Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2003, Síða 53
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ2003 SMÁAUGLÝSINGAR 550 5000 57
SVINKIAR
Guðfinna Stefánsdóttir
húsfreyja
~ Guðfinna Stefáns-
, dóttir húsfreyja, Fíf-
' ilgötu 8, Vestmanna-
' I eyjum, verður átt-
ræö á morgun,
hvítasunnudag.
StarfsferiU
Guðfinna fæddist í Vestmanna-
eyjum og ólst upp í foreldrahúsum
í Skuld í Vestmannaeyjum.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskólanum í Vestmanna-
eyjum.
Einnig stundaði hún nám við
Húsmæðraskólann á ísafirði. Hún
starfaði sem húsmóðir og einnig
við verslunar- og bankastörf.
Fjölskylda
Guðfinna giftist 24.10. 1947. Eig-
inmaður hennar er Jóhannes Tóm-
asson f. 13.3. 1921, fyrrverandi
bankastarfsmaður. Foreldrar hans
voru Tómas Guðjónsson, forstjóri
og útvegsbóndi frá Höfn, og k.h.,
Hjörtrós Hannesdóttir húsmóðir.
Börn Guðfinnu og Jóhannesar
eru: Margrét Rósa f. 23.3. 1948, hús-
móðir í Lúxemborg, en maður
hennar er Gylfi Tryggvason og eru
synir þeirra Daði Jóhannes, Kári
Tryggvi og Gylfi Mar; Erna f. 6.7.
1950, deildarstjóri og kennsluráð-
gjafi í Vestmannaeyjum, en maður
hennar er Egill Egilsson og eru
synir þeirra Huginn Magnús, Jó-
hannes og Davið; Tómas f. 2.3.
1956, útgerðartæknir í Vestmanna-
eyjum, en hans kona er Fanney
Björk Ásbjörnsdóttir og börn
þeirra eru Tinna, Thelma Ýr,
Tanja og Tómas Orri; Stefán Hauk-
ur f. 4.1. 1959, sendiherra í Genf,
kvæntur Halldóru M. Hermanns-
dóttur og börn þeirra eru Agnes,
Einar Hrafn og Stefanía; Ingunn
Lísa, f. 9.10. 1961, starfsmaður leik-
skóla í Vestmannaeyjum, en mað-
ur hennar var Valtýr Þór Valtýs-
son, d. 1.12. 2002. Börn þeirra Val-
ur, Erna og Aron; Iðunn Dísa f.
9.10. 1961, sjúkraliði og námsmað-
ur í Vestmannaeyjum, en hennar
maður er Ágúst Einarsson. Börn
þeirra Guðfinna Björk og Birkir.
Barnabarnaböm Guðfinnu eru tvö,
Dagur og Máni. Systkini Guðfinnu:
Guðrún, f. 1908, dvalarheimilinu
Eir, Eygló og Kolbeinn sem eru
bæði látin. Auk þess þrjú systkini
sem létust áður en Guðfinna fædd-
ist. Foreldrar Guðfinnu voru Stef-
án Bjömsson skipstjóri, f. 16.7.
1878, d. 10.3. 1957, og k.h., Margrét
Jónsdóttir, f. 4.11. 1885, d. 29.9.
1980.
Afmælisbarnið verður statt í
Kiwanishúsinu við Strandveg frá
klukkan 15 á afmælisdaginn. Ætt-
ingjar og vinir hjartanlega vel-
komnir í kaffisopa.
Svanbjörg Gísladóttir
Allar gerðir festinga
fyrir palla og grindverk
á lager
s
Svanbjörg Gísladóttir, húsfreyja,
Búhamri 9, Vestmannaeyjum, er
fimmtug í dag.
StarfsferiU
Svanbjörg fæddist í Reykjavík og
ólst upp þar og í Kópavogi. Hún
lauk gagnfræðaprófi og hefur unn-
ið ýmis skrifstofustörf hjá Ora,
Sparisjóði Vestmannaeyja og víð-
ar. Hún sá um mötuneyti íslands-
banka í Vestmannaeyjum og var
umboðsmaður DAS í Eyjum frá
1996 til 2002. Nú er hún móttökurit-
ari á sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
Fjölskylda
Svanbjörg giftist 24.5. 1975 Stefáni
Sigurjónssyni, skósmið og tónlist-
arkennara, f. 29.1. 1954. Foreldrar
hans: Sigurjón Jónsson bóndi sem
er látinn og Sigrún Kristjánsdóttir,
fyrrv. verkakona.
