Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 10
10 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 Útgáfufálag: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Framkvœmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl viö þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Fyrirtœki mjólkað Viðskiptablaðið bendir á í úttekt á ársreikningi Orku- veitu Reykjavíkur að sérstaka athygli veki hvernig arð- greiðslum í borgarsjóð hafi verið háttað síðustu árin. „Undanfarin 8 ár hafa arðgreiðslur Orkuveitunnar í sex skipti verið umfram hagnað fyrirtækisins og nú þegar fyr- irtækið skilaði tapi sem nemur hálfum milljarði króna, nema arðgreiðslurnar til borgarsjóðs engu að siður 1,3 milljörðum króna. Sú aðferð sem hefur verið beitt við arð- greiðslur til borgarsjóðs á undanfórnum árum á sér sam- likingu við rekstur fyrirtækja í einkageiranum og nefnist að viðkomandi fyrirtæki hafi verið mjólkað.“ Þetta er athyglisverður dómur yfir stefnu sem fylgt hef- ur verið í rekstri mikilvægasta og öflugasta fyrirtækisins i eigu borgarbúa. Viðskiptablaðið bendir á að afkoma Orkuveitunnar hafi stöðugt versnað frá árinu 1997 þegar fyrirtækið skilaði 2,2 milljörðum króna i hagnað. Árið eft- ir minnkaði hagnaðurinn um nær helming og árið 2000 var afkoman jákvæð um 421 milljón. Á siðasta ári var tap i fyrsta skipti. Arðgreiðslur frá Orkuveitunni til borgarsjóðs siðustu átta ár hafa verið langt umfram hagnað fyrirtækisins. Að- eins tvisvar sinnum hefur hagnaður verið hærri en arð- greiðslur. Alls hafa arðgreiðslur umfram hagnað numið yfir 4,8 milljörðum króna. Með öðrum orðum, hægt og bit- andi hefur fjárhagsleg staða fyrirtækisins verið gerð veik- ari og styrkleiki fyrirtækisins til að mæta mótlæti hefur orðið minni. Sú aðferðafræði sem beitt hefur verið i Orkuveitunni er langt frá þvi að vera óþekkt i heimi viðskipta, ekki síst á síðustu árum. Margir eigendur fyrirtækja hafa leikið þann leik að greiða sjálfum sér út arð óháð afkomu og rýrt þannig eiginfjárstöðu fyrirtækisins. Oft er þessi aðferð undanfari þess að selja fyrirtækið eða skilja það eftir með skuldum. Hvorugt er hins vegar á stefnuskrá þeirra sem sækjast eftir kjörgengi í komandi kosningum. Stofnun í vanda Byggðastofnun er í vanda. Að þessu sinni ekki vegna þess að margir efist um réttmæti þess að stofnunin skuli vera til, heldur vegna innri deilna milli forstjóra og stjórn- arformanns. Með hreinum ólíkindum hefur verið að fylgj- ast með þeim deilum sem átt hafa sér stað. Vandséð er hvernig Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, getur setið aðgerðalaus en Byggða- stofnun heyrir undir ráðherrann. Vandi Valgerðar er hins vegar enn meiri en ella í ljósi þess að annar deiluaðilinn er jafnframt formaður þingflokks Framsóknarflokksins. Til skamms tíma getur ráðherra vikið öðrum hvorum deiluaðilanum til hliðar. Fundið nýjan stjórnarformann, sem er tilbúinn að vinna með starfsmönnum Byggðastofn- unar, eða rekið forstjórann. Til lengri tima litið leysir slíkt i sjálfu sér ekki krónískt vandamál Byggðastofnunar. Þvi miður er Byggðastofnun, líkt og svo margar aðrar op- inberar hjálparstofnanir fjármála, aðeins nátttröll í nú- timanum. í Byggðastofnun kristallast sá vandi sem byggðastefna undanfarinna áratuga hefur ratað í. Sumar stofnanir lifa sitt eigið ágæti en halda áfram sjálfstæðu, tilgangslitlu og fremur innihaldslausu lífi. Byggðastofnun er ein þessara stofnana eins og bent hefur verið itrekað á i leiðurum DV en í febrúar 1999 sagði með- al annars: „Byggðastofnun ... er sérstakt tæki stjórnmála- manna til misnotkunar og minnir helst á flugvél sem hef- ur það hlutverk eitt að fljúga yfir mannfjölda 17. júní og henda út karamellum til barnanna.