Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2003, Blaðsíða 14
74 FRÉTTIR LAUGARDAOUR 2l.JÚNl2003
Vegvísirinn í uppnámi
Andófsmenn með læti
MIÐ-AUSTURLÖND: Bandarísk
stjórnvöld höfðu orðið svo
miklar áhyggjur af þróun mála
fyrir botni Miðjarðarhafs að
þau sendu þangað sjálfan Colin
Powell utanríkisráðherra til að
reyna að koma vitinu fyrir
deilendur. Powell hitti leiðtoga
(sraels og Palestinumanna til að
stappa í þá stálinu, en hvorir
tveggju hafa átt í nokkru basli
með harðlínumenn sem vilja
ekki friðmælast eins og Veg-
vísirinn kveðurá um. Land-
tökumenn gyðinga voru með
uppsteyt og palestínsku sam-
tökin Hamas hafa hingað til
neitað að semja um vopnahlé.
Heldur rólegra var á hernumdu
svæðunum í vikunni en í vik-
unni þar á undan en þó varð
mannfall á báða bóga.
MÓTMÆLI: Andstæðingar
klerkastjórnarinnar í íran létu
mikið að sér kveða í vikunni og
kveiktu nokkrir þeirra í sér í
Frakklandi og' víðar í Evrópu til
að mótmæla handtöku á annað
hundrað liðsmanna stjórnar-
andstöðuhreyfingarinnar.
Frönskyfirvöld sögðu að hinir
handteknu hefðu verið að und-
irbúa árásir á sendiráðs (rans
víðs vegar um Evrópu. Klerk-
arnir sem fara með völd í
Teheran lýstu yfir ánægju sinni
með handtökurnar í Frakklandi.
Heima fyrir hafa þeir sjálfir
þurft að glíma við mótmælaað-
gerðir námsmanna og annarra
sem eru óánægðir með hversu
hægt miðar í umbótaátt. Bush
Bandaríkjaforseti hefur óspart
hvatt mótmælendurtil dáða.
Sagði af sér
FINNLAND: Anneli Jáátteen-
máki sagði af sér forsætisráð-
herraembættinu í Finnlandi í
vikunni, eftir aðeins tveggja
mánaða setu á stólnum, vegna
staðhæfinga um að hún hefði
notfært sér leynilegar upplýs-
ingar um (raksmálið í kosninga-
baráttunni í mars. Anneli sagði
við fréttamenn að hún nyti ekki
lengurtrausts.
Sjálfsmorðsárásir
og rekstur heilsugæslu
WT'Tpj FRÉTTAUÓS
‘f* Guðlaugur Bergmundsson
blaðamaður
______________
Við mun-
um ekki leyfa einum einasta
gyðingi að vera í Palestínu,
þessu landi sem við eigum en
ekki þeir."
Orð Abdels-Aziz al-Rantissis, eins
æðsta leiðtoga og stofnanda her-
skáu palestínsku samtakanna Ham-
as, vekja ekki miklar vonir um að
deilendur fyrir botni Miðjarðarhafs
fáist einhvern tíma til að slíðra
sverðin og reyna að lifa saman í sátt
og samlyndi.
Liðsmenn Hamas eru fremstir í
flokki þeirra sem streitast á móti til-
raunum Mahmouds Abbas, forsæt-
isráðherra palestínsku heima-
stjórnarinnar, til að fá herskáa
Palestínumenn til að leggja niður
vopn í baráttunni gegn hernámi
ísraels á palestínsku landi og gefa
svokölluðum Vegvfsi að friði færi á
að sai.na ágæti sitt. Vegvísirinn,
sem Band iríkjamenn, Evrópusam-
bandið, Rússar og Sameinuðu þjóð-
Þótt Hamas séu nú um
stundir meðal svörn-
ustu andstæðinga ísra-
els var kannski ekki
alltafsvo.
irnar standa saman að, kveður
meðal annars á um að vopnin verði
kvödd áður en stofnað verði sjálf-
stætt ríki Palestínumanna, í síðasta
lagi árið 2005.
Mótvægi við PLO
Þótt Hamas séu nú um stundir
meðal svörnustu andstæðinga Isra-
els var kannski ekki alltaf svo. I upp-
hafi litu hernámsyfirvöld ísraels á
Vesturbakkanum og Gaza með
nokkurri velvild á þessi nýju samtök
sem talin voru eins konar mótvægi
við Frelsissamtök Palestínu (PLO)
Yassers Arafats. En ekki leið á löngu
áður en snurða hljóp á þráðinn og
sambúðin fór versnandi.
