Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2003, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLl2003 Fagnaðarefni VARNARMÁUN: Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - graens framboðs fagnar því að sá tími skuli nú í sjónmáli að erlendur her hverfi með öllu úr landinu. ( ályktun, sem samþykkt var í gær, hvetur þingflokkurinn til þess að leynd verði aflétt af efnisatriðum viðræðnanna við Bandaríkjamenn um framtíð varnarsamstarfsins til þess að oþin og lýðræðisleg umræða geti farið fram um stefnumótun til framtíðar, enda verði því ekki trúað að erlend herseta um ókomna tíð og óháð aðstæðum sé markmið í sjálfu sér. Brýnt sé að ræða eflingu atvinnulífs á Suðurnesjum og hvernig tryggt verði að viðskilnaður Banda- ríkjamanna verði sómasamleg- ur í umhverfislegu tilliti. McShane sigraði á Grænlandsmótinu HRÓKURINN: Grænlandsmót- inu í skák, minningarmótinu um Willard Fiske, lauk með glæsilegum sigri Luke McS- hane. Luke tapaði aðeins niður hálfum vinningi og sigur hans var öruggur. Mótið var í alla staði vel heppnað og vakti mikla og verðskuldaða athygli bæði hjá bæjarbúum í Qaqortoq og grænlenskum fjölmiðlum. Mótið er hluti af stórri skákhá- tíð í bænum, skipulagt af fé- laginu Skák í norðri sem var sérstaklega stofnað vegna skipulags þessa ævintýris. Næstu daga verða hraðskák- mót og fjöltefli oýmsir við- burðir til að glæða áhuga heimamanna. Lokastaðan var sú að Luke McShane sigraði með8 1/2vinning af9. Jóhann Hjartarson var í öðru sæti með 7 1/2 vinning og Predrag Niko- lic með 7. Kvennaverðlaun fékk Regina Pokorna. Neyðarnúmer sumar- bústaðar virkaði ekki „Falskt öryggi'að mati sumarbústaðaeiganda Um helgina þurfti að kalla sjúkrabíl út í sumarbúastaða- hverfi í Hvalfirði og kom þá í Ijós að neyðarnúmer, sem sett hafði verið á bústaðinn til að einfalda sjúkraflutningamönn- um að finna bústaðinn, virkaði ekki. Miklum fjölda sumarbústaða hefur verið úthlutað númeri sem þessu síðustu tvö árin en mörg númeranna eru enn ekki orðin virk í kerfi Neyðarlínunnar. „Fólk- ið þurfti að keyra niður á veg til móts við sjúkrabílinn og lóðsa hann hérna um svæðið til að kom- ast að sjúklingnum," sagði sumar- búastaðareigandi í grenndinni sem fylgdist með atburðinum. „Þau hafa haft neyðarnúmerið á bústaðnum um nokkurt skeið og var því brugðið þegar það virkaði ekki þegar á þurfti að halda. Þetta númerakerfi veitir okkur sumarbústaðaeigendum því aug- ljóslega falskt öryggi." Tekur tíma að skrá númerin Hjá Neyðarlínunni fengust þær upplýsingar að ferlið frá því að sumarbústað sé úthlutað númeri og þangað til hann er skráður inn í tölvukerfi Neyðarlínunnar geti tekið nokkurn tíma. Það sé líkleg- asta skýringin á því að númerið virkaði ekki í þessu tilfelli. Nú eru um það bil 4.000 bústað- ir komnir inn í kerfi Neyðarlínunn- KYRRÐ OG RÓ: Það er afslappandi að komast í sveitasæluna en í neyðartilvikum getur verið erfitt að fá aðstoð, sér (lagi ef neyðarnúmer sumarbústaðarins er ekki virkt. ar með virk númer og segir tals- maður Neyðarlínunnar að kerfið hafi reynst mjög vel þegar þurft hefur að senda sjúkrabíla í slaáða sumarbústaði. Hins vegar séu sumarbústaðir á landinu um 10.000 og því rúmur helmingur þeirra enn ekki kominn inn í kerfi Neyðarlínunnar, jafnvel þótt þeim hafi verið úthlutað númeri. Hann sagði jafnframt að nokkuð væri um það að sumarbústaðaeigendur hringdu í Neyðarlínuna til að at- huga hvort sumarbústaðir þeirra væru skráðir í kerfið. Þá getur starfsfólk flett númeri bústaðanna upp og sagt til um hvort svo sé. kja@dv.is Áætluð hækkun á yfirborði setlónsins. Laxármál