Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2002, Blaðsíða 54
58
H e / c) a rb / a ö 3Z>V
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 2002
Stiglaus skipting
og þægindin í
fyrírrúmi
Kostir: Þœgindi, hljólátur, hljómkerfi
Gallar: Armpúöi fyrir handbremsu
að láta hana yfirfara öll kerfi í bilnum, eins og
smurkerfi, vatnsþrýsting og fleira. Gott pláss er í öll-
um sætum sem styðja vel við með fjölda stillinga og
milli framsæta er stór armpúði. Hann er reyndar til
trafala að því leyti að sé hann hafður niðri á sínum
þægilegasta stað rekst handbremsuhandfang i hann
þegar togað er í það. Farangursrými er kannski ekki
það stærsta í flokkinum en er aðgengilegt og þægilegt
en hanskahólf er stórt og gott, í bílnum er líka mjög
fullkomið hljómkerfi sem staðalbúnaður og óhætt að
mæla með því.
Audi A4 kom á markað snemma árs 2001 sem alveg
ný kynslóð. DV-bílar höfðu áður prófað hann sem 2,5
lítra dísil Quattro en sá bíll sem er mest seldur hér-
lendis er tveggja lítra bensínbíllinn. Því var vel við
hæfi að gripa aðeins i þann bíl.
Vel búinn og þægilegur
í útliti likist A4 nokkuð A6, með rúnaðan en um leið
kantaðan afturenda og afturljós sem setur skemmtileg-
an svip á hann. Audi A4 er vel búinn bíll í sínum
stærðarflokki og munar þar litlu á honum og stóra
bróður sem segir sex. Stýrið er með aðdrætti og halla,
þannig að ökumaðurinn getur komið sér vel fyrir í
sinni uppáhaldsstellingu. Tvískipt miðstöðin stýrir
hitanum í báðum hliðum bllsins og einnig er hægt að
skjóta hita á bæði framsætin. Aksturstölvan er afar
fullkomin og hægt er með því einu að ýta á einn takka
Sérlega öruggur
Audi A4 er vel heppnaður bíll í alla staði og ekki síst
í öryggi enda fékk hann fjórar stjörnur í árekstraprófi
NCAP og var ekki langt frá því að bæta við þeirri
flmmtu. Burðarvirki yfirbyggingar hefur verið endur-
hannað og styrkt til að taka betur við höggum að fram-
an og á hlið óg þessar breytingar ásamt sterkari sætis-
grind minnka hættu á að farþegarými gefi eftir. Sex ör-
yggispúðar eru staðalbúnaður, tveir að framan og fjór-
ir frá hlið, auk þess sem höfuðpúðar og þriggja punkta
belti eru í öllum sætum. Billinn er einnig búinn spól-
vöm og einnig ESP-skrikvörn til að auka öryggi í
akstri.
Hljóðlátur í akstri
í akstri virkar bíllinn þéttur og góður og hann er
sérlega hljóðlátur. Hann liggur ágætlega en leggst að-
eins í beygjur og stýri svarar mjög vel öllum hreyfing-
um ökumanns. Tveggja lítra vélin er nokkuð spræk á
snúning þrátt fyrir það að bíllinn sé búinn stiglausri
Multitronic-sjálfskiptingu með valskiptimöguleika.
Valskiptingin virkar vel sem slík og athygli vekur að
sjálfskipting eyðir ekki meira en beinskipting í blönd-
uðum akstri. Hemlar eru góðir enda einnig með hjálp-
araðstoð en vart varð við örlítið iskur frá hemlum að
aftan.
Nokkuð gott verð
Grunnverð bílsins er nokkuð gott, 3.250.000 kr. sjálf-
skiptur, sem er nokkuð ódýrara en sambærilegir Benz
og BMW. Kostar C-lína Mercedes Benz til að mynda
3.746.000 kr. og sambærilegur BMW 318 kostar 3.490.000
kr. Volvo S60 Turbo er á 3.455.000 kr. sjálfskiptur og
Lexus IS 200 á 3.080.000 kr og er sá eini sem er ódýrari
en Audi A4 í lúxusflokkinum. -NG
AUDI A4 2,0
Vél:________________2ja lítra, 4ra strokka bensínvél.