dæmið er þegar Alfreð Þorsteinsson tilkynnti að hann
ætlaði að kaupa hlut í Símanum fyrir 12 til 18 milljarða,
ef forstjóri Orkustofnunar væri sammála honum. Hann
minntist ekki orði á vilja eða samþykki borgarstjóra.
Daginn eftir kom Ingibjörg Sólrún hlaupandi í fréttirnar
til að fá að vera með og sagði að líklega væri þetta voða
góð hugmynd. Ingibjörg Sólrún er sniðugur stjórnmála-
maður að því leyti að henni hefur tekist að viðhalda
þeirri blekkingu að hún stjórni borginni en sú blekking
mun ekki halda lengi.“
- Heldurðu að hún verði framtíðar keppinautur þinn
um stól forsætisráðherra?
„Það hef ég ekki hugmynd um. Hún afneitar því. Verð-
um við ekki að trúa því að hún segi satt, þótt hún hafi
reyndar sagt margt ósatt í þessari kosningabaráttu."
- Maður veltir fyrir sér framtíð Björns Bjarnasonar.
„Björn fer í þennan slag án þess að vera með nokkurt
björgunarnet. Það segir heilmikið um hann. Hann er
ekki ævintýramaður sem er að byrja í pólitík og veður
því í háskaleik. Björn trúir því að brýn nauðsyn sé á að
skipta um stjóm í borginni og hann gefur sig allan í það
verkefni. Ingibjörg Sólrún segir hins vegar að ef hún
vinni ekki þá sé hún bara farin og muni ekki sinna borg-
LAUGARDAGUR II. MAÍ2002
Helcjarblað DV
37
inni. Hvort sem Björn vinnur eða tapar ætlar hann að
sinna borgarmálum."
Lít ekki til baka
- Sjálfstæðisflokkurinn sýnist mjög hollur formanni
sínum og þar ber ekki mikið á ágreiningi. Þú ert þó með
háværan mann í liðinu sem er stundum óhlýðinn og sá
er Pétur Blöndal.
„Pétur kýs að fara sínar eigin leiðir í ýmsum málum
og axla ekki ábyrgð með sama hætti og við hin. Það er
stundum erfitt fyrir flokkssystkini hans sem sveigja frá
sinni innstu sannfæringu í einstaka málum af því flokk-
urinn vinnur saman sem hópur. Pétur kvartar stundum
undan því að hafa ekki áhrif en þau hefur hann innan
þingflokksins. Hann er afskaplega skýr á einstök mál og
ýmis mál sem hann hefur rekið í homin hafa menn lag-
að í þingflokknum vegna ábendinga og athugasemda frá
honum. Þannig að hann hefur meiri áhrif en hann vill
vera láta. Hann er óþolinmóður en ágætismaður."
- Nú ertu búinn að vera forsætisráðherra í tólf ár.
„Nei, bara ellefu. Ég er rétt að byrja.“
- Hvaða ráöherrum hefur verið best að vinna meö? Er
þetta kannski erfið spurning?
„Hún er erfið núna og kannski ósanngjörn af því ég er
enn þá í ríkisstjóm. Ég held að ég hafi unnið með 25 ráð-
herrum. Það eru ör skipti á ráðherrum því menn lýjast
í því embætti. Ekki af því að þetta sé meiri vinna en hjá
öðru fólki, nema kannski á köflum, en það er mikið
áreiti og menn eru mjög mismóttækilegir fyrir því.“
- Samráðherrar þínir bera þér allflestir vel söguna en
það er talað um að ykkur Jóni Baldvini hafi samið vel í
byrjun en svo hafi allt farið í hund og kött. Fannst þér
erfltt að vinna með honum?
„Það var að mörgu leyti mjög skemmtilegt að vinna
með Jóni, reyndar á köflum afar skemmtilegt. En hann
gat verið erfiður, fljóthuga og ör og átti til að segja hluti
í stundarstemningu sem komu sér ekki vel í ríkisstjórn-
arsamstarfi. Ég var afar hrifinn af því hvernig hann stóð
að málum í sambcmdi við Eystrasaltslöndin og það mun
halda nafni hans á lofti. Það sem hann hefur sagt nei-
kvæðast um mig sagði hann eftir að hann fór úr ríkis-
stjóm. Það er mannlegt. Hann kennir mér um. En það
sem gerðist var að hann missti tökin á þingflokki sínum.
