Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR LAUGARDAOUR 27. SEPTEMBEFt 2003 Útlönd Heimurinn í hnotskurn Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson Netfang: gube@dv.is Sími: 550 5829 Suu Kyi heim af spítala Mafían fyrirmyndin BURMA: Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar f Burma, fór heim af sjúkrahúsi í gær, eftir rúmlega þrjá mán- uði í haldi herforingja- stjórnarinnar. Læknir hennar sagði að hún yrði í stofufangelsi og að her- foringjarnir myndu ákveða hverjir fengju að heimsækja hana. Suu Kyi gekkst undir skurðaðgerð fyrir viku. Stjórnvöld staðfestu að Suu Kyi væri komin á heimili sitt í miðborg Rangoon en í yfirlýsingu þeirra var ekki talað um hvort hún væri í stofu- fangelsi. Henni verður veitt öll læknisaðstoð. LINDH-MORЩ: Vanga- veltur eru í Svíþjóð um að morðið á Zoran Djindjic, forsætisráðherra Júgóslavíu, hafi verið ein af ástæðunum að baki morðinu á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Sví- þjóðar. Djindjic var á ieið að hitta Lindh í Belgrad þegar leyniskytta skaut hann. Júgóslavnesku mafíunni var kennt um en hinn 24 ára gamli Mijailo Mijailovic, sem grunaður er um morðið á Lindh og var úrskurð- aður í gæsluvarðhald í gær, mun hafa litið á út- sendara þessara glæpa- samtaka í Svíþjóð sem fyrirmyndir sínar. Ráðist gegn barnaklámi Þýska lögreglan hefur upprætt einhvern stærsta barnaklám- hring sem sögur fara af og sem teygði anga sína til 166 landa. Á þriðja tug þúsunda netnot- enda tengist klámhringnum. Rannsókn stendur yflr á mörg hundruð grunuðum mönnum í Þýskalandi og undanfarna daga hefur verið gerð húsleit á meira en flmm hundruð heimilum um allt landið og tóku fimmtán hundruð lögreglumenn þátt í aðgerðunum. Mikið af geisladiskum og mynd- böndum hefur verið gert upptækt. Lögreglan sagði að karlmaður einn í Bæjaralandi hefði haft 26 þúsund barnaklámmyndir undir höndum. Rannsóknin, sem hefur gengið undir heitinu Marcy, hefur staðið yflr í rúmt ár undir stjórn lögregl- unnar í Saxen-Anhalt í austanverðu Þýskalandi og saksóknara í borg- inni Halle. Alþjóðalögreglan Inter- pol og þýska alríkislögreglan hafa einnig komið þar nærri. Listi í Magdeburg Yflrvöld sögðu í gær að komist hefði verið á slóð hinna grunuðu fyrir tilstilli tölvuskráa sem gerðar voru upptækar í fyrra hjá karlmanni einum í þýsku borginni Mag- deburg. Þar var meðal annars að finna umfangsmikla dreifingarmið- stöð netfanga sem barnaníðingarn- Kennarar, prestar og lögregluþjónar eru sagðir í hópi þeirra sem eru undir smásjá lög- reglunnar. ir notuðu til að skiptast á efni þar sem sjá mátti börn allt niður í fjög- urra mánaða gömul. „Eitthvert stærsta virka alþjóð- lega netið hefur verið upprætt," sagði Curt Becker, dómsmálaráð- herra Saxen-Anhalt. Á fundi með fréttamönnum í gær sögðu yfirvöld dómsmála í Saxen- Anhalt að margir hinna grunuðu sem hefðu skipst á barnaklámi á netinu væru stórhættulegir barna- níðingar og að þeir kæmu úr öllum þjóðfélagshópum. Kennarar, prestar og lögreglu- þjónar eru sagðir í hópi þeirra sem eru undir smásjá lögreglunnar. Ih YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103 YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla. Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar. Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur. Hví ekki að prófa? REPORT Bas scwiL-ik l ilebcn des ManucH BARNAKLÁM: Hér má sjá sýnishorn af geisladiskum, myndbandsspólum og bókum með barnaklámi sem þýska lögreglan lagði hald á þegar hún upprætti bamaklámhring sem tugir þúsunda manna í 166 löndum tengjast. Hringur þessi mun einhver stærsti sinnar tegundar sem flett hefur verið ofan af. Viö erum öðruvísi af því að þið eruð öðruvísi Ólík fyrirtæíci fara ólíkar leiðir í starfi sínu. Hvert fyrirtæki hefur sína sérstöðu og þar af leiðandi sínar ólíku þarfir. Þess vegna steypum við ekki alla í sama mótið, heldur röðum saman þeim tryggingum sem henta þínu fyrirtæki. Það er okkar sérstaða. TRYGGINGAMIDSTÖÐIN • AÐALSTRÆTI 6-8 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 515 2000 • WWW.tmhf.iS I REKSTUR Deilendur fyrír botni Miðjarðarhafs: Hjálparþurfi Kofi Annan, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að svo virtist sem Palestínumenn og ísraelar gætu ekki komið sér út úr því öngstræti sem deilur þeirra eru komnar í án utanaðkom- andi aðstoðar. „Því miður hefur hvorum tveggju mistekist að þokast áleiðis og al- þjóðasamfélagið hefur ekki verið þess megnugt að hvetja þá áfram," sagði Annan eftir fund kvartettsins svokallaða sem stendur að baki Vegvísinum að friði, Bandaríkja- manna, Rússa, Sameinuðu þjóð- anna og Evrópusambandsins, í New York í gær. Kvartettinn fordæmdi hryðju- verkaárásir Palestínumanna í Israel og sagði jafnframt að ísraelar yrðu að stöðva frekari frekari byggingu á ekki að „fjarlægja" Yasser Arafat fyrr en búið verður að fara yfir athugasemdir bandarískra stjórnvalda. svæðum Palestínumanna. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, sagði í gær að ísraelar myndu taka athugasemdir Banda- ríkjamanna til athugunar áður en ákveðið yrði hvort gerð verði alvara úr þeirri hótun að „fjarlægja" Yass- er Arafat, forseta Palestínumanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.