Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Síða 32
2 Helgarblaaf DV LAUCARDAGUR IB. MAÍ 2002 Reykj avík I augum fjallageita og annarra sem spíg- spora um hálendið eða annars staðar utan alfaraleiðar jafnast ekkert á uið að ganga um staði eins og Lónsöræfi eða Hornstrand- ir, suo dæmi séu tekin af forkunnarfögrum gönguleiðum hér á landi. Þuíer hins uegar ekki að neita að gönguferðir um steinlagðar gangstéttar eða malbikaða göngustíga í þéttbgli geta uerið allt eins gefandi, ekki síst þegar listuiðburðir eru á huerju horni. EKKI ER SAMA GÖNGUFERÐ og gönguferð. í aug- um fjallageita og annarra sem spigspora um hálendið eöa annars staðar utan alfaraleiðar jafnast ekkert á við að ganga um staði eins og Lónsöræfi eða Hornstrandir, svo dæmi séu tekin af forkunnarfögrum gönguleiðum hér á landi. Hér skal þetta alls ekki dregið í efa en því er hins vegar ekki að neita að gönguferðir um stein- lagðar gangstéttir eða malbikaða göngustíga í þéttbýli geta verið allt eins gefandi og þurfa síður en svo að vera það hversdagslegir að varla taki því að tala um þá. Þannig hefur fólk mikla ánægu af því að ganga um Reykjavík og aðra þéttbýlisstaði í fylgd góðra leiðsögu- manna sem geta sagt skemmtilega frá staðháttum og tengt þá sögunni á hverjum stað. En ganga á eigin veg- um í borginni getur einnig verið gefandi og skemmtileg og kannski sjaldan betra tilefni en nú þegar Listahátíð í Reykjavík stendur sem hæst. Gefst nú kærkomið tækifæri til að blanda saman hollri hreyfingu og göfg- un andans en listrænar uppákomur af öllu tagi eru nánast á hverju götuhoni. Hér gerum við tilraun til að leiða lesandann í gegn- um eina slíka gönguferð um borgina, með upphafi og endi, en fólk getur að sjálfsögðu hagaö göngunni eins og því lystir. Eða hjólreiðaferöinni. Tíminn skiptir ekki máli, það hefur það hver eins og hann vill. Samtíinalist Það er sjálfsagt að mæla sér mót á nafla höfuðborgar- svæðisins, Lækjartorgi. Eftir að hafa lagt bílnum eða stigið úr strætó liggur beint við að arka strax í vestur- átt, að Hafnarhúsinu. þar er í gangi sýningin Mynd - ís- lensk samtímalist. Er um viðamikla sýningu á íslenskri samtímalist að ræða þar sem listamenn fæddir á árun- um 1952-1970 sýna verk sín. í sýningarskrá segir að kjarninn í að nálgast íslenska samtímalist sé einfald- ur, að nálgast listina með opnum huga og njóta hennar á eigin forsendum. Rétt er að taka fram að meðan Listahátíð stendur yfir eru ókeypis tónleikar fyrir gesti listasafna í hádeginu. Fjöruverk En eftir að hafa notið samtímalist- arinnar á eigin forsendum er rétt að arka út að höfninni, að hafn- armynninu og fá hressandi blástur framan í sig. Þaðan liggur malbikaður göngu- stígur alla leið inn á Vatsnberinn lians Ásinundar Sveinssonar gléður augað ásamt fleiri höggmvndum hans. Ustahóskólinn Grasagarðurina Ásmundarsagó áíý Fjöruverk/ “^Vatnspóstur Sólfarið Listasatn Reykjavíkur Nýlistasafnlð Kjarvalsstaðir Skólavörðustígur 'Listasafn fslands Hallgrimskirkja Laugarnestanga og á leiðinni er af nógu að taka. Neðan við Seðlabankann blasir Sólfar Jóns Gunnars Árnasonar við, tígulegt listaverk sem löngu er orðið eitt af helstu kennileitum borgarinnar. Það má vera afar vont veður til að halda fólki frá þessum fallega útsýnisstað. Það er sama hvenær komið er að Sólfarinu, þar er iðulega ein- hver á ferli. Aðeins lengra, við enda Snorrabrautarinnar, er síðan nýtt og mjög skemmtilegt listaverk sem vígt var í tilefni Listahátiðar í ár. Það er fjöruverk Sigurðar Guðmunds- sonar, slípaðir og pússaðir steinar sem við fyrstu sýn virðast eins og hluti af steinunum í grjóthleðslunni en áferð þeirra er breytileg. Rétt áður en komið er að verki