ÞcU var órói, en þó ekki jafn mikill og í núverandi þing-
flokki Samfylkingar þar sem allt logar stafna á milli. En
Jóni leiddist að hafa stjórn á þingflokknum, kom stund-
um inn í þingflokkinn og æsti hann upp bara sér til gam-
ans.
Alþýðuflokkurinn klofnaði og missti fylgi. Ég er sann-
færður um að ef Alþýðuflokkurinn hefði haft sama fylgi
áfram eftir kosningarnar 1995 þá hefði hann setið áfram
í ríkisstjórn, þrátt fyrir að á milli okkar Jóns væri
ákveðin togstreita, sem ég tel þó ekki hafa verið alvar-
lega.“
- Ef þú lítur til baka, hvaða verkum ertu stoltastur af
í forsætisráðherratíð þinni?
„Veistu, ég er ekki byrjaður að líta til baka. Ég ætla
ekki að fara að gera verk mín upp, nema kannski þegar
ég kemst á grobbaldurinn, ef ég lifi svo lengi sem er ekk-
ert víst.
Ég hef fengið gríðarleg tækifæri á þessum ellefu árum
til að láta að mér kveða og þar með allmörg tækifæri til
að gera mistök. Ég hef gert mistök en vona samt að
meira sé af plúsum en mínusum. Annars finnst mér að
það eigi ekki að vera ég sem dragi fram það sem miður
hefur farið hjá mér, enda eru nægir til þess. Afrek?
Kannski er það hluti af afrekunum hvað ég er gagnrýnd-
ur mikið fyrir að ljá máls á ríkisábyrgð fyrir íslenska
erfðagreiningu. Það hefur breytt hugarfarinu hér og um-
ræðunni. Þannig að sú gagnrýni er kannski dulið lof í
minn garð.“
- Hverjir eru þínir uppáhaldsstjórnmálamenn í sög-
unni?
„Maður festist náttúrlega í frösum í þeim efnum.
Nefnir stjórnmálamenn sem fá tækifæri til að njóta sín
þegar stundin kallaði, eins og Churchill. Ef stundin
hefði ekki kallað hefði hann sennilega fengið þann dóm
sögunnar að hafa verið skemmtilegur stjórnmálamaður
en hálf misheppnaður. Hann var merkur. Ég hef haldið
mikið upp á Truman af því hann var klár og skýr og var
„Eg hef tekid eftir því að ef menn verða of
nánir manni þá er það notað gegn þeim með
ótrúlegum hœtti. Og ef þeim gengur vel er
talið að ég hafi verið að greiða götu þeirra,
þótt ég hafi hvergi komið nærri. Ef þeim
gengur illa er það stundum af því að einhver
leggur stein í götu þeirra til að koma höggi á
mig. Þannig að ég gœti mín að vera ekki of
nærri því fólki. Eins gæti ég mín á því, eins
og ég get, að fólk sé ekki að sogast inn á mig
af einhverjum annarlegum ástæðum. Það eru
svo sem ekki margir sem reyna það, en ég hef
séð aðra lenda í slíku. “
ekki með neitt moð. Hann vildi ná árangri en var alveg
sama hverjum var eignaður heiðurinn. í stjórnmálum
eru menn oftast nær að velta meira fyrir sér hverjum er
eignaður heiðurinn heldur en hver það er sem nær ár-
angri. Síðari tíma forsetar í Bandaríkjunum hafa ekki
risið yfir meðallagið. Þó kannski Nixon með öllum sín-
um mörgu göllum. Það var heilmikið áræði af hans hálfu
að brjóta Bandaríkjunum leið til Kína.“
Fer ekki of nærri fólki
- Þarf maður í þinni stöðu ekki að vera nokkuð á
verði gagnvart fólki og halda því í ákveðinni fjarlægð?
„Ég geri það meira ómeðvitað en meðvitað og vil það
síður. Ég hef tekiö eftir því að ef menn verða of nánir
manni þá er það notað gegn þeim með ótrúlegum hætti.
