Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Blaðsíða 22
22 OV HCLOAfíBLAO MÁNUDAGUR 2.JÚNÍ2003
Betri helmingurinn
Umsjón:
Arndfs Þorgeirsdóttir, arndis@dv.is
Snæfríóur Ingadóttir, snaeja@dv.is
Höfuðföt af ýmsum stærðum og gerðum verða sífellt meira áberandi í íslenskum tískuvöruverslun-
um og það er liðin tíð að þau séu aðeins til þess að verja notandann gegn kulda og bleytu.
Hattur er höfuðprýði
Þótt til séu íslenskar konur sem bera hatta við
hvert tækifæri eru þær ekki margar. Hattar hafa
þó verið notaðir ffá ómunatíð og ýmsar gerðir
þeirra urðu snemma stöðutákn. Nú keppast
tískuhönnuðir við að hanna hatta fyrir U'skusýn-
ingar sínar og ffæga fólkið í Hollywood er gjarnan
með einhvers konar höfuðfat þegar það sýnir sig
og sér aðra.
„Forfaðir hattanna"
Forfaðir allra hatta hefur sennilega verið það
sem á ensku kallast „fillet" og er nokkurs konar
hárband sem bundið var um höfuðið til að halda
hárinu í skorðum. Egyptar, Babýlóníumenn og
Grikkir voru meðal notenda. Síðar urðu tii
túrbanar og ýmsir aðrir hattar en menn vilja
meina að „fflletið" hafi haidið lífi og sé nú það
sem við þekkjum sem borðann í kringum hatt-
inn.
Með hatt á djammið
Hægt er að kaupa flotta hatta víða á Islandi,
meðal annars í verslununum Sautján (til dæmis
frá Diesel og Miss Sixty), Zöm og Accessorize svo
ekki sé minnst á hattabúðimar. Það er bara um
að gera að fara á búðarölt, skoða, máta og kaupa
og mæta svo með myndarlegan hatt í næstu kaffi-
húsaferð, á ársháu'ðina eða skemmtistaðinn.
Vandaðu valið
Til em fjölmargar reglur um hvernig hatt konur eiga að velja sér miðað við andlitslögun.
Eftirfarandi reglur eru ekki algildar en það er ágætt að hafa þær til hliðsjónar.
Kantað andlit
Reyndu að hafa hattinn hallandi til annarrar hliðar eða hafðu hattbarðið ósamhverft.
Mjótt andlit
Forðastu háa, mjóa hatta í lengstu lög. Gerðu tilraunir með hattbörð og stóra hatta.
Breittandlit
Þeim, sem em með breitt andlit, hentar betur að vera með hatta sem sitja aftarlega á höfð-
ij inu og skyggja þar með ekki á andlitið.
Hringlaga andlit
i Stórir hattar em málið fyrir konur með hringlaga andlit, svo og barðastórir hattar en aðeins
| þegar þeim er hallað. Toppur hattarins ætti aldrei að vera mjórri en andlitið.
Hjartalaga andlit
i Fólk sem er með hjartalaga andlit býr við það að geta verið með nánast hvernig hatt sem er.
Það þarf þó að gæta þess að efri hluti hattarins sé aldrei mjórri en sem nemur breiddinni á
| milli kinnbeinanna.
Stórt nef
Reyndu að velja hatt sem situr framarlega á höfðinu.
hristi þennan hattfr ef ekki hægt að
ira-^^nséftuntiegut.
RISAVAXINN: Þær eru afskaplega fáa7
vaxnnUaharttSerT1 myPdU bera Þennan risa-
vaxna hatt portugalska hönnuðarins Dino
SUMARLEG VETRARTfSKA: Breska ofurfyrirsæt-
an Naomi Campbell sýndi þennan hatt frá Dolce &
Gabbana i Milanóí vor. Þá var verið að sýna vetrar-
tískuna 2003-2004 og er hatturinn því væntanleg-
ur í verslanir innan skamms.
Hera Ólafsdóttir hefur dvalið langdvölum erlendis og veriðþaríýmsu námi tengdu
tónlistog öðrum listum. Hún útskrifaðistmeðMA í leikstjórn frá frá Goldsmiths Col-
lege - UniversityofLondon íseptember2002.Eftirað hún kom heim leikstýrði hún
leikritinu Plómum sem sýnt var í Tjarnarbíói í sumar. Sýningin verður aftur tekin
upp í byrjun október og þá í Gamla Bíói við Ingólfsstræti. Að því loknu liggur leið
hennar tilNew York, þarsem lelkrltið verðursýntí enskri útgáfu. Með þvíað skoða
innihald snyrtlbuddu Heru sést að hún kýs náttúrulegan farða, þó svo að glimmer
body lotion frá Body Shop sé í sérstöku uppáhaldi hjá henni.
Glimmer á kroppinn
„Þetta „Glimmer body
lotion" er í algjöru uppáhaldi
hjá mér. Það gefur glitrandi
áferð og ilmurinn er alveg
hreint unaðslegur. Trönuber-
in gefa svo frísklegan ilm,
hann er betri en bestu ilm-
vötn. Ég veit ekki hvort þetta
fæst hér á landi því að það er
keypt í Body Shop í London.
Mæli þó hiklaust með því.“
Ómissandi maskari
„Kanebo-maskarinn minn er algjör
snilld. Hann hentar vel fyrir þá sem
nenna ekki að vera alltaf að skrúbba af
sér farðann. Hann rennur nefnilega auð-
veldlega af með skvettu af volgu vatni eða
rennur sjálfur af smám saman. Hann tollir
þó vel á yfir kvöldið og klessist ekki. Þessi
maskari er það eina sem ég nota dags dag-
lega og ég gæti ekki ímyndað mér líf án hans.
Þetta fer að hljóma eins og eldheit ástarsaga.
En hvað um það, maskarinn er geggjaður."
Næring í stað hárgeis
„Næringuna mína frá
Sebastian nota ég bara í stað-
inn fyrir gel og set í hártopp-
ana. Hún fer mun betur með
hárið en þau efni sem ég notaði
áður. Ég byrjaði að grána mjög
ung, fann fyrsta gráa hárið þeg-
ar ég var 12 ára og byrjaði að lita
það upp úr tvítugu. Mér var bent
á að prófa Potion 9 næringuna
frá Sebastian og ég er ekki frá
því að hárið hafi lagast töluvert
síðan."
Lítið og sætt gæludýr
„Ég verð nú eiginilega að viðurkenna að mér þykir alltaf
sérstaklega vænt um púðurkvastann minn. Það mun eflaust
vekja einhverja furðu því að ég held að ég hafi aldrei notað
hann. Ég nota hvorki laust púður né kinnalit og ég man ekki
hvenær eða hvernig ég eignaðist hann. Hann er bara eitthvað svo
mjúkur og loðinn og mun alltaf eiga vísan stað í snyrtibuddunni
minni. Eins og lítið, sætt gæludýr!"
Japanskur töfraelixír
„Áður en ég fór að nota þetta
krem frá Kanebo, sem kallast En
hancing Emulsion II, var
mér eiginlega alveg sama
hvað ég setti framan í mig.
En svo fékk ég gefins prufu
af þessu kremi fyrir löngu
og vil ekki sjá neitt annað
(dag. Mér fannst ég yngj-
ast um fleiri áratugi eftir
nokkra notkun og er al-
veg viss um að í krem-
inu er falinn einhver
aldágamall japanskur
.töffaelixír!"
n
18
y