Sigurðar mætir manni nýstárlegt verk sem nefnist Vatnsveitan, vatnspóstur gerður af norsku listakonunni Kari Elise Movbeck. Þar geta vegfarendur svalað þorstanum. Loksins, segja marg- ir sem þykir tími til kominn að komast í slíkt þarfaþing úti við. Alla þessa leið blasa sundin blá við göngufólki, Esjan, Skarðsheiðin og Akrafjallið. Hrúgur, segja marg- ir sem telja sig eiga fallegra fjall heima í sveitinni sinni en augnayndi engu að síður. Frá námsmönnum aö grasagarði Sjálfsagt er að ganga meðfram strandlengjunni, að Húsi Listaháskólans í Laugarnesinu. Þar sem áður var ráðgert að framleiða pylsur og álegg eru karlar og konur i listgjörningi af öllu tagi. Útskriftarsýning stendur yfir þar til á annan í hvítasunnu og upplagt að kíkja þar inn. Nemendur veita leiðsögn um sýning- una klukkan 17 sýningardagana. Nú getur verið að fólki langi í smáhressingu og vilji það leggja á sig smágöngu er ráð að ganga út Laugateiginn, fram hjá Laugardalslauginni og sem leið liggur inn dalinn að grasagarðinum. Á leiðinni er listavel gerður garður með tjörnum og brúm þar sem ys og þys borgarinnar gleymist og slaka má á. Tilkomumikið vatnslistaverk Rúríar trónir viö enda þessa svæðis en þar á bak við, inni á milli trjánna, leynist notalegur veitingastaður, Flóran, þar sem fá má súpu, smurbrauð eða aðrar veitingar og ýmis drykkjarfóng. Á góðum degi er hreint unaðslegt að sitja úti og njóta veitinganna. Höggmyndir Ásmundar Það þarf ekki að koma á óvart þó sumum dveljist í garðinum góða en ef sjá á meira af list er rétt að standa á fætur og ganga til baka í vesturátt, að litla hringtorginu ofan við bílastæði Laugardalsvallar. Handan hringtorgsins er Ásmundarsafn þar sem skoða má margar af helstu höggmyndum Ásmundar Sveinssonar, endurnærður af hvíldinni í dalnum. American Oddvssey Og enn tekur gangan við. Nú skal haldið áleiðs að Kjarvalsstöðum. Velja má um ýmsar gönguleiðir en frið- sælast er að koma sér strax yfir gatnamót Suðurlands- brautar og Kringlumýrarbrautar, upp í Skipholt og í suður að Háteigsvegi. Beygt er við Háteigsskóla og áfram yfir hæðina. Á leiðinni, rétt hjá kirkju Óháða safnaðarins og Sjómannaskólanum, er grasi gróinn vant- stankur, leifar frá gamalli tíð. Halda má að Háteigs- kirkju og þaðan niður Lönguhlíð og að Kjarvalsstöðum. Þar er m.a. sýning bandaríska ljósmyndarans Mary Ellen Mark, American Oddisey. Frá Kjarvalsstöðum er við hæfi að taka stefnuna á Hallgrímskirkju, sem sést víðast hvar, taka lyftuna upp í turninn, lita yfir farinn veg og spá í ótroðnar slóðir. Miðbæjarlíf Þegar niður er komið má rölta niður Skólavörðu- stíginn, mekka gallería og sérverslana, eða arka nið- ur Frakkastíginn og að Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Sé einbeitingin farin út í veður og vind og smáþreyta farin að gera vart við sig má finna sæti á einum af fjölmörgum veitingastöðum, fá sér hressingu - sitja kyrr á sama stað en samt að vera að ferðast. Við þá iðju má una lengi vel sé félagsskapurinn góður. Fjöruverk Sigurðar Guðmundssonar má sjá í grjóthleðsluni við ströndina fvrir neðan Snorrabraut. llér þegar verkið var afhjúpað á dögunum. Sýning bandaríska ljósniyndarans Mary Ellen Mark, American Oddisey. á Kjarvalsstöðum er um margt forvitnileg. Hafi listhungrið ekki verið satt má ganga niður Laugaveginn, suður Lækjargötu og að Listasafni ís- lands, skoða rússneska list undir yfirskriftinni Frá raunsæi til framúrstefnu. Hér hefur verið stiklað á stóru um gönguleið í Reykjavík sem gæti tekið dagsstund en lesendum er auðvitað bent á að kynna sér dagskrá listahátíðar og geta þá hagað röltinu um borgina eftir þvi. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.