Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 24
24 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÚBER 2003
Matur og vín
Umsjónarmenn:
Gunnþóra Gunnarsdóttir, gun@dv.is
Haukur Lárus Hauksson, hlh@dv.is
alP^
Bleikja
Bleikja er belnflskur aflaxaætt sem lifir víða í Norður-Evrópu, allt norður að Svalbarða.
Blelkja og urrlði eru einu nafni kölluð silungur, enda er margt líkt með þeim, svo sem lífs-
hættir og bragð. Bleikjan skiptist í sjóbleikju, sem lifir í sjó en gengur í ár til hrygningar, og
vatnableikju sem elur allan sinn aldur í ósöltu vatni. Einnig skiptist hún ínokkur afbrigði þar
fyrir utan, misjöfn að stærð og gæðum. Bleikjan næristeinkum á vatnakröbbum og mýlirf-
um en á seinni árum er hún víða alin í kerum og þá á aðkeyptu, sérútbúnu fóðri. Bleikjan
er eftirsóttur matfiskur og leggja veiðimenn á sig ferðir, fé og tíma til að fanga hana á stöng.
Eldisbleikja fæst orðið í verslunum allt árið hér á landi og er hún yfirleitt feitari en sú villta.
Bieikja er Ijúffengur fiskur sem gott er að sjóða, steikja, grilla, baka, grafa og reykja.
Bleikja í góðum félagsskap
segir Einar Geirsson, matreiðslumaður ársins
„Bleikja er einfaldlega frábær matur og
gaman að elda úr henni," sagði Einar Geirs-
son, yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum
Tveim fiskum og handhafi nafnbótarinnar
matreiðslumaður ársins, við DV þegar hann
gerði klárt fyrir eldamennskuna sem lýst er
hér í opnunni.
Einar mun leika á als oddi frá og með deg-
inum í dag og alla næstu viku, en þá verða Al-
sace-dagar á Tveim fiskum. Alsace er eitt
helsta vín-
hérað heims og þaðan koma hin rómuðu AI-
sace-hvítvín. Mun hann setja santan sérstak-
an matseðil í takt við Alsace-vín. Fulltrúar frá
vínframleiðandanum Dopf & Irion, sem val-
inn var hvítvínsframleiðandi Frakklands árið
2002, mun heimsækja veitingastaðinn þessa
daga og sjá um smökkun á sérstöku nám-
skeiði á þriðjudag, þar sem Einar mun galdra
fram sérstakan fiskrétt.
En snúum okkur að bleikjunni. Einar segir
eldamennskuna
tes. „ vera
heimilislega en uppskriftin miðast við tjóra.
Það sem þarf er:
600 g væn bleikja
1 msk. svartur pipar
smávegis salt
3 hvítlauksgeirar - smátt saxaðir
1/2 búnt steinselja - fínt söxuð
Kryddinu er blandað saman og bleikjunni
velt upp úr blöndunni. Bleikjan brúnuð á
snarpheitri pönnu og síðan haldið heitri.
Með bleikjunni er höfð risahörpuskel, um
2 bitar á mann. Hún er afar mjúk og þarf litla
eldun. Það sem þarf er:
risahörpuskel - 2 bitar á mann
salt og pipar
hvftlaukur - smátt saxaður
Hörpuskelin er krydduð og snöggsteikt á
pönnu.
Með bleikjunni eru einnig bitar af andalif-
ur en hana má m.a. nálgast hjá GV-heild-
verslun í Garðabæ. Þarf einn bita á mann,
eðau.þ.b. 15 g.
Lifrin er snöggsteikt á pönnu eins og
hörpuskelin.
Með þessu er haft gúrku- og mangósalsa
sem gott er að gera aðeins áður. í því er:
1 /2 gúrka
1 þroskaður mangóávöxtur
1/2 rauðlaukur
2 vorlaukar
1 chiiipipar
1 rauð paprika
safi úr einni límónu
2-3 msk. sítrónuolía
Ávöxturinn og grænmetið er skorið í litla
teninga og blandað saman með safanum og
olíunni.
Loks er það sósan, köld „heimilisvæn"
dressing. í henni er:
1 dós sýrður rjómi (18%)
50 g fersk piparrót - rifín
1 msk. saxað kapers
safí úr 1 /2 iímónu
smávegis salt og pipar
1 tsk. flórsykur
Punkturinn yfir i-ið eru skalottlaukar (1-2 á
mann) sem eru afhýddir, steiktir á pönnu og
síðan soðnir f blöndu af balsamediki (1/2
bolli), púrtvíni (1/2 bolli), og hunangi (1/2
bolli). Soðið er í um 20 mínútur, eða þar til
laukamir em meyrir.
Með þessu öllu er borið fram mccolasalat.