Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Blaðsíða 40
44 ÚV HÍLGARÚLÁÚ LAUGARDAGUR 30.ÁGÚST2003
' V
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
JðK yoga yoga yoga yoga yoga yoga
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir barnshafandi konur
Verð 9.500 - Því ekki að prófai
FORVAL
fyrir gerð samanburðartillagna að endurnýjun
aðstöðu fyrir Siglingaklúbb ÍTR í Nauthólsvík
F.h. Fasteignastofu Reykjavíkurborgar er auglýst eftir aðilum til að
taka þátt í forvali fyrir gerð samanburðartillagna að endurnýjun
aðstöðu fyrir Siglingaklúbb íþrótta- og tómstundaráðs í Nauthólsvík.
- V U Rétt til þátttöku hafa allir þeir sem rétt hafa til að skila inn aðalupp-
dráttum til byggingarnefndar Reykjavíkur.
Gert er ráð fyrir að valdir verði þrír til fimm þátttakendur til að gera
tilllögur.Við valið verður færni, menntun og reynsla lögð til grundval-
lar og er æskilegt að þátttakendur hafi einhver kynni eða reynslu af
starfsemi siglingaklúbba.
Forvalsgögn munu liggja frammi hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur,
Fríkirkjuvegi 3, frá og með 2. september 2003.
Umsóknum skal skila á sama stað eigi síðar en kl. 16.00 11. sep-
tember 2003, merktum: Siglingaklúbbur í Nauthólsvík - FORVAL.
PRfi INNKAUPASTOFNUN
BiB REYKJAVÍKURBORGAR
Frfkirkjuvegi 3 - 101 Revkjavik
Fax 662 2616 - Netfang isr
- Sfmi 670 6800
isrörhus.rvk.is
ALUTBOÐ - FORVAL
F.h. Bílastæðasjóðs Reykjavíkur, Gatnamálastofu Reykjavíkur,
Orkuveitu Reykjavíkur og Landssímans er auglýst eftir aðilum til
að taka þátt í lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar niður-
grafins bílakjallara við Laugaveg 86-94, kaupa á byggingarrétti fyrir
ofanjarðarhús á sömu lóð og endurnýjunar á Laugavegi, milli
Snorrabrautar og Barónsstígs í Reykjavík. Samhliða endurnýjun
Laugavegar verða lagnir vettustofnana endurnýjaðar.
Forvalið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Forvalsgögn, sem eru á íslensku, fást hjá Innkaupastofnun
Reykjavíkur, Fn'kirkjuvegi 3, Reykjavík.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað eigi síðar en
kl. 16.00,16. september 2003, merktum: ISR/0323/BÍL -
Bílakjallari, byggingarréttur og endurnýjun Laugavegar,
Alútboð - Forval.
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvogi 3 - 101 ftoykjavfk - Sfmi 570 5800
Fax 662 2616 - Natfang isi#rfius.rvk.is
UTBOÐ
F.h. Gatnamálastofu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í eftir-
farandi verk:
Ýmis smærri verkefni II - 2003, gatnagerð og lagnir.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 4.500 m3
Fyllingar: 7.000 m3
Mulningur: 2.400 m2
Malarslitlag: 5.800 m2
Holræsi: 170 m
Hellulögn: 500 m2
Girðing: 1.150 m
Skiladagur verksins er 1. maí 2004.
Útboösgögn verða seld á kr. 5.000,- á skrifstofu okkar frá og meö
2. sept. 2003.
Opnun tilboða: kl. 11.00 10. september 2003, á sama staö.
GAT 104/3
Wm INNKAUPASTOFNUN
BHB REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirfcjuvegi 3 -101
Fax 562 2616
I Raykjavfk -
Netfang isKhfius.rvk.is
- Sfmi 670 5800
Smáauglýsingar ^
550 5000 2
Umsjón: Sævar Bjarnason
Skákþing íslands:
Tvísýn keppnifram undan
Keppnin stendur nú sem hæst í
menningarmiðstöðinni Hafnarborg í
Hafnarfírði. Keppnin í kvennaflokki er
mjög tvísýn en eftir að keppnin er
hálfnuð þá eru 3 keppendur efstir og
jafnir. Þær Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir (2058), Harpa Ingólfsdóttir
(2057) og Lenka Ptácníková (2215) eru
efstar og jafríar, með 3,5 vinninga, að
lokinni 5. umferð. Mótið er nú hálfríað
en stúlkumar tefla tvöfalda umferð.
Það vekur athygli hversu vel þeim
Guðfríði Lilju og Hörpu gengur að
halda í við Lenku sem óneitanlega er
sigurstrangleg. Ég spái því að Lenka
einbeiti sér betur í seinni helmingn-
um en hún hefur náð stórmeistaratitli
kvenna. Allt getur þó gerst í skákinni!
