Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2002, Blaðsíða 26
26 Helqctrblað H>V LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 Magnús Geir Þórðarson hóf afskípti sín af leikhúsi fgrir 19 árum. Síðasta verk hans var óperan Dido og Eneas sem var frumsýnd um síðustu helgi og hlaut frábæra dóma. Magnús Geir ræðir um ástina á leiklistinni, leikstjórnarverkefni i Skotlandi, stuðning við íslensk leikhús og arfleifð Leikfélags íslands. Magnús Geir Þórðarson varð fyrst leikhússtjóri þegar hann var níu ára og stofnaði Gamanleikhúsið. Af hverju? spyr ég hann og svarið er einfalt: „Mig langaði að vinna í leikhúsi, leikhúsið hefur alltaf heillað mig“. Annars eru ættir Magnúsar Geirs meira tengdar viðskiptum en listum. „Þetta hlýtur að vera einhver erfðagalli," segir Magnús. Frá unga aldri var stefnan tekin á leikstjórn. „Þegar ég var barn langaði mig til að leika en eftir að ég kynntist leikstjórn var það enginn vafi hvert ég stefndi." Magnús fór út til Bristol þar sem hann lagði stund á nám í leikstjórn við virtan leikhússkóla. Þar kynnt- ist hann Jim Cartwright sem vakið hafði heimsat- hygli, meðal annars fyrir leikritið og kvikmyndina Little Voice sem á íslensku var þýtt Taktu lagið, Lóa. Magnús kom síðan heim og leikstýrði heimsfrumsýn- ingu á nýju verki Cartwrights, Stone Free. Sýningin sló rækilega í gegn og gekk fyrir fullu húsi í Borgar- leikhúsinu árin 1996 og 1997. Magnús hafði ætlað sér að hverfa af landi brott á ný eftir sýninguna en verk- efnin sem buðust voru of mörg og of spennandi hjá Leikfélagi íslands. Það hafði hann byggt upp ásamt Breka Karlssyni, Karli Pétri Jónssyni og Pétri Blön- dal. „Ég hef verið á leiðinni út siðan ég kom heim en það rætist brátt úr því,“ segir Magnús. Árið 1999 urðu nokkur tíðindi í íslensku leikhúsi þegar Leikfélag íslands, Flugfélagið Loftur og Hljóð- setning sameinuðu rekstur sinn undir merkjum Leik- félags Islands og til varö stærsta sjálfstæða leikhúsið á landinu. „Það sem vakti fyrir okkur var að byggja upp enn sterkara leikfélag og sameina krafta öflugra leikhúsmanna." Nýt mín best í leikstjórastólnum Er ekki rétt að þið lögðuð upp með að starfa án styrkja? spyr ég Magnús. „Nei, við lögðum ekki upp með það,“ svarar hann. „Fyrir aðstandendum leikhússins vakti að reka gott leikhús á sem hagstæðastan hátt með lægstu mögu- legu styrkjum. Leikfélag íslands hafði alltaf fengið styrki; Það hefði aldrei verið mögulegt að reka leik- húsið án styrkja. Styrkirnir sem leikfélagiö hlaut voru hins vegar lágir samanborið við önnur leikhús hér á landi. Siðustu þrjú starfsárin var kostnaðar- aukningin i íslensku leikhúsi mikil og það kallaði á aukinn stuðning. Við vöktum strax athygli á því og fórum fram á þríhliða samning við ríki og borg. Ef þess hefði ekki þurft hefði félagið aldrei farið fram á það. Ósk okkar var um tiu milljónir frá borg og tíu frá ríkinu. Borgin var til en ákvörðun ríkisins dróst alltaf lengur og lengur þar til við litum svo á að við gætum ekki haldið starfseminni áfram. Starfsemi Leikfélags íslands var því stöðvuð sjö árum eftir fyrstu frumsýningu. Mikill fjöldi leikhúsfólks starfaði hjá félaginu. Þegar stórt leikhús leggur upp laupana er það auðvitað áfall fyrir stéttina. Það er slæmt.“ Var leikhússtjórastarfið draumastarfið? „Mitt draumastarf er að vera leikstjóri. Ég veit ekk- 29.656 kr. Handy C. hornbaðkar 149.900 kr. 135x135x58 cm, með nuddi Verð áður: 197.202 kr. Funoi handlaug 20.636 kr. 400 mm og 150 mm ó hœð HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Glæsileg... ...hreinlætistæki Scala handlaug stölluð, 470x470 mm og 200 mm á hæð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.