Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2002, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2002, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 29 * - Sport Haukurí 13. sæti Haukur Gunnarsson, ÍFR/Breiðabliki, keppti í gær í 100 m hlaupi á heimsmeistara- móti fatlaðra i frjálsum þróttum sem fram fer í Lille i Frakklandi. Haukur hijóp á tímanum 13.72 sek. og varð 6. í sínum riðli og í 13 sæti af 15 keppendum. Heims- og Ólympíumeistarinn Mu- hammed Allek frá Alsír sigraði í hlaupinu á nýju heimsmeti, 12.01 sek. Kínverjar hafa fengið flest verðlaun á mótinu til þessa. 400 nýliðar eru á mótinu en ails eru keppendur 1120.1 dag keppir Jón Oddur Halldórsson í 200 m hlaupi. -Ben Woosnams og McNulty koma ekki Kylfingarnir Ian Woosnams og Mark McNulty munu ekki leika á Pro-Am móti Nýherja eins og stóð til. Woosnams hefur dregið sig í hlé frá allri keppni næstu tvær vikurnar vegna veikinda í íjölskyldunni en McNulty hand- arbrotnaði á hjóli. í stað þeirra tveggja hafa verið fengnir Padraig Harrington frá írlandi, sem lenti í frnimta sæti á opna breska meistaramótinu um síð- ustu helgi, og Nick Dougherty en hann hefur, þrátt fyrir ungan aldur, skipað sér sess sem einn besti ungkylílngur heims. Birgir Leif- ur á pari Birgir Leifur Hafþórsson lék á pari fyrsta hringinn á áskor- endamótinu sem fram fer í Bowood á Englandi. Birgir Leif- ur er eftir fyrsta hringinn í 43.-72. sæti en hann fór fyrsta hringinn á 72 höggum. -Ben Helgi Jónas Guðfinnsson, landsliðsmaður í körfubolta: Vildi fá tilbreyting - lék í gær fyrsta leik sinn í efstu deild fótboltans Margir ráku upp stór augu í Laugardalnum þegar leik- maður númer 29 kom inn á í liði Grindavíkur i 0-3 sigri á Fram. „Nei, ég get nú ekki sagt að ég sé búinn að skipta yfir í fótboltann því að ég vildi bara fá smátilbreytingu í þetta og reyna að njóta þess að vera í íþróttum. Mér hefur alltaf fundist mjög gaman að spila fótbolta og langaði bara að slá til í sumar. Þetta var i fyrsta sinn sem ég var í hópnum og vonandi gerist það bara oftar,“ sagði Helgi Jónas Guðfmnsson, lands- iiðsmaður í körfubolta, sem kom inn á í liði Grindavíkur í lok sigurleiksins gegn Fram og lék fyrsta meistaraflokks- leik sinn fyrir félagið. Fyrir þá sem sjá Helga Jónas að- eins fyrir sér raða niður þriggja stiga körfunum má geta að hann er 26 ára og leikur í stöðu sóknarmanns. Helgi Jónas hafði samt spilað fótbolta áður. „Það eru nokkur ár síðan ég spilaði síðast en þá lék ég með GG í fjórðu deildinni en ég hafði aldrei æft með meistara- flokki Grindavíkur áður en ég byrjaði í sumar,“ sagði Helgi Jónas. En ætlar hann sér að stunda báðar íþrótta- greinarnar. „Ég er ekkert bú- inn að hugsa neitt út í það. Ég ætla að reyna að hafa gaman af því sem ég er að gera og sé síðan bara til,“ segir hann. Helgi Jónas er í 19 manna landsliðhópi Frið- riks Inga Rúnarssonar fyrir Norðurlandamótið í körfu- bolta í næsta mánuði. Helgi lék síðasta deildar- leik sinn á íslandi fyrir leik- inn í gær 4. júlí 1997 er hann skoraði eitt mark í 2-3 sigri GG á Snæfelli í Stykkis- hólmi. -ÓÓJ Bland í rrm Gary Megson, framkvæmdastjóri WBA, hefur framlengt samning sinn við félagið um þrjú ár. Megson kom liðinu upp í efstu deild og er mikil ánægja í herbúðum WBA með störf hans. Jer- emy Peace, stjórnarmaður hjá WBA, sagði að það hefði verið vonast til að Megson héldia áfram störfum hjá félag- inu og stýrði liðinu í efstu deild næsta vetur. Atletico Madrid hefur mikinn áhuga á að næla í Rivaldo og vona menn þar á bæ að hann hafni boði AC Milan og haldi sig á Spáni. Forráðamenn Atletico gera sér fulla grein fyrir því aö þeir hafa ekki eins mikla peninga og ítölsku risamir. Þangað til annað kemur í ljós ætla þeir að láta sig dreyma um að Rivaldo spili með þeim á næsta tímabili. Þeir hafa haft samband viö lögfræðing Rivaldos og bíða eftir viðbrögðum. Juan Sebastian Veron, leikmaöur Manchester United og argentiska landsliðsins, hefur mikið verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína hjá Manchester á siðasta tímabili og fyrir leik sinn á HM með Argentínu. Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester, hefur verið duglegur að verja leikmanninn og segir að þetta sé ábyggilega í fyrsta skipti sem Veron hafi fengiö gagnrýni. „Eg get ekki séð að hann haft veriö eins slakur og sumir vilja meina. Ég veit að hann er sterkur karakter og á eftir að koma til baka og sýna þessu sama fólki hvers hann er megnugur." Peningavandrœói í knattspyrnuheim- inum eru betur og betur að koma í ljós og nú hafa eigendur franska liðsins Paris St. Germain sett félagiö á sölu. Fé- lagið vann Evrópukeppni bikarhafa ár- ið 1996 og hefur sterka leikmenn innan- borðs, á við Ronaldinho frá Brasiliu. Orlando Magic í NBA-deildinni vestan hafs hefur framlengt samning sinn viö Pat Garrity til fimm ára. Garrity gerði 11,2 stig í leik á síðasta tímabili og er talinn einn besti skotbakvörður deildar- innar. Ron Artest, leikmaður Indiana Pacers, hefur verið ákærður fyrir að hóta fyrr- um kærustu sinni öllu illu. Artest skildi eftir skilaboð á símsvara konunn- ar sem innihéldu alls kyns hótanir. Artest er því kominn í hóp NBA-leik- manna sem hafa komist í kast við lögin að undanförnu en eins og áður hefur_ komið fram þá er Alen Iverson ekki í góðum málum. Glenn Robinson hjá Milwaukee Bucks hefur verið ákærðu.r sem og Oldyn Polinice hjá Utah Jazz. Eldur kom upp í skemmtistað í eigu Dennis Rodmans um síöustu helgi. Ekki er talið að um íkveikju sé að ræða. Rodman hefur ekki verið neinn engill upp á slðkastið og var handtekinn 1 jan- úar sl. Hann er orðinn fertugur, þykir gaman að skemmta sér og virðist vera i því í fullu starfl. Alls hefur lögreglan sótt hann heim 70 sinnum vegna óláta heima fyrir en þar rekur hvert teitið annað. Utah Jazz hefur ákveöið að bjóða Byron Russell, leikmanni liðsins til níu ára, ekki nýjan samning. Russell er síður en svo ánægður með það og sagð- ist ekki einu sinni hafa fengið símtal heldur hefði einhver skilið eftir skila- boð um það að samningurinn yrði ekki endumýjaður. „Siðast þegar ég var með iausan samning var ég grátbeðinn um að vera áfram.“ Jerry Sloan, þjáifari Utah, segir að Russell hafi ekki spilað vel síðustu tvö tímabil og þvi hafi verið ákveðiö að endurnýja ekki samning hans við félag- iö. Hann bætti við aö það kæmi til greina aö semja við hann og skipta hon- um til annars liðs. -Ben Stórlax sla eftir mikla - í Þverá í Borgarfirði í fyrradag „Þetta var svakaleg barátta við órfiskinn þama í Kastalahylnum og skurinn hafði að lokum betur en tki veiðimaðurinn. Laxinn fór örgum sinnum út með alla línuna,“ igði tíðindamaður okkar á bökkum /erár í Borgarfirði, en mikil irátta fór fram við stórlax við astalahylinn í fyrradag. „Laxinn var vel yfir 20 pundin og hann kafaði hvað eftir annað í hylinn en fór síðan af aö lokum, eftir um það bil hálftíma," sagði okkar maður á bökkum Þverár. Þverá og Kjarrá eru komnar meö 700 laxa og eru í ööru sætinu yfir fengsælustu laxveiði- ámar. G. Bender Norðurá: Langefsta veiðiáin - rólegt í Rangánum Veiðimenn eru þokkalega kátir þessa dagana með veiöina. í mörgum laxveiðiám er fin veiði en aðrar em slappari. Norðurá í Borgarfirði er langbesta veiðiáin núna en síðan koma Þverá og Kjarrá. Við skulum að- eins líta á tíu bestu veiðiámar. Það em að verða liðnir tveir mánuðir síð- an laxveiðin hófst og ýmislegt hefur gengiö á. Norðurá í Borgarfirði er langefst með 1330 laxa, síðan kemur Þverá í Borgarfirði með 700 laxa og svo Laxá í Kjós með næstum 600 laxa. Langá á Mýrum hefur gefið 450 laxa og síðan kemur Blanda með 430 laxa. Veið- in hefur batnað til muna í henni síðustu daga. í Eystri-Rangá hafa veiðst 380 laxar og svo kemur Laxá í Aðaldal með 322 laxa. Veiðin í Rangánum er aðeins að lagast, en betur má er duga skal. G. Bender Langá: Golfmót og afmæli - veiðin gengur fint P „Veiðiskapunnn gengur vel hjá okkur og og hafa veiðst 450 laxar. Það veiðast á milli 20 og 30 laxar á hverjum degi en veiðimenn em að setja í 40-50 laxa,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson við Langá á Mýrum í gærdag. Þá var fariö að styttast í aö hann héldi upp á sextugsafmæliö sitt á laugardaginn. „Það verður víst ýmislegt í gangi hérna næstu daga, golfmót, afmæli og síðan Fluguveiðiskólinn,“ sagði Ingvi Hrafn í lokin. Opna Langár- golfmótið verður á Hamarsvelli í Borgamesi á laugardaginn. Mótið er punktamót með forgjöf og verða víst glæsileg veiðiverðlaun í boði. Síðar um kvöldið tekur afmælisbamið á móti gestum að Hamri. G. Bender Torben Hallen Gren frá Danmörku viö Noröurá í Borgarfirði meö lax. Noröurá er langfengsælasta laxvelðiáin þessa dagana. DV-mynd Ólafur Haukur f ■r <■ 'V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.