Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 11 Skoðun dansarar stóðu sig með mikilli prýði miðað við mitt leikmannsmat. Það fór saman við dóm þeirra sem skil kunnu á dansinum, sporunum og túlkuninni. Hópsenur voru frá- bærar. Ég viðurkenni að ég gleymdi mér í áhrifaríkustu senunum. Þegar minna gekk á skáskaut ég augunum á konuna. Hún sat sem bergnumin. „Fannst þér þetta ekki æðislegt?" sagði konan þegar við gengum að bilnum eftir sýninguna. Hún beið ekki eftir svari heldur hélt áfram að lýsa dönsurun- um og hvernig þeir dönsuðu af krafti í mestu átakasenun- um þar sem ná- kvæmni, tækni og styrkur skiptu öllu. „Það var flott þeg- ar þau dönsuðu Þarna hætti ég enda nóg að gert. Konan horfði orðlaus á mann sinn sem stýrði bílnum af öryggi heim af ballettsýning- unni. Ýmsu hafði sú góða kona kynnst í fari hans en öngvu sem þessu. Hún vissi fyrir víst að hann hafði ekkert vit á ballett en lýsingarnar báru þó vott um annað. Eins og í bæn Það var ekki fyrr en í bílnum að ég lét ljós mitt skína. „Hreyfmgar stúlknanna voru auðmjúkar, undir- gefnar eins og í bæn,“ sagði ég spek- ingslega og hélt áfram, „hend- ur þeirra teygðust til him- ins um leið og karldans- ararnir lyftu þeim á axlir sér en sigu síðan niður í krossfesting- arstellingu." Konan horfði á mig í for- undrari. Víst var það óvænt að ég kom með á ballett- hringi með gulu svunt- umar,“ hélt hún áfram. Það virtist ekki skipta miklu að ég lagði fátt til um- ræðunnar. Hún fór í gegnum lýs- ingu, búninga og hreyfunynd í bak- grunni sýningarinnar þar sem brimiö ólmaðist og sjófuglar sýndu listir. „Mér fannst súlan flott," sagði ég og átti við súlu sem ég sá svifa tignarlega í þessum sama bak- grunni. „Ha?“ sagði konan og virtist ekki átta sig á samhenginu. Ég er alls ekki viss um að hún hafi ver- ið að horfa á þann sama fugl. Lík- legt er að dansaramir hafi átt athygli hennar óskipta. á rota en dauðrota. Nú var ég far- inn að lýsa ballett af þekkingu sem hún vissi af langri reynslu að ég bjó ekki yfir. Hún opnaði munninn og ætl- aði að segja eitthvað þegar ég hóf upp raustina á ný og lýsti með þrótti innra lífi Sölku: „Sagan er ekki bara ytri atburð- ir,“ sagði ég og bætti við handa- hreyfíngu til þess að leggja áherslu á mál mitt: „Tilfmningar stúlkunnar sem ólga innan við harða skelina eru áhrifamikill part- ur af sögunni. Með dansinum skap- ar maður stemningu. Fannstu hvernig sú stemning skilaði okkur sögunni um Sölku Völku, móður hennar, ástina, gimdina og vonleys- ið?“ Þarna hætti ég enda nóg að gert. Konan horfði orðlaus á mann sinn sem stýrði bílnum af öryggi heim af ballettsýningunni. Ýmsu hafði sú góða kona kynnst í fari hans en öngvu sem þessu. Hún vissi fyrir víst að hann hafði ekkert vit á ball- ett en lýsingarnar báru þó vott um annaö. Það var eitthvað bogið við þetta allt saman. Ég lét sem ekkert væri. Varla á þá næstu Samviskan hefur aðeins nagað mig síðan. Auðvitað á maður ekki að skreyta sig með annarra manna fjöðrum en ég féU fyrir freisting- unni. Ég vissi að konan hafði lesið leikdóminn um Sölku Völku og var vel heima í honum. Því gat ég ekki vitnað i hann án þess