Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2002, Síða 51
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2002 Helqctrblací DV 5 Astin eða dauðinn Hraunteigurinn er friðsæl gata og hefur alltaf verið. Hún varð sarnt sögusvið hörmulegra atburða á sjöunda áratugnum þegar ungur maður hugðist bana unnustu sinni. Sérkennileg ástríða unqs manns íReykjautk leiddi hann til óhæfuverka ímaí 1964. Þá ÞESSI SAGA HEFST í RAUNINNI þegar ungur rennismíðanemi kynntist stúlku af Teigunum vorið 1962. Hann var að læra rennismíði í Héðni og var um tvítugt. Hann var alinn upp í Vesturbænum i stórum systkinahópi og stundaði sveitastörf og verkamanna- vinnu að loknu gagnfræðanámi. Hún var átján ára gömul þegar þau kynntust og var með annan fótinn í Danmörku. Þau kynntust vorið 1962 og skemmtu sér allmikið saman þá um sumarið og veturinn eftir. Eigi bundust þau þó festum og þótt neminn bæði stúlkuna að giftast sér neitaði hún bón- orði hans og fannst ekki koma til greina að binda trúss sitt við hann til hjónabands. Hún fór til Dan- merkur vorið 1963 og þegar hún kom heim á ný vildi hún ekki lengur hafa neitt með piltinn að gera og neitaði að fara með honum á dansleiki og þess háttar þótt hann sæktist talsvert eftir því. Þannig var sambandi þeirra í raun lokið frá sjón- arhóli stúlkunnar en hún virtist vera ein um þá skoðun. Pilturinn sagði fyrir dómi að frá vorinu 1963 hefði stúlkan verið stöðugt í huga hans og hann hafi ekki getað hugsað sér að annar nyti hennar. Hann kvaðst hafa séð stúlkuna í fylgd með öðrum manni þá um veturinn og hafi hann þá ákveðið með sjálfum sér að annaðhvort yrði um- rædd stúlka eiginkona hans eða hann myndi stytta henni aldur. Það var síðan þriðjudagur 12. maí sem pilturinn valdi til þess að fremja ódæðið. Hann fékk leyfi úr vinnu sinni um hádegisbil, keypti sér eina flösku af brennivíni og tók hana með sér heim og hóf að neyta hennar. Frændi hans ungur kom og sat með honum part úr deginum og varð ljóst að eitthvað hvíldi þungt á honum en ekkert var minnst á ástæður þess. Seint um daginn hringdi pilturinn í bónda í Vatnsdal þar sem hann hafði verið í vinnu- mennsku og var ákveðið að hann kæmi til starfa hjá bóndanum Qjótlega. Ást eða dauði Hann ákvað nú að láta til skarar skríða og freista þess að fá stúlkuna með sér norður í vinnumennsk- una en deyða hana ella. Hann setti afganginn af brennvíninu á maltflösku, tók skeiðahníf og setti í vasa sinn. Hann hélt síðan að heimili stúlkunnar við Hraunteig og hitti hana þar fyrir ásamt vin- konu sinni. Þau settust öll þrjú inn á herbergi stúlkunnar og spjölluðu saman langa stund. Um klukkan 10 fór vinkonan af vettvangi og þá gafst tækifæri til þess að ræða við stúlkuna og bað pilturinn hana að koma með sér norður í land. Hún kvaðst þá vera því alvg fráhverf og kom fram að hún væri farin að vera með ákveðnum manni. Þá lýsti pilturinn því yfir að enginn skyldi njóta henn- ar nema hann, dró fram skeiðahnífinn og lagði til hennar mörgum stungum. Hann taldi hana örenda þegar hann yfirgaf staðinn og mætti vinkonunni í stiganum og sló hana þéttingsfast í höfuðið. Hann komst svo út á götu og lét leigubíl aka sér vestur á Grandagarð. Þar tæmdi hann vasa sína og fyllti þá af steinum og kastaði sér í sjóinn í þeim tilgangi að drekkja sér. Hann guggnaði hins vegar á þvi þegar í sjóinn var komið og buslaði að landi aftur og kraflaði sig á þurrt við Kaffivagninn. Þar komst hann í síma og hringdi I lögregluna og sagði til sín. Lögreglan fékk símtalið um klukkan 11 um kvöld- ið og þegar hún kom á vettvang í Kaffivagninum sat pilturinn þar á bekk rennblautur, alldrukkinn og grét og hljóðaði og lýsti atburðum kvöldsins fyr- ir lögreglunni. Hann var fluttur á lögreglustöðina og þaðan í fangageymslu en var fyrst gefin róandi sprauta. Stúlkan sem fyrir stungunum varð bar fyrir rétt- inum að hún hefði fyrst haldið