Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2003, Qupperneq 55

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2003, Qupperneq 55
LAUGARDAGUR 9.ÁGÚST2003 DV HELGARBLAÐ 59 Stjömuspá Gildirfyrirsunnudaginn 10. ágúst Hrollur Vatnsberinn (20.jan.-1s. tebrj Félagslífið tekur einhverjum breytingum. Þú færð óvænt ný og spennandi verkefni til að takast á við. Happatölur þínar eru 6,25 og 39. Fiskamir (79. fefcr.-20. marsj Þú heyrir óvænta gagnrýni í þinn garð og átt erfitt með að sætta þig við hana. Ekki láta aðra koma þér úr jafnvægi. Hrúturinn (21. mars-19.apríl) LjÓnÍð (23.júlí— 22.ágúst) T Þér gengur óvanalega vel að ná til aðila sem venjulega er þér fjarlægari en þú vildir. Þú færð góða frétt í dag. Nautið (20.april-20.mai) Það er jákvætt andrúmsloft í kringum þig þessa dagana. Fjölskylda kemur mikið við sögu í kvöld. Happatölur þínar eru 11, 30 og 46. 1 Tvíburarnir f27. mai-21.júni) Eitthvað er að angra þig. Þetta er ekki hentugur tími til að gera rniklar breytingar. Reyndu að hvíla þig. Krabbinn (22.júní-22.júii) py -------------------------------------- Viðkvæmt mál kemur upp og þú átt á hættu að leiða hugann stöðugt að því þótt þú ættir að ein- beita þér að öðru. Sjálfstraust þitt er með besta móti. Þú þarft á öryggi að halda í einkamálunum á næstunni og ættir að fá hjálp frá fjölskyldunni. Meyjan ql agúst-22. septs Þú lendir í miðju deilumáli og ert í vafa um hvort þú eigir að styðja annan deiluaðilann eða láta þlg þetta engu skipta. Gerðu eins og þér finnst réttast. Vogin (23. sept.-23. okl.) Þú ættir að vera vakandi fyrir mistökum sem þú og aðrir gera í dag svo þau hafi ekki slæm áhrif seinna. Happatölur þínar eru 19, 20 og 4ff. ni Sporðdrekinn (24.okt.-2u Þú þarft að hugsa þig vel um áður en þú tekur ákvörðun í mikilvægu máli. Breytingar í heimilislífinu eru af hinu góða. / Bogmaðurinn (22.n0v.-21.des.) Stjörnuspá Vinnan gengur vel í dag og þú færð hrós fyrir vel unnið starf. Kvöldið verður líflegt og þú átt von á gestum. Steingeitin (22.des.-19.janj Þérfinnst þéreftil vill ekki miða vel í vinnunni. Þú þarft þó ekki að hafa miklar áhyggjur því að þú munt bráðlega ná miklum árangri. Gildirfyrirmánudaginn 11. ágúst \/V Vatnsberinn (20./an.-is.rekj Þú þarft að gæta þagmælsku varðandi verkefni sem þú vinnur að. Annars er hætt við að þú náir minni árangri. Fiskarnir (i9.febr.-20.mars) Ljónið (B.jdi-22. ágúa) M Það verður leitað til þín um ráðleggingar. Þú skalt leggja þig fram um að veita þá aðstoð sem þú getur en ekki gefa ráð sem þú hefur lítið vit á. Ekki gera neitt gegn betri vitund. Líklegt er að ákveðnar upplýs- ingar vanti sem muni gera þér auð- veldara fyrir þegar þú kemst að þeim. n Meyjan (23. égúst-22. sepij Mikið rót er á tilfinningum þínum og þér gengur ekki vel að taka ákvarðanir. Mannamót lífgar upp á daginn. T Hrúturinn (21.mars-19.april) o Vogin (23.sepL-23.okt.) Þú færð fréttir sem valda þér miklum heilabrotum. Ættingi þinn kemur þér verulega á óvart og sýnir á sér nýja hlið. w Nautið (20. apríl-20. mai) Þú ert óþarflega varkár gagnvart tillögum annarra en þær eru allar nýstárlegar. Þú myndir samþykkja þær ef þú þyrðir að taka þá áhættu. Tvíburarnir (21 .maí-21.júnl) Morgunninn verður rólegur og notalegur og þér gefst tími til að hugsa málin. Kvöldið verður notalegt. /7» Krabbinn (22.júni-22.júii) ---------------------------------- Þú færð að heyra gagnrýni varðandi það hvernig þú verð tíma þín- um. Þér finnst þú hafa mikið að gera en sumum finnst þeir vera vanræktir. Þú ert orðinn þreyttur á venjubundnum verkefnum og ert fremur eirðarlaus. Þú ættir að breyta til og fara að gera eitthvað alveg nýtt. rj-j Sporðdrekinn (24.okt.