Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Qupperneq 30
30 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ2003
Hemmi er
kominn heim
Hermann Gunnarsson situr á móti mér
við borð á veitingastað í miðbæ Reykja-
víkur. Hann talar um margt og meðal
annars löngun sína til þess að vera
venjulegur maður. Samt vita allir fslend-
ingar að Hermann Gunnarsson verður
ekki venjulegur maður úr þessu og hefur
sennilega aldrei verið það.
Hermann, eða Hemmi Gunn eins og þessari
þjóð er tamt að kalia hann, hefur verið þjóðar-
eign síðan hann varð vinsæll knattspyrnumað-
ur þegar hann var sextán ára. Þá var árið 1963
og flest öðmvísi á íslandi en það er í dag. Her-
mann hefur í grófum dráttum átt tvo ferla sem
hann fylgdi í meginatriðum eins langt og kom-
ist verður á fslandi.
Annar er íþróttaferillinn. Hann var alhliða
íþróttamaður og keppti bæði í körfubolta,
knattspymu og handbolta með meistaraflokki
Vals ámm saman og mun vera einn fárra
manna sem hafa náð íslandsmeistaratitli í
tveimur af þessum greinum. Hann varð þrisvar
markakóngur 1. defldar í knattspymu og lék
tuttugu landsleiki í knattspyrnu óg fimmtán í
handknattleik og hefur fengið aragrúa verð-
launa og viðurkenninga íyrir afrek sín á þessu
sviði.
í hinum illræmda tapleik íslands gegn Dan-
mörku, sem fór 14-2, var Hermann inn á og
skoraði annað markið.
Nú hefði þetta út af fyrir sig getað verið heUl
feriU en Hermann ætlaði víst að verða lögfræð-
ingur en áttaði sig á því að hann yrði aldrei góð-
ur lögfræðingur. Samt fór hann ekki í MR eins
og hann ætlaði heldur heldur lauk prófi úr
Versló.
Árið eftir hitti hann Jón Birgi Pétursson,
fréttastjóra á Vísi, á bafli á Hótel Sögu og Jón
Birgir réð hann sem blaðamann á staðnum. Þar
með hófst ferill Hemma í fjölmiðlum með
fféttamennsku á Vísi og seinna þáttagerð á Rík-
isútvarpinu og fjölda útvarpsstöðva. Hápunkt-
urinn á ferli Hemma í þessari grein er án efa
umsjón hans með skemmtiþættinum Á tali sem
náði allt að 70% áhorfi í ríkissjónvarpinu þegar
best lét. Það met stendur enn en þættirnir vom
taldir í hundruðum.
Þar fyrir utan fékkst Hermann við fararstjórn
fyrir ferðaskrifstofur og lóðsaði íslendinga hing-
að og þangað um heiminn en aðallega starfaði
hann á Spáni og í Suðaustur-Asíu. Þess á milli
ferðaðist hann með Sumargleðinni um landið í
mörg sumur við argandi vinsældir og hefur
sungið inn á 13 hljómplötur, bæði einn og með
öðmm, og skrifað þrjár bækur.
Við þetta mætti síðan bæta smámolum eins
og skrifstofustarfl hjá Sjóvá og Skattstofunni en
við Miðina á hinu virkar það frekar óspennandi.
Komið að kaflaskiptum
Síðasti kaflinn í lífsbók Hemma hefur alls
ekki verið skrifaður enn en nú er komið að
kaflaskilum enn einu sinni. Hemmi er kominn
heim á ný eftir tveggja og hálfs árs dvöl í
Taílandi þar sem hann hefur fengist við rekstur
veitingastaðar og verið leiðsögumaður.
Það dróst í nokkra daga að við hittum
Hemma en hann þurfti tíma til þess að venjast
loftslaginu og snúa sólarhringnum við á ný én
tímamunurinn á Islandi og í Taflandi er sjö
tímar.
„Ég er búinn að vera svo lengi í 40 stiga hita
að þegar ég steig út úr vélinni í Keflavík var
10-12 stiga hiti og ég hríðskalf," segir Hemmi.
„Ég skildi eldcert í því daginn eitir að heima-
menn hér voru berir að ofan meðan ég var
hreint að deyja úr kulda."
- En hvað var það sem rak hann tii Taflands
á sínum tíma?
„Það er saga að segja ffá því,“ segir Hemmi
og þessi orð lýsa honum nokkuð vel því allt sem
Hemmi segir er saga. Hann er sögumaður að
upplagi og svarar manni aldrei með einsat-
kvæðisorðum.
