Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 8
8
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Stuttar fréttir
Soros var innherji
DómstóU í París
komst aö þeirri nið-
urstöðu í gær að
bandaríski miUj-
arðamæringurinn
George Soros hefði
gerst sekur um að
hafa nýtt sér inn-
herjaupplýsingar tU
að hagnast á hlutabréfum í franska
bankanum Société Générale og
sektaði hann um tæpar tvö hundruð
miUjónir króna.
Hagnaöur af rækjunni
Þrátt fyrir að verð á mörkuðum
hafi verið í sögulegu lágmarki á
þessu ári er engu að síður hagnað-
úr hjá grænlenska fyrirtækinu
Royal Greenland, stærsta útsjávar-
rækjuframleiðanda í heimi.
Varaö við ofbeldisverkum
Kjörstjómin í Kenía hefur varað
fimmtán frambjóðendur, þar á með-
al ráðherra i stjóm landsins, við því
að æsa tU ofbeldisverka og að kaupa
atkvæði fyrir þingkosningarnar í
lok mánaðarins.
IPF kastarar í miklu úrvali
Útlönd
REUTERSMYND
Chavez fær það óþvegiö
Þessi kona lá ekki á skoöunum sínum á Hugo Chavez, forseta Venesúela,
þegar hún tók þátt í kröfugöngu í höfuöborginni Caracas um aö forsetinn
segöi af sér embætti. Stjórnarandstæöingar hafa iamaö helstu atvinnuvegi
landsins aö undanförnu meö verkföllum til aö ieggja áherslu á kröfur sínar.
DV
Vopnaeftirlitsmenn á ferð og flugi í írak:
Bandaríkin fjölga
hermönnum sínum
Rasismi kom leiðtoga repúblikana í koll:
Trent Lott hættur
Trent Lott, forystu-
sauður repúblikana í
öldungadeUd Banda-
ríkjaþings, tilkynnti í
gær að hann ætlaði að
láta af leiðtogaembætt-
inu, aðeins degi eftir
að flokksbróðir hans,
BiU Frist, hóf baráttu
sína um að koma hon-
um frá.
Lott hefur mjög átt
undir högg að sækja
fyrir ummæli sem
hann lét faUa þegar
öldungadeUdarþingmaðurinn Strom
Thurmond hélt upp á 100 ára afmæli
sitt í desemberbyrjun. Þá bar Lott
lof á stefnumál Thurmonds þegar
hann sóttist eftir aö verða forseta-
efni repúblikana árið
1948 og barðist fyrir að-
skilnaði kynþáttanna.
Ummæli Lotts oUu
mikiUi reiði, bæði í
herbúðum repúblikana
og demókrata, og stoð-
aði lítið þótt hann bæð-
ist afsökunar á þeim.
Trent Lott sagði i yf-
irlýsingu sem hann
sendi frá sér í gær að
þótt hann segði af sér
leiðtogaembættinu í
öldungadeUdinni ætlaði
hann að sitja á þingi þau fjögur ár
sem eftir eru af kjörtímabUi hans.
BiU Frist er fimmtugur hjarta-
skurðlæknir og náinn bandamaður
Bush forseta.
Trent Lott
Lét undan þrýstingi og tif
kynnti afsögn sína.
Frá Grænlandi.
Enoksen stendur
fast á kröfu um
nýjan samning
Hans Enoksen, formaður græn-
lensku heimastjórnarinnar, stendur
fast á þeirri kröfu að gera verði nýj-
an vamarsamning við Bandaríkin
ef leyfa á þeim afnot af herstöðinni
í Thule í fyrirhuguðu eldflauga-
vamakerfi.
Bæði Bandaríkjamenn og Danir
telja að samningurinn frá 1951 sé
nægUega góður rammi um sam-
skiptin miUi Bandaríkjanna og Dan-
merkur. Colin PoweU, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, lýsti þó í vik-
unni skUning á afstöðu Grænlend-
inga tU samningsins, sem gerður
var þegar Grænland var bara dönsk
nýlenda. Ýmsir hafa túlkað það sem
svo að PoweU sé opinn fyrir viðbót-
arsamningi.
En Enoksen, leiðtogi Siumut-
flokksins, segir i viðtali við græn-
lenska útvarpið að það sé bara ekki
nóg. Samstarfsflokkur Siumut, LA,
hefur hins vegar lýst sig ánægðan
með gerð viðbótarsamnings.
Málaferli stöövuð
DómstóU í London kom í gær í
veg fyrir tilraun fómarlamba svo-
kaUaðs „almenns farrýmis heU-
kennis“ tU að lögsækja flugfélög og
krefjast bóta fyrir hættulega blóð-
tappa í fótleggjum sem þau segja að
þrengslin í flugvélunum valdi.
