Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 22
Helgarhlað H>"V LAUGARDAGUR IS. MAÍ 2002 Sleggjan í Byggðastofnun Kristinn Gunnarsson, alþingismaður og stjórnarformaður Bgggðastofnunar, stend- ur f strfði þessa dagana og virðist vera bú- inn að fá forstjórann Theódór Bjarnason og flesta Igkilstarfsmenn upp á móti sér. Krist- inn hefur gælunafnið sleggja og er þekktur baráttumaður og flokkaflakkari fstjórn- málum. Sumir segja að ferill hans sé á enda f pólitfk en aðrirsegja að hann hafi nfu Iff. Hver er þessi alvörugefni maður? ÞAÐ ER STORMUR í BYGGÐASTOFNUN þessa dag- ana. Þar ganga menn af fundum og skella hurðum og menn skrifa bréf og skrifa undir bréf. Byggðastofnun er rétt að koma undir sig fótunum á nýjum stað en stofn- unin flutti norður á Sauðárkrók síðastliðið ár og vakti nokkra athygli að enginn starfsmannanna utan einn vildi flytja með sínum vinnustað norður. Þeir hafa tekist á opinberlega, forstjóri Byggðastofn- unar, Theódór Bjarnason, sem ráðinn var með einróma stuðningi stjórnar og Kristinn H. Gunnarsson, stjórnar- formaður sömu stofnunar. Theódór hefur lýst fram- komu stjórnarformanns í sinn garð sem einelti og sagt að Kristinn hafi haft í hótunum við sig og meinað sér að taka til máls á fundum. Eftir því sem næst verður komist ristir þessi ágrein- ingur nokkuð dýpra en svo að hann verði skilgreindur sem persónulegar væringar. Theódór segir að hann sé fulltrúi nútímalegra og faglegra vinnubragða og vilji ekki veita fé í vonlausar fjárfestingar á annesjum en Kristinn vilji ekki beita þeim aðferðum heldur láta flokksbönd og átthagatengsl ráða því hvernig fé stofn- unarinnar verði ráðstafað. Nefnd hafa verið nokkur skýr dæmi um það hvernig vinnubrögð sem sennilega verða seint kölluð fagleg hafa tíðkast hjá Byggðastofnun. Það þótti ekki góð lat- ína þegar Sparisjóðnum í Bolungarvík var falið að ann- ast alla innheimtu fyrir Byggðastofnun án þess að þjón- ustan væri boðin út. Bolungarvík er nokkurs konar heimabær Kristins og þar hefur hann sitt lögheimili eftir áratuga búsetu á Vestfjörðum. Annað mál sem komst í fréttir síðastliðið sumar var þegar Byggðastofn- un veitti útgerð togarans Kristina Logos 20 milljóna króna lán en skipið hafði þá legið við bryggju i Reykja- vík með ónýta aðalvél í heilt ár en það var að mestu í eigu Vestfirðinga. Því var ætlað að sækja sjó í Barents- hafi og víðar og sigldi ekki undir íslensku flaggi og margir áttu bágt með að sjá samhengið mifli þessarar útgerðar og atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni. Þáverandi forstjóri Byggðastofnunar, Guðmundur Malmquist, hafði stöðvað téða lánveitingu en Kristinn skrifaði honum harðort bréf og minnti hann á starfs- skyldur sínar og féð var afgreitt. Hálmstráið sem mun hafa hryggbrotið úlfaldann voru fyrirhugaðar lánveitingar til fyrirtækis á Patreks- firði sem stýrt er af Sigurði Viggóssyni, einum þekktasta stuðningsmanni Kristins innan flokksins á Vestfjöröum. Umrædda lántöku mun Kristinn hafa keyrt í gegn af mikifli hörku. En hver er þessi harðsnúni Framsóknarþingmaður aö vestan sem gekk undir gælunafninu Kiddi sleggja þegar hann spilaði handbolta í Reykjavík á sínum æskuárum? Landsbyggðannaður úr