Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Blaðsíða 34
46 DVHELCARBLAÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 t > íslendingar lauslátastir allra Durex-smokkafyrirtækið hefur kannað kyn- hegðun viðskiptavina sinna um allan heim og í fyrsta sinn komast fslendingar á blað í könnun- inni en fleiri en 1000 landsmenn þurfa að taka þátt til þess. Sumt kemur á óvart en annað ekki þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar. Durex er fyrirtæki sem er í rauninni heims- veldi ef marka má yfirlýsingar umboðs- manna þess á íslandi. Durex er stærsti fram- leiðandi smokka á heimsvísu og dreifir vöru sinni í meira en 150 löndum og telur selda smokka í hundruðum milljóna ár hvert. Allt er þetta gott og blessað enda varla vanþörf á að stemma stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma og ótímabærum þungunum með notkun þessa þjóðþrifaáhalds. En Durex gerir fleira en að selja smokka því fyrirtækið hefur lifandi áhuga á kynhegðun fólks sem þarf sennilega ekki að koma á óvart. Þetta er svipað og að bakara sem seldi brauð um allan heim langaði til að vita eitt- hvað um matarvenjur viðskiptavina sinna. í þessu skyni gerir Durex könnun meðal jarðarbúa og notar til þess hið almáttuga Internet. Gegnum það fara konur og karlar inn á heimasíðu Durex og svara eftir bestu samvisku spurningum um hvað eina sem lýt- ur að kynhegðun, kynlífi og kynlífsvenjum. Sfðan eru niðurstöðurnar flokkaðar og birtar eftir því sem þurfa þykir og teljast til fróðleiks þótt áreiðanlega komi þar margt upp á diskinn sem Durex kemur að gagni við vöru- þróun. Á dögunum voru íslendingum sérstaklega kynntar niðurstöður umræddrar könnunar og þóttu nokkur tíðindi þar sem ísland var í fyrsta sinn með í könnuninni. Að sögn Frið- riks Einarssonar, framkvæmdastjóra Cosnor, sem flytur inn Durex, eru sett þau lágmörk að hið minnsta 1.000 íbúar í hverju landi sendi inn gild svör og það reyndust vera 1.358 ís- lendingar sem vildu gjarnan að Durex vissi allt um þeirra eðlunarvenjur. Aðspurður kvaðst Friðrik ekki vita nákvæmlega hvernig aldursdreiftngin væri í hópi svarenda en þar sem þátttakan fór aðeins fram á Netinu og var auglýst á vefsíðum, eins og tilveran.is, hugi.is og fleiri sem einkum ungt fólk sækir, má gera ráð fyrir að meðalaldur í úrtakinu hafi verið frekar lágur enda hafa rannsóknir sýnt að ungt fólk notar Netið í meira mæli en þeir sem eldri eru. En tölum ekki meira um það heldur lítum á nokkrar forvitnilegar niðurstöður. íslendingar lauslátastir? Nú er fauslæti alltaf spurning um skilgrein- ingu en þegar spurt var hvort fólk hefði stundað kynlíf með einhverjum sem það þekkti ekki skoruðu Islendingar hæst því 71% hafði gert það. Þetta eru stundum kölluð einnar nætur kynni. Nú er ekki hægt að halda því fram að þetta sé árangur af markaðsstarfi Flugleiða heldur kemur í ljós að Norðmenn og Finnar fylgja fast á hæla okkur með 70% og 68%. Aðrar þjóðir eru miklu seinteknari og má nefna sem dæmi Þjóðverja en aðeins 37% þeirra höfðu átt einnar nætur kynni og Ind- verja en aðeins 24% þeirra sögðu já við þessu. Ertu með hausverk? Sjálfsagt velta flestir því fyrir sér einhvern tímann á lífsleiðinni hvað oft sé nógu oft í þessu samhengi og þegar flokkuð eru svör 150 þúsund manna og kvenna verður ekki séð annað en elskendur heimsins svali fýsn- um sínum að meðaltali 127 sinnum á ári. Það eru 2,44023 skipti í viku. Á toppnum tróna Ungverjar með 152 skipti á ári sem er 2,92234 skipti í viku og Búlgaría David Beckham: Þessi fótboltastrákur er talinn kyn- þokkafyllstur allra karlmanna heimsins. Jennifer Lopez Lopez er á toppnum yfir kynbombur heimsins. og Rússland fylgja fast á eftir. Svíar og Singapúrbúar eru slakastir á þessu sviði með 102 og 96 skipti á ári. íslendingar koma nokkuð sterkir inn þarna með 136 skipti á ári að jafnaði og erum við í 10. sæti á heimslistanum en erum efstir Norðurlanda en aftur eru það Norðmenn sem koma fast á hæla okkur. Samkynhneigð hvað? Samkvæmt könnuninni höfðu að meðal- tali 8% aðspurðra lifað kynlífi með einhverj- um af sama kyni. í aldurshópnum 16-20 ára var hlutfall þeirra sem sögðu já 7% en hækk- aði í 11% í hópi þeirra sem voru yfir 45 ára. Þetta