Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Blaðsíða 14
74 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003
Fríðrik krónpríns afDanmörku ætlar að giftast Mary Donaldson:
Drottningin er afar
ánægð með ráðahaginn
Í|L FRÉTTAUÓS
* Guðlaugur Bergmundsson
# gube@dv.is
»
„Hún er einstaklega indæl, gáf-
uð og hefur mjög þróað skop-
skyn. Hún er eldfljót að koma
með athugasemdir ef hún sér
sniðugar kringumstæður."
Þetta er lýsingin sem Anne Bove-
Nielsen, upplýsingafulltrúi tölvu-
fyrirtækisins Microsoft Business
Solutions í Vedbæk í Danmörku
gefur á tilvonandi Danadrottningu,
hinni áströlsku Mary Elizabeth
Donaldson.
Mary, eða María eins og hún
verður væntanlega kölluð á íslensku
þegar hún verður komin í tölu
kóngafólksins, starfaði sem ráðgjafl
hjá fyrirtækinu í eitt ár og tuttugu
og Ijóra daga. Hún sagði af sér á
miðvikudag þegar tilkynnt var um
að hún myndi giftast Friðriki krón-
prinsi einhvern tíma næsta vor. Til-
vonandi drottning frænda okkar
hefur jú víst öðrum hnöppum að
hneppa næstu mánuðina.
Lengi von á einum
Danska þjóðin hafði lengið beðið
eftir tilkynningu frá hirðinni um að
eldri sonur þeirra Margrétar Þór-
hildar drottningar og Hinriks prins
hefði fundið réttu konuna fyrir sig,
og sjálfsagt líka íyrir Danmörku.
Þá gerðust þau undur
og stórmerki austur í
Tasmaníu að Friðrik
smellti kossi á sína
heittelskuðu frammi
fyrir blaðamönnum og
Ijósmyndurum.
Hinn 35 ára gamli Friðrik hefur átt
margar kærustur um ævina, kærust-
ur sem drottning hefur verið mishrif-
in af. En víst er að Margrét Þórhildur
er ánægð með tilvonandi tengdadótt-
ur sína, svo ánægð reyndar að hún
gaf sterklega í skyn í sumar að brúð-
kaup væri í vændum. Drottning sagði
nefnilega við fréttamenn á vínbú-
garði Hinriks prins í suðvestanverðu
Frakklandi í ágúst að hún kynni af-
skaplega vel við Maríu og sagðist
jafnframt vera viss um að hún myndi
eignast góða tengdadóttur.
LOKSINS, LOKSINS: Danska þjóðin þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af kvennamálum krónprinsins síns, Friðriks Hinrikssonar. Tilkynnt hefur verið að Friðrik ætli að ganga að eiga hina
áströlsku Mary Elizabeth Donaldson einhvern tíma á vori komanda. Hér má sjá skötuhjúin i sinu fínasta pússi.
Dóttir stærðfræðiprófessors
María Elísabet, þvert á fyrri
kærustur danska krónprinsins, hef-
ur verið heldur fámál í samskiptum
sínum við danska fjölmiðla. Hefur
reyndar skipst á kurteislegum
kveðjum við fréttamenn en ekki
sagt aukatekið orð um samband sitt
við Friðrik og hún hefur óskað eftir
því við vini og ættingja, vinnuveit-
endur, svo og skóla sem hún hefur
gengið í að persónulegum spurn-
ingum um hana frá fjölmiðlum
verði ekki svarað. Flestir hafa orðið
við þeirri beiðni.
Drottningin tilvonandi fæddist
þann 5. febrúar 1972 í Hobart, höf-
uðstað eyjarinnar Tasmaníu undan
ströndum Ástralíu. Foreldrar henn-
ar eru John Dalgleish Donaldson,
prófessor í stærðfræði, og Henrietta
Clark Donaldson, aðstoðarmaður
konrektors Tasmaníuháskóla. Hen-
rietta lést 1997 og tæpum fjórum ár-
um síðar kvæntist faðir Maríu aftur,
breska glæpasagnahöfundinum
Susan Elizabeth Moody. María er
yngst fjögurra systkina; hún á tvær
systur og einn bróður.
