Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 25
LAUG ARDAGU R V. DESEMBER 2002
HelQctrbloö H>V
25
r
DV-myndir Sig. Jökull
Ólafur Gísli í Heitt og kalt sker
djúpa skurði í pöruna með
hálfs til eins sentímetra milli-
bili. Vel beittur hnífur er nauð-
synlegur í þetta verk og dúka-
hnífar eru sérlega hentugir.
Þótt það þyki venjulega ekki
góð latína að „núa salti í sárin"
þá er það nauðsynlegt á
skorpusteik. Ólafur Gísli notar
gróft salt. Hér dreifir hann líka
piparkornum í rifurnar.
Til að paran verði stökk er
gott að láta hana snúa niður
fyrstu 10-15 mínúturnar í ofn-
inum og hafa vatn í skúffunni.
Vatnið og saltið gerir það að
verkum að fitan „poppast“,
eins og Ólafur Gísli orðar það,
og verður brakandi hörð.
Milt Mommesin með
og gæðakoníak á eftir
- er val Ólafs H. Ingasonar hjá Heildverslun Alberts Guðmundssonar
Margir eru komnir í veislustellingar enda annar
sunnudagur í aðventu nú um helgina. Veitinga-
staðir bjóða upp á jólahlaðborð og menn gera sér
glaðan dag með vinnufélögum, vinum og fjöl-
skyldu. Og brátt koma jólin þegar menn gera ekki
síður vel við sig í mat og drykk. Nú háttar svo til
að aðfangadagur er á þriðjudegi þannig að strax
eftir hátíðamar er komin helgi og strax eftir helg-
ina eru áramótin. Það má því búast við að reyni á
ófáa buxna- og pilsstrengi eftir þau átök.
Svínakjöt, bæði nýtt og reykt, setur svip sinn á
mög jólaborðin. Þar á meðal er pörusteik eins og
sjá má hér í opnunni. Ólafur H. Ingason hjá Heild-
verslun Alberts Guðmundssonar segir aö þegar
boðið er upp á svínakamb ætti gott rauðvín yfir-
leitt ekki að vera langt undan. Og gott rauðvín er
nokkuð sem hann sýslar með dag hvern.
Mommessin er virt fyrirtæki í Frakklandi og
þaðan kemur einmitt Mommessin Cotes du Rho-
ne, milt rauðvín með léttum kryddkeim og dá-
litlu tanníni. Fyrir utan það að henta vel með
öllu kjöti þá er Mommessin Cotes du Rhone
einnig tilvalið með ostum eða bara eitt og sér.
Ólafur bætir við að rómantík og Cotes du Rhone
frá Mommessin eigi einstaklega vel saman.
Mommessin Cotes du Rhone er annars mjög vel
þekkt meðal íslendinga, hefur lengi verið til sölu í
verslunum ÁTVR. Fyrirtækið Mommessin var
stofnað árið 1865 af Jean Marie Mommessin og hef-
ur það verið i eigu fjölskyldunnar allar götur síð-
an. Gæðakröfur hjá Mommessin eru afar strang-
ar og kemur fjöldi gamalreyndra víngerðar-
manna og sérfræðinga að vínframleiðslunni.
Það þarf því ekki að koma á óvart að unnendur
góðra vína séu hrifnir af Mommessin. Hafa
Mommessin-vínin unnið fjölda vinkeppna
og hlotið ótal verðlaun og viðurkenning-
ar í gegnum tíðina. Mommessin-vínin
fást í yfir 70 löndum í fimm heimsálfum.
Mommessin Cotes du Rhone kostar 1.220
krónur í vinbúðum ÁTVR.
Eftir góða máltíð, ekki síst massífa veislu-
máltíð, er oft gott að „stilla sig af ‘ og dekra
við sig um leið. Þá þykir mörgum við hæfi
að leka koníakstári í glas og koma sér vel
fyrir. Og jafnvel sötra á kaffi í leiðinni.
Hennessy VSOP koníak þykir hæfa slíkum
stundum. Hennessy er risi í heimi koníaks-
ins, mest selda koniak veraldar. Koníak er
stundum nefnt drykkur englanna en mikil
uppgufun á sér stað úr Cognac-héraðinu og
segja sögur að englarnir safnist gjarnan
saman þar yfir og njóti góðs af. En þeir sem
vilja njóta góðs af þessum engladrykk á ís-
landi í desember geta lagt leið sína i ÁTVR.
Þar kostar 70 cl flaska 4.610 krónur.
Umsjón
Haukur Lárus
Ilauksson