-21.ndv.) Þér verður mest úr verki fyrri hluta dagsins. Dagurinn verður afar skemmtilegur og lánið leikur við þig á sviði viðskipta. Bogmaðurinn (22.n6v.-21.desj / Þú hefur í mörgu að snúast og þarft á aðstoð að halda. Ástvinir þínir eru fúsir til að láta þér hana í té. Steingeitin (22.des.-19.janj Þó að þú sért ekki alveg viss um að það sem þú ert að gera sé rétt verður það sem þú velur þér til góðs þegartil lengri tíma er litið. Sm áauglýsingar ý 550 5000 \ Eyfi Andrés önd Margeir Bridge Umsjón: Stefán Guðjohnsen Fjölnotasagna-misskilningur Opnun á tveimur hefur veriö í stöðugri þróun í nánast heila öld en á fyrstu árum bridgespilsins þýddi sögnin sterk spil með góð- um lit. Bandarískir bridgemeist- arar komu samt fljótt auga á hindrunargildi þess að opna á tveimur veikum og í dag spila flestir opnun á tveimur í spaða, hjarta og tígli sem veikar opnanir. Upp úr miðri síðustu öld komu fram sérfræöingar sem vildu að tveir tíglar væru fjölnotasögn. Þá þýddi opnun á tveimur tíglum að viðkomandi spilari ætti veika há- litaopnun eða sterka tveggja granda opnun. Það gefur augaleið að erfitt er að verjast slíkum fjöl- notasögnum þótt margir bridgesérfræðingar hafi baukaö við það. Þá tíðkast einnig opnanir á tveimur sem lýsa þriggja lita höndum, svokaliaðar Flannery- opnanir. Ótaldar eru þó tveggja lita opnanir, kenndar við Tartan, sem lýsa hálit og láglit. Á langri spilagöngu hef ég próf- að þetta allt saman en nú held ég mig við veikar eðlilegar tveggja lita opnanir. Hins vegar er það ekki ástæða þess að þetta er rifjað upp hér heldur að í flóknum opn- unum getur brugðið til beggja vona, jafnvel í höndum heims- þekktra bridgemeistara. Á nýafstöðnu sumarlandsmóti Bandaríkjanna, nánar tiltekið í keppni um bandaríska meistara- titilinn í kvennaflokki, kom eftir- farandi spil fyrir: s/o 4 gio8 * ÁKD762 ♦ 6 4 K94 4 ÁD6 4* - 4 ÁD1075 4 107532 N 4 K7542 <4 4 4 G9842 4 Á6 4 93 «■> G109853 4 K3 4 DG8 Spilið er frá fjórðungsúrslitum keppninnar en þar áttust við sveit Hjördísar Eyþórsdóttur og sveit heimsþekktra kvenspilara, undir forystu Jill Meyer, stigahæsta kvenspilara heims. í opna salnum sátu n-s Meyer og Montin en a-v Sanbom og McCallum. Montin opnaði á tveimur tíglum, fjölnotasögn: Suöur Vestur 24 3* pass pass pass pass Noröur Austur 3 4 dobl 3 grönd dobl pass Þegar stigahæsti kvenspilari heimsins biðst afsökunar ættu all- ir að leggja við hlustir. Það sýnir líka að jafnvel þeir bestu geta gleymt sagnvenjum. En af hverju baðst Meyer afsök- unar? Meyer og Montin höfðu komið sér saman um að ef þessi staða kæmi upp þá ætti dobl að biðja um pass eða flutning í hinn hálitinn þannig að þegar sagnir gengu tveir tíglar, þrjú hjörtu, dobl þá ætti opnari að passa með hjartalit en að öðrum kosti segja á spaðalitinn. Einmitt í þessari stöðu gæti Meyer doblað því óljóst er hvom hálitinn suður er með. Þar sem trompið liggur 6-0 fer spilið einn niður, sem er engin ástæða til veisluhalda. Þriggja spaða sögn Meyer var hins vegar ástæða til veisluhalda og þótt hún breytti í þrjú grönd var það til lítilla bóta. Þreyta er sjálfsagt orsök þess að Meyer taldi £ vist að suður væri með spaðalit og í ofanálag gleymdi hún hvemig bregðast átti við. Vömin var ekki flókin: austur spilaði út hjarta, vestur drap á drottningu og spii- aði spaðagosa til baka. Einn slag- ur á spaða og þrír á tígul var upp- skeran og a-v skrifuðu 1400 í sinn dálk. Á hinu borðinu sagði suður pass í upphafi, vestur opnaði á einu hjarta, austur sagði einn spaða og tveggja hjarta sögn vest- urs var síðan lokasamningurinn. Það voru 110 til a-v en lítið upp í skaðann á hinu borðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.