Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 71
LAUGARDAGUR V. DESEMBER 2002
H <2 Iqci rb lac? 3Z>"V
75
Myndirnar tvær virð-
ast við fyrstu sýn eins
en þegar betur er að
gáð kemur íljós að á
annarri myndinni hef-
ur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi
fimm atriði skaltu
merkja við þau með
krossi og senda okkur
ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að
tveimurvikum liðnum
birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
Verðlaun:
United
feröageislaspilarar
með heyrnartólum frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2, aö
verðmæti 4990 kr.
Vinningarnir veröa
sendir heim til þeirra
sem búa úti á landi.
Þeir sem búa á
höfuöborgarsvæöinu
þurfa aö sækja
vinningana til DV,
Skaftahlíö 24.
SiSt
Svarseðill Nafn:
Heimilp:
Merkið umslagið með lausninni:
Rnnur þú fimm breytingar? nr. 695,
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík.
Verðlaunahafi fyrir getraun nr. 694:
Kristjana Ragnarsdóttir,
Jaðarsbraut 31,
300 Akranesi.
Lífiö eftir vinnu
•Uppákomur
■Magadans og afró
í Austurbæ, gamla Austurbæjarbiói, verð-
ur heljarinnar danssýning í kvöld. Sýndir
veröa hefðbundir afrískir dansar frá Gíneu
auk magadans frá Brasilíu. Helga Braga
mætir á svæöiö. Sýningin er tæpir tveir
tímar með hléi og þaö kostar 2000 kall
inn. Miöar seldirí Kramhúsinu, Exodus og
viö innganginn. Sýningin hefst kl. 20
■Matur og ténlist frá frönsku-
mælandi Nordur-Afriku.
Kl. 20 veröur „francophone“-kvöld I Alli-
ance Frangaise. Þema kvöldsins veröur
Norður-Afríka þar sem þoöiö veröur upp á
mat og tónlist frá frönskumælandi Norð-
ur-Afriku. Þátttökugjald er 1700 kr. í því er
innifalinn matur (grillaö paprikusalat,
lamba „tajine" meö sveskjum og eftirrétt-
ur) og hálf vínflaska. Skráið ykkur sem
fýrst í síma 552-3870. Fjöldi þátttanda er
takmarkaður.
■Heimildamvnd um Heklu
Kl. 14.30 verður frumsýning á heimilda-
mynd um Heklu eftir Valdemar Leifsson
kvikmyndageröarmann I Gallerí Sævars
Karls. Vignir Jóhannsson myndlistarmaö-
ur mun flytja samrunaverk myndlistar og
tónlistar tileinkaö Heklugosi. Hekluhof
veröur sýnt af EON arkítektum, Hlédísi
Sveinsdóttur og Gunnari Bergmann, sem
einnig munu halda fyrirlestur ! Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þann 12.desem-
þer. Allt þetta er í tengslum við sýninguna
sem var opnuö í galleríinu I gær og er til-
einkuö Heklu.
•T ónleikar
■Hádeglstónar i Listasafni Ás-
mundar Sveinssonar
Viola da gamba félagiö heldur sína fyrstu
tónleika í listasafni Ásmundar Sveinsson-
ar í Sigtúní I Reykjavík, kl. 12.30. Viola
da gamba félagiö er nýstofnað félag og er
ætlaö þeim sem hafa áhuga á hljóöfær-
inu og tónlist fýrir gömbur, jafnt leikmenn
sem læröa. Viola da gamba er strengja-
hljóöfæri, strokiö meö boga og var mjög
vinsælt á endurreisnar- og barokktíman-
um I Evrópu. Á tónleikunum leika: Sigurð-
ur Halldórsson á sóprangömbu,
Hildigunnur Halldórsdóttir á tenorgömbu,
Ólöf Sesselja Óskardóttir á bassagömbu
og Snorri Örn Snorrason á lútu.
■Tónleikar i Hafnarborg
Skólaskrifstofa Hafnarfjaröar og Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun Hafnar-
fjaröar standa aö tónleikunum Syngjandi
jól I fimmta sinn I dag. Fram koma 22
kórar og sönghópar, alls um 800 söngv-
arar. Söngdagskráin stendurfrá kl. 13.00
til kl. 20.20.
■Pr. Gunni á Grand Rokk
Þaö er komiö aö tónleikum meö hljóm-
sveitinni Dr. Gunni. Sveitin spilar á
Grandrokk í kvöld ásamt Innvortis frá
Húsavík, 500 kall inn og léttar veitingar í
boöi.
■Bubbi og Kristinn Sigmunds-
son á Listafléttu i Langholts-
kirkiu
Líklegt er aö þeir Kristinn Sigmundsson
og Bubbi Mortens syngi saman í fyrsta
sinn á fimmtu Listafléttunni í Langholts-
kirkju I dag klukkan 17. Yfirskrift
Listafléttunnar aö þessu sinni er „Krakk-
arnir úr hverfinu" en bæöi Bubbi og Krist-
inn ólust upp I Langholtshverfi. Það geröu
líka tveir kunnir rithöfundar sem lesa
munu upp úr verkum sínum á Listaflétt-
unni en þaö eru þau Steinunn Slguröar-
dóttir og Einar Már Guðmundsson. For-
ráöamenn Listafléttunnar láta sér ekki
nægja aö flétta saman tær listgreinar,
tónlist og ritlist, aö þessu sinni heldur
bæta myndlistinni viö og tengist sá þátt-
ur strák út hverfinu, listamanninum Tolla,
Þorláki Kristinssyni, sem sýna mun nokk-
ur málverka sinna. Einn krakki til viöbótar
úr Langholtshverfi mun kynna atriði
Listafléttunnar en þaö er Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, þorgarstjóri í Reykjavlk. Eins
og á fýrri Listafléttum er matarlistinni
einnig gerö skil og verður sá þáttur á
þjóölegum Tslenskum nótum.
