Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Qupperneq 30
30 HeÍQarblctð 13 "V LAUGARDAGUR 1S. MAf 2002 Ég er ekki Súperstjarna Sigurður Guðmundsson tyllir tá á landið í björtu suölu vorveðri til að vera viðstaddur afhjúpun listaverks eftirsig á Listahátíð í Reykjavík. Fjöruverk heitir það, einfaldlega, og einfalt virðist það líka vera: Nokkrir fagurlega slípaðir granítsteinar settir inn í grjótvegginn meðfram Sæbrautinni niður af Snorrabraut. Verkið fékk verðlaun í samkeppni menningarmálanefndar um útilistaverk sem efnt var til árið 2000. HINGAÐ KOM SIGURÐUR FRÁ Austurríki þar sem hann opnaði sýningu á verkum sínum 7. maí, og strax að lokinni athöfninni brunar hann út á flugvöll og flýgur — ekki strax til hafnarborgarinnar Xiamen í Kína þar sem hann býr núna heldur til Hollands; hann er í hópi listamanna og listfræðinga hvaðanæva úr heimi sem bíður það vandasama starf að velja 30 unga listamenn inn í Ríkisakademíuna í Hollandi. 1000 sóttu um upphaflega, sá fjöldi hefur verið grisjaður niður í 500 en nógu erfitt verður samt að velja. Hinna útvöldu biður öfundsverður lúxus; Vinnustofa, kaup og ferðalög um allan heim í tvö heil ár. Sigurður og aðrir ráðgjafar eru svo til reiðu sextán daga hvort ár til að halda masterklass með nemendum sem biðja um þá sérstaklega. „Þá hitti ég nemendur einslega í tvo til þrjá tíma og kafa með þeim ofan i verkin," segir Sigurður. „Við erum ekki að móta þetta fólk, bara gefa því tíma og vekja hjá þeim spurningar um eigin verk.“ Sköpunin er það sem kemur á óvart Við Sigurður hittumst á eftirlætisgistihúsinu hans DV-mynd HARI sem heitir Jörð — að visu ekki Hótel Jörð heldur Gistiheimilið Jörð — og ég bið hann fyrst að segja mér frá Fjöruverkinu og hvernig hann hugsaði það. „Það átti sér alllangan aðdraganda," segir Sigurður. „Þegar ég vann þessa samkeppni þá var verkið örlítið öðruvísi hugsað en síðar varð. Þó má segja að grunnhugsunin sé sú sama og útlitið er mjög svipað, og þá getur maður spurt: Hvað hefur breyst? Þetta er nokkurra fermetra flekkur af slípuðum steinum og hann var upphaflega hugsaður við Ástarbrautina sem kölluð var í gamla daga. Hugmynd mín var sú að fara á staðinn með lið af fólki sem slípar steina og láta það slípa hluta af Ástarbrautinni. Grunnhugsunin á bak við verkið, hugsa ég — og ég segi „hugsa ég“ af því verkin mín verða alltaf fyrst til á inntúítívan hátt, skilurðu. Ég reyni að forðast aö búa til verk samkvæmt eigin valhugsun. Ég ákveð ekki eitthvað sem ég tel bitastætt og gott og skelli mér svo 1 að búa það til, því þá get ég ekkert skapað! Sköpunin er það sem kemur listamanninum á óvart. Þá bæði gengur hann inn í verkið og skilur hver spurningin er um leið og hann vinnur verkið. Ef listamaðurinn hefur skilið hver spurningin er áður en hann fer út í verkið þá er það allt öðruvísi vinna og ég vinn aldrei svoleiðis. Ég hirði ekki um vitsmunalegan aðgang að verkinu í byrjun. Svo hins vegar lendi ég alltaf í því eins og núna á þessu augnabliki að ég er spurður hvað ég meini með verkinu. Þá bý ég til eitthvað og það fer oft eftir geðþótta því ef verkið er listaverk þá er hægt að túlka það á mjög marga vegu, og túlkun listamannsins sjálfs er að mínu viti ekki alltaf sú besta. Segjum sem svo að listaverkið sé leiksýning og listamaðurinn sé leikarinn. Þá fer listamaðurinn inn um bakdyr leikhússins, klofar yfir öskutunnur og það er kannski músa- og rottugangur þar og vond lykt. En áhorfendur koma inn um aðaldyrnar og fara upp á svalir eða inn f sal. Besti aðgangurinn að listaverki er ekki alltaf bakdyr listamannsins." Að sitja á steini með pela „Sem sagt, upphaflega átti að slípa steina við Ástarbrautina. Þessir steinar eru gráir og allir eins en ef þú slípar þá, klappar þeim voða lengi, þá kemur karakter þeirra I ljós og þeir verða undurfagrir. Þá kemur líka í ljós að þeir eru allir einstæðir. Mannfólkið er svona líka. Þú lítur yfir hóp af Kínverjum eða íslendingum," og nú leggur Sigurður þunga áherslu á hvert orð, „og í raun og veru þá álít ég að hver einasti einstaklingur sé brjálæðislega