Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Page 13
ífnbflt’ét
Kínverskur
lambakjötsréttur
500gmeyrt
lambakjot
1 rauð paprika
100 gsveppir
250 gspínat
125 gkasjúhnetur
3 msk. olía
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðirsmátt
2-3 þurrkuð chilialdin, mulin
2 tsk. rifinn engifer
3 msk. ostrusósa
2 msk. sojasósa
1 msk. púðursykur
2 tsk. maismjöl
Kjötið skorið í þunnar ræmur. Paprikan
fræhreinsuð og skorin I sneiðar, sveppirnir skornir
f sneiðar og sverustu stðnglamir klipnir af XF jt.
spinatblöðunum. Kasjúhneturnar ristaðar á þurri pönnu J7a~'!
þar til þær eru rétt farnar að taka lit en síðan hellt á disk og ^
látnar kólna. 2 msk. af olíu hitaðar I wok eða á þykkbotna pönnu
og kjötið snöggsteikt við háan hita þar til það hefur allt tekið lit. Tekið upp
með gataspaða og sett á disk. Afganginum af olfunni bætt á pönnuna og paprika og
sveppir veltisteikt í 3-4 mínútur. Þá er kjötið sett aftur á pönnuna ásamt kasjúhnetum,
hvítlauk, chili, engifer, ostrusósu, sojasósu og púðursykri.
Veltisteikt áfram f 2-3 mínútur. Mafsmjölið hrært út i svolitlu köldu vatni og hrært saman
við. Látið sjóða þar til sósan þykknar.
www.lambakjot.is