Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2002, Blaðsíða 7
7 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 DV Fréttir Forstöðumanni Kvikmyndasjóðs hegnt fyrir hirðuleysi: Bókhaldsgap ffyllti mæli menntamálaráðherra - hvergi misferli á ferðinni segir Porfinnur Ómarsson Tóraas Ingi Olrich menníamálaráð- herra hefur vikið Þorfinni Ómarssyni, forstöðumanni Kvikmyndasjóðs íslands, tímabundið frá störfum eftir að í skýrslu Ríkisendurskoðunar voru gerð- ar alvarlegar athugasemdir við bók- haldsmál sjóðsins. Hins vegar hefur komið fram að Ríkisendurskoðun sagði í skýrslu sinni að þegar hafði verið komið í veg fyrir vandann. Mennta- málaráðuneytið segir áralangt hirðu- leysi Þorfinns í bókhaldsmálum og sinnuleysi gagnvart ítrekuðum ávítun- um hafa knúið það til aðgerða. Syndir fortíðarinnar Samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoð- unar var bókhald í óreiðu og uppgjör fyrir árin 2000 og 2001 komu ekki fram á réttum tíma, auk þess sem ekki fund- ust reikningar fyrir rúmlega 360 þúsund króna útgjöldum sjóðsins. Að sögn Vals Ámasonar, skrifstofu- stjóra lögfræði- og stjómsýslusviðs menntamálaráðuneytisins, byggist nið- urstaðan á rannsókn Ríkisendurskoð- unar sem varð til þess að ekki var hægt af hálfu ráðuneytisins að líta fram hjá skorti á bókhaldsgögnum varðandi 363 þúsunda króna útgjöld sjóðsins sem em afleiðing áralangs hirðuleysis. „Með því hefur Þorfinnur gerst brotlegur við ákvæði starfsmannalaga ríkisins, fjár- reiðulaga og laga um bókhald," segir hann. Ekki em til reikningar fyrir útgjöld- unum og samkvæmt 26. grein laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkis- ins er leyfilegt að víkja starfsmannin- um tímabundið frá störfum fyrir óreiðu á bókhaldi. Til er fundar- gerð i stjóm Kvik- myndasjóðs frá haustinu 1999 þar sem fram kemur að Þorflnnur bað um að ráðinn yrði fjár- málastjóri en stjóm sjóðsins gaf ekki leyfi til þess. Hann útskýrði beiðni sína með því að fjárlög sjóðsins myndu fjór- faldast á næstu árum. Þar sem bók- haldsmálin voru ekki í verkahring neins ákveðins starfsmanns tók hann þau á sínar eigin hérðar og segir hann við DV sig hafa haft yfirfullar hendur í þeim efnum. Forstöðumaðurinn ber reyndar ábyrgð á bókhaldinu, þó hann þurfi ekki að vinna við það sjálfur. Velta Kvikmyndasjóðs hefur aukist úr 100 milljónum upp í 400 milljónir frá því Þorfinnur tók við starfi forstöðu- manns. Með þessu rökstuddi Þorfinnur knýjandi þörf fyrir fjármálastjóra sem ekki fékkst uppfyllt. í kjölfarið kvörtuðu umræddar bókhaldsstofhanir ítrekað en ekki var komið í veg fýrir vandann fýrr en á þessu ári. Staðfest hefur verið að bókhaldsmál Kvikmyndasjóðs vora komin í gott lag á þeim tímapunkti sem Þorfinnur var leystur undan störfum af menntamála- ráðherra. Þetta tek- ur Ríkisendurskoð- un fram í skýrslu sinni og sam- kvæmt Ingu Björk Sólnes, skrifstofu- stjóra Kvikmynda- sjóðs, var bókhalds- óreiða ekki lengur til staðar. Þetta gerðist eftir að Þor- finnur lét endur- skipuleggja stofnunina á þann hátt að bókhaldinu var komið yfir á annan starfsmann en hann sjálfan. „Ég get staðfest að fjármál og bókhaldsskil stofnunarinnar era með ágætum. Búið var að koma málum í lag og manni finnst þessi brottvikning nokkuð harka- leg. Hún skaðar stofnunina og kvik- myndagreinina í heild sinni," segir Inga