Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Side 6
6 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 28. JÚN/2003 Af nema vsk af fatnaði VERSLUN: Hagkaup hafa ákveðið að afnema virðisaukaskatt af öll- um fatnaði um helgina, eða föstudag, laugardag og sunnu- dag. Með því.vilja Hagkaup stuðla að enn jægra verði á fatn- aði. Ríkissjóður" fær sinn virðis- aukaskatt af þessari sölu en verð- lækkunin er alfarið á kostnað Hagkaupa. (tilkynningu frá Hag- kaupum segir að verslunin hafi markvisst átt frumkvæði að lækkun á verði fatnaðar undan- farin ár. Þar segir að það sé bar- áttumál Hagkaupa að íslensk verslun búi við sömu skilyrði og erlend en með þeim hætti megi bæta hag heimilanna til muna. Víða erlendis sé lægri virðisauka- skattur lagður á fatnað og sums staðar sé enginn virðisaukaskatt- ur á barnafatnaði. Landsbankinn lánar Lífi VIÐSKIPTI: Landsbanki (slands hf. og Líf hf. hafa gert með sér lánasamning um endurfjár- mögnun lána Lífs hf. Lána- samningurinn erað upphæð 1,7 milljarðar króna og snýr að langtímafjármögnun á rekstri félagsins. Líf hf. starfaði áður undir merkjum Lyfjaverslunar íslands hf. Starfsemi Lífs hf. fel- ur í sér miðlun vöru, þjónustu og þekkingará heilbrigðis- markaði. Líf hf. er stærsti dreif- ingaraðili lyfja, lækningavara og annarra heilbrigðistengdra vara á (slandi. Jafnframt er fé- lagið með starfsemi í Eystra- saltslöndunum. Líf hf. á nú níu dótturfyrirtæki á íslandi og tvö í Eystrasaltslöndunum. SONAX bílabón og hreinsivörur afsláttur ®lStilling www.stilling.is DALSHRAUN113 • SÍMI 555 .1019 EYRARVEGI 29 • SÍMI 483 1800 SKEIFUNNI 11 • SlMI 520 8000 SMIÐJUVEGI 68 • SlMI 544 8800 BlLDSHÖFÐA 16. • SÍMi 577 1300 Eldur kviknaði í nýsánu flagi Júnímánuður hefur verið óvenjuþurr norðanlands, úr- koma í lágmarki og hitinn farið yfir 20 stig dag eftir dag upp á síðkastið. Ljóst er að þurrkarnir eru að verða til vandræða vlða og óvenju- legt ástand að skapast. Til að mynda gerðist það sem hlýtur að teljast afar fátítt hér á landi að eld- ur kom upp í flagi á bænum Sand- felli við Hofsós. Þetta gerðist í tvígang í gær, bæði um morguninn og hádegisbilið, og sagðist Þor- björn Steingrímsson bóndi hafa lent í bölvuðu brasi við að slökkva í blettunum en einhvers konar efna- samband í yfirborði flagsins hefur trúlega orðið til þess að eldur kviknaði í hitanum. Þorbjörn bóndi sagðist hafa plægt flagið í fyrra- haust og sáð svo í það byggi og höfrum í vor. Nú eru drjúgir blettir í því kolsvartir og ónýtir. Aðspurður sagði Þorbjörn að þama væri frem- ur þurr jarðvegur en aldrei eins og nú, enda vart komið dropi úr lofti sem að gagni kæmi í langan tíma. Þess má einnig geta að vatnslind- irnar hjá Skagafjarðarveitum em óvenjuþurrar um þessar mundir. Páll Pálsson veitustjóri segist aldrei muna eftir þeim svona á þessum tíma, vatnsmagnið sé svipað og seint á veturna þegar það er jafnan minnst. -þA ■ 'í Framtíð Vil- helms óljós Ríkisútvarpið ákveður síðsumars hvernig staðið verður að morgun- útsendingum næsta vetur. Frétta- þátturinn Morgunvaktin, sem er klukkustundarlangur, er sendur út á báðum rásum RÚV og fer hann í loftið kl. 07.30. Með því fyrirkomu- lagi vék af dagskrá tónlistarþáttur- inn Árla dags sem var í umsjón Vil- helms G. Kristinssonar. Ýmsir vom ósáttir við það og mótmæltu í und- irskriftasöfnun, sem Óskar Magn- ússon, forstjóri Og Vodafone, stóð að. Að sögn Markúsar Arnar Ant- onssonar útvarpsstjóra er nú í gangi sumardagskrá eftir ramma sem mótaður var af útvarpsráði. Vetrardagskrána sagði hann verða mótaða síðsumars, m.a. út frá könnunum Gallups - en einnig yrði tekið tillit til áðurnefndrar undir- skriftasöfnunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.