magnaður og merkilegur og yndislegur. En þú kemst ekki að því nema þú getir elskað þá og þú getur ekki elskað alla, því miður. Jesús gat það, Búdda og Daiai Lama og svoleiðis stórmenni, en við þetta dauðlega fólk getum bara elskað mjög fáa. Með því að slípa stein er verið að gefa honum andakt, hann verður einstakur. En svo kom komplikasjónin," segir Sigurður og hallar sér aftur í stólnum. „Það reyndist ekki vera hægt að gera þetta við grágrýtið 1 fjörunni af því það er svo gljúpt; í frosti hefði slipaða skelin brotnað af. Þetta er mjög dýr vinna og hefði orðið ónýt á einu ári. Þá henti ég þeirri hugmynd en ákvað í samráði við nefndina að fá granítsteina í verkið. Þeir eru þéttir og langlífir og glans helst á þeim í áratugi. Ég fékk óslípuð granítbjörg í Svíþjóð, flutti þau til Kína, slípaði þau þar með miklum mannskap. Síðan flutti ég þau hingað til íslands og skipti á þeim og steinum í fjörugarðinum. Þá varð til blettur sem er að mestu leyti eins f formi og hver annar en heitur, þrunginn andakt." — Á okkur þá að hitna í brjóstinu þegar við sjáum þennan heita blett þar sem við erum á gangi meðfram sjónum? „Ég get ímyndað mér að fólk setjist þarna á fallegu vorkvöldi og horfi út á sjóinn," segir Sigurður dreyminn. „Ég á minningar frá því ég var strákur hér í Reykjavík um það þegar við fórum út í Gróttu þegar búið var að loka skemmtistöðunum með pela með okkur og settumst í fjöruna og sjórinn var lygn og við drukkum kannski úr þessum pela öll saman og svo þynntumst við upp og nutum stemningarinnar alveg fram undir morgun. Það voru sætar stundir. Ég gæti vel ímyndað mér að fólk settist á þessa steina f góðu veðri. Kannski með pela, hver veit, þó ég ætli ekki að reka áróður fyrir aukinni áfengisneyslu landsmanna. En heldur ekki gegn henni." Óábyggilegur listamaöur — Hver er staða þfn sem myndlistarmanns núna og á hvaða leið ertu? „Ég hef aldrei séð sjálfan mig sem einhvern leiðtoga," segir Sigurður, „einn af þeim sem segja „fylgið mér“ og skapa skóla. Hins vegar tala ég mikið, ég er málglaður maður. Ég er ekki módernisti að því leyti að ég stingi upp á nýjum heimi sem allir eigi að koma inn í. Ég vil ekki nota myndlistina þannig. Þó er þetta ekki alveg rétt, það er pínulítill angi af módernista í mér því mér finnst formflippið aðlaðandi. Ég er sjálfur mikið í formum og hef skipt oft um, verið óábyggilegur myndlistarmaður, hlaupið yfir í önnur form, flökt — mjög meðvitað raunar. Annars er „reduction“-hugsun ríkjandi hjá Vesturlandabúum, að redúsera og redúsera, skilja hismið frá kjarnanum uns kjarninn er einn eftir — mjög göfugt og allt það.“ — Ertu að breytast sem myndlistarmaður? „Já, ég held það. Ég vil helst ekki gera neitt nýtt í myndlist, ekki búa til form eða eitthvað sem er nýtt og búið til. Ég vil vera i heiminum eins og hann er en breyta afstöðú minni til hlutanna í staðinn fyrir að breyta hlutunum. Það rímar vel við Fjöruverkið. Einn hlutur getur haft margar merkingar eftir því fyrir hvað hann er látinn standa. Svo er ég orðinn dálftið reyndur og gamall í listinni og veit meira hvað ég þoli ekki af sjálfum mér. Ég er með algjört ofnæmi fyrir symbolisma, tU dæmis, og líka fyrir öllu sem er dídaktískt. Eftir því sem þú eldist veistu betur hvar þú átt alls ekki að vera af þvl þú hefur verið þar áður og meitt þig eða hruflað. En auðvitað koma nýjar hættur," og Sigurður hlær við. „Ég hef átt í erfiðleikum með það eins og kemur fram í bókunum mínum að finnast ég vera ófrjáls inni í hugarheimi menningarinnar. Finnast eins og hann læðist inn í mig og móti mig án þess að ég fái rönd við reist. Kannski er það hrikaleg sjálfselska að vUja vera frjáls frá honum líka. Ég er frjáls undan daglegu streði heimsins, get gert hvað sem mér sýnist, álit annarra snertir mig ekki svo lengi sem ég get réttlætt hlutina gagnvart sjálfum mér, og þá finnst mér bara skemmtUegra að fólk æsi sig. Ég þarf ekki að vera vinsæU maður. Þó á ég ekki marga óvini, held ég, enda aldrei verið í valdastöðu eða sýslað með
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.