Hamas eru stærstu samtök her-
skárra Palestínumanna, stofnuð 9.
desember 1987, við upphaf fyrstu
intifödunnar, eða uppreisnar
Palestínumanna gegn ísraelska her-
námsliðinu á Vesturbakkanum og
Gaza. Stofendurnir höfðu orðið fyr-
ir áhrifum af samtökunum Bræðra-
lagi múslíma í Egyptalandi.
Auk áðurnefnds al-Rantissis
SKRAFAÐ OG SKEGGRÆTT í NABLUS: Grímuklæddir og vopnaðir liðsmenn palestínsku samtakanna Hamas spjalla saman á fjöldafundi sem haldinn var í Vesturbakkaborginni
Nablus í síðustu viku. Samtökin hafa verið treg til að fallast á vopnahlé í baráttunni við fsraelsríki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir palestinsku heimastjórnarinnar.
skrifuðu undir stofnskrána menn á
borð við Ahmed Yassin sjeik, fjöl-
fatlaðan og nær blindan andlegan
leiðtoga hreyfmgarinnar, og Salah
Shehade sem ísraelski herinn réð af
VÍGREIFUR FORINGI: Abdel-Aziz al-Rant-
issi,enn stofnenda Hamas,er hvergi
banginn þrátt fýrir morðtilræði (sraela.
dögum á Gaza í júlí í fyrra. Tilraun
Israela til að drepa al-Rantissi á
Gaza fyrir skömmu mistókst aftur á
móti og í kjölfarið fylgdu einhver
blóðugustu átök frá því núverandi
uppreisn Palestínumanna hófst fyr-
ir tæpum þremur árum.
Burt með ísraela
Segja má að markmið Hamas
(nafnið þýðir „eldmóður" eða
„kapp“ á arabísku) sé tvíþætt. í bráð
vinna samtökin að því að reka ísra-
elska herinn af höndum sér, burt frá
herteknu svæðunum. Það hyggjast
þau gera með með árásum á bæði
hermenn og landtökumenn á
palestínsku landi og á óbreytta
borgara í ísrael. I lengd stefna Ham-
as að stofnun íslamsks ríkis á sögu-
legu landi Palestínu sem hefur að
mestu verið innan landamæra fsra-
elsríkis frá stofnun þess árið 1948.
Vaxandi áhrif
Ekki er vitað hversu margir fé-
lagsmenn eru innan vébanda gras-
rótarhreyfingar Hamas en stuðn-
ingsmennirnir skipta tugum þús-
unda. Þannig tóku til dæmis um
fjörutíu þúsund manns þátt í fjölda-
fttndi á Gaza í desember síðastliðn-
um til að fagna fimmtán ára afmæli
hreyfingarinnar. Þar hlýddu við-
taddir á Yassin sjeik, andlegan leið-
toga sinn, spá því að Ísraelsríki yrði
tortímt fyrir árið 2025.
„Hið heilaga stríð held-
ur áfram og píslarvætt-
isaðgerðir munu halda
áfram þar til Palestína
hefur að fullu verið
frelsuð"
„Ganga píslarvottanna þokast
áfram. Andspyrnan færist í aukana.
Hið heilaga stríð heldur áfram og
píslarvættisaðgerðir munu halda
áfram þar til Palestína hefur að fullu
verið frelsuð," sagði Yassin sjeik við
það tækifæri.
Starfsemi Hamas skiptist í tvennt.
í fyrsta lagi sinna samtökin ýmsum
þjóðþrifamálum fyrir Palestínu-
menn, svo sem að reisa skóla,
sjúkrahús og bænastaði. í öðru lagi
heyja þau vopnaða baráttu gegn
ísrael og þar er að verki neðanjarð-
arhreyfmg innan samtakanna,
Izzedine al-Qassam sveitirnar.
Hernaðararmurinn hefur fjölda
sjálfsmorðsárása á ísraelska borg-
ara á samviskunni og einn háttsett-
ur foringi Hamas hefur sagt að
hefna beri fyrir morð á óbreyttum
palestínskum borgurum með drápi
á óbreyttum ísraelskum borgurum.
Undanfarin nokkur ár hafa völd
og áhrif meðal Palestínumanna
vaxið mikið á sama tíma og ísraelar
hafa verið að grafa undan valdi
Yassers Arafats, forseta Palestínu-
manna. Hamas standa almenningi
miklu nær, með rekstri sínum á
skólum og heilsugæslustöðvum, en
heimastjórnin sem óbreyttir Palest-
ínumenn hafa lengi talið vera bæði
óskilvirka og spillta.
Byggt á efni frá BBC og Le Monde