„Ég var auðvitað orðinn afskaplega vel kunn-
ugur þama eftir áralöng ferðalög um alla Suð-
austur-Asíu og var auðvitað löngu kominn með
Asíuflensuna eins og maður segir. Svo vildi svo
til að það voru ákveðin kaflaskil í vinnu hjá mér
hérna heima.
Þegar ég var 22 ára kom Þorsteinn Thoraren-
sen að máli við mig og bað mig að skrifa ævi-
sögu mína. Mér fannst það þá hálfgert grín en
þama fyrir tveimur ámm fannst mér ég vera
kominn á þann stað f lífinu að ég ætti að gera
það meðan ég myndi enn þá eitthvað.
Ég ætlaði samt alls ekki að skrifa þetta sjálfur
heldur skrifa niður helstu atriðin og láta svo
einhvern annan um afganginn. Ég ætlaði mér
ekki að hafa þetta neina glansmynd, enga
rjómaköku með glassúr heldur sannleikann."
Með bók við sundlaugina
- Hemmi hafði löngum heillast af hinni ffið-
sömu og elskulegu þjóð, Taflendingum, og
hafði dvalið þar langdvölum og þess vegna varð
það ofan á að hann hélt út til Taflands og ætlaði
þar að sitja á sundlaugarbakka með minnisbók
og pára niður helstu atriði ævisögu sinnar.
En það reyndist ekld vera alveg það sem ör-
Hermann Gunnarsson segir
lesendum DV allt aflétta um
Taílandsdvölina, kjaftasög-
urnar og löngun sína til að
vera venjulegur maður.
lögin ætluðu Hemma. Honum gekk ekki vel að
skrifa í bókina á laugarbakkanum og færði sig
því af hótelinu sem hann bjó á og flutti inn á
íbúðahótel þar sem eru 330 íbúðir í sex húsum
með sundlaugum og öryggisgæslu þar sem
hann fékk góða íbúð á fínu verði eins og hann
segir.
Þar var betra næði og Hemmi keypti sér tölvu
og sat við skriftir um hríð og gekk vel, að hon-
um fannst. Þá kynntíst hann taflenskum millj-
arðamæringi, rúmlega fertugum, sem átti stór-
an hluta af íbúðunum í húsinu og nokkra veit-
ingastaði í grenndinni sem vom þó aðeins brot
af umsvifum hans. Maður þessi er fæddur inn í
mjög efhaða fjölskyldu sem fæst við vinnslu
gulls og demanta. Hann giftíst síðan konu sem
er erfingj hótelkeðju í Taflandi. Þessi nýi vinur
Hemma ákvað að hann ættí að taka að sér að
sjá um einn af veitíngastöðunum, vera nokkurs
konar yfirmaður eða framkvæmdastjóri.
Segi aldrei nei
„Ég hef í rauninni aldrei ákveðið hvað ég ætl-
aði að verða þegar ég yrði stór," segir Hemmi
þegar ég spyr hann hvers vegna hann hafi tekið
þetta að sér.
„Ég hef alltaf haft það fyrir reglu þegar ein-
hver biður mig að gera eitthvað að reikna með
því að viðkomandi treysti mér fyrir verkinu og
þess vegna segi ég aldrei nei því maður veit
aldrei af hverju maður myndi annars missa."
- Eitt af þvf sem áttí sinn þátt í því að Hemmi
flentist í Taflandi var kvikmyndagerð hans en
hann gerði heimildamynd um Tafland og gerði
sér þar far um að varpa upp annarri mynd af
Taflandi en einhverri kynlífsparadís sem er stór
hluti af ímynd landsins meðal margra. Til þess
að fá leyfi til þess að mynda á landsins helgustu
stöðum þurfti að vanda allan undirbúning og fá
tilskilin leyfi enda Taflendingar hvekktir eftir að
evrópskir kvikmyndagerðarmenn höfðu tekið
myndir í hofum þeirra og notað sem bakgrunn
í klámmyndir. Þetta gekk allt saman eftir og í
tengslum við þetta var Hemma boðið í nokkurs
konar opinbera heimsókn til Taflands ásamt
ritstjóra Politiken. Þar var vel veitt og víða farið
en eftírminnilegast er Hemma þó að í seinustu
veislunni kom konungur Taflands í stutta
heimsókn og tók Hemma tali. Hann er senni-
lega eini íslendingurinn sem hefur hitt þennan
aldna þjóðhöfðingja sem er í dýrlingatölu með
þjóð sinni.
