Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2002, Blaðsíða 13
13 FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 2002 py_____________________________________________ Útlönd Israelsmenn halda áfram aðgerðum á Gaza - jöfnuðu þrjár byggingar við jörðu í innrás í Gaza-borg í morgun ísraelskar skriðdrekasveitir réðust í bítið í morgun inn í Gaza-borg, þar sem einar þrjár byggingar voru jafnaðar við jörðu með stórvirkum jarðýtum. Að sögn sjónarvotta var aðgerðunum beint gegn lögreglustöð, sem einnig hýsti bækistöðvar öryggis- sveita heimastjórnarinnar, og einnig tveimur vélaverkstæðum. Fjórir Palestínumenn munu hafa slasast í aðgerðunum, þar af tveir mjög alvarlega. Að sögn talsmanna ísraelska hersins voru vélaverkstæðin í raun vopnaverksmiðjur þar sem framleiddar voru sprengjur og eldflaugar sem palestínskar hryðjuverkasveitir hafa skotið að ísrelskum byggðum að undan- förnu. Israelar óttast nú mjög hefndaraðgerðir Palestínumanna eftir loftárásina grimmilegu á Gaza-borg á mánudaginn þar sem sextán manns létu lífið. Vopnuð samtök Palestínu- manna, sem hótuðu grimmilegum Eyðileggingln í Gaza ísraetsmenn héldu áfram aðgeröum í Gaza-borg í morgun og lögðu þá í rúst þrjár byggingar til viöbótar við þær fimm sem sprengdar voru upp í loftárásinni mannskæðu á mánudaginn. hefndum, skutu í gær til bana ísraelska rabbíann Elimelech Shapira þar sem hann var á ferð í bifreið sinni í landnemabyggð gyðinga nálægt bænum Qalqilya á Vesturbakkanum. Al-Aqsa-samtökin hafa þegar lýst yfir ábyrgð sinni á tilræðinu. ísraelsk stjórnvöld hafa að und- anförnu mátt þola harða gagnrýni forystumanna erlendra ríkja vegna árásarinnar á mánudaginn. Hosni Mubarak Egyptalandsfor- seti bættist í þeirra hóp í gær þeg- ar hann sakaði ísraelsk stjórnvöld um að hindra af ásettu ráði fram- gang friðarumleitana á sama tíma og palestínsk stjórnvöld gerðu sitt til að binda enda á oföeldið. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi sem haldinn var að loknum fundi Mubaraks með Chirac Frakklandsforseta í París í gær. Á næstu dögum mun hann heim- sækja fleiri Evrópulönd í viðleitni sinni til að koma á friði. AOL Time Warner. Hlutabréf AOL hríðféllu í gær Gengi hlutabréfa fjölmiðlarisans bandaríska, AOL Time Warner, hafa ekki verið jafn lág og eftir lækkun þeirra á hlutabréfamarkaði i gær. Fjármálasérfræðingar segjast ekki búast við að fyrirtækið rétti sig af í nánustu framtíð. AIls höfðu hlutabréfm fallið allt að 23% í verði en við lok dags haföi verð þeirra lækkað um 15% og kost- ar nú hver hlutur 9,64 dollara. Lækkunin er viðbrögð fjármála- heimsins við rannsókn viðskiptaeft- irlitsnefndar Bandaríkjanna en Washington Post sagði i síðustu viku að netdeild fyrirtækisins, AOL, hefði aukið hagnað með „óvenjulegum" samningum. REUTER&MYND Heimsæskan blessuö Jóhannes Páll páfi annar kom til Toronto í Kanada í gær til að messa yfirgestum hátíðar þar í borg. Hátíðin er helguö heimsdegi unga fólksins 28. júlí. Viö komuna í gær urðu páfa reyndar á örlítil mistök þegar hann sagöist síðast hafa verið viöstaddur hátíö á slíkum degi í Krakow í heimalandi sínu, Póllandi. Raunin er sú að síðasti heimsdagur var haldinn hátíðlegur í Rómaborg þar sem Vatíkanið er. Talsmenn hans þar sögðu að hann hefði einfaldlega mismælt sig. Vill útiloka samkynhneigða Ingeborg Lyngstad Vik, yfirlæknir á Olafíu-kynsjúkdómadeildinni í Nor- egi, vill banna samkynhneigðum körl- um að heimsækja sánabaðstofur. Hún segir að áhættan fyrir alnæmissmitun og öðrum kynsjúkdómum, sé alltof mikil til þess að leyfa samkynhneigð- um körlum aðgang að þeim. Ingeborg segir að sánaklúbbamir séu gróðrarstía kynsjúkdóma enda komi fólk þangað ekki aðeins í þeim tilgangi að bregða sér í gufubað og sól- arlampa á eftir. Hún segir að það sem af er árinu sé vitað um fjölda tilfella alnæmissmita sem eigi rætur sínar að rekja til kynmaka í sánaklúbbum landsins auk þess sem niu einstakl- ingar hafi fengið þar syfilis. Yfir- læknirinn heldur þvi fram að ekki sé síður ástæða til að loka sánaklúbbun- um en tjaldstæðinu í Skippagurra í Finnmörk þegar upp komst um stóð- lifið þar og þá kynsjúkdóma sem fylgdu í kjölfarið. Forstöðumaður My Friend Club, eins sánaklubbanna, Olav Hemæs, er ekki sammála Ingeborg Lyngstad Vik. Hann segir að vissulega komi fólk í klúbbinn til að eiga kynmök. En þar sé allt undir góðu eftirliti. Hann segir að allir gestirnir fái smokka þegar þeir mæti á staðinn og skilur þvi illa að rekja megi kynsjúkdóma til heim- sókna I klúbinn sinn. -GÞÖ <®TOYOTA Eg er alltaf í sambandi, alltaf hreyfanlegur og kosta frá aðeins 1.1 29.000 kr. sem er sama verð og þegar ég er venjulegur. www.toyota.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.