Bandarísk stjómvöld em að búa
sig undir að fjölga á næstunni í her-
afla sínum í Mið-Austurlöndum og
er stefnt að því að nærri tvöfalda
fjölda hermanna í næsta nágrenni
við írak.
Haft var eftir embættismönnum í
bandaríska landvamaráðuneytinu í
gær að i næsta mánuði yrðu sendir
flmmtiu þúsund hermenn tU viðbót-
ar þeim sextíu þúsundum sem þeg-
ar eru í Tyrklandi og löndunum við
Persaflóa.
Á sama tíma sagði Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, í jóla-
boðskap sínum tU breskra her-
manna að þeir yrðu að búa sig und-
ir stríð.
„LykUatriðið á þessu augnabliki
er að tryggja að við getum tekið
þetta verk að okkur ef við þurfum
að gera það,“ sagði Blair í ávarpi
sínu tU hermannanna í gær.
Stjómvöld í Bagdad sögðu að
fyrstu viðbrögð Bandaríkjamanna
við vopnaskýrslu íraka hefðu verið
ýkjukennd. Bandarískir embættis-
menn lýstu því yfir á fimmtudag að
írakar hefðu brotið gegn ályktunum
Sameinuðu þjóðanna þar sem þeir
segðu ekki satt og rétt frá gjöreyð-
ingarvopnaáætlunum sínum.
Stjómvöld í Washington hafa sagt
að brot á ályktununum réttlætti
Dýrlingur með hraði
Jóhannes PáU páfi viðurkenndi
formlega í gær kraftaverk sem eign-
að er nunnunni móður Teresu og
mun það verða tU að hraða því að
hún verði gerð að dýrlingi.
Dómurinn stendur
Hæstiréttur í Noregi hefur vísað
frá áfrýjun Kristinar Kirkemo
Haukeland sem var dæmd í 16 ára
fangelsi í svoköUuðu Orderup-máli.
Fyrri dómur stendur því óhaggaður.
Carla vill fá forseta
Carla Del Ponte,
aðalsaksóknari
striðsglæpadóm-
stóls Sameinuðu
þjóðanna í Haag í
HoUandi, fór í gær
fram á að forseti
Serbíu, MUan
MUutinovic, verði
framseldur tU dómstólsins þegar
kjörtímabUi hans lýkur eftir tvær
vikur. MUutinovic er eftirlýstiu- fyr-
ir þátt sinn í voðaverkum í Kosovo-
héraði á ámnum 1998 og 1999.
Þjóðarráð múslíma
Leiðtogar múslíma í Frakklandi
komu sér saman í gær um stofhun
þjóðarráðs tU að semja við stjóm-
völd um málefni eins og skólamál
fyrir 5 miUjónir múslima í landinu.
Mugabe kennt um skort
AUt bendir tU að
eldsneytisskortur-
inn, sem hefur gert
íbúum Simbabves
lífið leitt í tvær vik-
m-, muni halda
áfram að gera svo
yfir jólahátíðina.
Almenningssam-
göngur hafa verið lamaðar og lang-
ar biðraðir hafa myndast á bensín-
stöðvum. Robert Mugabe forseta og
stefhu hans í efnahagsmálum er
kennt um hvemig komið er.
Eftirlitsmönnum hleypt inn
íraskur hermaöur hleypir vopnaeftirlitsmönnum SÞ inn í rannsóknarstöö
sunnan viö Bagdad þar sem höfuöstöövar kjarnorkuáættunar íraka eru.
stríðsaðgerðir gegn írökum tU að af-
vopna þá, eins og mælt er fyrir.
Vopnaeftirlitsmenn SÞ tóku aftur
upp þráðinn þar sem frá var horfið
og héldu áfram störfum sínum í
Irak í gær, þrátt fyrir að þá væri
helgidagur múslíma.
Vopnasérfræðingamir óku tU al-
Tuwaitha rannsóknarstofanna þar
sem höfuðstöðvar kjamorkuáætlun-
ar íraka hafa verið tU húsa. Eftir-
litsmennirnir hafa þegar leitað þar
nokkram sinnum frá því þeir sneru
aftur tU íraks í síðasta mánuði. Þá
var einnig margoft leitað þar á ár-
unum 1991 og 1998.
Ráðamenn í Washington hafa
óskað eftir því við Þjóðverja að tvö
þúsund hermenn verði látnir gæta
bandarískra herstöðva í landinu.
U T B O
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í
endurmálun í grunnskólum Reykjavíkur I.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 3.000.
Opnun tilboða: 7. janúar 2003, kl. 11.00, á sama stað.
FAS 90/2
F.h. Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins (SORPU) er óskað eftir
tilboðum í forbrjót fyrir timbur.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn á ensku fást á skrifstofu okkar frá og með
24. desember 2002.
Opnun tilboða: 14. febrúar 2003, kl. 11.00, á sama stað.
SORP 91/2
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3-101 Revkjavfk - Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang isrörhus.rvk.is