Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Side 39
LAUGARDAGUR28. JÚNÍ2003 DVHELGARBLAÐ 43 Rachel sækirum skilnaðfrá Rod Nýsjálenska ofurfyrirsætan og ljóskan Rachel Hunter hefur loks sótt um lögskilnað frá eiginmanni sínum, hrukkupopparanum með gaddavírsröddina, sjálfum Rod Stewart. Þau hafa verið skilin að borði og sæng í fjögur ár og hafa á þeim tíma átt í ótal ástarævintýrum með öðrum. Hunter, sem er ekki nema 33 ára, sagði í skilnaðarumsókninni, sem hún lagði fram í Los Angeles, að ósættanlegur ágreiningur væri með þeim Rod um allt og alla. Eða svo gott sem. Rod og Rachel gengu í hjónaband fyrir þrettán árum. Hún var tvítug en hann 45 ára. Þau eiga tvö ung böm sem Rod er ákaflega hændur að. ÆVIN7ÝRALEG TÍSKA SVONA ERUÞAU Mioill lýsir Dorrit, Davíö, Björfcog Björgólfi Thor EKKI BARAÍ ' TTUR TRÚARINNAR Kyniíf á nystáriegum stöðum bækur - matur - anyrtmg - stjörnuspá - piátlar - föt Nýtt Líf FYRIR KROFUHARÐAR KONUR Monica lítt hrifin afgrindhoruðum Italska leikkonan Monica Bellucci, sem um þessar mundir gerir garðinn frægan í framhalds- myndinni um Matrix, vandar am- erískum stallsystrum sínum ekki kveðjurnar. Hún segir hreint út að þær þori ekki að vera bara „venju- legar konur“, auk þess sem þær séu margar hverjar alveg grindhoraðar. „Allt of margar bandarískar kvik- myndaleikkonur og fyrirsætur líta út eins og börn. Þær halda kannski að karlmenn kjósi heldur þá gerð kvenna sem hugsanlega höfðar til verndarhvatar þeirra," segir Mon- ica í viðtali við vefmiðil sem fjallar um kvikmyndir og efni þeim tengt. Sjálf er Monica kona með alvöru- kúrfur og hvelfdan barm og er stolt af. „Ég hef aldrei verið hrædd við að vera alvörukona. Það kann að hljóma gamaldags en ég held jú að karlmenn vilji frekar konur með línur. Þeir eru ekki hrifnir af skinni og beinum. í Bandaríkjunum getur karlmaður sagt við konu að hún sé falleg. Enda þótt konan hafi gengist undir fjölda fegrunaraðgerða, stundi líkamsrækt í tvo tíma á dag og eyði of fjár í föt verður hún áreiðanlega móðguð af því að henni finnst karlmaðurinn koma fram við sig eins og kjötstykki," seg- ir hin 34 ára gamla Monica sem hefur aldrei látið lappa upp á neitt á fögrum kroppi sínum. „Eg stunda ekki líkamsrækt og myndi aldrei fara í fegrunaraðgerð. En mér finnst gaman þegar mér eru slegnir gullhamrar,“ segir Monica sem er hrifin af séntilmönnum. - Drew kastaðist út úr bíl á ferð Hollywood-leikkonan Drew Barrymore hafði svo sannarlega heppnina með sér þegar hún kastaðist út úr bíl á 65 kílómetra hraða við upptökur á framhalds- myndinnni um englana hans Kalla. „Sætísbeltið losnaði og ég kastað- ist út úr bflnum. Ég slasaðist en sem betur fer fór allt vel að lokum," sagði Drew í viðtali við ameríska þátta- stjómandann Jay Leno. Verið var að taka upp bflaeltínga- leik þegar óhappið varð. En þetta var ekki eina óhappið sem Drew varð fyrir við upptökumar því skömmu síðar meiddi hún sig illa í rófubein- inu þegar henni var kastað á stól. Önnur leikkona í myndinni, Lucy Liu, varð svo fyrir því óláni að eldur kviknaði í buxunum hennar. SUMARBLAÐ MEÐ EFNI VIÐ ALLRA HÆFI Jafnskemmtilegt í bústaðnum, á ströndinni og uppi í sófa! EIGINKONUR ÁTRÚNAÐARGOÐA Hvernig er að eiga mann sem (kven)þjóðin dýrkar og dáir? NAMM, NAMM Spennandi réttir að hætti hinnar „islensku Nigellu". UZZLÉTUNDAN: Bandaríska djasssöngkonan Lizz Wright lét undan óskum sjónvarpsleik- arans fræga, Bills Cosbys, og söng aukalag á fyrsta degi Playboy-djasshátíðarinnar í Los Angeles um helgina. Cosby var kynnir og veislustjóri. Hátíðin í ár er sú 25. sem haldin hef- ur verið undir merkjum karlaritsins vinsæla. MÓÐURMISSIR Viðtöl við þrjár konur sem allar misstu mæður sínar á unglingsaldri. EKKI BARA í RÚMINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.