0)
V
(B
Honum tókst það,
Jafet greip boltann
og við unnum
loksins leik!!!
60 ára afmælismót Bridgefélags Reykjavíkur:
Valdimar Grímsson
átti góð hraðaupphlaup
Bridgefélag Reykjavikur á 60 ára
afmæli um þessar mundir og í tilefni
af því var haldið veglegt afmælismót
um sl. helgi. Mótið tókst ljómandi vel
og voru mættir til leiks bestu
bridgemeistarar þjóðarinnar ásamt
mörgu öðru stórmenni.
Mótið hófst með svokölluðu Stór-
fiskamóti á föstudagskvöldið en þar
spiluðu saman bridgemeistarar
Bridgefélagsins og ýmis stórmenni
úr þjóðlífinu. Keppni lauk með sigri
Valdimars Grímssonar og Sverris Ár-
mannsonar. Valdimar er þekktari
fyrir snilli sina sem handboltaspil-
ari, en fyrir bridgespilamensku en
Sverrir var ekki í vafa um, að nokk-
ur góð hraðaupphlaup Valdimars
hefðu skilað þeim félögum sigrinum.
Andstaðan var hins vegar ekki af
verri endanum, því m.a. voru mættir
til leiks Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra og Jón Steinar Gunnlaugsson,
prófessor.
Röð og stig efstu spilara var ann-
ars þessi:
1. Valdimar Grímsson-Sverrir Ár-
mannsson 62,3%
2. Ellert B. Schram-Guðlaugur R.
Jóhannsson 57,5%
3. Guðmundur Þóroddsson-Jón
Baldursson 55,2%
4. Þórður Harðarson-Guðmundur
Páll Arnarson 54,8%
Á laugardeginum var spilaður
Monradtvímenningur með 40 pörum.
Þar sigruðu Jón Baldursson og Þor-
lákur Jónsson eftir harða keppni við
Ásmund Pálsson og Guðmund Pál
Amarson. Bræðurnir Anton og Sig-
urbjörn Haraldssynir urðu í þriðja
sæti.
Mótinu lauk síðan á sunnudag
með sveitakeppni 20 sveita. Þar varð
hlutskörpust sveit SUBARU með tals-
verðum yfirburðum. Hana skipa
kunnir bridgemeistarar, Jón Bald-
ursson, Þorlákur Jónsson, Aðal-
steinn Jörgensen og Sverrir Ár-
mannsson.
í öðru sæti varð sveit Roche og í
því þriðja sveit Orkuveitu Reykjavík-
Eins og fram kemur hér að ofan
sigruðu Valdimar og Sverrir í Stór-
fiskamótinu og voru þeir í forystu
allan timann, utan einu sinni þegar
forsætisráðherrann og prófessorinn
skutust upp í fyrsta sætið. Valdimar
gerði samt út um möguleika þeirra
með glæsilegu hraðaupphlaupi þegar
þeir mættust. Skoðum það nánar.
V/N-S
4 KG862
*G10
♦ G92
* 853
4 Á93
v KD985
4. D74
* 64
4 D75
«* Á3
♦ 3
* ÁKDG972
7642
* ÁK10865
* 10
N
V A
S___
4 104
Þar sem Jón Steinar og Davíð sátu
n-s en Valdimar og Sverrir a-v gengu
sagnir á þessa leið:
Vestur Noröur Austur Suöur
pass 1 «► 3 grönd 4 «4
4 4 pass pass pass
Hraðaupphlaup Valdimars kom
hinum leikmönnum í opna skjöldu,
svo sem títt er, en forsætisráðherr-
ann gerði vel í því að segja fjögur
hjörtu sem standa á borðinu.
Sverri var ljóst að líklega ætti
Vaidimar sterkan langan láglit og
hjartafyrirstöðu. Hins vegar var
óljóst hve mikið hann ætti í spaða.
Sverrir tók hins vegar við báðum
láglitunum og tók
þvi þátt í leiknum
með fiórum spöð-
um. Honum til
undrunar hreyfði
enginn andmæl-
um og Jón Stein- -y
ar lagði af stað
með lítinn spaða.
Hugmyndin var
að skoða blindan
meðan hann hefði
yfirráð yfir
tromplitnum. Sverrir átti slaginn og
spilaði strax spaða til baka. Jón drap
á ásinn, leist nú ekki á blikuna og
spilaði tígli.
Davíð drap á kónginn og sá nú leik
á borði. Ef Sverrir á ekki laufáttu, þá
kemst hann ekki heim til að taka síð-
asta trompið af Jóni. Davið spilaði
því tígulás og læsti Sverri
inni í blindum. En Sverrir átti
Valdimar
Grímsson.
mótleik. Hann tók laufás og þegar
tían kom frá Davíð komst hann heim
á laufáttu til að taka trompið af Jóni.
Fimm unnir og 450 til a-v.
Jón fær einum slag
meira ef hann byrjar á
hjartakóngi en spilið
stendur alltaf.
Fimm lauf vinn-
ast líka ef suður
gætir sín ekki og
reynir tvisvar
tígul.
Umsjón
Stcfán Guðjohnscn