Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Qupperneq 20
20 DV HELOARBLAD LAUCARDACUR 7. JÚNÍ2003 Hallgrímur keppir við Gullfoss og Geysi Níundu Kirkjulistahátíð Hallgrímskirkju lýkur um helgina með þremur hápunktum. DV tók tali manninn sem ber listræna ábyrgð á öllu saman og heldur um tónsprotann á stærstu tónleikunum, Hörð Áskelsson, organista og kórstjóra. Þótt mikið hafi verið rifist um Hallgrímskirkju fyrstu 20 árin sem það tók að byggja hana er óhætt að segja að hún sé orðin órjúfanlegur og elskaður hluti af landslagi Reykjavíkurborgar þar sem hún trónir efst á Skólavörðuholtinu. Fyrir framan hana stendur Leifur heppni vörð og var meira að segja hnikað til fyrir fáum árum til þess að hann fiúttaði betur við kirkjuna. Þetta er sá staður sem flestir erlendir ferðamenn heimsækja þegar þeir koma til íslands. Hallgrímskirkja er þannig fortakslaust í flokki með Gullfossi og Geysi ef ekki Mý- vatni og afsannar þannig kenninguna um að það sé aðeins íslensk náttúra og reykvískt næturlíf sem laðar útlendinga að. Um helgina sem nú gengur í garð lýkur nfundu kirkjulistahátíðinni sem haldin er í Hallgrímskirkju. Þar hefur verið margt á boðstólum sem athygli hefur vakið enda hefur kirkjulistahátíðin löngu unnið sér sess í listalífi höfuðborgarinnar og landsins alls. Segja má að þrír hápunktar verði á hátíðinni nú um helgina. Fyrst má nefna barokktónleika Schola cantorum í kvöíd, laugardag, kl. 18.15 þar sem þessi frægi en kornungi kór flytur barokktónlist eftir Vivaldi en síðan bætist þeim liðsauki í formi barokkhljómsveitarinnar Das Neue Orchester frá Köln sem leikur undir flutning kórsins á upprunaleg barokkhljóðfæri þegar þau flytja, Erschallet ihr Lieder eftir Johann Sebastian Bach. Á hvítasunnudag kl. 20 um kvöldið verður merkur tónlistaratburður í kirkjunni fyrir þá sem unna org- eltónlist en þá heldur Olivier Latry tónleika á Klais- orgel kirkjunnar og bætist þar með í stóran hóp org- anista heimsins sem hafa komið um langan veg til þess að fara höndum um þetta stórkostlega hljóðfæri sem tekið var í notkun fyrir fáum árum. Latry er talinn einn athyglisverðasti organisti sinnar kynslóðar í dag, ekki aðeins í sínu heimalandi heldur öllum heiminum. Hann hefur lengi langað til að koma til íslands en ekki komið því við vegna anna en hann er einn þriggja organista við Notre Dame-kirkjuna í París en er afskaplega eftirsóttur til tónleikahalds. Á mánudagskvöld lýkur síðan kirkjulistahátíð með þvf að Mótettukór Hallgrímskirkju flytur allar mótett- ur Bachs ásamt Das Neue Orchester undir stjórn Harðar Áskelssonar kórstjóra og organista Hallgríms- kirkju. Við það tækifæri verður frumflutt tónverkið Bachbrýr eftir Atla Heimi Sveinsson sem hann samdi að beiðni Harðar og er ætlað að tengja mótetturnar saman. Verkið er skrifað fyrir eitt klarínett og það er Einar Jóhannesson sem flytur brýrnar. Hörður Áskelsson, organisti og kórstjóri, hefur verið mikilvirkur í starfi sínu við kirkjuna í rúmlega 20 ár og er óhætt að segja að hann sé potturinn og pannan í því um- fangsmikla starfi sem þar er unnið. Hörður er rómaður kórstjórnandi eins og kórar kirkjunnar sýna, eftirsóttur organisti og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín sem hér yrði of langt mál upp að telja. HÖRÐUR STJÓRNAR ELlA: Hörður Áskelsson,organisti og söngstjóri Hallgrímskirkju,stjórnarflutningi á Elia á níundu Kirkjulistahátfð Hallgrímskirkju. Hörður er listrænn stjórnandi hátíðanna og helsta driffjöður listastarfsins í kirkjunni. DV-myndGVA Að gefa regn á jörð Þótt kirkjulistahátíð sé í fullum gangi er Hörður hinn rólegasti þegar blaðamaður DVhittir hann í hlið- arsal kirkjunnar. Mjög ungt barnabarn organistans leikur lausum hala um salarkynnin en kaffið er gott og borið fram í afskaplega fínum bollum eins og vera ber. Hörður er listrænn stjórnandi hátíðarinnar og því er freistandi að spyrja hann hvernig