Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Blaðsíða 17
DV-rayndir E.Ól
LAUGARDAGUR IV. ÁGÚST 2002
/ /1? I a rl> /cj ö DV
Margir halda að
ég sé klikkaður
Jón Gnarr er umdeildur, margir elska hann en aðrir
hata hann nógu mikið til að segja að það ætti að
skjóta hann. Jón segir frá morðhótunum, hluti/erka-
leikjum og wítisholunni sem lífið er. • Sjá næstu opnu
JÓN GNARR ER AF MÖRGUM TALINN fyndnasti
maður íslands. Hann átti stjörnuleik í íslenska
draumnum og í kvikmyndinni Maður eins og ég sem
frumsýnd var á fimmtudag sýndi hann að hann stend-
ur framarlega í röð íslenskra leikara. Ég hitti Jón á
Hótel Holti og ræddi við hann um kvikmyndina, leik-
listina og trúarleg málefni.
Sá Július sem þú leikur í Maður eins og ég er ekki
sami Júlíus og þú lékst í íslenska draumnum?
„Nei, enda var það aldrei hugmyndin. Að vísu heitir
persónan sama nafni í báðum myndum og er leikin af
mér. Þessir menn eru mjög ólíkir enda fannst mér sá
karakter sem ég lék í íslenska draumnum ekki eiga neitt
meira skilið en hann fékk þar; það var engin stærri
mystería á bak við hann sem þurfti að koma fram. Ég
braut mjög heilann um það hvernig ég gæti gert þessa
nýju persónu af því að það er ríkjandi viðhorf að fyrst ég
leik hann, hann heitir sama nafni og er hrifrnn af asísk-
um konum að þetta sé sami gaurinn. Ég hafði smá
áhyggjur af því hvort ég gæti gert hann nógu ólíkan
þannig að fólk sæi að þetta væru ekki sömu karakterarn-
ir. En þegar upp er staðið hefur það tekist mjög vel.“
Þeir hafa haft þig í huga þegar handritið var skrif-
að?
„Já, þeir gerðu það.“
Komstu eitthvað að handritsvinnunni?
„Ósköp lítið. Ég vann mikið með Róberti og Árna
Óla þegar ég var að búa til karakterinn. Ég ræddi mik-
ið við þá um hvernig ég fyndi þennan karakter, sögu
hans, áhugamál og hugmyndir um lífíð og tilveruna.
Við unnum það í sameiningu en ég skipti mér ekkert
af sögunni sjálfri."