Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Side 12
72 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 7.JÚNÍ2003 Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón:Guðlaugur Bergmundsson og Kristinn Jón Arnarson Netfang: gube@dv.is / kja@dv.is Sími: 550 5829 Bakslag fyrir ríkisbúskap FÆREYJAR: Anfinn Kalls- berg, lögmaður Færeyja, segir að samningarnir sem tókust á almenna vinnumarkaðinum í fyrrakvöld geti leitt til aukinnar verðbólgu og þar með versn- andi samkeppnisstöðu fær- eyskra fyrirtækja. Svo kunni að fara að ekki verði til atvinna fyr- ir allar vinnufúsar hendur. Lögmaður segist, í viðtali við blaðið Sosialurin,ekki vera ósammála þeim sem segja að starfsmenn fiskvinnslufyrir- tækja séu á of lágum launum. Vandinn sé hins vegar sá að ekki sé hægt að senda neinum reikninginn fyrir þeim auknu launagreiðslum sem leggjast ofan á útflutningsafurðirnar. Akærður Simbabve: Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Simbabve, var handtekinn í gær og ákærður fyrir landráð. Hann hafði skömmu áður heitið því að halda áfram mótmælaaðgerð- um gegn Mugabe forseta sem hann segir að sé ekki réttkjör- inn í embætti. Áfall fyrír fríðarferíið í Mið-Austuríöndum: Harðlínumennirnir í Hamas hætta viðræðum við Abbas Leiðtogar palestínsku harð- línusamtakanna Hamas hafa dregið sig út úr viðræðum við Mahmoud Abbas, forsætis- ráðherra palestínsku heima- stjórnarinnar, sem áttu að miða að því að Hamas-liðar létu af árásum sínum á ísrael. Abbas hét því á fundi með þeim George W. Bush Bandaríkjaforseta og Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, í Jórdaníu á miðvikudag að binda enda á vopnaða uppreisn Palestínumanna sem hefur staðið í bráðum þrjú ár. Margir óttast að uppgjör milli Abbas og harðlínu- manna sé nú í aðsigi. „Við höfum hætt viðræðum við palestínsku heimastjórnina,“ sagði höfðinginn Ahmed Yassin, stofn- andi Hamas og andlegur leiðtogi samtakanna, í samtali við frétta- mann Reuters í gær. Talsmaður Hamas, Abdelaziz al- Rantissi, sagði við breska ríkisút- varpið BBC að með loforðum sfnum hefði Abbas, sem einnig gengur „Hamas er óvinur frið- arins og við munum halda áfram að vinna með öllum málsaðilum að því að koma á friði." undir nafninu Abu Mazen, hefði opnað dyrnar fyrir ísraelum um að drepa Palestínumenn að vild og að Hamas væri nauðugur einn kostur að halda vopnaðri baráttu sinni gegn Ísraelsríki áfram. Bandarísk stjórnvöld fordæmdu Hamas-menn í gær og kölluðu þá „óvini friðarins" eftir að þeir til- kynntu um viðræðuslitin. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, sagði Bush forseti mynda halda friðarviðleitni sinni áfram og hann skoraði á alla sem málið varð- aði að uppræta „innviði hryðju- verkastarfsemi", eins og hann kall- aði það. „Hamas er óvinur friðarins og við munum halda áfram að vinna með öllum málsaðilum að því að koma á friði," sagði talsmaðurinn. Utanríkisráðherra Palestínumanna kenndi ísraelskum stjórnvöld- um um hvernig komið væri. Hann sagði að Sharon hefði ekki stað- ið við sinn hluta sam- komulagsins í Aqaba. Fyrsta þrep svokallaðs Vegvísis að friði, sem stórveldin hafa lagt fram, gerir ráð fyrir því að palestínska heimastjórnin hafi hemil á harð- línumönnum og fái þá til að hætta árásum sínum á ísrael. Ef Abbas tekst ekki að fá samtök eins og Hamas til að fallast á vopna- hlé gæti reynst erfitt fyrir hann að hrinda þessu fyrsta þrepi í fram- kvæmt, að sögn BBC. Nabil Shaath, utanríkisráðherra Palestínumanna, kenndi ísraelsk- um stjórnvöldum um hvernig kom- ið væri. Hann sagði að Sharon hefði ekki staðið við sinn hluta sam- komulagsins í Aqaba um afdráttar- lausa stuðningsyfirlýsingu við Veg- vísinn. í leyniskýrslu bandaríska landvarnaráðuneytisins frá september 2002, sem lekið var til fjölmiðla í gær, er kom- ist að þeirri niðurstöðu að ekki séu neinar haldbærar upplýsingar um að írakar eigi gjöreyðingarvopn. Talið er að skýrslan. hafi gengið milli manna í stjórn Bush forseta á sama tíma og undirbúinn var rök- stuðningur fyrir stríðsrekstri á hendur Irökum. Víst þykir að skýrslan muni verða til að auka enn á grunsemdir manna um að stjórnvöld í bæði Bandaríkjunum og Bretlandi hafi hagrætt upplýsingum frá leyniþjón- ustum sínum til að réttlæta stríðið í írak. Helsta réttlæting fyrir því var einmitt meint gjöreyðingarvopna- eign Saddams Husseins. Kjarnorkusérfræðingar Samein- uðu þjóðanna sneru aftur til íraks í gær, í fyrsta sinn frá því Bandaríkja- menn og bandamenn þeirra réðust inn í landið í mars og steyptu stjórn Saddams. Sjö manna lið sérfræðinga ætlar að rannsaka gripdeildir á rannsókn- arstofu sem kunna að hafa valdið geislamengun. Starf sérfræðing- anna verður miklum takmörkunum háð, samkvæmt tilskipunum frá bandarísku herstjórninni. Sérfræð- ingarnir hefjast handa í dag, í helstu kjarnorkurannsóknarstöð íraks, suðaustur af Bagdad, og munu dvelja þar næstu tvær vikurnar. Talsmaður bandaríska hersins sagði að fféttamenn fengju ekki að tala við sérfræðingana á meðan þeir væru í frak. Hermenn munu fylgja þeim hvert fótmál. „Við höfum haft áhyggjur af fregnum um gripdeildir og að tunn- um með náttúrulegu og lítið auög- uðu úrani hafi verið stolið," sagði Mefissa Fleming, talskona Alþjóða- kjarnorkumálastofnunarinnar (IA- EA) við fréttamann breska ríkisút- varpsins BBC frá Vínarborg. VfGORÐ GEGN fSRAEL: Stuðningsmenn palestfnsku harðlfnusamtakanna Hamas efndu til fjöldafundar f Noseurat- flóttamannabúðunum á sunnanverðu Gaza-svæðinu í gær og hrópuðu vígorð gegn (sraelsríki. Hamas-liðar eru óhressir með loforðin sem Mahmoud Abbas, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar,gaf á leiðtogafundinum með Bush Bandaríkjaforseta og Sharon.forsætisráðherra Israels, um að stöðva öll obeldisverk gegn ísrael. Efasemdir um gjöreyðingarvopn íraka í bandarískri leyniskýrslu KJARNORKUVÁ: Brian Rems, til hægri á myndinni, leiðtogi hóps kjarnorkusérfræð- inga sem kominn er til (raks, ræðir við fréttamenn f Bagdad. Við hlið hans er ofursti ( bandaríska hernum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.