hann velji saman dagskrána. „Þetta er langt ferli og að mörgu leyti áhugavert þegar litið er til baka. Útkoman er oft öðruvísi en mað- ur ætlaði og tilviljanir ráða ýmsu. Þegar við byrjuðum að skipuleggja hátíðina fyrir einu og hálfu ári byrjuð- um við að velta fyrir okkur einhverju tema og útgangs- punkturinn var þessi yfirskrift sem er fengin að láni úr aðalverkinu og er: Ég ætla að gefa regn á jörð. Ein- kunnarorð síðustu hátíðar var: Og múrar falla. Þótt þess sjáist kannski ekki beinlínis merki þá vakti þessi yfirskrift nýjar hugmyndir og hafði ákveðin áhrif á val verkefna. Snemma t' ferlinu var ákveðið að vekja athygli á barokklist þótt ýmsar af þeim hugmyndum hafi týnst á leiðinni en það var ákveðið að gera þátt unga fólksins aftur mjög áberandi. Sumt datt út af praictískum ástæðum og ferlið allt er sambland af stýringu og tilviljunum. Sumt kemur óvænt upp eins og þessi hugmynd með Karlakórinn Fóstbræður sem var skemmtileg nýbreytni og getur orðið byrjunin á einhverju meira. Norski kvartettinn Quattro Stagione var að leita eftir því að koma til landsins og stjórnandi kórsins, Árni Harðarson, hafði samband við okkur," segir Hörður og heilsar bassa- söngvara sem er mættur á æfingu og sest prúður nið- ur og bíður eftir meistaranum. „Ég er mjög ánægður með hugmyndina um kvik- myndasýningarnar með meistara Bergman sem þungamiðju. Það var skemmtilegt nýmæli." Framtíðin er óviss - Hörður telur að of seint sé byrjað að undirbúa há- tíðir eins og þessa og lengri undirbúning þyrfti. „Við erum bundin af því að við höfúm ekki fasta fjárveitingu til að hafa fólk f vinnu milli hátíða. Hátíð- irnar hafa verið á tveggja ára fresti þegar Listahátíð er ekki og alltaf verið tengdar hvítasunnuhátíð. Það var upphaflega hugmyndafræðin." - Nú hefur verið ákveðið að halda Listahátíð á hverju ári og má þá ekki ætla að framtfð Kirkjulistahá- tíðar sé ótrygg? „Eigum við ekki að segja að framtíðin sé spennandi. Ég veit að það er vilji fyrir því hjá Listahátíð að valta ekki alveg yfir okkur þótt það væri í sjálfu sér auðvelt fyrir þá. En ég held að Kirkjulistahátíðin sé búin að sanna sig það vel að menn líti frekar til samstarfs við okkur. Mér finnst samstarf spennandi en ég tel líka koma til greina að við vikjum til annars árstíma og horfi þá sérstaklega til seinni hluta ágústmánaðar. Þar kynni að vera ónýtt svigrúm." Fullt af feilnótum en stórt hjarta - En hvað skyldi Hörður telja sjálfur vera hápunkt- inn á Kirkjulistahátíð að þessu sinni? „Ég er svo mikið á kafi í þessu að ég er ekki vel dóm- bær á það en mér fannst flutningurinn á Elía vera stór- kostlegur. Annar hápunktur verður núna um helgina og þá geri ég ekki upp á milli tónleikanna á laugardag með Schola cantorum og tónleikanna á mánudag þar sem allar mótettur Bachs verða fluttar. Mér finnst tilraunin til þess að fá Atla Heimi til að skrifa tengingar milli mótettanna vera áhugaverð. Þarna verða tveir kórar og tvær hljómsveitir sem syngjast á og þetta er stórbrotið verkefni og að mörgu leyti erfiðustu verkefni sem kórar fást við. Síðan er þetta einmana klarínett eins og skemmtileg andstæða við fjöltóna flutninginn á mótettunum. Þetta er okkar framlag til nýsköpunar." - Að lokum tölum við um stund um franska org- anistann Olivier Latry sem Hörður segist aldrei hafa heyrt í sjálfur á tónleikum en orðspor Oliviers sé með þeim hætti að ástæða sé til að hlakka til. Hallgríms- kirkja stendur fyrir um 50 orgeltónleikum á ári og að- sóknin að þeim stendur undir því að hægt sé að fá heimsfræga organista hingað til lands til þess að spila. „Hann er sagður vera í senn tæknilega óaðfinnan- legur og einnig að hann hafi milcið að segja í tónlist- inni. Þetta tvennt fer ekki alltaf saman og oft hefur maður heyrt góða organista spila sem taka fullt af feil- nótum en eru með stórt hjarta." polli@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.