Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 DV Fréttir Fimm sakborningar svara til saka fyrir 28 ákæruliði í máli Árna Johnsens: Árni játar fjárdrátt upp á 2,6 milljónir króna - neitar ákæruliðum um 4ra milljóna fjárdrátt og 1,5 milljóna mútuþægni Stuttar fréttir Býður út brautina Vegagerðin býð- ur i sumar út fram- kvæmdir við tvö- földun Reykjanes- brautar. Þetta er fyrsti áfangi fram- kvæmda, það er frá Straumsvík; alls um 8 km. Áætlaður kostnaður er 900 millj. kr. Þetta kom fram á blaðamannafundi sam- gönguráðherra í Keflavík í gær. dv-myndir gva Sakborningurinn og sækjandinn Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari, til hægri, sækir máiiö fyrir hönd ákæruvaldsins gegn Árna Johnsen og fjórum öörum mönnum. Myndin er tekin skömmu áöur en réttur var settur f gær. Mat manna er að Ámi Johnsen hafi komið vel út úr fyrstu umferð réttar- haldanna í máli ríkissaksóknara gegn honum, þremur mönnum sem tengd- ust Þjóðleikhúskjallaranum og verk- fræðingi hjá ístaki í gær. Við þingfest- inguna, sem stóð yfir 1 um klukku- stund, svaraði Ámi skýrt og skil- merkilega fyrir hvert ákæruatriðiö á fætur öðru. „Það er rétt“, „það er játað“, „því er neitað", það er ekki rétt“, sagði Árni yfirvegað þegar Guöjón St. Mart- einsson spurði hann út í hina 27 ákæruliði sem varða fyrrverandi þingmanninn sjálfan. í sumum tilfell- um svaraði Árni því til að það sem stæði í ákæruliðum væri rétt hvað varðaði tölur og gjörninga en að hann hefði ekki brotið af sér. Niðurstaðan hvað þetta varðar er að Árni neitar að hafa gerst sekur um sakargiftir í 16 ákæruliðum en játar að 11 atriði séu rétt. Samkvæmt þessu viðurkennir Ámi fjárdrátt upp á um 2,6 milljónir króna en neitar ákæmliðum sem snúa að rétt samtals tæplega 4ra milljóna fjár- drætti. Hann viðurkennir umboðssvik upp á 32 þúsund krónur en neitar um- boðssvikum upp á tæplega 1,3 milljón- ir. Hann þvertekur fyrir mútuþægni upp á 1,5 milljónir. Ég lýsi mig saklausan „Ég vísa til lögregluskýrslu og lýsi mig saklausan," sagði Björn Leifsson, fyrrum eigandi Þjóðleikhúskjallarans, við dómarann þegar spurt var um ákæru á hendur honum fyrir að hafa lofað að greiða Árna 650 þúsund króna þóknun fyrir að samþykkja 3,1 mOljónar króna reikning Kjallarans á hendur byggingarnefnd Þjóðleikhúss- ins. „Þetta er rangt, ég óska eftir að tjá mig ekki frekar um þetta ..." sagði Gísli Hafliði Guðmundsson, sem er ákærður fyrir sömu sakargiftir og Björn en einnig hlutdeild hans með Árna í umboðssvikum. Stefán Axel Stefánsson, sem einnig tengdist Kjallaranum, sagði: „Þetta er rangt, ég neita allri sök,“ þegar dóm- arinn spurði hann um afstöðu gagn- vart hlutdeild að umboðssvikum. Ákæruvaldið átti að... Dómarinn frestaði málinu í gær án þess að ákveða hvenær sjálf réttar- höldin verða, það er yfirheyrslur yfir sakborningum og vitnum. Ástæðan er sú að dómarinn telur að ákæruvaldið hafi ekki útvegað öllum verjendunum fimm öll þau gögn sem lögð voru fram við þingfestinguna. Lögmennirnir voru með mismikið af gögnum. Þetta vill dómarinn lagfæra og gaf Braga Steinarssyni vararíkissaksóknara frest til að útvega það sem á vantar. Annað þinghald, væntanlega stutt, verður í næstu viku en þá mun dóm- arinn ákveða í samráði við verjendur og sækjanda hvenær réttað verður. Ekki er talið útilokað að það verði í fyrri hluta júní en þó er ekki hægt að slá neinu fostu í þeim efnum. Nokkrir dagar eru svo ætlaðir í réttarhöldin sjálf en að þeim loknum mun dómar- inn taka sér um 3 vikur til að kveða upp dóm. Gangi allt vel mun niður- staða liggja fyrir jafnvel í fýrri hluta júlí. -Ótt Metsölubók um merkileat efni Bókin fjaliar um fjölgreinda- kenninguna sem valdið hefur byltingu í allri um- ræðu og viðhorfi til kennslu og uppeldis. Hún byggir á að maðurinn búi yfir að minnsta kosti sjö grunn- greindum: • Málgreind • Rök- oq stærðfrædigrelnd • Líkams- og hreyfigreind • Tónlistargrelnd • Samskiptagreínd • Sjálfsþekkingargreind • Umhverfisgreind c dááóru Thomís Armstrong Erla Kristjánsdóttlr, lektor við Kennaraháskóla Islands, þýddi og staðfærði. Thomas Armstrong, útskýrir hér kenningar bandaríska prófessorsins Howard Gardners og bendir á hvernig uppalendur og kennarar á öllum skólasdgum geta nýtt sér fjölgreindakenninguna.Thomas Armstrong kom til íslands árið 1999 og hélt eftirminnilegt erindi á þingi kennara i Reykjavik. „Gömlu greindarprófin tröllum gefin f byltlngarkenndu riti þar sem greindarhug- takið er brotlð upp I margar greindir og hinir síðustu verða fyrstir en þeir fyrstu slðastir." Kiitan.n Jpt JPV ÚTQAFA Bra?