Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Síða 26
26 ÚV HÉLúAfWL/W LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ2003
íslendingurinn Guðsteinn Sævarsson fór
22 ára til Frakklands og gekk í frönsku út-
lendingahersveitina og hefur verið þar í
rúm 10 ár og er orðinn liðþjálfi. Hann tal-
ar við DV um ímyndina, ástæðurnar og
hvað það sé erfitt að drepa mann.
Það eru fáar hersveitir í heiminum sem eru
sveipaðar eins mikilli dulúð og leyndardómi
og Franska útlendingahersveitin. Þangað fóru
þeir sem vildu flýja fortíð sfna, láta sig hverfa
og verða hluti af illvígustu sveitum málaliða í
heiminum en í sveitinni er hermönnum gefið
nýtt nafn. Ekki er tekið við þeim sem hafa
framið alvarlega glæpi eins og morð eða
nauðgun en önnur afbrot lætur sveitin sér í
léttu rúmi liggja.
í bókum Svens Hassels um ævintýri þýskra
hermanna í seinni heimsstyrjöldinni, sem
nutu mikilla vinsælda á íslandi árum saman,
var sagt frá hópi hermanna. Einn þeirra var
Litli legjónarinn sem var örkumlaður eftir
dvöl sína í frönsku útlendingahersveitinni.
Hann var harðsvíraður drápari sem sat við
varðeldinn á kvöldin, brýndi rýting sinn og
raulaði: Kæri dauði, komdu fljótt. Annar
skrautiegur persónuleiki var Porta sem lék á
flautu og píanó og átti ketthng sem hét Jósep
Stalín.
í bókum eins og Hersveit hinna fordæmdu
og Dauðinn á skriðbeltum lásu heilar kyn-
slóðir íslenskra ungmenna um afrek þessara
snillinga.
Guðsteinn Oddur Sævarsson er 33 ára fs-
lendingur sem hefúr verið hermaður í frönsku
údendingahersveitinni í tíu og hálft ár og
gegnir nú stöðu liðþjálfa í sveitinni. Hann er í
fallhlífardeild og sérgrein hans er það sem er
kallað „urban warfare" eða bardagar í þétt-
býli. FallhlífardeUdin sem sveit hans tilheyrir
hefur bækistöð í Calvi á eynni Korsíku og það-
an eru hermennirnir sendir um allan heim,
ýmist til friðargæslu í löndum eins og Serbíu
og Króatíu eða til ýmissa Afríkulanda. Guð-
steinn hefur komið til allra heimsálfa nema
einnar og dvalist Iangdvölum f skógum Suð-
ur-Ameríku, barist við uppreisnarmenn í
Kongó, á Fílabeinsströndinni, í Kosovo og
tekið þátt í slíkum verkefnum í fleiri löndum
en tölu verður á komið.
Hann er meðalmaður á hæð, með harð-
neskjulegt, skarpleitt andlit, varkárt augnaráð
og stór eyru. Þegar maður tekur í höndina á
honum og sér hann hreyfa sig fær maður á til-
finninguna að hann sé bara bein og sinar.
Guðsteinn fór frá íslandi 22 ára, staðráðinn
í að verða hermaður. Hann vildi fara alla leið
og þótt fslendingar hafi gegnt herþjónustu á
Norðurlöndum fannst Guðsteini sjálfsagt að
fara alla leið á toppinn sem honum fannst
vera Franska útlendingahersveitin og flaug til
Frakklands og sótti um inngöngu og komst
inn.
„Ég las líka Sven Hassel þegar ég var krakki
og sjálfsagt hefur Litli legjónarinn verið það
fyrsta sem ég sá um útlendingahersveitina.
Mér fannst hann flottur karakter. Hann hafði
verið geltur sem ég hef sloppið við," segir
Guðsteinn.
„Það ganga margir strákar með þetta í mag-
anum en hérna heima er Landhelgisgæslan
eini kosturinn. Ég vildi bara gera þetta með
stæl."
Fann mig strax í þessu
Það er aðeins hægt að ganga í sveitina í
Frakklandi og þangað flaug Guðsteinn án
þess að tala stakt orð í frönsku sem er málið
sem þjálfunin fer fram á. Hann hafði ekkert
stundað íþróttir nema fótbolta og svolítið
hlaup.
„Mottó sveitarinnar er að ef maður vill þá
getur maður. Það sannaðist á mér í inntöku-
prófinu."
