Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Síða 27
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002
DV
27
Skákþátturinn_______________
Umsjón
Sævar Bjamason
Helgarblað
Minningarmótið um Capablanca
Ekki gengur okkar mönnum sem best í Havana. Of mikill hiti,
kveisur og skákblinda hrjá þá. Hannes Hlífar hefur 3 vinninga aö
loknum 7 umferðum og er í 7.-8. sæti í „elítuflokknum". Kúbönsku
stórmeistaramir Reinaldo Vera (2537) og Lazaro Bruzon (2569)
leiða með 41/2 vinning. Helgi Áss Grétarsson hefur 31/2 vinning
að loknum 9 umferðum í úrvalsflokki I og er í 8.-11. sæti. Spænski
alþjóðlegi meistarinn Salvador del Río (2495) leiðir með 71/2 vinn-
ing. Jón Viktor Gunnarsson hefur 31/2 vinning að loknum 9 um-
ferðum í úrvalsflokki II og er í 9.-11. sæti. Kúbanski stórmeistar-
inn Irisberto Herrera (2474) leiðir með 6 vinninga. Þessir 2 flokk-
ar eru um það bil jafnir að meðalstigum. Og Fidel Castro er t.d.
þokkalegur skákmaður og hefur teflt við margan slyngan meistar-
ann. En á íslenska Alþinginu situr öflugur her skákmanna með
Friðrik Ólafsson í broddi fylkingar. Gunnar Birgisson, Einar Már
Sigurðarson, Lúðvík Bergvinsson, Halldór Blöndal, Össur Skarp-
héðinsson og Davíð Oddsson eru allir miklir skákáhugamenn og
eflaust gleymi ég einhverjum að vanda.
En í Karíbahafínu er Jón Viktor Gunnarsson að veiðum og tefl-
m af hreinni snilld á köflum. Svo mikilli snilld að að minnsta kosti
2-3 vinningar hafa gossað í hafið og eru á leiðinni til landsins með
Golfstraumnum! En hann ætlar ótrauður á annað mót á Kúbu á
meðan stórmeistararnir hyggjast snúa heim að minningarmótinu
um meistarann mikla loknu. Capablanca var útnefndur sendi-
herra víðrar veraldar á sínum tíma enda var hann giftur dóttur
einhvers stjómmálaskörungsins á Kúbu í byrjun aldarinnar. Já
það er viða teflt:
Hvítt: Omar Almeida (2484).
Svart: Jón Viktor Gxumarsson (2395).
Volgubragð.
Minningarmót um Capablanca, Havana (9), 14.05.2002.
1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. d5 g6 4. c4 b5 Þetta er nú oftast kallað
Benköbragð og kennt við ungversk-franska-bandaríska stórmeist-
arann Pal Benkö. Benkö þessi var staddur hér í Reykjavík 1956 á
Stúdentaskákmótinu þegar ungverska byltingin eða andspyrnan
gegn Sovétinu var gerð og baðst pólitisks hælis hér og fékk. Hann
dvaldi hér ekki nema í nokkra mánuði og fór síðan vestur um haf.
Ég kynntist honum fyrir rúmum 2 áratugum og þá kunni hann
ennþá hrafl í íslensku. Hann varð seinna (eftir 1956) þekktur stór-
meistari, náði næstum því sama styrkleika og Friðrik Ólafsson og
komst áfram úr Portoroz-millisvæðamótinu 1958, eins og Friðrik
og Bobby Fischer, í kandídatskeppnina sem Mikael Tal heitinn
vann og töframaðurinn frá Riga lagði síðan Botvinnik í einvígi um
sjálfan heimsmeistaratitilinn. Benkö átti síðan sinn þátt í því að
Fischer varð heimsmeistari, hann gaf Fischer eftir sæti sitt á
Millisvæðamótinu i Palma á Mallorca 1970 en Fischer átti ekki í
raun rétt á að tefla á því móti. Skáksagan er full af skrýtnum mót-
sögnum og nafnið á þessari byrjun er ein þeirra. í siðari heims-
styrjöldinni voru bestu skákmenn Sovétríkjanna fluttir austur á
Volgubakka og á einhverju mótinu þar í stríðinu fundu þeir upp
þessa byrjun. Ég lærði sem unglingur nafnið Volgubragð eða byrj-
un en Benkö byrjaði um það leyti að „praktísera" þessa byrjun og
fékk nafn sitt kennt við
hana i Vesturheimi. Nú
býr Benkö að mestu í
Búdapest aftur, ekki slæmt
að geta eytt ellinni þar eft-
ir viðburðaríkt líf. En nóg
um það, svartur fómar
peði sem í þessari skák er
ekki þegið fyrir athafna-
frelsi á drottningarvæng.
