Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Side 46
46 Helgctrblaö DV LAUGARDAGUR IS. MAÍ 2002 Þetta land spannar svæði sem nær suð- ur fyrir 77° norð- lægrar breiddar og talsvert norður fyrir 80' norður. l>að liggur því nánast í hánorður frá Noregi og ná eyjarnar yfir hafsvæði frá 9° aust- lægrar lengdar og austur að 37°. NORDAUSTLANDET Öll hús á þcssum slóðuni. hvort heldur steypt eða úr tiinbri, eru byggð á súlum 1 II •• |í ■ sem ná niður á sífrerann. Súlurnar verða að ná niður úr efsta jarðvegsvfirborð- inu sem þiðnar á sumrin. Jafnvel sundlaug bæjarins stendur á súluin en öil hús eru hituð með fjarvarmaveitu frá kolaorkuveri staðarins. Á veraldarhjara Svalbarði er trúlega íhugum íslendinga eitt afskekktasta land ájörðinni. Þó eflaust ímgndi sér flestir að þar sé eilíft og líflaust vetrarríki þá er það ekki nema að hluta til sannleikur. Þrátt fgrir að íbúar þessa lands séu innan við 3000 talsins er þar samt tölu- vert öflugt mannlíf með háskóla með öllu tilhegrandi. Þar, eins og víðar um hnatt- kringluna, má finna Islendinga, bæði við nám og kennslu - og það ílandi þar sem kolsvört heimskautanóttin ríkir allan sólar- hringinn frá 14. nóvember til 29. janúar. SVALBARÐI VAR í RAUN einskismannsland en er nú undir yfirráðum Norðmanna samkvæmt svo- nefndum Svalbarðasáttmála 40 þjóða frá 1920. Sval- barða er fyrst getið í íslenskum ritum árið 1194 í stuttum texta: „Svalbarði fundinn." Það var svo ekki fyrr en 1596 að Wiilem Barentz enduruppgötvaði Svalbarða. Framan af öldum 1600-1900 voru það hvalveiðar og dýraveiðar sem þjóðir Evrópu sóttu helst í á Sval- barða. Síðar byggðist þar upp landnám í kringum kolavinnslu sem hófst rétt fyrir aldamótin 1900. Bandaríkjamaðurinn John M. Longyear stofnaði síð- an Longyear City (nú Longyearbyen) vegna kola- náms 1906. Norðmenn tóku við námarekstrinum 1916. Nú eru starfræktar þrjár kolanámur á Svalbarða, tvær á vegum Norðmanna og ein á vegum Rússa. Á 78° norður í helsta námubæ Norðmanna, Longyear- byen, í vík eða litlum innfirði úr ísafirði, búa um 1650 manns. Þaðan er starfrækt svokölluð náma 7 sem nær eingöngu er nýtt til að framleiða rafmagn og heitt vatn í eina kolaorkuveri Norðmanna sem staðsett er I útjaðri bæjarins. Önnur náma er svokölluð „Sveagruva", eða Svíanáma, sem er í firði um 60 kílómetra suður af Longyearbyen. Samgöngur á milli námubæjanna eru ýmist með flugvélum eða vélsleðum. Þá búa einnig nokkrir tugir Norðmanna í Nýja-Álasundi, nokkru norðar á Spitsbergen. Rússar eru einnig með námuvinnslu á Svalbarða. í um 50 km fjarlægð í vestur frá Longyearbyen er námu- bærinn Barentsburg með um 930 íbúa. Þar reyna Rússar að hafa ofan af fyrir sér við námugröft en einnig reka þeir þar fataverksmiðju fyrir norskt fyrirtæki. Mismun- andi halli berglaga á svæðinu veldur því að námur Norð- manna er flestar ofarlega og lárétt í fjöllum. Náma Rússa er hins vegar í hallandi lóðréttum berglögum og eru þeir nú að vinna við mikið erfiði á um 400 metra dýpi undir sjávarmáli. Háskóli á hjara veraldar Þótt það hljómi ótrúlega þá er í þessum litla námu- bæ Norðmanna starfræktur eins konar háskóli sem sérhæfir sig í líffræði, jarðfræði og verkfræði sem mið- ar við staðhætti á norðlægum slóðum. Tala menn þar með stolti