Síðan tók við grunnþjálfun í íjóra mánuði
þar sem áhersla er lögð á frönskunám og lík-
amsþjálfun. Síðan tekur við framhaldsþjálfun
sem Iýkur aldrei.
Ég fann mig strax í þessu. Ég lít fyrst og
fremst á þetta sem vinnu en þetta er auðvitað
lífsstíll sem ég kann mjög vel við. Maður verð-
ur að gefa sig í þetta 150%. Auðvitað koma
dagar þegar maður spyr sig: hvern djöfulinn
er ég að gera hérna? en það er ekki auðvelt að
komast út úr þessu."
- Það er ágætlega borgað að vera í hersveit-
inni en í dag fá nýliðar 1000 evrur á mánuði
en þegar þeir fara í leiðangra til útlanda þre-
faldast launin. Guðsteinn segir að þetta sé
reyndar einn best launaði her f heimi. Her-
stöðin á Korsíku er heimili hans þar sem hann
deilir herbergi með sex öðrum og á einn skáp
sem er tveggja metra breiður og það er allt og
sumt.
„Það er enn ágætur agi f sveitinni en við
höfum samt linast aðeins síðan ég gekk í
hana."
- Þetta hljómar skuggalega í ljósi þess að
grunnþjálfun lýkur með 160 kílómetra göngu
undir fullum vopnum og búnaði. Það þarf að
hlaupa átta kílómetra með 11 kílóa bakpoka á
minna en klukkustund og hlaupa 100 metra
með 40 kílóa sandpoka í fanginu. Helst á
skemmri tíma en 20 sekúndum.
Guðsteinn er með lægstu gráðu undirfor-
ingja sem þýðir að hann stjórnar lítilli sveit
manna á vettvangi og tekur því minni þátt í
bardögum en áður en sveitirnar eru nú orðið
aðeins við friðargæslu og forðast fyrir vikið
bardaga en lenda oft milli tveggja elda þegar
verið er í Afríku að fást við uppreisnarmenn
eða borgarastyrjaldir. Stórt hlutverk sveitar-
innar er að vera tilbúin að bjarga Evrópu-
mönnum út úr landinu ef til átaka kemur.
„Við stóðum á brú í Kosovo fjóra og hálfan
mánuð og vörðum hana fyrir stríðandi fylk-
ingum. Það var kastað t' okkur grjóti og sví-
virðingum sem við skildum sem betur fer
ekki."
Börn með Kalasnikov
- Fyrr á 20. öld var franska údendingaher-
sveitin sveit málaliða og þeir eru enn málalið-
ar í hefðbundnum skilningi þess orðs en þeir
heyra undir frönsku ríkisstjórnina.
„Það má segja að við gerum það sem
bandarísk yfirvöld vilja ekki gera. Þeir fara inn
og sprengja allt upp en síðan koma evrópskar
hersveitir og annast friðargæslu og það er
okkar hlutverk í dag. Afríka er svo leikvöllur
okkar þar sem við fáumst við verkefni sem eru
pólitískt flóknari og erfiðari.
Við vorum á Fílabeinsströndinni síðast og
það var eitt það versta sem sveitin hefur lent í
síðan í Chad um 1980.
Við vorum undir stöðugum árásum sem við
máttum varla svara og vorum sendir algerlega
tómhentir inn og þurftum að grafa skotgrafir
með höndunum. Við stöndum alltaf f miðj-
unni og það gerðum við þarna líka. Þama
stóðum við andspænis kornungum drengjum
og stúlkum með Kalasnikov-riffla, útúrmgl-
uðum, sem vom að myrða heilu þorpin.
Þama kostar Kalasnikov-riffill 1000 krónur ís-
lenskar. Þeir eiga ekkert að éta en þeir eiga
nóg af vopnum.
Það vom framin ijöldamorð nánast fyrir
framan okkur en pólitískt var ástandið þannig
að við máttum alls ekki grípa inn í. Við vörð-
um okkur þegar á okkur var ráðist og vörðum
ákveðnar línur. Sókn er besta vömin en við
ATVINNUHEPMAÐUR: Guðsteinn Oddur Sævarsson er
33 ára ístendingur sem hefur verið í frönsku útlend-
íngahersveitlnni í tíu og hélft ár. Hann er fallhlífarher-
maður með gráðu liðþjálfa og sérhæfður í „urban
warfare" sem er bardagi í þéttbýii.