“ Óli Björn Kárason DV f krossfestingarstellingu Jónas Haraldsson aöstoöarritstjóri Laugardagspistill „Jú, ég skal koma með þér á ball- ettinn,“ sagði ég við konuna í fyrra- kvöld og kom bæði sjálfum mér og öðrum á óvart með yfirlýsingunni. Ég neita því ekki að ég kom nokk- uð lúinn heim úr vinnunni. Klukk- an var farin að ganga átta og ég hafði verið að frá því snemma um morguninn. Aðrir voru byrjaðir að borða. Ég lét lítið fyrir mér fara, náði mér í disk og glas og settist. Móðirin ræddi ballett við dætur sinar og ég verð að viðurkenna að umræðan náði varla inn fyrir höf- uðskeljar mínar. Þetta var ekki á minu sviði svo ég skáskaut augun- um á sjónvarpsfréttimar. Þar fór mest fyrir þeim fóstbræðrum og framsóknarmönnum, Halldóri Ás- grímssyni og Kristni H. Gunnars- syni. Hvað sem um þá ágætu menn má segja er það ljóst að þeir eru ekki vaxnir til balletts. Konan var að fara á ballettinn um Sölku Völku klukkan átta. Það vissi ég fyrir og fannst fínt. Hún hefur yndi af slíku og hafði rætt ballettinn við mig frá því á mánu- daginn að hún sá afar jákvæðan dóm í DV. Ég las Sölku Völku fyr- ir margt löngu en var nokkuð far- inn að ryðga í söguþræði og per- sónum. Ýmislegt rifjaðist þó upp þegar konan las fyrir mig hluta úr dómnum. Þá lifnuðu á ný þær Salka Valka og Sigurlína, móðir hennar, auk Steinþórs og Amalds. Gagnrýnandinn hafði setið með tárin í augunum af hrifningu og geðshræringu. Það var því að vonum að verkinu, leikurun- um og danshöfundinum, Auði Bjarnadóttur, var hælt. Svanavötnin Þrátt fyrir þetta var ég ekki með hugann við ball- ettinn við kvöldverö- inn. Ég heyrði að vísu að yngri dóttirin, sem hafði ætlað með móður sinni á sýninguna, var komin með hugann við annað. Diskótek í skólanum freistaði meira. Ég heyrði líka að sú eldri sagðist fara með móður sinni í staðinn en næmt foðureyra mitt greindi að það var sagt með semingi. Ég blandaði mér ekki í umræðumar enda var sem þær mæðgur vissu ekki af mér. Þeim var öllum kunnugt um dansmennt húsbóndans og litu svo á, með nokkrum rétti, að ballett og ég blandaðist með svipuðum hætti og vatn og olía. Eitthvað varð þó til þess að hug- ur minn hvarflaði frá þeim Hall- dóri og Kidda að dansi. Ég hef tvisvar á ævinni farið á ballett, raunar séð sama verkið í bæði skiptin. Listahátíð í Reykjavík er merkilegt fyrirbrigði og hún varð til þess að ég sá Svanavatnið í Þjóð- leikhúsinu með San Fransisco-ball- etti Helga Tómassonar. Auðvitað var það konan sem fór með mig en það merkilega var að mér þótti þetta mögnuð skemmtun enda voru listamennirnir í hæsta gæðaflokki. Því var ég jafnákafur og hún að sjá Svanavatnið aftur þegar við dvöld- um um stund í Moskvu. Okkur tókst að kaupa miða í Bolshoj á svörtum, fyrir marga dollara, en sjáum ekki eftir því. Stórt svið Bolshoj-leikhússins rúmaði rúss- nesku dansarana mun betur en lít- ið svið Þjóðleikhússins þá banda- rísku. Þá var umgjörðin engu lík. Því var það að ég tók af skarið og tilkynnti skýrt og skorin- ort við kvöldverðarborðið að ég færi með á bailettinn. Hakan seig á þeim þremur konum sem ég bý með. Undrunin var einlæg en ég skynjaði að eiginkona min gladdist innra með sér. Hún þurfti ekki lengur að dekstra dæt- ur sínar. Eiginmað- urinn var óvænt orðinn ballettað- dáandi. Ótrúlegar kúnstir Þótt ég bæri mig karlmannlega heima verður því ekki neit- að að það runnu á upp í hlutfallið þegar við hjóna- komin fórum saman á Píkusögur. Þá fannst mér ég vera einn. Ástand- ið var heldur skárra, ég taldi í fljótu bragði fimm kynbræður með sama ballettáhuga. Salurinn myrkvaðist og brátt lik- ömnuðust persónur Laxness á svið- inu. Salka Valka og Sigurlína döns- uðu og brátt bættist Steinþór i hóp- irm, kröftugur og stór, allt öðru vísi vaxinn en píslir þær sem dans- að höfðu í Svanavötnunum tveimur. Undirtónninn var kynferðislegur, það sá ég og mundi glefsur úr því sem konan hafði lesið fyrir mig úr leik- dómn-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.