Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2003, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 22. MARS 2003
H<2Igctrblctð 33V
55
Kynnirinn
Steve Martin
Steve Martin er kynnir á 75. ósk-
arsverðlaunahátíðinni. Martin,
sem um þessar mundir leikur aðal-
hlutverkið í vinsælustu kvikmynd-
inni í Bandaríkjunum, Bringing
Down the House, tekur hlutverk
sitt sem kvnnir alvarlega og er
hann stanslaust að prufa á þeim
brandarana sem liann ætlar að
segja til að fá viðbrögð. Vegna
stríðinu í írak verður hann að
þola að brandarar hans eru rit-
skoðaðir af stjórnendum hátíðar-
innar.
Einkalífið og
slúðrið hefur áhrif
Roman Polanski
hefur ekki farið
varhluta af upp-
rifjun á fortíð
hans á versta
máta og er nánast
búið að útiloka
hann frá mögu-
leikum á verð-
launum. Þá hefur
verið rifjað upp að
Queen Latifah
(Chicago) var tek-
in full við stýri í
nóvember. Allir
kannast við mála-
ferli Michaels
Douglas og
Catherine Zeta-Jo-
nes gegn Hello.
Talið er að það
hafi haft slæm
áhrif á möguleika
Zeta-Jones á verð-
launum. Nicole
Kidman hefur ekki farið varhluta af
þeirri ósvífnu baráttu sem á sér stað
bak við tjöldin. Hvað eftir axrnað er
það skrifað og sagt að hún eigi sök á
hjónaskilnaði Jude Law og Sadie
Frost. Svona lagað fer fyrir brjóstið á
akademíunni og minnkar möguleika
hennar á verðlaunum.
Ekki eru samt allir á því að slúður-
fréttimar og baktaliö haíi neikvæð
áhrif. Einn markaðsstjóri sagði að öll
auglýsing væri góð auglýsing þegar
kemur að óskamum og þá skipti
þótti glæsileg í fyrra
Það eyðilagði ekki möguleika
hennar að hún hafði lent í
bílslysi stuttu áður en ósk-
arsverðlaunin voru aflient.
engu máli hvort hún
væri slæm eða góð.
Elizabeth Taylor
hefur kynnst því af
eigin raun að missa af
óskarsverðlaununum
vegna atburða í einka-
lífl sínu og fá þau
vegna annars atburð-
ar sem einnig tengist
einkalífinu. Hún var
fyrir fram talin nokk-
uð ömgg um óskarinn
árið 1958 fyrir leik
sinn í Cat on a Hot
Tin Roof. Skömmu
fyrir afhendingu
rændi hún Eddie Fis-
her frá eiginkonu
hans, Debbie
Reynolds, og engin
óskarsverðlaun það
árið. Tveimur árum
síðar, þegar hún var
tilnefnd fyrir Butterfi-
eld 8, var hún nærri dauð úr lungna-
bólgu rétt fyrir afhendinguna og fékk
verðlaunin. Um gæði þeirrar kvik-
myndar sagði Taylor: „Rusl“.
Þá era margir á því að Russel
Crowe hafi í fyrra eyðilagt möguleika
sína á óskamum þegar hann lenti upp
á kant við bresku kvikmyndaakdemí-
una og kallaði forseta hennar öllum
illum nöfnum og ekki var það verra
fyrir Halle Berry að hafa rétt fyrir
óskarsverðlaunahátíðina lent í
bílslysi, hún fékk óskarinn. -HK
Hinir rúmlega 5000 meðlimir
bandarísku kvikmyndakademíunn-
ar, sem ráða hverjir fá óskarsverð-
launin, eru búnir að skila sínum at-
kvæðaseðlum og val þeirra verður
ekki aftur tekið. Það var með alls
konar ráðum reynt að hafa áhrif á
meðlimina með greinum í blöðum,
auglýsingum og baktali. Þar sem vit-
að er að meirihluti þeirra í akademí-
unni hefur ekki séð allar þær kvik-
myndir sem þeir þurfa að sjá og gera
ekki upp hug sinn fyrr en rétt áður
en á að skila atkvæðaseðlinum þá er
auðvelt að hafa áhrif á þá.
Dæmi um slíkt var þegar
Miramax-kvikmyndafyrirtækið lét
birta grein þar sem sagt var að hinn
virti leikstjóri, Robert Wise (West
Side Story, The Sound of Music), sem
einnig var um skeið forseti akademí-
unnar, sagði að Martin Scorsese ætti
skilið að fá leikstjóraverðlaunin.
Wise kom af fjöllum og sagðist aldrei
hafa sagt þetta. Nokkrir meðlimir
urðu foxillir og heimtuðu atkvæða-
seðla sína til baka en akademían neit-
aði þeim um það.
REDAN
fyrir hitakerfi
og snjóbræðslur
• Forhitarakerfi frá Redan A/S, sérhannað fyrir
íslenska sumarbústaði og til snjóbræðslu.
• Vönduð vara og fyrsta flokks gæði úr ryðfríu efni
• Vinsamlega beinið fyrirspurnum til okkar
eða til pípulagningameistara þíns.
TCÍ1GI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088» Fax: 5B41089 • tengi.is
Komdu a ókeypis
námskeiö í framtalsqerð
Ókeypis framtalsnámskeið fyrir Vörðu- og Námufélaga í Landsbankanum, Laugavegi 77,
19. og 20. mars kl. 18-20 og 20. mars í Landsbankanum, Strandgötu, Akureyri, kl. 18-20
1.1 Námskeið í framtalsgerð □
Landsbankinn býöurVörðu- og Námufélögum ókeypis námskeiö i gerö skattframtalsins í samvinnu viö PricewaterhouseCoopers. Námskeiðin veröa í Landsbankanum Laugavegi 77, 19. og 20. mars kl. 18-20 og 20. mars í Landsbankanum Strandgötu, Akureyri, kl. 18-20. Skráöu þig á landsbanki.is eöa í síma 560 6000.
1.3 □ Nýttuþér áð á landsbanki.is Þú getur sent fyrirspurnir varðandi framtalsgerð og fengiö svar um hæl á spjallþræðinum á landsbanki.is: 22. og 23. mars og 5. og 6. april kl. 14-16 24. mars og 7. og 8. apríl kl. 20-22
spjallþr
Sendu fyrirspurnir á
skattur@landsbanki.is
Þú getur sent fyrirspurnir á skattur@landsbanki.is
frá 17. mars til 8. april alla virka daga á skrifstofu-
tíma og munu ráögjafar Landsbankans svara innan
sólarhrings.
Landsbankinn