að ákærði væri að sækja flösku í vasa sinn þegar hann dró upp hníf- inn. Hún fann síðan hnífstungurnar dynja á sér eina af annarri. Þegar hún reyndi að bera fyrir hendina og hljóðaði af hræðslu og sársauka, tók ákærði svo harkalega í hönd hennar að hún fór úr liði um öxl. Stúlkan bar fyrir réttinum að hún hefði verið stungin átta sinnum alls. Þegar ákærði flýði af vettvangi kom faðir stúlkunnar og móðir og þeim tókst að stöðva blæðingar úr sárum hennar, sem voru allmiklar, og koma henni undir læknishend- ur. Vinkonan sem slegin var bar fyrir réttinum að ákærði hefði verið nokkuð drukkinn þegar hann kom á staðinn en verið rólegur. Hún sagðist hafa skilið vinkonu sína þannig að hún vildi síður vera ein með piltinum og því hefði hún hraðað för sinni en hún þurfti nauðsynlega að skreppa í næsta hús. Þegar hún kom til baka eftir stutta stund brá henni verulega því á tröppunum heyrði hún hræðilegt neyðaróp að innan og þegar hún hraðaði sér upp stigann gekk hún í flasið á hinum ákærða með fyrr- greindum afleiðingum. í vitnisburði lækna kemur fram að stúlkan hefði ekki verið með lífshættulega áverka en næstu daga eftir komu á sjúkrahúsið hafi hún verið í tauga- áfalli, sofið illa, hrokkið upp með andfælum og end- urlifað árásina hvað eftir annað. Læknar sögðu að stúlkan hefði legið á sjúkrahúsi í tæpa tvo mánuði eftir þennan atburð og verið búin að ná sér að mestu líkamlega þegar hún var útskrifuð en töldu að andleg eftirköst yrðu umtalsverð. Vinkona henn- ar, sem árásarmaðurinn veitti þungt höfuðhögg á leiðinni af vettvangi glæpsins, átti við veruleg eftir- köst að stríða, bæði líkamleg og andleg, og þurfti meðal annars að hætta við að ljúka prófi úr 3. bekk Menntaskólans í Reykjavík. ætlaði hann að bana unnustu sinni frekar en að sjá á eftir henni íarma annars manns. Að loknum þeim uerknaði hugðist hann stgtta sér aldur með þvt að stökkva ísjóinn. Hvort tveggja mistókst sem betur fer og bæði fórnarlambið og ódæðismaðurinn lifðu. Á vettvangi glæpsins fann lögreglan skeiðahníf, 18 sentímetra langan, með 8,3 sentímetra löngu blaði sem var blóðugt. Miklir blóðflekkir fundust á staðnum. Daginn eftir verknaðinn fundust á Grandagarði hvítur vasaklútur, blóðflekkaður og slíður utan af skeiðahníf ásamt veski ákærða. Greindur en dulur Tómas Helgason yfirlæknir rannsakaði árás- armanninn í aðdraganda réttarhaldanna og segir í skýrslu sinni: „Hér er um að ræða vel greindan en dulan og innilokaðan mann, sem getur ekki tjáð tilfinningar slnar á eðlilegan hátt og á erfitt með að ræða sín eigin vandamál við aðra. Hann er frekar kaldlynd- ur og vill helst ekki þurfa að taka mikið tillit til annarra, þó honum sé ljóst vegna hinnar góðu greindar sinnar að slikt ber mönnum að gera og hafi yfirleitt gert það. Hann hefur orðið mjög hrif- inn af ungri stúlku, þeirri fyrstu sem honum hefur orðiö nokkuð ágengt við, talið sig hálftrúlofaðan henni, þó ekki væri beint talað út um það en kannske haft gilda ástæðu til að ætla að svo væri m.a. vegna tíðra bréfaskrifta er stúlkan dvaldi er- lendis. Það er því eðlilegt að það yrði jafninnilukt- um manni og sambándslausum mikið áfall er stúlk- an sleit sambandi þeirra. Vegna skapgerðargalla sinna gat X ekki leitað til annarra til að hjálpa sér að yf- irstíga erfiðleikana sem hann átti í eftir þetta heldur lokaði allt inni í sjálfum sér. Álit mitt á X er að hann er hvorki haldinn meiri háttar geðsjúkdómi né vanti vit heldur að hann hafi afbrigðilegan persónuleika, sé mjög áberandi kleyf- hugi þ.e. á fagmáli kallað schizioid psychopatia.“ Það var niðurstaða í héraði að ákærði skyldi dæmdur í 12 ára fangelsi og til þess aö greiða allan sakarkostnað. Þannig endaði þráhyggjukennd ástsýki unga mannsins meö því að leggja líf tveggja mann- eskna í rúst þótt enginn væri sviptur lífi. -PÁÁ 4 *.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.