ðraborgar*tígur 7 • Sími S75 5600 OMISSANDI OLLUM UPPALENDUM Blaðíö í dag £ Framtíð W‘ bandalagsins er ■ ( •'f í húfi 12 Erlent fréttaljós Rolling Stones þjóðlagakvöld- anna Ríó Trió 34 Barátta í Byggðastofnun Innlent fréttaljós Franskt og freistandi Kræklingur Helgarblað DV í stórsókn - samkvæmt nýrri skoðanakönnun DV Helgarblað DV er i stórsókn eftir umfangsmiklar breytingar á útliti og efnistökum í blaðinu. Rúmlega helmingur kjósenda í Reykjavík sagðist hafa lesið Helgarblað DV sem kom út laugardaginn 11. maí, en það má lesa úr skoðanakönnun blaðsins sem gerð var miðvikudag- inn 15. maí og mældi m.a. fylgi framboðslistanna í Reykjavík. Þar var spurt þessarar spurningar: Last þú stðasta Helgarblað DV? 51,4 prósent aðspurðra sögðust hafa lesið helgarblaðið. Hlutfall óá- kveðinna var 0,7 prósent og enginn neitaði að svara. Svarhlutfallið var því rúm 99 prósent. Úrtakið í könn- un DV var 600 kjósendur í Reykja- vik, jafnt skipt á milli kynja. Könnun DV nær einungis til reykvískra kjósenda en niðurstaða hennar er mun jákvæðari en niöur- staða lestrarkönnunar Gallups sem gerö var í byrjun mars síðastliðins. í þeirri könnun mældist lestur Helgarblaðs DV sem kom út 3. mars 38,2 prósent á höfuðborgar- svæðinu og Suðumesjum. Á land- inu öllu mældist lestur umrædds helgarblaðs 44,2 prósent meðal karla og 35,6 prósent meðal kvenna. Rétt er að taka fram að ekki er hægt að bera þessar tvær kannanir saman með beinum hætti. Þessi mikli lestur á Helgarblaði DV er ekki síst ánægjulegur í ljósi þeirra breytinga sem geröar hafa verið á útliti og efnistökum í blað- inu. Forsíðunni var breytt, baksíð- an fór undir auglýsingu í stað frétta og allt umbrot miðaðist að því að gera blaðið aðgengilegt og skemmtilegt. Vinnsla efnis var efld en mikið og fjölbreytt lesefni er að jafnaði í blaðinu þar sem skiptast á áhugaverð viðtöl og umfjallanir um margvísleg efni, eins og mat, vin, sakamál, ferðir, menningu o.fl. -hlh Lestur Helgarblaös DV 60 50 51,4% 38,2% 40 30 20 10 0 Könnun DV 11. maí Könnun Gallup 3. mars Varði á veginum Grimur Hákonarson Forsendur fyrir lækkunum Við núverandi aðstæður í efna- hagslífinu eru engar forsendur til hækkunar á vörum og þjónustu. Hins vegar hníga öfl rök að þvi að verðlag eigi að geta lækkað meira á næstu mánuðum. Þetta segir Samiðn sem vifl frekar vaxtalækk- anir. KÁ verður Nóatún Verslun KÁ á Selfossi breytir um nafn um komandi mánaðamót og verður Nóatún. Þetta er hluti af breytingum hjá Kaupási sem með þessu fækkar verslunarkeðjum sín- um. KÁ-nafnið hverfur úr notkun en eftir verða Krónan, 11-11 og Nóa- tún. Kosið um nafn íbúar í sameiginlegu sveitarfélagi Biskupstungna, Laugardals og Þing- vallasveitar kjósa um fjögur nöfn á nýja sveitarfélagið samhliða sveit- arstjómarkosningunum um næstu helgi. Nöfnin eru Gullfossbyggð, Þingvallabyggð, Skálholtsbyggð og Bláskógabyggð. Metur stækkun í Straumsvík Skipulagsstofnun hefur hafið at- hugun á mati á umhverfisáhrifum stækkunar ÍSAL í Straumsvík. Stækkunin er lögð fram I tveimur áfóngum. Meginniðurstaða matsins er að losun mengunarefna verði innan viðmiðunarmarka utan þynn- ingarsvæðis álversins Stefnir í hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi fengi sex bæjarfulltrúa af ellefu eða hreinan meirihluta samkvæmt könnun Talnakönnunar fyrir heim.is. Sjálfstæöisflokkurinn fengi liðlega 48% atkvæða, Samfylkingin um 22%, Framsóknarflokkurinn 21% og Vinstri grænir 9%. Fimmtán þúsund Lögreglan á Sel- fossi reiknar með að allt að fimmtán þúsund manns dveljist í sumarbú- stööum i héraðinu um helgina. Mikil umferð var á veg- um austan fjalls síð- degis í gær - og gekk hún vel fyrir sig. Viðbúnaður verður hjá lögreglu á þessari fyrstu feröahelgi sumars- ins. Fundaö meö CANTAT Síminn hefur óskaö eftir fundi sem fyrst í framkvæmdastjóm CANTAT 3 til að tryggja óbreyttan rekstur sæsímastrengsins en stærsti eigandi strengsins, Tele- globe, sem á 70%; er kominn í greiðslustöðvun. RÚV greindi frá. -sbs DV kemur næst út þriðjudaginn 21. maí. Smáauglýsingadeild DV er lokuð, sunnudaginn 19. maí. Opin verður mánudaginn 20. maí, frá kl. 16-20. Þaö er hægt að panta og skoða smáauglýsingar á dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.