María Elísabet lauk háskólaprófl í
lögum og viðskiptafræði árið 1994
og starfaði á fasteignasölu og aug-
lýsingastofu áður en hún fluttist til
Danmerkur í fyrra. Síðsumars 2002
fékk hún sér lúxusíbúð úti á Löngu-
línu og réð sig í starf hjá Navision
tölvufyrirtækinu sem síðar varð
Microsoft Business Solutions.
Hittust á barnum
Þau Friðrik og María hittust í
Sydney á árinu 2000, þegar Ólymp-
íuleikarnir voru haldnir þar. Nánar
tiltekið lágu leiðir þeirra saman á
veitingahúsinu Slip Inn þann 16.
desember það ár. Þar hafði verið
efnt til samsætis tii að konungborn-
ir gestir Ólympíuleikanna fengju
tækifæri til að hitta jafnaldra sína úr
röðum heimamanna.
María hefur til þessa ekki sýnt sig
í námunda við prinsinn við opin-
berar athafnir. Þau hafa þó farið
saman í skírnir og annað þess hátt-
ar hjá vinum og ættingjum. Danskir
blaðamenn þóttust því hafa himin
höndum tekið mánudaginn 20. jan-
úar 2003. Þá gerðust þau undur og
stórmerki austur í Tasmaníu, þar
sem Friðrik tók þátt í siglinga-
keppni, að hann smellti kossi á sfna
heittelskuðu frammi fyrir blaða-
mönnum og ljósmyndurum.
„Þið fáið mynd og í staðinn vilj-
um við fá að vera í friði," sagði Frið-
rik við fjölmiðlafólkið. Og friðinn
fengu þau.
En ekki er víst að sá friður haldist
lengi. Til stendur að Friðrik og heit-
mey hans hitti fréttamenn 8. októ-
ber næstkomandi, eftir að Margrét
Þórhildur drottning hefur formlega
tilkynnt um væntanlegt brúðkaup á
ríkisráðsfundi fyrr um daginn. Ekki
má ólíklegt telja að ljósmyndarar og
fréttamenn reyni að sitja fyrir hjón-
unum tilvonandi í þeirri von að ná
af þeim mynd.
Ekki hefur verið skýrt frá brúð-
kaupsdeginum að öðru leyti en því
að hann verður einhvern tíma
næsta vor. Vitað er hins vegar að
hjónavígslan fer fram í Holmens
kirkju í Kaupmannahöfn. Það þykir
vel við hæfi þar sem hún er kirkja
danska flotans þar sem Friðrik
gegndi herþjónustu sinni. Brúð-
hjónin ungu munu síðan búa í höllu
Ingiríðar heitinnar drottningar-
móður í Amalienborg og í Kanselí-
húsinu við Fredensborgarhöll.
Kátína í Tasmaníu
Fjölskylda drottningarinnar til-
vonandi er að vonum ánægð með
ráðahaginn.
„Við erum bæði glöð og spennt,"
segir Jane Stephens, eldri systir
Maríu, í viðtali við The Mercury,
stærsta dagblaðið á Tasmaníu. Jane
Stephens er lyfjafræðingur og býr í
vesturhluta Hobart. Það hafði aldrei
hvarflað að henni að litla systir
hennar myndi einn góðan veðurdag
gifta sig inn í kóngafjölskyldu.
„Þetta hvarflaði aldrei að mér,
eiginlega dettur manni þetta ekki í
hug um nokkurn mann. Nú getur
systir oldcar orðið fyrsta ástralska
drottningin," segir Jane.
Ekki er vitað hvort María Elísabet
hefur lagt sig eftir dönskunni þann
tíma sem hún hefur búið í Dan-
mörku. Ljóst má þó vera að sam-
keppnin við svilkonu hennar tilvon-
andi, Alexöndru prinsessu, eigin-
konu Jóakims prins, verður erflð.
Alexandra hefur nefnilega vakið eft-
irtekt fyrir það hvað hún talar alveg
„glimrende dansk".
Byggt á efni frá Jyllands-Posten og Politiken.