Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2003, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2003 Fréttir________________________________x>y Sérstæð skólatlraun slegin af Fulltrúar íslensku menntasamtakanna mæta til fundar meö fræösluráöi Hafnarfjaröar á miövikudagsmorgun. Fyrir miöju er Sunita Gandhi, framkvæmdastjóri samtakanna, sem hefur veriö miöpunktur margháttaöra deilna viö kennara, skólastjóra, foreldra og bæjaryfirvöld. Hörður Kristjánsson biaöamaöur Fréttaljós Rekstri íslensku menntasamtak- anna á einkareknum grunnskóla og leikskóla í Hafnarfírði virðist nú vera lokið. í gær ákváðu fulltrúar meiri- hluta Samfylkingarinnar í fræðslu- ráði að segja upp samningum við sam- tökin um rekstur leikskólans Tjarnar- áss, en áður var búið að segja upp samningnum um rekstur Áslands- skóla í haust. Fulltrúar sjálfstæðis- manna í bæjarstjórn gerðu mög harð- orða bókun á fundi fræðsluráðs í gær- morgun vegna afskipta Samfylkingar- innar af málefnum ÍMS. Virðist þar með lokið tilraun ís- lensku menntasamtakanna til að ann- ast rekstur skóla í Hafnarfírði sem byggður er á hugmyndafræði The Council for Global Education. Þar er helsti hugmyndafræðingur og stofn- andi dr. Sunita Gandhi sem er ind- versk að uppruna en hlaut sína menntun í Bretlandi. Hefur hún starf- að víða um heim og á íslenskan eigin- mann og 6 ára barn sem hún ættleiddi á Indlandi. Hún kom að stofnun ís- lensku menntasamtakanna og hefur verið þar helsti stjórnandi og fram- kvæmdastjóri. Meginhlutverk skólans var skilgreint sem mannrækt og fræðsla og skólastefnan byggist á hug- myndafræði sem hefur það að mark- miði að ná fram hámarksgetu barns- ins með kennsluaðferðum sem taka mið af öllum þroskaþáttum þess. Samningum sagt upp Það virðist ekki hvað síst vera vegna árekstra um stjómun skólanna við Sunitu Gandhi sem komið hefur til ítrekaðra deilna milli skólastjórn- enda, kennara, foreldra og forsvars- manna bæjarins. í Áslandsskóla leiddi það til tíðra uppsagna og skóla- stjóraskipta sem enduðu eins og áður segir með yfirtöku Hafnarfjarðarbæj- ar á rekstrinum í september. Sama er uppi á teningnum varðandi leikskól- ann Tjarnarás. Um 60% starfsmanna þar hættu vinnu um mánaðamótin og fyrirséð var að flestir hinna hættu líka. Að vísu hafði íslensku mennta- samtökunum þá auðnast að ráða nýtt starfsfólk í stað þeirra sem hættu, en allt kom fyrir ekki og tóku bæjaryfir- völd af skarið í gærmorgun. Áslandsskóli Samningur um rekstur Áslands- skóla 'var undirritaður 11. maí 2001. Var þetta gert í kjölfar útboðs en ís- lensku menntasamtökin voru ein um að gera tilboð í rekstur Áslandsskóla. Þrír aðrir höfðu þó sýnt áhuga á mál- inu. Var kostnaður við hvem nem- anda samkvæmt tilboðinu 368.160 krónur á ári. Skólinn var rekinn sem tilrauna- skóli, byggður á svonefndum Montess- ori-fræðum og undanþágu frá 53. grein grunnskólalaga. Höfðu skóla- stjómendur þar með nokkurt fijáls- ræði með að innleiða nýja skólastefnu og kennsluaðferðir í Áslandsskóla. Þeim bar þó að fylgja markmiðum að- alnámskrár varðandi kennslufjölda ákveðinna greina og námsviðmið hverrar bekkjardeildar. Dr. Sunita Gandhi gegndi allsér- stæðu hlutverki í skólanum. Hún var allt í senn hugmyndafræðingur, fram- kvæmdastjóri samtakanna og gegndi einnig starfi rekstrarstjóra. Þannig var hún í raun bæði yfir- og undir- maður skólastjóra. Pólitísk átök strax í upphafi Mikil aðsókn var að skólanum strax í upphafi og nemendur voru 122. Kennt var í blönduðum bekkjum. Strax sumarið 2001 fór að bera á ágreiningi um skólann í bæjarstjóm Hafnarfjarðar. Hart var deilt um tryggingagjald sem islensku mennta- samtökunum, rekstraraöila skólans, var ætlað að reiða fram samkvæmt út- boði. Útboðið gerði ráð fyrir sex mán- aða verktryggingu sem væri í kring- um fjörutíu milljónir. Bæjarstjóm sjálfstæðismanna féllst þá á að ís- lensku menntasamtökin legðu fram tveggja mánaða tryggingu í stað sex. Samfylkingarmenn vora allt