Hlíðunum Kristinn Halldór Gunnarsson er ekki hreinræktað- ur landsbyggðarmaður því hann sleit barnsskónum í Hlíðunum í Reykjavík, sonur Gunnars H. Kristins- sonar, fyrrverandi hitaveitustjóra í Reykjavík, og Auðbjargar Brynjólfsdóttur. Kristinn er háflhróðir hins atorkusama oddvita sjálfstæðismanna í Kópa- vogi og alþingismanns, Gunnars Birgissonar, og eru þeir sammæðra. Mörgum finnst þeir bræður eiga ým- islegt sameiginlegt í pólitískum skilningi orðsins þótt þeir séu ekki likir að vallarsýn og starfi hvor í sínum flokknum. Það er sagt að Kristinn sé vinafár í þinginu og hafi hvorki fylgi né óskorað traust samflokksmanna sinna. Líklega geldur hann þess að flokkaflakkarar eignast seint vini eðli málsins samkvæmt. Kristinn varð stúdent frá MR 1972 en hvarf frá frekara námi að sinni og fór til kennslu út á land. Fyrst á Tálknafirði 1973 en síðan í Bolungarvík 1974 til 1975. Þar tók hann ákvörðun um að setjast aftur á skólabekk og fór og lærði stærðfræði í Háskólanum og lauk BS prófi 1979 og fór með það upp á vasann aft- ur vestur í Bolungarvík. Gísli bjó hann til Það má halda því fram að í skólastarfinu í Bolung- arvík, sem þá var eitt traustasta höfuðvígi íhaldsins á landinu, hafi pólitískur ferill Kristins hafist. Þegar hann kom aftur vestur 1979 var Gísli Hjartarson orð- inn kennari við grunnskólann í Bolungarvík og tókst meö þeim góður vinskapur. Gísli var þá þegar sjóað- ur pólitiskur refur og fótgönguliði fyrir Alþýðubanda- lagið, orðhákur og þjóðsagnapersóna. Gísli stofnaði Alþýðubandalagsfélag i Bolungarvik sem þótti fá- heyrð bjartsýni og ósvífni og 1982 bauð félagið fram lista til bæjarstjórnar sem Kristinn Gunnarsson leiddi. Þá var búið að fjölga bæjarfulltrúum úr 7 í 9 og Kristinn skreið inn sem níundi maður. Hinir flokkarnir þrír mynduöu meirihluta svo hann fékk það undarlega hlutskipti að vera einn í stjórnarand- stöðu heilt kjörtímabil. Árið 1986 endurtóku kommarnir í Bolungarvík leikinn og nú brá svo við að þeir fengu 217 atkvæði og Kristinn fór inn við þriðja mann og hafði þó full- trúum verið fækkað aftur í sjö gagngert til að losna við „kommann" úr bæjarstjórn. Þetta þóttu allnokkur tíðindi og ölvaðir af þessum sigri réðust Gísli og Kristinn fóstbróðir hans i víking um alla Vestfirði um sumarið og börðust i forvali vegna alþingiskosninga. Þar naut Kristinn þekkingar Gísla sem þekkti bændur á hverjum bæ og þrátt fyr- ir andúð flokksmanna á ísafirði sigraði Kristinn með yfirburðum og leiddi lista Alþýðubandalagsins 1 næstu kosningum en náði ekki inn á þing í það skipt- ið. Þess vegna má halda því fram að Gísli Hjártarson hafi gert Kristin að stjórnmálamanni. Kristinn hefur þótt frá fyrstu tíð harður og óvæg- inn í pólitík og var mjög eindreginn og róttækur Al- þýðubandalagsmaður. Viltu skipta? Fyrir kosningar 1991 var sú hugmynd á kreiki að Kristni yrði boðið 2. sætið á lista Alþýðuflokksins á Vestfjörðum og var hann að sögn til í það þótt það hefði flokkaskipti í för með sér. Hjaðningavíg innan Alþýðuflokksins komu i veg fyrir að þær ráðagerðir tækjust og Kristinn fór fram fyrir Alþýðubandalagið á ný og komst nú inn sem uppbótarþingmaður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.