Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 20: DESEMBER 2003
Fókus 0V
Það er nóg að gera hjá prófessor íslands í poppfræðum og rektor Popppunkts, Gunnari Lárusi Hjálmars-
syni. Plata með samnefndri hljómsveit hans var að detta í búðir og það eru tvennir tónleikar í kvöld.
Doktorinn gaf sér þó tíma til að fara í leiðangur um safnarabúðir borgarinnar með Vali Gunnarssyni.
icjttífci í mn 1 ”'fí
♦
w
■ ,
meo siallum ser
herna, œoia oatt-
úrlega að p sea
dýrusta plötarnað'
Doktorinn og Valdi Dr. Gunniþræðir safnarabúðirnar um það
bil einu sinni I mánuði og laumastsvo með fenginn inn íherbergi
I svo konan saki hann ekki um að eyða f einhverja vitleysu. Stór
hluti af þessum kúltúr er að prútta og hér er hann einmitt I þeim
'erindagjörðum við Valda I Geisladiskabúð Valda á Vitastig.
„Ég fæ að skila þessu ef þetta er
lúðrasveit," er Dr. Gunni að segja við
Valda í safnarabúð Valda þegar ég
og Teitur ljósmyndari komum inn,
en hann er að skoða plötu með
hljómsveitinni Sonnetteers, sem
enginn veit nein nánari deili á. Dr.
Gunni er talsverður áhættukaup-
andi þegar kemur að plötum, og
kaupir gjarnan eitthvað sem hefur
ekki verið markaðsrannsakað með
rauðskeggjaða tónlistarmenn á
miðjum aidri í huga. Um það bil
einu sinni í mánuði þræðir hann
safnarabúðirnar, fer í gegnum
plötubunkana og kemur út fullklifj-
aður. En hvernig er það fyrir eigin-
konuna að búa við slíka hegðun? „Ég
fer yfirleitt beint inn í herbergi svo
að hún sjái ekki tU, og haldi að ég
hafi verið úti að kaupa barnamat,"
segir Doktorinn, en tekur þó fram að
áráttan sé ekki það mikil, og reynir
að setja sér það takmark að kaupa
ekki fyrir meira en 5.000 krónur í
hvert skipti.
Doktorinn dýrkeyptur
Gunni flettir í bunka og tekur
upp plötuna On the Rocks með
sænsku hljómsveitinni Iceland frá
1980, og glottir við tönn. Hann setur
hana þó aftur og heldur áfram að
fletta. „Hérna hefur greinilega ein-
hver sem hefur búið á mjög af-
skekktum stað í Bandaríkjunum selt
plötusafnið sitt," segirhann og tekur
upp plötuna „In Your Living Room,"
með hljómsveitinni Martin Mull and
the Fabulous Furniture.
„Ég fékk þessa í fermingargjöf,"
segir Doktorinn og tekur upp plöt-
una Jazz með Queen, en það eru
fyrst og fremst gamlar vínýlplötur
sem hann sækist eftir. Gunni lendir
oft í því að kaupa aftur plötur sem
hann átti einhvern tímann áður,
vegna þess að „maður seldi allt þeg-
ar maður hélt að geisladiskurinn
væri framtíðin."
Dr. Gunni finnur stundum
spurningar fyrir Popppunkt með
því að þræða rekkana, en viður-
kennir þó að þær hafi heldur farið
að léttast upp á síðkastið, þar sem
fólk var farið að verða þreytt á
spurningum sem enginn gat svar-
að. Einnig sagðist hann hafa farið
um eins og ryksuga þegar hann var
að skrifa bókina Eru ekki allir í
stuði? Ýmislegt lærist af grúskinu,
en mikið magn af plötum þýðir lík-
léga að margir jólagjafaþiggjendur
hafi haft lítinn áhuga. „Maður get-
ur séð á safnarabúð hvað er að
marka þessar sölutölur," segir
Doktorinn. „Það ersjaldan að mað-
ur sjái eitthvað með sjálfum sér
hérna, nema náttúrlega að það séu
dýrustu plöturnar." Máli sínu til
stuðnings tekur hann upp plötu
með fyrrverandi hljómsveit sinni
Bless, og bendir á 5.000 króna verð-
miðann.
Deyjandi lífsstíll
Valdi rekur sína eigin búð, og oft
má sjá móður hans aðstoða soninn
við afgreiðslu. Valdi er því nokkurs
konar plötukaupmaðurinn á horn-
inu, en slíkt einstaklingsframtak er
farið að verða sjaldgæft á tímum ört
vaxandi stórfyrirtækja. Plastplötu-
safnarar gætu því verið deyjandi
stétt. „Það er ekki endalaust til af
plötum. Maður verður að búa sig
undir mögru árin," segir Doktor, og
setur bunkann á búðarborðið. Efst
má sjá Fresh Rasberries með hljóm-
sveitinni Rasberries, sem myndi lík-
lega fara vel með plötunni Fresh Cr-
eam með Cream.
Annað fjölskyldufyrirtæki er safn-
arabúðin á Frakkastíg, elsta safnara-
búð bæjarins sem hefur verið starf-
rækt í rúm 30 ár. Hún var áður í Þing-
holtunum en er nú rekin af Hreiðari
Sæmundssyni, syni stofnandans. í
fremri hluta búðarinnar er ýmiss
konar tónlistar og kvikmyndaefni, en