Hinar stúlkumar þijár em Anna Björg
Þorgrímsdóttir (1695), 2,5 v., Hall-
gerður Helga Þorsteinsdóttir
(1280),1,5 v., en hún er aðeins 10 ára,
og Elsa María Þorfinnsdóttir, 0,5 v.
Hannes Hlífar Stefánsson (2560) er
með vinningsforskot eftir 5 umferðir í
landsliðsflokki á Skákþingi íslands.
Hannes, sem teflir fyrir Helli, hefúr nú
4,5 vinninga - hefur aðeins misst nið-
ur eitt jafrítefli. í 2.-3. sæti em Þröstur
Þórhallsson, Taflfélagi Reykjavíkur
(2441), og Róbert Harðarson, Hrókn-
um, (2285), 4.-6. em Ingvar Þór Jó-
hannesson (2247), Hróknum, Stefán
Kristjánsson, (2404), Hróknum, og
Jón Viktor Gunnarsson (2411), Taflfé-
lagi Reykjavíkur, með 3. v. 7 - 8. em
Guðmundur Halldórsson (2282), Tafl-
félagi Bolungarvíkur, og Sævar
Bjarnason (2269), Taflfélagi Vest-
mannaeyja, 2,5 v. 9. er Ingvar Ás-
mundsson (2321), Helli, 2 v., 10.—11.
Bjöm Þorfinnsson (2349), Helli, og
Davíð Kjartansson (2320 fm), Skákfé-
lagi Akureyrar, 1 v. 12. er Sigurður
Daði Sigfiísson (2323), Taflfélag,
Reykjavíkur, 0,5 v. Mótið er, þegar
þetta er skrifað, rétt hálfnað og Hann-
es virðist hafa töluverða yfirburði.
Mótinu lýkur 3. sept. og allar aðstæð-
ur em til fyrirmyndar.
Þung taflmennska Hannesar
Hannes hefur þegar teflt við 2 af
þeim sem hvað lfklegastir þóttu til að
veita honum keppni. Hann gerði jafn-
tefli við Þröst eftir snarpa baráttu og
Stefán fékk að finna fyrir þungri og
djúpri taflmennsku Hannesar.
Hvítt: Hannes H. Stefánsson (2560)
Svart: Stefán Kristjánsson (2404)
Drottningarindveisk vöm
(4), 27.08. 2003
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6
5. b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. Bg2 c6 8. 0-0
d5 Venjulegast var leikið hér áður fyrr
9. Bc3 0-0 10. Rbd2, en þannig hafa
margar skákir teflst. Hannes vill ekki
þræða bókina og fljótlega lendir Stef-
án í vandræðum. 9. Dc2 0-0 10. Hdl
Rbd7 11. Bf4 c5?! Hér virðist 11. b5
vera eðlilegra framhald. 12. Rc3 cxd4
13. Rxd4 Hc8 14. cxd5 Rxd5. Bisk-
upinn á a6 er lengi að komast í barátt-
una, Hannes gefur því glaður og
þvingaður hvítreitabiskup sinn! 15.
Bxd5 exd5 16. Db2 Rc5 17. Be5 Rd7
Hér á hvítur kost á að fara út í mikl-
ar flækjur en Hannes afræður að
halda spennunni. Eftir 18. Rxd5 Rxe5
19. Rf5 Bf6 20. Rde7+ Kh8 21. Hxd8
Rf3+ 22. exf3 Bxb2 23. Hxf8+ Hxf8 24.
Hdl hefur svartur allavega biskupap-
arið. 18. Bf4 Rc5 19. b4 Re6 20. Be5
Rxd4? Hér hefði svartur gert betur í að
leika 20. Bb7 og reyna að halda í horf-
inu. 21. Hxd4 f6 22. Bf4 Hc4 23. Hadl
Hxd4 24. Hxd4
Hér er úr vöndu að ráða. Eftir 24.
Bb7 25. Rxd5 Bxd5 26. e4 Bxe4 27.
Hxd8 Hxd8 26. De2! Hd4 28. f3 og
hvítur vinnur. En eftir næsta leik
svarts er staðan slæm, mjög slæm. 24.
- g5? 25. Hxd5 De8 26. Bd6 Bb7 27.
Hd4 Bxd6 28. Hxd6 De5 Nú kemur
innrás á 7. reitaröðina og svartur get-
ur engu mótspili náð. 29. Hd7 Bc6 30.
Db3+ Kh8 31. Hxa7 b5 32. Dc2 C 33.
Dd3 Df6 34. Hc7 1-0
Teflt af dirfsku
Björn Þorfinnsson teflir alltaf af
mikilli dirfsku og uppsker eftir því. í
þessu móti í Hafnarfirði hefur hann
verið afar seinheppinn en mótið er
varla hálfnað. Enn er tími til að velgja
mönnum betur undir uggum.
Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson
Svart: Bjöm Þorfinnsson
Riddaratafl.
(3), 26.08.2003
1. e4 e5 2. RÖ Rc6 3. Rc3 Rf6 4. d4
Bb4 Hér í gamla daga var til þekkt
jafnteflisafbrigði sem margir ungir
menn iaumuðust til að leika, en það
hefst með 4. - exd4 5. Rd5 Rxe4 6. De2
f5. En þeir félagar hljóta að hafa þekkt
þetta afbrigði sem þeir tefla hér, það
þóttist ég sjá af látbragði þeirra þegar
þeir tefldu skákina. 5. Rxe5 Rxe4 6.
Dg4 Rxc3 7. Dxg7 Hf8
Þessa stöðu vildu báðir greinilega
fá. En hvor þeirra hefur metið stöðuna
rétt? Ég hallast á að það hafi verið
Björn þó að Jón Viktor hefði sagt eftir
skákina að þetta væri áhættusamt af-
brigði. En sem betur fer eigum við
skákmenn sem eru ekki feimnir við að
taka áhættu! Gaman fyrir okkur áhorf-
endur. Nú hótar svartur fráskák með
riddaranum og hann er að auki manni
yfir. 8. a3 Rxd4! 9. axb4
Hér skilur á milli feigs og ófeigs!
Svartur virðist vera kominn með unn-
ið tafl eftir 9 leiki og eftir 9. Rxc2+ 10.
Kd2 (stendur í vegi fyrir Bcl) Rxal 11.
Kxc3 a5! og svartur stendur með
pálmann í höndunum! T.d. 12. Bg5
(12. bxa5 Hxa5 13. Bh6 De7) 12...
axb4+ 13. Kd3 f6 14. Bh6 De7 15.
Dxe7+ Kxe7 16. Bxf8+ KxfB 17. Rc4 og
hvítur er einfaldlega of miklu liði und-
ir. Ætli það sé hægt að fá Jón Viktor til
að tefla þetta afbrigði aftur? Hann sér
örugglega eitthvað sem við hinir miss-
um af. Eða tók hann fi'fldjarfa áhættu?
9. - Rf5?? 10. Dxh7 Df611. Rg4 Dd412.
bxc3 Dxc3+ 13. Kdl d5
hann lék 9. Rf5 En nú kemur óþægileg
skák sem yrði fýlgt eftir með 15. Hel+
ef svartur víkur ekki kóngnum undan.
Úti er ævintýri og raunveruleikinn tek-
ur við! 14. Bb5+ Kd8 15. Bg5+ Re7 16.
Bxe7+ Kxe717. Hel+ Kd818. Dh4+ f6
kemur hér skemmtilegur leikur. Það
má ekki drepa drottninguna með
hróknum vegna He8+ og mát. 19.
Dxf6+ DxfiS 20. Rxf6 c6 21. Rxd5 Hxf2
22. Rb6 1-0
Heimsmeistarakeppnin
Það er búið að aflýsa einvíginu á
Krímskaga, Kirsan Iljumzjínov, forseti
Alþjóða skáksambandsins (FIDE),
hefur tilkynnt að fyrirhuguðu einvígi
Úkraínumannsins Ruslans Ponom-
ariovs, heimsmeistara FIDE í skák, og
Rússans Gam's Kasparovs, stigahæsta
skákmanns heims, hafi verið aflýst, en
það átti að hefjast í september í Jalta
við Svartahaf.
Ponomariov hefur ekki skrifað und-
ir samning um einvígið og fékk reynd-
ar frest til þess en nú er þolinmæði
FIDE þrotin. Það voru ýmis ákvæði um
ffamkvæmd einvígisins en Ponom-
ariov og FIDE hafa átt í deilum undan-
farnar vikur um framkvæmdina.
Ponomariov setti fram ákveðnar kröf-
ur og hafði FIDE fallist á nokkrar
þeirra, svo sem um skákdómara og að
lyfjapróf vegna einvígisins skyldu fara
fram í hlutlausu landi en hvorki í Rúss-
Iandi né Úkraínu. FIDE vildi hins veg-
ar ekki fallast á kröfur um fleiri frídaga
eða afsala sér rétti til að vísa öðrum
hvorum skákmanninum úr keppni
yrði hann uppvís að stórfelldum brot-
um á samningi sínum við FIDE.
Kasparov hefur þegar skrifað undir
samning við FIDE um einvígið. Einnig
tel ég að verðlaunaféð skipti einhverju
máli, en það er um 400.000 Banda-
ríkjadalir. Ponomariov er heims-
meistari FIDE og það er örugglega
erfitt fyrir hann að horfa upp á
Kasparov raka saman milljónum doll-
ara á ári hverju en Pono fær mun
minna. Hvað gerist núna er erfitt að
segja um.
mmr 'wmmm 'mmmm 'wv mv w 'W