Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Page 12
12 FRÉmiR LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ2003 Útlðnd fflmmufmmpma&ktim Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson og Erlingur Kristensson Netfang: gube@dv.is / erlingur@dv.is Sími: 550 5829 Færeyjar nær sjálfstæði FÆREYJAR: Færeyingar færðust enn einu skrefinu nær sjálf- stæði þegar þeir Anfinn Kalls- berg, lögmaður Færeyja, og Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, skrifuðu á fimmtudag undjr samkomulag um yfirtöku Fær- eyinga á eigin málefnum. Samkomulagið gerir ráð fyrir að frá og með næsta sumri geti Færeyingar fengið að ráða öll- um eigin málefnum nema þeim sem snerta sjálfstæði eyjanna, utanríkis- og öryggismálin og hverjir geti gerst ríkisborgarar. „Þetta er gott og skynsamlegt samkomulag sem er til komið að frumkvæði Færeyinga," sagði Anfinn Kallsberg þegar hann lýsti yfir ánægju sinni með það. Vígreifur enn SUÐUR-AFR(KA: Nelson Mand- ela, fyrrum forseti Suður-Afríku, gagnrýndi Bush Bandaríkjafor- seta enn í gær vegna fraks- stríðsins og lét að því liggja að hann myndi ekki vilja hitta Bush þegar hann kæmi í fyrstu heimsókn sína til Afríku í næsta mánuði. Mandela hefur sagt að það hafi verið rangt að fara í stríð án samþykkis SÞ. Herskáir Palestínumenn fallast á vopnahlé: ísraelar eru tortryggnir ísraelskir ráðamenn tóku yfir- lýsingu palestínsku harðlínu- samtakanna Hamas um vopnahlé með nokkurri tor- tryggni í gær. Háttsettur heim- ildarmaður Reuters fréttastof- unnar innan ísraelsku ríkis- stjórnarinnar sagði að vopna- hléssamkomulag, sem hreyf- ingin skrifaði undir, „væri ekki pappírsins virði." Hamas lýstu því yfir í gær að ákveðið hefði verið að láta af öllum árásum á ísraela. Talið er að yfirlýs- ingin geti orðið til að auka líkurnar á að svokallaður Vegvísir að friði, sem nýtur stuðnings stórveldanna, nái fram að ganga. „Hamas hafa grannskoðað þróun mála og komist að þeirri niðurstöðu að boða eigi vopnahlé eða afnám aðgerða," sagði Ahmed Yassin sjeik, einn stofnenda Hamas, í samtali við fréttamann Reuters. Síðdegis í gær bárust svo fregnir afþví að ísraelar og Palestínu- menn hefðu komist að samkomulagi um brott- flutning ísraelskra her- manna frá Gaza. Síðdegis í gær bárust svo fregnir af því að ísraelar og Palestínumenn UTBOÐ F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í Sævarhöfða - bergskering. Verkið felst einkum í að lagfæra um 250 m hamravegg við Sævarhöfða gegnt Björgun. Helstu magntölur eru: Gröftur og fjarlæging á jarðvegi: 1.600 m3 Losun, gröftur og fjarlæging á klöpp: 4.600 m3 Bergboltar: 150 stk Girðing: 300 m Ásprautun: 140 m3 Drenholur: 100 stk Verkinu skal lokið fyrir 1. október 2003. Útboðsgögn verða seld á kr. 5000 á skrifstofu okkar, frá og með 1. júlí 2003. Opnun tilboða: 10. júlí 2003, kl. 14.00, á sama stað. GAT85/3 F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í sökkla, grunnplötu og jarðvegsskipti á lóð fyrir nýjan leikskóla við Kléberg á Kjalarnesi. Helstu magntölur eru: Gröftur: 10.000 m3 Fylling: 7.700 m3 Mót: 450 m2 Bendistál: 10.500 kg Steinsteypa: 120 m3 Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 10.000 skilatryggingu, frá kl. 13.00, 30. júní 2003. Opnun tilboða: 15. júlí 2003, kl. 10.00, á sama stað. FAS86/3 F.h. Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur er leitað eftir tilboðum í fram- reiðslu og dreifingu á mat í nokkra af grunnskólum Reykjavíkur. Útboð þetta er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES). Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu okkar frá og með 1. júlí nk., gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 12. ágúst 2003, kl. 10.00, á sama stað. FRÆ87/3 INNKA UPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - 101 Ravkjavik - Slmi 570 5800 Fax 562 2616 - Netfang iarerhus.rvk.is JARÐARFÖR Á GAZA: Palestínumenn bera lík herskárra félaga sinna til hinstu hvílu í Noseirat-flóttamannabúðunum á Gaza í gær. Mennirnir voru drepnir í árásum ísraelskra hermanna fyrir dögun í gærmorgun. Stofnandi hinna herskáu samtaka, Hamas, sagði í gær að þau hefðu ákveðið að hvíla vopnin í baráttunni við (sraelsríki. Þá féllust (sraelar á að kalla hermenn heim frá Gaza. hefðu komist að samkomulagi um brottflutning ísraelskra hermanna frá Gaza og Vesturbakkaborginni Betlehem. Að sögn ísraelskrar sjón- varpsstöðvar er hugsanlegt að brottflutningurinn hefjist þegar eft- ir helgi. Hamas verði leyst upp Ahmed Yassin sagði að vopna- hléð væri skilyrðum háð, svo og tímatakmörkunum. Hann neitaði að gera frekari grein íyrir því né segja nokkuð um hvenær tilkynnt yrði um vopnahlé. Hamas-líðar, sem hafa eyðingu Ísraelsríkis á stefnuskrá sinni, hafa orðið hundruðum ísraelskra borg- ara að bana með sjálfsmorðsárás- Heimildarmaðurinn gaf til kynna að ísraelsk stjórnvöld kynnu að halda að sér höndum í árásum sínum á leið- toga herskárra Palest- ínumanna. um sínum. Bandarísk stjórnvöld hafa kallað Hamas „óvini friðarins". ísraelski heimildarmaðurinn sem Reuters ræddi við í gær ítrekaði þá bjargföstu kröfu að Mahmoud Abbas, forsætisráðherra palest- ínsku heimastjórnarinnar, leysti upp Hamas og önnur herská sam- tök, í samræmi við ákvæði Vegvísis- ins að friði og sem staðfest voru á fundi Abbas með George W. Bush Bandaríkjaforseta og Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, 4. júní. Heimildarmaðurinn gaf til kynna að ísraelsk stjórnvöld kynnu að halda að sér höndum í árásum sín- um á leiðtoga herskárra Palestínu- manna. Hamas-liðar hafa sagt að slíkum árásum verði að linna áður en hægt verði að boða vopnahlé. Hann sagði jafnframt að palest- ínska heimastjórnin yrði að standa sig í að ganga milli bols og höfuðs á harðlínumönnum. Heimastjórnin segir það geta leitt til borgarastríðs. Robin Cook heldur gagnrýni sinni áfram: Skýrsla bresku stjórnarinnar um íraksmálið var ekki rétt Robin Cook, fyrrum utanríkis- ráðherra Bretlands, hélt því fram í gær að helstu fullyrðing- arnar í skýrslu bresku stjórnar- innar um meint gjöreyðingar- vopn íraka frá því í september í fyrra hefðu einfaldlega ekki verið réttar. „í mínum huga varðar mestu að það sem okkur var sagt til að rétt-' læta strfðið hefur reynst vera ósatt, nú þegar stríðinu er lokið," sagði Cook í viðtali við breska ríkisútvarp- ið í gær. Hann sagði að deila stjórnvalda við BBC um hvort skýrslan hefði verið „poppuð upp" væri til þess eins fallin að breiða yfír það sem skipti máli, nefnilega að innihaldið EKKIÁNÆGÐUR: Robin Cook, fyrrum ut- anríkisráðherra Bretlands, er ekki alls kostar ánægður með framgöngu stjórn- valda í deilunni um skýrslu um gjöreyð- ingarvopnaeign Saddams Husselns. hefði verið rangt. Bæði bresk og bandarísk stjóm- völd hafa verið sökuð um að hafa ýkt stórlega gjöreyðingarvopnaeign Saddams Husseins íraksforseta. Nær þrír mánuðir eru liðnir síðan honum var steypt af stóli en engin slík vopn hafa fundist, þrátt fyrir umfangsmikla leit. Robin Cook sagðist vera bæði furðu lostinn og áhyggjufullur yfír því að stjórnvöld héldu enn til streitu fullyrðingum sínum um að skýrslan hefði verið rétt. „Við munum ekki komast til botns í því hvemig við enduðum í Irak með réttlætingu sem ekki er rétt. Við verðum fyrst að viður- kenna að margar staðreyndanna vom einfaldlega rangar," sagði Robin Cook.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.