Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
i Grand Vitara 2,0, bsk.
Skr. 6/01, ek. 75 þús.
Verð kr. 1790 þús.
Suzuki Liana 2WD, 5 d.,
Skr. 2/02, ek. 22 þús.
Verð kr. 1350 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
Skr. 7/99, ek. 59 þús.
Verð kr. 1140 þús.
Suzuki Wagon R+ 4x4.
Skr. 5/00, ek. 13 þús.
Verð kr. 890 þús.
Hyundai Santa-Fe 2,4, bsk.
Skr. 2/01, ek. 42 þús.
Verð kr. 1760 þús.
Nissan Primera Comfort, bsk.
Skr. 7/01, ek. 25 þús.
Verð kr. 1370 þús.
M-Benz A-140, bsk.
Skr. 7/02, ek. 35 þús.
Verð kr. 1490 þús.
Peugeot 406 2,0, 3 d., ssk.
Skr. 11/98, ek. 72 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Alfa Romeo 156, bsk.
Skr. 9/98, ek. 60 þús.
Verðkr. 1180 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
Borgarvísir á Bretlandi
FERÐAÞJÓNUSTA: Höfuðborgarstofa
hefurtekið höndum saman við
lcelandair í Bretlandi og Ferðamálaráð
(slands um útgáfu á kynningarriti á
ensku um valda viðburði í Reykjavík
frá hausti 2003 til hausts 2004. Til að
kynna ritið og Reykjavík sem spenn-
andi áfangastað fyrir ferðamenn
efndu Höfuðborgarstofa, lcelandair
og Ferðamálaráð til kynningar fyrir
ferðaritstjóra og blaðamenn frá bresk-
um fjölmiðlum, fagfólk í ferðaþjón-
ustu og fleiri í Shakespeare Globe
leikhúsinu við bakkaThames-árinnar í
London sl. miðvikudagskvöld. Um
200 gestir sóttu viðburðinn sem
ÞórólfurÁrnason, borgarstjóri í
Reykjavík, opnaði og kynntu sér það
helsta sem er á boðstólum í borginni
á komandi mánuðum. Nýtt slagorð
Reykjavíkur - PURE ENERGY - var yfir-
skrift kvöldsins. Meðal þeirra sýnis-
GLOBE: Um 200 gestir sóttu kynninguna.
horna af íslenskri
menningu sem boðið
var upp á má nefna
frumsýningu á kynn-
ingarmynd um 30 ára
feril Listahátíðar í
Reykjavík og kvæða-
manninn Steindór
Andersen sem fór á
kostum og hélt óskiptri
athygli salarins.
Samtðk ferðaþjónustunnar um vændi á hótelum sem lögreglan er að upplýsa:
Þetta er alvarlegt
og óhugnanlegt
Flugelda-
sýning
Ramsókn ofbeldisbrotadeildarlögreglunnar:
Vændi
á hótelum
borgarinnar
(slenskir umboðsmenn með
erlendar vændiskonur á sínum
snærum. Um skipulagða 09
alþjóðlega starfsemi aft ræfta.
DV íGÆR: „Mér finnst hræðilegt að heyra þetta," segir hótelstjóri Radisson SAS Hótels
sögu vegna fréttar um skipulagt vændi á hótelum borgarinnar.
„Þetta er alvarlegt ef satt er og
óhugnanlegt," segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka ferðaþjónustunnar,
um fréttir þess eðlis að lögregl-
an í Reykjavík hafi fengið þann
grun staðfestan með vitnis-
burðum erlendra kvenna að
þær hafi stundað vændi á hótel-
um í Reykjavík.
íslendingar eru grunaðir um að
hafa skipulagt vændið en þeir hafa
tekið hátt í heiming af tekjum
stúlknanna og séð um uppihald
þeirra og ferðakostnað samkvæmt
heimildum DV.
Hrönn segir að á henn-
ar hóteli sem öðrum
séu reglur og hótel-
starfsfólk hafi hreina
og klára heimild til að
vísa gestum út úr her-
bergjum séu þeir ekki
skráðir þar inn.