að koma upp um mig. Ég tók hins vegar þá áhættu að vitna nær orðrétt í viðtal menningar- stjóra DV við Auði Bjarna- dóttur og gerði orð þeirra og túlkun á verkinu að minum. Það lukkaðist. Sjálfur var ég engu nær. Konan er enn að furða sig á djúpum skUningi mínum á nútímabaUett og óttast að hún hafi gengið of nærri mér með því að fara með mig á sýninguna. Það er því ólíklegt að hún bjóði mér með á þá næstu. Skuldir og bjartsýni Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður BB Það er brostið á sumar. Það fer ekki fram hjá neinum - aUra síst þeim sem vinna berskjaldaðir við stóra glugga mót suðri liðlangan daginn. Nú sem endranær fylgir sumrinu bjartsýni og tilhlökkun. Tíðin er betri. En um leið og við horfum björt- um augum fram glymur í eyrum drungalegt orð: skuldir. Flestir reyna sjálfsagt að hnykkja tU höfð- inu svo að orðið lendi ekki inni í eyranu heldur á bak við það. Það fer svo Ijómandi vel um það þar. Úps! Skuldir hafa sem kunnugt er ver- ið eitt aðalumræðuefni kosninga- baráttunnar í Reykjavík. En það hefur víðar skotið upp koUinum. Seðlabankinn minnti okkur nýlega á að íslensk heimUi eru einhver þau skuldsettustu í heiminum. Þau skulduðu um áramót 160% af ráð- stöfunartekjum sínum. Þetta hlut- faU var aðeins 20% fyrir tuttugu árum og 80% fyrir áratug. Á Vestur- löndum er algengt að það sé 100-120%. Það er misjafnt eftir löndum í hvað lántökurnar hafa farið. Þannig virðast Bandarikjamenn hafa tekið lán tU að fjármagna neyslu en Þjóð- verjar fremur tU húsnæðiskaupa. Það getur hver svarað því fyrir sig hvemig þessu hefur verið farið hér á landi. Línuritin segja okkur að heimUin hafi farið heldur hressUega fram úr sjálfum sér; neysla jókst í nokkur ár meira en sem nam vexti kaupmátt- ar. Hún hefur að vísu dregist saman aftur eftir margra ára samfeUdan vöxt - en framúrkeyrsla fyrri ára hvUir á heimUunum í formi skulda. Annað línurit ber að sama brunni: það sýnir að eignir heimUanna era hættar að aukast í takt við auknar skuldir. Staðan er óneitanlega viðkvæm og margt heimUið hefur lítið borð fyrir báru. Stærri biti launakökunn- ar en áður fer í afborganir af lánum. Það er bragðgóður biti og sárt að þurfa að Ueygja honum tU að stoppa í skuldagatið - sem ofan á allt ann- að fer sífeUt stækkandi vegna verð- bólgu. Það reynir á réttlætiskennd- ina að skuldimar skuli hækka sjáif- krafa þegar matarkarfan verður dýrari. Það dregur úr fólki þrótt. Sólgleraugun Þegar bera fór á þessum og öðr- um skyldum blikum í efnahagslíf- inu fyrir nokkrum misserum gerð- ust svartsýnisraddir háværar. Einn maður hélt merki bjartsýninnar á lofti öðram fremur og birtist fyrir vikið ekki af honum teUuiuð mynd núorðið nema með sólgleraugu. Mörgum þótti bjartsýnin tUefnis- laus og tU vitnis um einhvers konar meinloku. VUji menn nota það orð er ljóst að það var góð meinloka. Ein með öUu. Menn skyldu nefnUega ekki van- meta bjartsýnina eða gera lítið úr henni. Hún er forsenda flestra góðra verka og framtaks, mikUvæg- ur drifkraftur þegar á móti blæs og getur aukið fólki þrótt. Svartsýnin er að sama skapi ávísun á deyfð og stöðnun. Fjölmiðlar geta hér