Og ef þeim gengur vel er talið að ég hafi verið að greiða
götu þeirra, þótt ég hafi hvergi komið nærri. Ef þeim
gengur illa er það stundum af því að einhver leggur
stein í götu þeirra til að koma höggi á mig. Þannig að ég
gæti mín að vera ekki of nærri því fólki. Eins gæti ég
mín á því, eins og ég get, að fólk sé ekki að sogast inn á
mig af einhverjum annarlegum ástæðum. Það eru svo
sem ekki margir sem reyna það, en ég hef séð aðra lenda
í slíku.“
- Átt þú þér nána ráðgjafa?
„Já, en ég nefni þá ekki til sögunnar vegna þess að þá
væri ég að varpa ábyrgð á mínum mistökum yfir á þá.“
- En þú vilt ekki nefna dæmi um þín mistök?
„Nei, ekki núna. Það getur líka verið að ég sé að of-
meta sum þeirra. I minu starfi þarf ég að byggja mjög
mikið á áliti annarra. Ég verð að geta treyst fólki og
verð að velja gott fólk í kringum mig. Það fólk gerir mis-
tök, rétt eins og ég, sem verða mín mistök en ég vil ekki
og get ekki kennt því fólki um. Ég vona bara að hlutfall-
ið milli réttra ákvarðana og rangra sé í lagi.“
Þarf ekki á lesendum að halda
- Ég frétti af þér á bókaþingi í Þýskalandi og aðrir ís-
lendingar sem þar voru segja þig hafa slegið í gegn.
„Ekki veit ég hvort ég sló í gegn en þessi ferð var
krydd í mína tilveru. Ég var undrandi á þeim góðu við-
tökum sem ég fékk. Steidél, útgefandi minn, sagði mér
að hann myndi senda mér æ fleiri úrklippur, því bókin
hefði fengið mjög góða dóma hjá mönnum sem hann tek-
ur mikið mark á. Það gladdi mig. Ég hafði verið ráðinn
í því að láta dóma ekki halda fyrir mér vöku en egóið í
manni er þannig að góðir dómar kitla. Hins vegar hef ég
ekki þá sterku sannfæringu að ég sé snillingur í rithöf-
undastétt, sem er tilfinning sem ég held að atvinnurit-
höfundar þurfi að hafa.“
- Hvað skiptir þig miklu máli að skrifa? Gætirðu ver-
ið án þess?
„Það gæti ég ekki. En það myndi nægja mér að skrifa
bara fyrir mig og Ástríöi. Ég hef ekki brennandi þörf fyr-
ir að gefa út verk mín. Ég þarf þess ekki, hvorki af fjár-
hagslegum ástæðum né tilfinningalegum. Ég er ekki orð-
inn slíkur alvöru rithöfundur að ég þurfi á lesendum að
halda.“
- En kemur bók um næstu jól?
„Ég vona að það náist að koma út smásagnasafni."
- Þú ert í mjög erfiðri stöðu, þú ert forsætisráðherra
og gefur út bækur. Stór hópur manna mun aldrei geta
metið skrif þín hlutlaust. Truflar það þig?
„Nei, en ég er stundum undrandi á því að sumir virð-
ast ekki geta unnt mér þess að skrifa, reiðast jafnvel, og
geta ekki hugsað sér að lesa það sem ég skrifa. Ég hélt
að stjórnmálin væru orðin þannig hér á landi að þar
rikti ekki þessi mikla harka þar sem menn væru annað-
hvort vondir kallar eða góðir kallar. En það lifir lengi í
þeim gömlu glæðum."
- Hvað ætlarðu að gera þegar þú hættir afskiptum af
stjómmálum?
„Ég átta mig ekki á því hvar mig myndi bera niður.
Það fer eftir því hvenær ég hætti og á hvaða aldri. Ég
held að stjórnmálamenn gleymist mjög hratt. Sagnfræð-
ingar munu vita að þeir voru til en ég held að þeir hverfi
mjög hratt úr lífi fólksins í landinu. Það held ég að sé
mjög þægilegt og ég hlakka til þess.“
-KB