„Mér finnst hræðilegt að heyra
þetta," sagði Hrönn Greipsdóttir,
hótelstjóri Radisson SAS Hótel
Sögu, við DV. „Kannski er maður
svona grænn að maður hafi ekki
orðið vör við þetta. En það er ákaf-
lega erfitt að segja nei við því að
þetta viðgangist."
Hrönn segir að á hennar hóteli
sem öðrum séu reglur og hótel-
starfsfólk hafi hreina og klára heim-
ild til að vísa gestum út úr herbergj-
um séu þeir ekki skráðir þar inn.
Þannig hafi partí t.d. verið leyst upp
en með öryggismyndavélum sé
hægt að fylgjast með umferð um
hótelið. Á hinn bóginn sé mjög
erfitt að gera slíkt til hlítar.
Þetta er vandamál sem
er víða og erfitt að upp-
ræta. Mér finnst þetta
óhugnanlegt. En við get-
um kannski ekki búist
við að vera stikkfrí frá
ýmsum svona vanda-
málum sem eru gömul.
„Þetta er þekktara vandamál til
dæmis f Kaupmannahöfn, á 5
stjörnu hótelum. Þar hafa verið
vangaveltur um hvernig eigi að
bregðast við. En það er vart hægt
nema fylgjast með, eins og við, í ör-
yggismyndavélum hverjir fara upp
á herbergi eða eitthvað í þeim dúr,"
sagði Hrönn.
Ema Hauksdóttir sagði að Sam-
tök ferðaþjónustunnar mundu
ræða þessa stöðu.
„Þetta er vandamál sem er víða
og erfitt að uppræta. Mér finnst
þetta óhugnanlegt. En við getum
kannski ekki búist við að vera stikk-
frí frá ýmsum svona vandamálum
sem eru gömul. Þetta hljóta þar til
bærir aðilar að skoða. En við vitum
líka að hótelmenn hér á landi em
með augun opin fyrir þessu.“
ottar@dv.is
Veðríð á morgun
sSuðvestan 3-8 m/s og súld vestan til fram eftir degi, Snýst í norðan 8-13
norðvestan til en annars hægari og rigning um landið norðanvert með kvöldinu.
Hiti 3 tii 10 stig.
Sólarlag Sólarupprás
f kvöld á morgun Síðdegisfióð Ardegisflóð
Rvfk 19.13
Ak. 18.59
Rvlk 7.26
Ak.7.10
Rvík 19.11
Ak. 23.44
Rvlk 7.33
Ak. 12.06
Veðríðídag
Veðrið á hádeg ígær
Akureyri alskýjað 4
Reykjavík rigning 3
Bolungarvík rigning 5
Egilsstaðir léttskýjað 4
Stórhöfði rigning 5
Kaupmannah. skýjað 15
Ósló skúr 13
Stokkhólmur 15
Þórshöfn hálfskýjað 8
London skýjað 18
Barcelona skýjað 24
New York alskýjað 18
París hálfskýjað 20
Winnipeg alskýjað 4
Varað við
netþrjótum
Embætti Ríkislögreglustjórans
hafa borist upplýsingar um að ein-
staklingar séu beittir blekkingum í
þeim tilgangi að fá þá tii að gefaupp
persónuupplýsingum þar á meðal
um kreditkortanúmer og pinnnúm-
er kreditkorta þeirra. Blekkingar
þessar em gerðar með þeim hætti
að einstaklingar, sem líklega hafa
allir átt viðskipti við eBay upp-
boðsvefinn, hafa fengið tölvupóst
sem virðist eiga uppruna sinn hjá
eBay uppboðsvefnum. Meðal ann-
ars hefur verið settur upp á netinu
vefur sem svipar til vefsvæðis eBay.
Erfitt er fyrir hinn almenna notanda
að átta sig á að sá aðili sem sendir
póstinn og tekur við honum aftur sé
ekki tengdur framangreindum upp-
boðsvef. Gmnur leikur á að hinir
óprúttnu aðilar hafi með einhverj-
um hætti komist yfir netföng fólks
sem átt hefur viðskipti við eBay.
Þeim sem þegar hafa gefið upp um-
ræddar upplýsingar er ráðlagt að
hafa þegar samband við viðkom-
andi kreditkortafyrirtæki og til-
kynna þar um upplýsingagjöfina.