gegnt mikU- vægu hlutverki. Það er auðvitað klisja að fjölmiölar séu óþarflega uppteknir af vondum fréttum á kostnað hinna góðu - en það er sjálfsagt að hafa hana á bak við eyrað (eins og skuldirnar). Það má ekki vera þannig að það þyki fréttnæmara að efnahags- ástandið breytist tU hins verra en að jákvæð merki geri vart við sig. Ef einhverjum virðist vera tUhneig- ing í þá átt er líkleg skýring sú að fjölmiðlar eru - með réttu - dálítið uppteknir af því hlutverki sínu að veita ráðandi öflum aðhald. Þeir vUja benda á veika bletti, halda yf- irvaldinu við efnið, láta það ekki sleppa of auðveldlega. Jákvæðar fréttir eiga hins vegar sem betur fer oft greiða leið í fjöl- miðla. Góðar fréttir eru nefnUega oft góðar fréttir. Nærtækustu dæm- in eru vaxtalækkanir Seðlabankans undanfarið, styrking krónunnar og hratt minnkandi verðbólga. Dæmi um jákvæðar fréttir sem ekki hefur farið mikið fyrir eru hækkanir á gengi hlutabréfa undan- farið. Skýringin á því kann að vera sú að fjölmiðlum finnist þeir hafa farið fram úr sjálfum sér í fréttum af uppsveiflunni á sínum tíma og þannig stuðlað að óhóflegri bjart- sýni. Það getur vel átt við einhver rök að styðjast, en óþarfi samt að fara í „meðferð". Ef þessi tUhneig- ing verður að reglu er hætt við að fjölmiðlamir verðskuldi að teiknuð séu á þá sólgleraugun; sem sagt að þeim sýnist allt vera dekkra en það er í raun. Skynsemin ræður En skyldi vera samband mUli skulda og bjartsýni? Það fyrsta sem kemur upp í hugann er auðvitað að bjartsýni auki líkur á að fólk steypi sér í skuldir og skuldimar dragi úr bjartsýni. Fyrir nokkrum árum var í tísku að vitna tU rannsókna sem sýndu að íslendingar væru bjartsýnasta þjóð heims. Þar er þá væntanlega komin skýringin á því að skuldir ís- lenskra heimUa eru á heimsmæli- kvarða. Þetta stenst þó ekki nema menn leggi bjartsýni og glám- skyggni að jöfnu. Bjartsýni sem styðst við almenna, heUbrigða skyn- semi er hins vegar þvert á móti ein af mikUvægustu forsendum þess aö hagur manna vænkist. Hitt virðist miklu líklegra að or- sakasamhengið virki i hina áttina og að skuldimar geti dregið úr bjartsýni. Við þvi er lítið annað að gera en að herða upp hugann og hugga sig við sumarið og sólina. Það kann aö vera skammgóður vermir - en sem betur fer er oft lika hægt að hugga sig við blákaldar staðreyndir. Svo vitnað sé í þá skynsömu menn sem Seðlabankann skipa: „E.t.v. var tUhneiging tU of mikUlar svartsýni á liðnu ári, en rétt er að vara við of mikUli bjart- sýni nú.“ Það er nefnUega það! Ætli það sé ekki einmitt á endanum þannig, að rétt er að láta skynsemina ráða. Raunar voru helstu merkisberar þeirrar stefnu menn sem töldu að öruggasti og besti fararskjótinn væri lítUl, skrýtinn bUl frá Austur- Evrópu. Það minnir okkur á að rétt er að blanda við skynsemina hæfi- legum skammti af bjartsýni. Menn skyldu nefnilega ekki vanmeta bjartsýn- ina eða gera lítið úr henni. Hún erforsenda flestra góðra verka og framtaks, mikilvœgur drifkraftur þegar á móti blœs og getur aukið fólki þrótt. Svartsýnin er að sama skapi ávísun á deyfð og stöðnun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.