Börn Svanbjargar og Stefáns eru
Dagbjört f. 9.4. 1977, sambýlismað-
ur hennar er Þórarinn Sveinsson;
Sigrún f. 9.9. 1980, sambýlismaður
hennar er Steingrímur Bárðarson;
Gísli, f. 31.1. 1984, unnusta hans er
Jessý Friðbjarnardóttir; Kristín f.
4.6. 1986, menntaskólanemi.
Systkini Svanbjargar eru Ester f.
14.1. 1956, verkakona; Viðar, f.
21.12. 1957, sjómaður; Þórir, f. 16.7.
1960, leigubílstjóri.
Foreldrar Svanbjargar eru Gísli
Gumundsson, fv. leigubílstjóri, og
Dagbjört Ólafsdóttir, fv.
verkakona, Álandi 7, Reykjavík.
Svanbjörg er erlendis á afmælinu.
Magnús Guðmundsson
fyrrum lögregluþjórm og sjómaður
Magnús Guðmundsson, fyrrum
lögregluþjónn og sjómaður, Strand-
götu 3, Patreksfirði, verður sjötíu og
fimm ára annan í hvítasunnu.
Starfsferill
Magnús fæddist á Vatneyri á Pat-
reksfirði 9. júní 1928. Hann var við
nám í Unglingaskóla Patreksfjaröar
1944 og Héraðsskólanum á Laugar-
vatni 1945-1947. Hann var í Lögreglu-
skólanum 1948-1949 og Myndlista-
skóla íslands, listmálaradeild
1950-1951. Smásöluverslunarréttindi
fékk hann 1963, tók meirapróf bif-
reiðastjóra og skipstjórnarpróf tók
hann 1972. Enn fremur lauk hann
sveinprófi í málaraiðn 1988.
Á árunum 1942-1948 stundaði
Magnús öll almenn störf hjá Ó. Jó-
hannesson hf. á Patreksfirði, svo
sem við fiskvinnslu, var kolakyndari
í Gróttu hf. um tíma og starfaði hjá
Hafnargerð Patreksfjarðar. Hann
vann við húsamálun í Reykjavík á
árunum 1954-1960 og rak Pöntunar-
félag lögreglumanna um tíma.
Einnig starfaði Magnús í lögreglunni
í Reykjavík frá 1948-1960. Hann
stundaði sjómannsstörf 1962-1980
sem matsveinn og bryti á ýmsum
fiskiskipum og farskipum. Þá var
hann flugvallarstjóri á Patreksfjarð-
arflugvelli 1991-1996.
Magnús hefur skrifað margar
greinar í blöð og tímarit og barðist
mjög fyrir útfærslu fiskveiðilögsögu
íslendinga í 200 mílur. Hann hann-
aði og gaf út viðurkenningarskjal
fyrir þá sem koma á vestasta odda
Evrópu, Bjargtanga. Hann var
sæmdur silfurstjörnu Slysavarnafé-
lags Islands fyrir björgun árið 1958.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 15.10. 1949
Björgu Ólafsdóttur, f. 6.11. 1927, d.
26.3. 1994. Foreldrar hennar voru
Ólafur Halldór Halldórsson, bóndi á
Gimli og Hvallátrum, f 1.9. 1893, d.
29.11. 1965 og kona hans, Anna Egg-
ertsdóttir, f. 15.4. 1894, d. 16.5. 1961.
Hann kvæntist aftur 31.5. 1997 Val-
dísi Viktoríu Pálsdóttur, f. 14.9.1929.
Börn Magnúsar og Bjargar: Aron
f. 19.1. 1950, d. 10.6. 1951, Aron f. 18.7.
1951, rafvirki á Patreksfirði, kona
hans var Björg Guðmundsdóttir en
þau skildu og sambýliskona hans nú
er Kristbjörg Sigríður Kristmunds-
dóttir; Ingibjörg Guðrún f. 24.1.1954,
húsfreyja á Patreksflrði, en hennar
maður er Björn Bragi Sigmundsson,
vélstjóri; Anna, f. 28.7. 1955, hár-
greiðslumeistari í Bandarikjunum,
en hennar maður er M. Robert
Tomotillo forstjóri; Flosi f. 12.12.
1956, verkamaður á Patreksfirði.
Foreldrar Magnúsar voru Guð-
mundur Sumarliði Guðmundsson,
sjómaður á Patreksfirði, f. 13.4.1890,
d. 24.7.1977 og k.h. Ingibjörg Guðrún
Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 5.5. 1887,
d. 29.5. 1966.
Armúii 17, 108 Rsykjavík
sími: 533 1334 fax-. 55B 0433