Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 23
LAUGARDAGUR 18. IV1AÍ 2002
Hefgarblað I>V
23
Næst dró til tiðinda í pólitísku lífi
Kristins þegar verið var að leggja á
ráðin fyrir kosningar 1999. Þá stóðu
framsóknarmenn á Vestfjörðum
uppi mjög sárir og vígamóðir eftir
gríðarleg átök í flokknum. Þau urðu
í kringum kosningar 1995 þegar
Steingrímur Hermannsson plantaði
Gunnlaugi Sigmundssyni í fyrsta
sæti listans í óþökk margra flokks-
manna og Péturs Bjarnasonar sem
lengi hafði starfað fyrir Framsókn.
Þau átök enduðu með klofningi og
Pétur bauð fram Vestfjarðalistann
sem munaði ekki nema hársbreidd
að næði kjöri. Gunnlaugur fann
aldrei sitt bakland í kjördæminu og
lét af þingmennsku eftir eitt tímabil
og því vantaði Framsókn góðan
mann til að leiða listann.
Kristinn var ekki öruggur með
gott sæti á væntanlegum lista Sam-
fylkingar og því varð um það sam-
komulag sumarið 1998 að bjóða hon-
um efsta sæti Framsóknarlistans á
Vestfjörðum. Með þetta var farið
eins og mannsmorð en samt lak
málið í Sandkorn í DV sumarið 1998
og þótti harla ótrúlegt.
Tiðindin um flokksskipti Kristins
urðu síðan heyrinkunn veturinn
1999 og komu flestum stuðnings-
mönnum hans í Alþýðubandalaginu
í opna skjöldu. Pólitískir litgrein-
endur sem fylgdust með Kristni í
þessum kosningum sögðu blaða-
manni að það hefði verið hreinlega
vandræðalegt þegar verið var að
herma upp á Kristin á framboðs-
fundum vestra nýlegar yfirlýsingar
hans en eins og fleiri sem skipta um
flokka þurfti hann að söðla talsvert
um í skoðunum og sérstaklega var
það áberandi í sjávarútvegsmálum
sem alltaf eru hitamál vestra.
Magnús og Kristina
Ekki voru allir framsóknarmenn
vestra sáttir við komu Kristins inn
í sínar raðir og mun enn eima tals-
vert eftir af því. Verst lét Magnús
Reynir Guðmundsson, gamalreynd-
ur framsóknarmaður úr bæjarpóli-
tíkinni á ísafirði sem vel hefði getað
hugsað sér að erfa stólinn. Var hart
slegist á fundum og á endanum kos-
ið milli hans og Kristins og beið
Magnús lægri hlut og gekk á dyr og
gekk úr flokknum. Það er sérkenni-
leg tilviljun að þegar Kristinn beitti
sér hvað harðast fyrir umdeildri
lánveitingu Byggðastofnunar til
þeirra sem gerðu út og áttu togar-
ann Kristina Logos var Magnús
Reynir stjórnarformaður félags þess
sem átti fleytuna.
Þeir sem þekkja Kristin vel segja
að hann sé skarpgreindur og hugsi
jafnan nokkra leiki fram í tímann
enda slyngur skákmaður sem mun
vera hans helsta tómstundagaman.
Hann er sagður gríðarlega metnað-
argjarn og fylginn sér og eins og
sést af ferli hans vegur metnaður
þyngra en hagsmunir flokka. Hon-
um er lýst sem alvörugefnum vinnu-
hesti sem er stoltur af því að vera
fyrirgreiðslupólitíkus af gamla skól-
anum.
Einfari í þinginu
Kristinn á fáa vini í þinginu og
nýtur að sögn ekki almenns stuðn-
ings almennra þingmanna Fram-
sóknar og mun hafa bakað sér
óvinsældir með afstöðu sinni í
sjávarútvegsmálum sem gengur
þvert á stefnu flokksins. Kristinn
geldur þess að flokkaskipti afla
mönnum alltaf óvina en hann mun
aldrei hafa fallið reglulega vel inn
í þingmannahóp Alþýðubandalags-
ins heldur. Það er fullyrt að for-
maður flokksins hafi lofað honum
formennsku í Byggðastofnun út
kjörtímabilið sem hluta af sam-
komulagi um flokkaskiptin.
Það verður þvi e'rfitt fyrir
Valgerði Sverrisdóttur
ráðherra að höggva á
þann hnút sem nú hefur
myndast. Fari forstjórinn
út hljóta lykilstarfsmenn sem lýst
hafa stuðningi við hann að fylgja á
eftir. Valgerður er að sögn ekki í
hópi stuðningsmanna Kristins inn-
an flokksins og má minna á að hann
var einn þeirra sem reis gegn
byggðaáætlun hennar opinberlega á
dögunum. Þar sem Kristinn er
studdur af formanni er Valgerður
milli steins og sleggju i málinu.
í einkalífi sinu hefur Kristinn
lent í sviptingum eins og á hinum
pólitíska vettvangi. Hann var lengi
giftur Aldísi Rögnvaldsdóttur og á
með henni fjögur börn á aldrinum
17 til 25 ára. Þau skildu.
Hann er með lögheimili við Holta-
brún í Bolungarvík en býr við
Dofraborgir í Grafarvogi með Elsu
B. Friðfinnsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi sem jafnframt er varaþingmað-
ur Framsóknarflokksins í Norður-
landi eystra. PÁÁ
Glæsigarður á Flúðum
Lystigarður í Suóursveit
Japanskur garður í Garðabæ
Geymsla og meðhöndlun træs
Glæsilegt garðyrkjurit, fæst á öllum helstu blaðsölustöðum um land allt
Áskriftarsími er 586 8005, og einnig er hægt að kaupa áskrift á www.rit.is
Háholti 14 fMosfellsbæ • Sfmar: 586 sooi • 807 9332 • www.rit.is • rit<ðrít.is
Komdu við í nœstu gróðnastöð og lóttu bnúðanaugu, PagunsQnenun,
stjúpun, héluniPs, maníulykla, vatnsbena, gullnegn, dögglingskvisti og
sknautnólan líPga upp á ganðinn þinn í suman.
Sumanblómum þanP að só Pynin 15. júní.
Nýjum tnjóm en best að planta Pynin 1. júlí.
BlómaPmmleiðendun