„Hann gaf með hálsmen úr skíra gulli með
lftílli búddastyttu úr emerald innan í. Þetta á að
boða gæfu og þess vegna tek ég þetta aldrei
ofan," segir Hemmi og sýnir okkur stolmr grip-
inn sem er forkunnarfagur.
Satt og logið um Taíland
„Mér er sagt að eftir að við sýndum þessa
heimildamynd hér í sjónvarpinu hafi ferða-
mannastraumur til Taflands aukist enda áttaði
fólk sig á því hvað landið hefur upp á að bjóða.
Það eru vissulega gleðihverfi í landinu og
talsvert mikið um vændi en það er alls ekki allt
sem sýnist. Þarna er mikil stéttaskipting eins og
hér og ekkert almannatryggingakerfi í líkingu
við það sem við þekkjum. Einstæðar mæður
eiga oft ekki nein önnur úrræði en vændið.
En að gera heimildamynd um Tafland og
leggja aðaláherslu á vændið er álíka sanngjarnt
og að gera slflca mynd um Island og íjalla aðeins
um næturlífið í miðbænum um helgar þegar
það er verst. Hvort tveggja er ákveðinn hlutí af
menningu landanna en ekki öll sagan."
- Það er margt sagt um Taflendinga og sam-
skipti þeirra við ferðamenn, sérstaklega kon-
urnar. Sumt er satt og annað logið og Hemmi
veit mörg sorgleg dæmi úr þessum samskipt-
um
„Ég hef oft séð íslenska karlmenn sem aldrei
hafa getað átt samskipti við konur hér heima
koma þarna út og halda að þeir séu Casanova
þegar stúlkumar fara að kalla á þá. Ég þekki
dæmi um að slíkir menn hafa tekið svona „sfli“
eins og við köllum þær og flutt þær úr þessu
loftslagi og lokað þær inni f íslensku vetrar-
myrkri og snjó meðan þeir em sjálfir á sjón-
um."
í eftirlitinu
- Hemmi tók svo við rekstri veitíngastaðarins
sem vinur hans lét honum eftir og gerði strax
miklar breytingar, skiptí um innréttíngar, mat-
seðil og hvað eina og bauð upp á ýmsa síma-
þjónustu og tölvuþjónustu sem erlendir ferða-
menn kunnu vel að meta því að það vom þeir
viðskiptavinir sem einkum var miðað á.
„En staðreyndin er sú að ég var þarna fýrst og
fremst í einhvers konar eftírlití. Þarna eins og
hér heima vinna menn oftast betur og það
miklu betur þegar yfirmaðurinn er á staðnum
og vel sjáanlegur. Þess vegna var ég oftast að
hanga yfir þeim til að sjá til þess að þeir ynnu
fyrir kaupinu sínu.“
- Þetta átti ekki reglulega vel við bogmann-
inn Hermann sem segist aldrei hafa getið setíð
lengi kyrr á sama stað. Hann undi sér við þetta
langa hríð eða rúmlega tvö og hálft ár en það
sem bjargaði bogmanninum var að leiðsegja.
hópum ferðamanna um ævintýraheima
Taflands.
Á leiðinni vestur í Dýrafjörð
En nú er kappinn kominn heim og segist
ætla að byrja á því að fara vestur f Dýrafjörð.
Þar er lítill bær og þar bjuggu hjón sem Hemmi
segist lfta á sem fósturforeldra sína en þar var
hann mörg sumur í sveit. Gamli maðurinn dó í
vetur og nú ætlar Hemrni að fara vestur í
nokkra daga og vitja fornra slóða.
„Ég ætla að vera þarna í friði nokkurn tí'ma
og líta inn í hjarta mitt og átta mig á því hvað ég
vil gera næst. Svo reikna ég með að fara að svip-
ast um eftir vinnu upp úr því.
Ég hef oft öslað ólgusjó bæði í gleði og sorg
og aldrei látið lífið buga mig. Ég er núna á miðj-
um aldri við ágæta heilsu og það er satt að segja
skrýtíð að velta því fyrir sér hvað maður eigi að
fara að gera."
Múrarnir hrundu
Hermann hefur ekki lifað alveg hefðbundnu
íjölskyldulífi.
HEMMI ER KOMINN HEIM: Hermann Gunn
varpsmaður, sjónvarpsstjarna, rithöfundur
ur, söngvari, fararstjóri og fyrrum íþróttast
inn heim til (slands eftir nærri þriggja ára c
Hemmi segist ætla að reyna að átta sig á þ
vilji gera þegar hann er orðinn stór.
DV-mynd ÞÖK