5. cxb5 a6 6. b6 d6 7. Rc3
Dxb6 8. Rd2 Bg7 9. e4
Rbd7 10. Be2 0-0 11. 0-0
Hb8 12. a4 Bb7 13. Rc4
Dc7 14. a5 Ba8 15. Bg5
Hb4 16. Dd2 Hfb8 17. Ha2
Skákin hefur teflst eftir
'hefðbundnum leiðum en
nú býður Jón Viktor upp á
peð öðru sinni sem er
óhollt að þiggja. Eftir 18.
Bxe7 kemur annaðhvort
Hxc4 19. Bxc4 Re5 eða 19. -
f6. Hollast er að láta peðið
eiga sig! 18. f4 Bd4+ 19.
Khl Ref6 20. Bd3 Rxe4
Mannsfórnin er
skemmtileg, svartur fær
nokkur peð fyrir manninn.
Hann Jón Viktor er
„taktíker" eða brellumeist-
ari af guðs náð! 21. Rxe4 Bxd5. Hótar riddaranum á c4 og skemmti-
legt er síðan að sjá hinn
öfluga þrýsting sem svart-
ur fær á b-línunni. 22. De2
Bxc4! 23. Bxc4 Hxb2 24.
Dd3 e6. Svartur virðist
hafa náð undirtökunum og
fljótt á litið er besta vömin
25. Hxb2 Hxb2 26. Bxe6 fxe6
og siðan að íhuga hvort
drepa eigi á d6 með drottn-
ingu eða riddara. En þegar
skákmenn hafa manni
meira reyna þeir oft að láta
hann af hendi fyrir frum-
kvæði! 25. Dh3 d5 26. f5!
Skammt er stórra högga á milli. Ekki er besti leikurinn alltaf
bestur, þetta er skemmtileg tilraun og er betri en hvítur gerir sér
grein fyrir! Hér gekk ekki að leika 26. -gxf5 þvf eftir 27. Bf4 e5 28.
Bh6! vinnur hvítur! En eftir 26. -De5 getur hvítur leikið 27. fxg6!
fxg6 28. RÍ6+! Rxf6 29. BxfB Dd6 30. Bxd4 cxd4 31. Hxb2 Hxb2 og
óljóst er hversu miklar bætur svartur hefur fyrir manninn. Alla
vega 3 peð sem dugar í flestum tilfellum. En dugar það hér? Og
hversu langt sé ég eiginlega?! En hvítum hefur vafalaust verið
órótt yfir hve „veikur“ hann er i borðinu! Og það verður honum
að falli! 26. -De5! 27. Bf4?
Dxe4 28. Hxb2 Eftir 28.
Bxb8 á svartur sleggju-
leik, Hbl!. Guðsmaðurinn
á d4 er öflugur. Hvíta stað-
an hrynur nú með glamri
miklu. 28. -Hxb2 29. Bd3
Hb3!! Endataflið er gjör-
unnið vegna peðanna sem
svartur hefur fyrir skipta-
muninn. 30. Bxe4 Hxh3
31. gxh3 dxe4 32. £xe6
fxe6 33. Hhl e5 34. Bh6
Kf7 35. Kg2 Ke6 36. Hb7
c4 37. Hc7 Rc5 38. Bf8
Kd5 39. Kfl c3 40. Bxc5 Bxc5 41. Ke2 Kc4 42. Hxh7.
Peðafloti svarts er tvistraður en það einfaldar aflabrögðin! 42. -
e3! 43. Hh4+ Bd4. 0-1.
Re8
ST0000RLÆKKAÐ VERÐ
OPNUM KL. 12:00 Á ÞRIÐJUDAGINN MEÐ RÝMINGARÚTSÖLU. ALLT Á AÐ SELJAST
LOKAÐ ALLA DAGA FRAM AÐ ÚTSÖLU. EKKIMISSA AF ÓTRÚLEGU VERÐI.
Klstlan werð frá
Bastkfstlar
kr.3.990 kr.1.490
VERÐ AÐUR: 6.900
VERÐ ÁÐUR: 1.990
Stóll
kr.3.800
Borð
.4.900
VERÐ ÁÐUR: 5.900
Allt settið
k19.900
\ - :,L '
Altt settið
kr.24.900
VERÐ ÁÐUR: 39.900
4borð
.r 14.500
VERÐ ÁÐUR: 19.900
UEm aÐUR: 29.900
y£HD ADUR: 4.900
Ruggustóll Barstóll Klappstóll
kr.8.900 kr.3.900 kr.990
Stóll
kr.9i900
VERD ÁÐUR: 16.900
V£R3 ÁBUR: 14.800
VERO ÁÐUR: 5.900 VERO AÐUR: 1.490