um minnsta háskóla í heimi sem er mitt í stærstu rannsóknarstofu heims - Svalbarða. UNIS-há- skóli (The University Courses on Svalbard) er eins konar útibú og samvinnuverkefni háskólanna í Tromsö, Bergen, Þrándheimi og Ósló. Við þennan há- skóla hafa verið starfandi tveir islenskir prófessorar og þar eru lika við nám tveir íslenskir stúdentar og einn íslenskur nemandi til viðbótar hefur líka verið þar við nám. Nemendur eru á annað hundrað og frá um 20 þjóðlöndum. Fyrir dyrum stendur að efla há- skólann og stækka um 5000 fermetra. Ólafia Lárusdóttir er fyrsti ís- lenski líffræðineminn við UNIS-há- skólann á Svalbarða sem stofnaður var 1994. Hún er úr Mosfellsbæ og hefur gert víðreist um heiminn. Auk Ólafíu stundar Hrafnhildur Hannes- dóttir einnig nám í jarðfræði við skólann. Þá eru tveir íslenskir pró- fessorar starfandi við UNIS-háskóla, hjónin Ingibjörg Svala Jónsdóttir og Ólafur Ingólfsson. Veturinn heillar niig - En hvað fær unga stúlku af íslandi til að sækja nám í háskóla á eins ótrúlegum stað og Longyearbyen á Svalbarða? „Mig langaði að prófa eitthvað nýtt og veturinn hef- ur alltaf heillað mig,“ segir Ólafía. „Maður hefur aldrei haft almennilegan vetur heima í Mosfellsbæn- um svo það var bara að sækja hann eitthvað annað. Nú, svo langaði mig til að skoða hvað menn væru aö gera annars staðar og kynnast um leið ólíku fólki." Þetta var mjög svart Ólafía ætlar sér að vera eitt ár á Svalbarða. Hún kom þangað nú eftir áramótin 1 svartasta skamm- deginu og fer aftur heim í svartasta skammdeginu um næstu áramót. En hvernig tilfínning ætli það hafí verið að lenda þarna í kolniðamyrkri og sjá ekki sólarglætu um langa hríð? „Þetta var mjög svart. Það var verulega skrýtið að upplifa þetta, en ég kom hingað 4. janúar og þá var algjört myrkur. Eftir um vikudvöl fór maður að sjá dökkbláa rönd við sjóndeildarhringinn í stuttan tíma um hádegið. Þetta óx síðan smátt og smátt. Ég sá ekki sólina fyrr en í endaðan febrúar, en þá að- eins með því að fara hér upp á jökul. Hér í bænum sá maður ekki sólina fyrr en 8. mars. Þrátt fyrir myrkrið fannst mér þetta ekkert erfitt eins og mörg- um öðrum sem koma hingað. Við sáum t.d. ekki fjallið hérna á móti (í ca 5 km fjarlægð) fyrr en móta fór fyrir því eftir um þrjár vikur. Ég hafði heldur ekki hugmynd um hvernig húsið sem ég bjó í var á litinn svo þetta var allt mjög skrýtið. Úti þekkti maður heldur enga í myrkrinu nema á göngulag- inu.“ Ólafia segir einnig skrýtið að þurfa að læra vopnaburð í skólanum. Það sé þó nauösynlegt vegna reglna sem banna ferðir út fyrir bæinn nema með riffíl á bakinu. Það er vegna hættu á árás ísbjarna. Hún segist hafa séð einn isbjörn en algengt sé að þeir komi þarna í nágrennið. Samfélagið þarna í Longyearbyen er, að sögn Ólafíu, mjög notalegt. Þrátt fyrir fámennið sé þar mikið um ferðamenn, sérstaklega á vorin. Á sumr- in fyllist bærinn síðan af ferðamönnum sem koma með stóru farþegaskipunum. Hún segir Norðmenn hugsa ákaflega vel um þennan háskóla sinn og alla nemendur sem þar eru. Því sé alls ekki dýrt fyrir Is- lendinga að stunda þar nám. Norðmenn standi að mestu straum af miklum kostnaði við námið og dýr- ar rannsóknarferðir. Ólafía Lárus- dóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.