annað en ánægðir með þessa þróun mála og sagði forystumaður þeirra, Lúðvík Geirsson, þá m.a. í DV: „Þessir aðilar hafa augljóslega ekki fjárhagslega getu til að standa undir þeirri trygg- ingu sem var forsenda útboðsins. Þetta er bæði ábyrgðarlaust og sið- laust af hálfu meirihlutans." Hörð pólitísk átök hafa verið um rekstur íslensku menntasamtakanna á grunnskóla og leikskóla í Hafnarfirði. Byggt var á indverskri hugmynda- frœði sem virðist hafa or- sakað togstreitu og marg- vísleg átök milli kennara, skólastjóra, foreldra og yfirstjómar skólans. Skólastjórinn hætti strax Skólastjóri var ráðinn, Kristrún Lind Birgisdóttir sem áður stýrði skólahaldi á Flateyri. Ágreiningur kom fljótlega upp á milli skólastjórans og Sunitu um reksturinn og hvarf Kristrún á braut áður en skólahald var í raun komið í gang haustið 2001. Tók Áslaug Brynjólfsdóttir þá að sér hlutverk skólastjóra tímabundið. Skarphéðinn Gunnarsson var síðar ráðinn skólastjóri. Kennarar og leiðbeinendur við Ás- landsskóla gerðu alvarlegar athuga- semdir við ástandið innan veggja skólans í fyrra. Ákvæði gmnnskóla- laga væri ekki uppfyllt í skólanum og verkaskipting væri ekki klár á milli Skarphéðins Gunnarssonar skóla- stjóra og Sunitu Gandhi. Ágreiningur um yfirstjórn Ágreiningurinn virtist m.a. snúast um að indverskur framkvæmdastjóri skólans, Sunita Gandhi, væri að fara inn á faglegt svið skólastjóra og kenn- ara. Sjálf sagði hún þá að skólaupp- byggingin væri frábrugðin því sem gerðist í öðrum skólum og því væri ekki hægt að bera Áslandsskóla sam- an við aðra skóla. Hún vildi ekki við- urkenna að nein vandamál væru um reksturinn. Foreldraráð skólans setti fram ítar- lega umsögn um skólastarfið og skóla- námskrá Áslandsskóla 27. mars 2002. Þar kom fram að enginn aðstoðar- skólastjóri hefði verið starfandi við skólann. Þá hefðu deildar- og fagstjór- ar heldur ekki verið skipaðir og mik- il óvissa ríkti um starfsmannamál skólans. Einnig hafði Gail Keppler, kennari í Montessori-fræðum, sem hugmyndafræði skólastefnunnar byggðist á, horfið á braut til annarra starfa í Bandaríkjunum. Þá væru for- eldrar illa upplýstir um skólastarfið og þá hugmyndafræði sem skólinn byggðist á. Yfirtaka bæjarins í haust var ljóst að þrettán kennar- ar við Áslandsskóla höföu sagt upp störfum vegna samstarfsörðugleika við skólastjómendur. Bæjaryfirvöld yfirtóku þá reksturinn 19. september 2002. Var yfirtakan á rekstrinum gerð með riftun samnings við ÍMS með sex atkvæðum bæjarfulltrúa nýs meiri- hluta Samfýlkingarinnar gegn fimm atkvæðum fulltrúa sjálfstæðismanna. Farið var að tillögu fræðsluráðs um að ráða Erlu Guðjónsdóttur, matsfull- trúa á skólaskrifstofu Hafnarfiarðar og fyrrverandi skólastjóra, til að gegna tímabundið stöðu skólastjóra i Áslandsskóla. Daginn eftir að yfirtaka bæjarins á rekstrinum var samþykkt á auka- fundi bæjarstjórnar mætti tvöfóld áhöfh stjómenda til starfa í Áslands- skóla. Þegar nýráðinn skólastjóri kom á staðinn var hinn fyrri fyrir á skrif- stofu sinni, svo og framkvæmdastjóri skólans. Þeir neituðu að standa upp fyrir nýjum stjómendum enda segðu lögfræðingar íslensku menntasamtak- anna að yfirtakan væri fullkomlega ólögleg. Kennsla hófst þó stundvíslega og var með eðlilegum hætti. Eftir mik- ið samningaþóf við ÍMS náðust loks samningar um fiárhagslegan þátt samingsslitanna við samtökin. Tjarnarás í sömu stöðu Svipað virðist hafa verið uppi á ten- ingnum varðandi rekstm' leikskólans Tjarnaráss þar sem samningi verður nú sagt upp í kjölfar uppsagna starfs- fólks og ákvarðana foreldra um að senda böm sín ekki i skólann. Pólitísk átök hafa verið hörð innan bæjar- stjómar um málið og hefur einnig ríkt djúpur ágreiningur um stjóm skólans við Sunitu Gandhi. Hún sagði þó í samtali við DV nú í vikunni að hún sæi ekki í hverju sá ágreiningur lægi. Taldi hún að hugsanlega mætti skýra málið með þvi aö hún kæmi frá öðru menningarsamfélagi og hefði öðmvisi útlit en íslendingar