þarfn- ast varfærni „Ég held að öll mál sem lúta að Laxárstöðvum og hækkun stífl- unnar þurfi að nálgast á mjög varfærinn hátt," segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaður VG og þingmaður Norðaustur- kjördæmis, í samtali við blaðið. Eins og DV greindi frá í síðustu viku ráðgerir Landsvirkjun að hækka stífluna við efstu virkjunina af þremur við Laxá úr hálfum þriðja metra í allt að tólf metra til að mynda þar setlón. Með því er ætlunin að koma í veg fyrir krapa og að sandur komist inn í hverfla virkjunarinnar þar sem hann veld- ur skaða. „Það væri ef til vill hægt að ná samkomulagi um minni háttar stækkun stíflunnar en öllu öðru tek ég með miklum fyrirvara. Vissulega hafa verið þarna ákveðin vandamál vegna sandburðar og íss og það held ég að menn verði að líta á sem ákveðinn fórnarkostnað þegar virkjunin funkerar og fram- leiðir rafmagn," sagði Steingrímur. Valgerður Sverrisdóttir, iðnað- arráðherra og þingmaður kjör- dæmisins, kvaðst ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu.s/gbog/@íív'./s Sjóvá-Almennar með spennandi verkefni fyrír Vinnuskólakrakka: Telja þá sem tala í síma við aksturinn TEUA GEMSA A LOFTI: Elsa Ýr Bernhardsdóttir, t.h., og Gígja Hólmgeirsdóttir frá Vinnuskóla Reykjavlkur mæla farsímanotkun á Miklubrautinni (hádeginu í gær. DV- mynd Pjetur Krakkar úr Vinnuskóla Reykja- víkur hafa fengið það verkefni að telja bíla sem fara um ákveðnar umferðargötur og í hve mörgum bílum bílstjórinn er að tala í farsíma undir stýri. „Við höfum nokkuð reglulega talið fjölda þeirra sem tala í farsíma undir stýri og erum með eitt slíkt verkefni í gangi um þessa dagana. Við vinnum þetta í samstarfi við Vinnuskóla Reykjavíkur og fáum 16 ára krakka til að telja fyrir okkur. Það hefur gengið mjög vel enda krakk- arnir samviskusemin uppmáluð," sagði Sigurjón Andrésson, forvarn- arfulltrúi hjá Sjóvá-Almennum, við DV. Krakkar frá Vinnuskólanum sátu beggja vegna Miklubrautarinnar, við DV-húsið, um hádegisbil í gær. Þau töldu bíla sem fóru fram hjá í báðar áttir og síðan hve margir voru að tala í síma undir stýri, þ.e. hve margir héldu sfma upp að eyranu. Elsa Ýr Bernhardsdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir sátu norðan megin og töldu bíla sem óku f vesturátt. Þær höfðu setíð þama milli kl. 8 og 9 um morguninn, í hádeginu og loks áttu þær að taka törn milli kl. 16 og 17. önnur talningatöm var fyrirhug- uð í dag, á götu með 50 km hámarks- hraða. Þess má auðvitað geta að bannað er að tala í farsíma við akst- ur án þess að nota handfrjálsan bún- að og liggja sektir við brotum á þeim reglum. „Þetta er alveg ágætt starf. Við emm sosum ekki með neinar niður- stöður en þó virðist sem atvinnubíl- stjórar tali meira í farsíma undir stýri en aðrir," sögðu þær þegar hrina bíla hafði farið ffam hjá. Svo kom önnur hrina og þær smelltu á sérstök taln- ingatæki án afláts. Eftír um þriggja kortera talningu höfðu þær talið 759 bíla. í þeim höfðu 35 ökumenn verið að tala í símann með hönd upp að eyra, eða um 5 prósent. Sigurjón segir að niðurstöður úr þessum talningum ættu að liggja fyrir síðar í vikunni og verði þær þá bornar saman við eldri niðurstöður. Taldir em bílar almennt og niður- stöðurnar síðan greindar eftir því hvort um einkabíla eða atvinnubíla er að ræða. „Það á engum að dyljast mikilvægi þess að hafa fulla athygli við akstur- inn. Við viljum fá vísbendingu um hve algeng farsímanotkun er undir stýri því hér er um alvarlegt umferð- aröryggismál að ræða," sagði Sigur- jón. hlh@dv.is I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.