Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2003, Blaðsíða 28
28 OVHÍLGARBLAÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST2003
ÞAR SEM ÁRNAR MÆTAST: Þarna koma Jökulsá og Kringilsá saman rétt sunnan við Sauðafell.
Gengið um
botn Hálslóns
73 manna hópur fór snemma sumars fótgang-
andi í stóran hring um botn væntanlegs Hálslóns
við Kárahjúkavirkjun. Leiðin lá um Kringils-
árrana, eitt fáfarnasta svæði á íslandi, og fyrir
upptök Jökulsár á Brú á Brúarjökli. Fimm erfiðir
en ógleymanlegir dagar.
Nú eru hafnar framkvæmdir við Kára-
hnjúkavirkjun en þegar stíflan við Kárahnjúka
verður tilbúin mun Hálsión, stærsta virkjun-
arlón á íslandi, verða til. Þrettán manna hóp-
ur áhugafólks um náttúruskoðun lét þann
draum sinn rætast í sumar að ganga í stóran
hring meðfram Jökulsá að vestan og Kringilsá
f Kringilsárrana og þaðan fyrir upptök Jök-
ulsár á Brú á jökli og síðan aftur að Kára-
hnjúkum meðfram ánni að austan.
Þessi hugmynd er ekki einkaleyfi neins sér-
staks einstaklings heldur lá hún einhvern veg-
inn í loftinu og hefur gert um hríð. Þegar Háls-
lón Jyllist af vatni munu margar fáséðar nátt-
úruperlur og Iítt þekktar hverfa að eilífu. Þar
ber hæst KringiJsárrana sem er innilokað
landsvæði milli stóránna Jökulsár og Kringils-
ár. Þar er rómað dýralíf og sérstætt náttúrufar
en raninn mun ekki fara undir vatn nema að
litlu leyti.
Það er óhemju erfitt að komast í Kringils-
árrana því ámar hvor sínum megin em óvæð-
ar með öllu og því þarf að krækja fyrir upptök
þeirra á jökli. Nokkur fjöldi manns hefur lagt
leið sína í ranann í sumar og jafnan farið fyrir
upptök Kringilsár á jökli og síðan sömu leið til
baka. Sá hópur sem hér verður sagt frá ákvað
að gera úr þessu ferðalagi hring með því að
krækja einnig fyrir Jökulsá á Brúarjökli en það
munu mjög fáir íslendingar hafa gert.
Operation Hálslón
Ferðalag þetta gekk manna á milli undir
nafninu: Operation Hálslón og það var að
morgni 11. júlí sem 13 manns söfnuðust sam-
an við Sauðá, skammt innan við Kárahnjúka,
til að hefja gönguna.
Það hafði snjóað í ná-
læg fjöll um nóttina og
hitinn skriðið langleið-
ina niður undir frost-
mark. Flestir leiðang-
ursmenn vom með
15-20 kílóa bakpoka
með nesti til 6 daga,
tjöld, myndavélar, lín-
ur, brodda og ísaxir.
Nú á dögum er Sauðá kurteislegt vatnsfall,
nær laust við jökullit, en til skamms tíma var
hún nær óvætt jökulfljót og var sauðfé ferjað
yfir hana á tveimur kláfúm vor og haust og
hallaði annar inn yfir ána en hinn í gagnstæða
átt eftir því hvað átti við. I þann tíma var nær
helmingur af vatni Kringilsár í Sauðá og var
þá hægt að vaða Kringilsá inni við Rana. Þetta
breyttist seint á 20. öld þegar jöklar höfðu
hopað nóg til þess að vatnaskil færðust.
Við gengum fyrst niður með Sauðá og skoð-
uðum fossa, steinboga og flúðir og forn kláf-
stæði en áin fellur í tilkomumiklum flúðum í
Jökulsá, rétt innan við Kárahnjúka. Síðan lá
leið okkar til suðurs meðfram Jöklu. Farvegur
hennar er víða þröngur á þessum slóðum en
undir Sauðafelli falla í hana lækir eða smáar
ár úr Tröllagili og fleiri sprænum. Fögur
stuðlagólf em við gljúfrið og rautt berg í veggj-
unum þegar komið er inn undir Sauðafell.
Þarna er á tveimur stöðum það sem kalla
mætti flúðir eða fossa í Jökulsá og er sú syðri
sérstaklega tilkomumikil þar sem ganga má
alveg að ánni og sjá flagðið berjast um í
þröngum og bröttum stokki og sjá með eigin
augum smásteina og
svarf sem hún rífur úr
klettaveggjunum.
Skammt þar sunnan
við er sérstæður klettur
niðri við ána sem hefur
verið kallaður gljúfra-
búi eða vörður Jök-
ulsár því á honum er
nokkur mannsmynd.
Okkur fannst hann
minni en myndir hafa gefið til kynna en fór-
um ekki hjá garði án þess að heilsa.
Lífríkið og frostið
Allan þennan dag gengum við undir yfir-
borði væntanlegs Hálslóns sem verður í 610
metra hæð yfir sjó þegar það verður fullt. Það
var ekki fyrr en undir kvöld, þegar hópurinn
stóð við hinn rómaða Kringilsárfoss eða
Töfrafoss, sem hæstu menn fóru að reka höf-
uðið upp úr vatni framtíðarinnar.
Þá þótti mönnum mál að tjalda á þurm en
allt í kringum okkur mátti sjá heiðagæsir á
hlaupum, bæði ófleyga unga og fullorðna
fugla, í sámm. Heilu breiðurnar þustu á
Jökullinn reyndist vera harla
torfær yfirferðar, löðrandi í
skreipum leir, sullandi í leys-
ingarvatni í hitanum og vað-
andi í sprungum og hyldjúp-
um svelgjum.
HVAR ER MAMMA? Gæsarungi handsamaður í Kringilsárrana. Hann reyndist vera frekar fáskiptinn og önugur
en fótfrár með afbrigðum.
FOSSINN SEM KANNSKI FER: Kringilsárfoss eða Töfrafoss mun að llkindum falla beint ofan í Hálslón eða það ná
upp á hann miðjan þegar það stendur fullt.