Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.2003, Blaðsíða 56
60 TILVERA LAUGARDACUR28. JÚNÍ2003
*
HAGKAUP
Sýnd kl. 2,4,6,8, og 10. POWERSÝNING. B. i. 14 ára.
Sýnd í Lúxus ög íQL B. i. 14 ára.
ANGER MANAGEMENT:
Sýnd kl.3,5.30og 8. IItÖFRABÚÐINGURINN:
AGENT CODY BANKS:
Sýnd kl. 2 og 4.TILBOÐ 500 KR.
□□ Doiby ÍDDfl^iZ- 7Fix
SÍMi 564 0000 - www.smarabio.is
Ef þú hélst aö þú vsrir heimskur, þá
hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd. Þeir
eru komnir aftur, heimskari en
nokkru sinni fyrr I geggjaöri
grinmynd.
Hann taldi sig hafa séð allt, þar til
hann sá of mikið! Frábær
spennumynd með stórleikurunum Al
Pacino og Kim Basinger
Sýnd kl.2,4,6,8 og 10. Sýnd kl. 2,4,6,8 og 10.
Það sem ekki má
Það er ekki að ósekju að Matrix-
myndimar komi upp í hugann þeg-
ar horft er á Equilibrium. Eins og í
Matrix (mynd númer 2) þá er aðall
Equilibrium einstaklega flott og vel
útfærð bardagaatriði sem minna
stundum á ballett. Það sem Equili-
brium skortir og Matrix hefur
(mynd númer 1) er dýpt í söguna
og áhugaverðar persónur.
Equilibrium
★★i
Equilibrium gerist eftir þriðju
heimsstyrjöldina. Það er skoðun
ráðamanna að til að koma f veg fyr-
ir þá fjórðu þurfi að uppræta til-
finningu mannsins. Búið er að
finna upp meðal sem eyðir allri til-
finningasemi. John Preston
(Christian Bale), sem er einn
„klerkanna", sleppir einn daginn
að taka inn meðalið. Þetta er dag-
inn sem eiginkona hans er brennd
fyrir að hafa sýnt tilfinningu. Eftir
það verður ekki aftur snúið.
Preston finnur fyrir missi sínum og
kemst að þeirri niðurstöðu að hann
sé röngum megin við borðið.
Sagan í Equilibrium er ekki ýkja
merkileg en Bale er sannfærandi og
myndin er hröð og skemmtileg.
Óskiljanlegt er að hún skyldi ekki
hafa verið tekin til sýningar f kvik-
myndahúsum og einhverri innan-
tómri unglingaþvælu fórnað í stað-
inn. Það sem helst háir henni er að
erfitt er að sýna fram á að þeir sem
ráða séu algjörlega tilfinningalausir
því reiði og skapofsi er jú tilfinning.
hkarl@dv.is
Útgefandi: Skifan. Gefín út á myndbandi og
DVD. Leikstjóri: Kurt Wimmer. Bandaríkin, 2002.
Lengd: 108 min. Bönnuö börnum innan lóára.
Lelkaran Christian Bale, Taye Diggs, Emily
Watson, Angus MacFayden og Sean Bean.
Heppni og óheppni
Af hverju eru sumir heppnir en
aðrir óheppnir? Það er engin skýr-
ing til á því. Samuel (Max Von
Sydow) er einn af þeim heppnu.
Það sem aðgreinir hann frá öðrum
heppnum mönnum er að hann
dregur að sér heppni frá öðrum
heppnum mönnum. Helsta
dægradvöl Samuels er að fara í
rússneska rúllettu við þá sem það
þora. Auðvitað hefur hann alltaf
vinninginn á meðan aðrir drepa
sjálfa sig. Fyrrum starfsmaður hans
er ekki sáttur við þessa eilífu
heppni Samuels og leggur í leið-
angur til að finna heppnari mann
Intacto
+++
og telur sig finna hann í líki ungs
manns sem er sá eini sem lifði af
flugslys.
Intacto er flókin kvikmynd. Leik-
stjórinn, Juan Carlos Fresnaldillo,
gerir hana enn flóknari ef eitthvað
er með því stökkva frá einu atriði í
annað án þess að samsvörun sé á
milli. Auk þess fléttast inn í söguna
ung lögreglukona sem telur sig vera
á eftir glæpamönnum. Sá angi sög-
unnar er öðruvísi, það er sjaldan
sem hvftþvegin lögregla sést í kvik-
mynd vera að leysa sakamál á gjör-
samlega röngum forsendum. Allt
púslast þetta þó saman í lokin í gef-
andi og eftirminnilegri kvikmynd
sem lofar góðu um framtíðina hjá
Fresnaldillo, en þetta er hans fyrsta
kvikmynd. hkarl&dv.is
Útgefandi: Myndform. Gefín út á myndbandi.
Leikstjóri: Juan Cartos Fresnaldillo. Spánn,
2001. Lengd: 108 min. Bönnuö börnum innan
lóára. Leikarar: Max Von Sydow, Leonardo
Sbaraglia og Monica Lopez.
Að lokinni frumsýningu
LEIKSTJÓRINN: Gunnar Helgason leikstjóri
brosir breitt að loknu góðu dagsverki.
STJARNAN: Birgitta Haukdal er hér á tali við forseta Islands, Ólaf Ragnar Grímsson,
og borgarstjórann í Reykjavík, Þórólf Árnason. Á milli þeirra er svo ungur drengur
sem getur ekki leynt aðdáun sinni á stjörnunni. DV-MYNDIR PJFTUR
SKÁL Leikarar og dansarar í Grease
skála að lokinni frumsýningu.
Grease er einhver allra vinsælasti
söngleikur í heimi og ekki hefur
það spillt fyrir vinsældum hans að
óhemju vinsæl kvikmynd var gerð
eftir honum. Grease er einnig sjálf-
sagt sá erlendi söngleikur sem oft-
ast hefur verið settur upp hér á
landi. Fyrir utan skólasýningar
skýtur hann upp kollinum af og til
hjá stóru leikhúsunum. Upp á slíka
sýningu er nú boðið í Borgarleik-
húsinu. Um er að ræða uppsetn-
ingu með landsins þekktustu
poppstjörnum í aðalhlutverkum.
Frumsýningin var í gærkvöld og var
fullt hús og mtkil gleði meðan á
sýningunni stóð enda um glæsilega
sýningu að ræða. Það voru ánægðir
leikarar og aðstandendur sem
fögnuðu frumsýningu í gærkvöld.
JÓNSI: Aðalkarlleikarinn í Grease, Jón
Jósep Snæbjörnsson, oftast kallaður
Jónsi í svörtum fötum, er hér brosandi
að sýningu lokinni ásamt Ólafi Ragnari
Grímssyni.
ÁNÆGÐ: Þau voru
ánægð að lokinni
frumsýningu,
Bjarni Haukur
Þórsson, einn
aðstandenda
Grease, og að-
alleikkonan,
Birgitta Hauk-
dal.