almennt. Sjálfstæðismenn í bæjarstjóm gerðu alvarlegar athugasemdir við uppsögn bæjarins á samningnum um rekstur leikskólans í bókun í fræðslu- ráði. Þar segir að bæjaryfirvöld hafi með einstökum hætti komið rekstri leikskólans Tjamaráss í algjört upp- nám. Með heiftúðugri andstöðu við rekstrarfyrirkomulag Tjarnaráss hafi meirihluta Samfylkingarinnar ekki sést fyrir og hafi beitt aðferðum sem séu langt handan allra marka al- menns siðferðis. Þá segir að bæjaryf- irvöld hafi reynt aö spilla fyrir rekstr- inum, t.d. með því að hvetja starfsfólk til uppsagna og lofa í staðinn störfum á vegum bæjarins. Rekstraraðila hafi verið gert ókleift að uppfylla skyldur sínar, þannig að bæjaryfirvöld geti með valdbeitingu tekið yfir rekstur leikskólans. vð;;* *.•*..* UTBOÐ Orkuveita Reykjavíkur F.h. Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboði í verkið: „Kjalarnesæð, safnæð og 11 kV stengir - endurnýjun 2003.“ Verkið felst (að endurnýja hluta af Kjalarnesæð frá daelustöð Reykjahlíö og langlelðlna að Lelrvogsá í Mosfellsbæ, ásamt safnæð sem llggur samsfða æðinni. Nýja æðin er DN300 mm stálpípa í 0450 mm plastkápu og safnæðin er DN300 mm og DN200 mm stálpípur í plastkápum. Enn fremur er innifalin f verkinu jarðvinna vegna háspennustrengja. Helstu magntölur eru: Lengd Kjalarnesæðar DN3OO/045O 3000 m Lengd safnæðar DN3OO/045O og DN2OO/0315 1150 m Lengd 11 kV háspennustrengja 4200 m Lengd stýristrengja 1200 m (dráttarrör 050 1250 m ídráttarrör 0110 150 m Skurðlengd 3260 m Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavfkur, Frfkirkjuvegi 3, Reykjavfk, fró og með 7. maí 2003, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 21. maí 2003, kl. 11.00 á skrifstofu Innkaupastofnunar. UTBOÐ F.h. Verkefnisstjórnar um uppbyggingu í Norðlingaholti, Landssíma íslands og Orkuveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: NORÐLINGAHOLT, GATNAGERÐ OG VEITUKERFI - EFTIRLIT Áætlaður framkvæmdakostnaður við það verk sem eftirlitsaðili á að hafa eftirlit með er 600 milljónir. Verklok eru áætluð í árslok 2005. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000 á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, frá og með 6. maí 2003. Tilboðum skal skilað á sama stað fyrir kl. 14.00 föstudaginn 16. maí 2003. GAT 53/3 INNKA UPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Revkjavfk - Sfmi 670 6800 Fax 562 2616 - Netfang iarörhus.rvk.is UTBOÐ F.h. Fasteignastofu Reykjavíkur er óskaö eftir tilboöum í verkiö: "Sparkvöllur viö Réttarholtsskóla" Helstu magntölur eru: Jarövegsskipti 400 m3 Fleygun 200 m3 Giröing og stoöveggur 120 m Frágangur undir gervigrasi 480 m2 Snjóbrœösla 515 m2 Grasþakning 550 m2 Hellulögn 300 m2 Verkinu á aö vera lokiö 4. júlí 2003. Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar gegn 10.000 kr. skilatryggingu frá kl. 9.00 6. maí 2003. Opnun tilboöa: 20. maí 2003, kl. 10.00, á sama staö. FAS 54/3 F.h. Fasteignastofu Reykjavíkur er óskaö eftir tilboöum í verkiö: "Háteigsskóli, múrviðgerðir utanhúss". Helstu magntölur: Háþrýstiþvottur 280 m2 Sprunguviðgeröir 90 m Viögeröir meö filtmúr 140 m2 Verktími: 6. júní til 15. júlí 2003 Útboösgögn fást afhent á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboöa: 21. maí 2003, kl. 14.00, á sama staö. FAS 55/3 F.h. Fasteignastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboöum í verkiö: "Fossvogsskóli, endurnýjun á dúk í íþróttasal". Helstu magntölur: Dúkur 160 m2 Verktími: 6. júní til 1. ágúst 2003 Útboösgögn fást afhent á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboöa: 21. m$í 2003, kl. 15.00, á sama staö. FAS 56/3 INNKA UPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frlkirkjuvegi 3-101 Reykjavik - Sfmi S70 5800 Fax 562 2616 - Netfang lar«rtius.rvk.le Lelkskólinn Tjarnarás Hafnarfjaröarbær mun rifta samningum viö íslensku menntasamtökin um rekstur skólans í kjölfar deilna um stjórnun hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.