er þó misjafnt eftir löndum og Ástral- ir og Bandaríkjamenn skera sig nokkuð úr en 17% þeirra sögðust hafa átt náin kynni með einhverjum af sama kyni. Kínverjar, Víet- namar, Pólverjar og Taiwanbúar eru minnst ævintýragjarnir á þessu sviði en þar svöruðu 3-5% þessari spurningu játandi. íslendingar eru fyrir ofan meðallag í þessum efnum en 10% aðspurðra svöruðu spurningunni ját- andi. Ég er að koma Það er ekki allt sem sýnist í kynlífi og 26% kvenna sem svöruðu sögðust einhvern tím- ann hafa gert sér upp fullnægingu. Hæsta hlutfallið er í Ástralíu (47%), Nýja-Sjálandi (46%) og Bandaríkjunum (44%). Nú má deila um ástæður þessa en freistandi væri að halda að þetta stæði í sambandi við frammistöðu karlmanna í rúminu í þessum sömu löndum. Ekki er ástandið mikið betra á Islandi en 42% kvenna sem þátt tóku sögðust einhvern tím- ann hafa gert sér upp fullnægingu. Hvað kostar þetta? I ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað um vændi á íslandi þar sem deilt hefur verið um tilvist þess er forvitnilegt að sjá að 10% íslendinga segjast hafa greitt fyrir kynlíf einhvern tímann en meðaltalið var 11%. í Ví- etnam sögðust 34% hafa greitt fyrir kynlíf, 24% í Taílandi og 22% í Rússlandi. Fæstir höfðu greitt fyrir kynlíf í Belgíu, Frakklandi, Hollandi og Póllandi. Um gildi yfirvinnunnar Það kom í ljós í könnuninni að einn af hverjum tíu hafði sofið hjá unnustu eða unnusta besta vinar síns eða vinkonu sem mörgum myndi þykja ögn siðlaust. Karl- menn eru ósvífnari á þessu sviði en 12% þeirra játuðu slík afglöp á sig en aðeins 7% kvenna. íslendingar voru nálægt meðaltali í þessum efnum. Hins vegar sögðust að meðaltali 3% hafa lifað kynlífi með yfirmanni sínum í vinnunni. Þar eru Ástralar hæstir með 7% sem hafa sof- ið hjá yfirmanninum en íslendingar eru með- al þeirra hæstu í þessum efnum en 6% að- spurðra hér sögðust hafa sofið hjá yfirmanni sínum og erum við því álíka iðnir við þetta og Bretar og Kanadabúar. Vilt þú vera ofan á? Þegar búið er að spyrja hvað oft og með hverjum er rétt að spyrja hvernig og það kom í ljós að kynlífsstellingin þar sem konan situr ofan á karlinum nýtur mestra vinsælda á heimsvísu en 29% töldu það bestu aðferðina. Þar eru íslendingar alveg á meðaltalinu en ítalir hafa mest dálæti allra þjóða á þessari stellingu (35%) en af einhverjum ástæðum er þessi stelling aðeins vinsæl meðal 4% í Ví- etnam. Aftan frá er álíka vinsælt en það vekur at- hygli að þar skera Víetnamar sig úr aftur en aðeins 2% þeirra nefndu þá stellingu sem sitt eftirlæti. Trúboðastellingin þar sem karlinn liggur ofan á konunni hefur unnið sér sess sem hin hefðbundna og blátt áfram aðferð og fékk þetta heiti þegar vestrænir trúboðar í Afríku voru að reyna að kenna innfæddum sína teprulegu kynlífssiði um leið og þeir kristn- uðu þá. Trúboðastellingin er vinsælust í Ví- etnam þar sem 94% settu hana í fyrsta sæti en aðeins 10% Búlgara settu hana á toppinn. Viltu egg? Undanfarin ár hafa verslanir með hjálpar- tæki ástarlífsins sprottið upp á íslandi og sennilega hefur eign slíkra tækja meðal ís- lendinga vaxið mjög að sama skapi og egg og titrarar leynast áreiðanlega í fleíri náttborðs- skúffum en áður þekktist. Þetta er staðfest í könnuninni en 55% aðspurðra íslendinga hafa prófað slík tæki sem er hæsta hlutfall allra þjóða og höfum við nokkra sérstöðu en þó fylgja Norðmenn sem fyrr fast á eftir með 51% en Bandaríkjamenn koma næstir með 49% og síðan Ástralar með 42%. Miðað við könnunina eru slík tæki fátíðust í Búlgaríu og Indlandi en aðeins 8% aðspurðra í hvoru landi þekktu slík tól. Önnur hjálpartæki ástarlífsins sem hafa verið lengur við lýði en þau sem eru knúin rafhlöðum eru fjötrar af ýmsu tagi eða hand- járn. í ljós kom að 15% aðspurðra höfðu brugðið á slíkan leik í svefnherberginu og aft- ur voru íslendingar meðal þeirra allra frjáls- lyndustu en 35% aðspurðra hér höfðu beitt handjárnum eða fjötrum í ástarleikjum en Bretar standa okkur framar á þessu sviði með 38% þátttöku. Malasía, Kína og Táfland eru augljóslega þau lönd þar sem menn kæra sig Vin Diesel: (slendingar voru þeirra skoðunar að þetta væri heimsins mesta kyntröll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.