skrifstofustjóri. Þess ber að geta að í fréttatilkynn- ingu sem menntamálaráðuneytið sendi DV og fleiri fjölmiðlum er þeirrar niður- stöðu Ríkisendurskoðunar ekki getið. Valur Ámason segir þá staðreynd hins vegar vera utan við efnið, Þorfmni sé vikið frá störfum fyrir bókhaldsóreiðu áranna á undan. Endurgreiðir óútskýrð útgjöld Fátt bendir hins vegar til þess að Þor- fmnur Ómarsson hafi gert tilraun til þess að ota sínum tota í starfi sínu sem forstöðumaður Kvikmyndasjóðs. Ríkis- endurskoðun tekur skýringar hans á út- gjöldunum upp á 363 þúsund trúanlegar en þær era hins vegar ekki bókhalds- lega tækar. Þetta heitir óreiða og gefur tilefni samkvæmt lögum til brottvikn- ingar. Það kæmi í hlut Ríkissaksóknara að athuga hvort eitthvað glæpsamlegt hafi farið fram í þessu bókhaldsgapi, en mál Þorfmns er ekki í skoðun þar. Eftir situr að þau 363 þúsund sem Þorfinnur getur ekki útskýrt verða flokkuð sem lán hans hjá sjóðnum sem hann mun þurfa að endurgreiða. Sjálfur segir Þorfmnur brottvikningu sína hafa komið sér verulega á óvart. Aðspurður hvort honum þyki aðgerðir menntamálaráðherra harkalegar svarar Þorfmnur: „Þetta er harkalegt miðað við það að hvergi er misferli á ferðinni." Þorfmnur hefur verið leystur tíma- bundið frá störfum þar til úrskurðar- nefnd þriggja sérfróðra manna ákveður hvort honum sé stætt að starfa áfram. Nefndin er undir forsæti Bjargar Thorarensen, lagaprófessors við Há- skóla íslands. „Nefndin úrskurðar hvort rétt hafi verið að víkja Þorfmni frá störfum. Að öllum likindum mun þetta taka þijá til fjóra mánuði," segir Björg. Þess ber að geta að í upphafi næsta árs verður Kvikmyndasjóði breytt í Kvikmyndamiðstöð sem hefur í för með sér að starf forstöðumannsins verður auglýst sem laust. Staðan verður í svipuðum dúr og áður, með þeirri breytingu að hann mun hafa meiri áhrif á úthlutanir til kvik- myndagerðarmanna. -jtr Þorfinnur Ómarsson. Vilhjálmur Egilsson. Karfastofninn talinn í hættu Norðmenn óttast að karfastofhinn í Barentshafi sé að hrynja, en útflutning- ur þeirra hefur dregist verulega saman, úr 7.800 tonnum fyrstu 3 mánuði ársins 2001 í 1.500 tonn á sömu mánuðum árs- ins 2002. Væntanlegur ársfundur CITES, sem era alþjóðleg samtök um eftirlit með verslun með villt dýr og plöntur sem taldar era í útrýmingarhættu og af- urðir af þeim, mun marka betri yfirsýn yfir málið að mati vísindamanna. Botnfisksrannsóknir Norðmanna benda til að nýliðun í karfa sé alltof lít- il, aðallega vegna ofveiði, Fram til árs- ins 1990 vora það aðallega Austur-Evr- ópuþjóðir sem veiddu karfa í Barents- hafi en fram að því höfðu Norðmenn engan áhuga á karfanum. -GG Ball í Ögurvík: Búist við meti Svo virðist sem metfjöldi gesta muni leggja leið sína í Ögur í ísafjarðardjúpi á morgun þegar árlegur dansleikur verður haldinn þar. Undanfarin ár hef- ur stór hluti gestanna komið á bátum, líkt og gert var fyrrum þegar ekki var búið að leggja veg inn og út firði í Djúpi og menn þurftu að fara sjóleiðis á ball. Líklega verður boðið upp á áætlunar- siglingar í ögur á laugardaginn. En ljóst er að ekki þarf að óttast messufall því mikill áhugi er ríkjandi á norðanverð- um Vestfjörðum að fara á ballið. En kannski snýst vandinn ekki um það hvort samkomuhúsið sé nógu stórt, þvi ögurvíkin er rúmgóð og björt. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.