Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 53
J3V Fókus
LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003 53
Leikarinn Viggo Mortensen stendur í ströngu þessa dagana enda er verið að forsýna, frumsýna og jafn- ^
vel endursýna þriðja hluta Lord of the Rings myndanna um gjörvalla heimsbyggð. Ekki þarf að fjölyrða
um velgengni fyrri myndanna tveggja en spekingarnir segja að sú þriðja muni slá öll aðsóknarmet.
Þetta hefur að sjálfsögðu haft mikil áhrif á hinn danskættaða Viggo sem fær nú hvergi að vera í friði
fyrir ágengni heillaðra kvenna og annarra aðdáenda.
Viggo Mortensen þykir mikill sjarmör og hefur hetjuímynd
Aragorn sem birtist í Hringadróttinssögu eflaust haft sitt að
segja um það. Utan vísindaskáldsöguheims Tolkiens þykir
Viggo aftur á móti ekkert síðri, ef frá er talið konungsblóðið.
Ekki nóg með að hann sé efnaður og hæfileikarfkur leikari held-
ur er hann líka listmálari, Ijósmyndari, ljóðskáld og tónlistar-
maður. Auk þess er hann mikil áhugamaður um hestamennsku
og þeir sem til þekkja segja hann með eindæmum góðan föður.
Viggo var einmitt staddur hér á landi fyrr á árinu ásamt syni
sfnum til þess að prufukeyra íslensku hestana og fara í Bláa lón-
ið eins og alvöru Hollywoodstjörnu sæmir.
Þessir mannkostir Viggo, auk sjarmans sem hann hlaut í arf
frá Aragron, hafa því gert Viggo að einhverjum eftirsóttasta
karlmanni veraldar en sjálfur segist Viggo vera frekar feiminn
og ekki hafa gaman af allri þessari athygli.
Komst lifandi frá London
Viggo hefur verið á þeytingi um allan heim
síðustu daga og var hann m.a. staddur í
London í vikunni til að vera viðstaddur
frumsýningu Lord of the Rings: The Re-
turn of the King. Kappinn ætlaði að
rækta sín dönsku tengsl með því að líta
við á Vísindasafninu í London en þeg-
ar uppgötvaðist hver hann væri ætl-
aði allt um koll að keyra og hann
þurfti að hafa sig allan við til að
komast lifandi út. Þeir sem upp-
lifðu múgsefjunina sögðu það
hefði verið engu líkara en að all-
ar konur í kílómeters radíus
hefðu allt í einu fundið sjar-
mann frá Viggo og þær safn-
ast saman á umræddu
safni. Umsjónamenn
safnsins voru afar
ánægðir enda aðsókn-
armet líklegast slegið
þennan dag en Viggo
hafði ekki gaman af.
Hann varð því að forða
sér af safninu áður en
hann náði að kynna
sér störf frænda síns,
Nils Bohr. Hann fór í
flýti heim á hótel þar
sem hann hefur eflaust
sest niður og sett sam-
an stöku um upplifun-
ina áður en hann hélt á
sjálfa frumsýninguna
um kvöldið þar sem
hann veifaði danska
fánanum stoltur.
Slysaðist inn í
hlutverkið
Þegar Peter
Jackson, leik-
stjóri mynd-
anna um
Hringadróttin-
ssögu, var að
ráða í hlutverk
fyrir myndirnar leist honum best á skoskan leikara að nafni
Stuart Townsend í hlutverk Aragorn. Þegar tökur voru síðan í
þann mund að hefjast fékk leikstjórinn einhverja bakþanka og
lét strákinn róa. Upptökur hófust því án þess að nokkur
Aragorn væri til staðar. Aðstandendur myndarinnar settu
höfuðið í bleyti og nokkrum dögum síðar fékk
Viggo Mortensen upphringinu. Spurningin
sem hann fékk var einföld: „Viltu leika
Aragorn í Lord of the Rings og eyða
næstu tveimur árum á Nýja-Sjá-
landi við upptökur?"
Viggo hafði á þessum tíma-
punkti ekki séð handrit að
myndinni og vissi í raun lítið
um hverjir að henni stæðu.
Eftir stutta umhugsun
ákvað hann samt að slá
til, enda hafði hann
lengi verið mikill
aðdáandi sagna Tolkiens. Hlutverkið fékk því fyrir hreina
slysni og hefur verið haft eftir honum að hann sjái ekki eftir
þessari ákvörðun í dag, jafnvel þótt hann þurfi aðstoð við að
ryðja kvenfólkinu frá sér þegar hann fer út úr húsi.
Viggo Mortensen
Leikarinn Viggb Mortensen er einhver
eftirsottaíti k&lmadur jarðarinnar um
þessar mundirJFyrir utan að vera frægur
leikari yrk 'J Viggo Ijód, málar myndir,
semur Iöq og tekur myndir milli þess sem
hanhmr á hestbak með syni sinum.
Jólahátíð Hróks
Skákfélagið Hrókurinn efnir til
jólaháú'ðar á Broadway á morgun.
Haldið verður skákmót fyrir börn í
1.-6. bekk grunnskóla, dansað
verður í kringum jólatréð og að
sjálfsögðu kíkir jólasveinninn í
heimsókn og færir þátttakendum
sælgæti, gos og ís. Tónlistarmenn-
irnir KK og Jakob Frímann Magn-
ússon taka lagið og síðast en ekki
síst mætir Sveppi úr 70 mínútum
og les úr þjóðsögum Jóns Árnason-
ar.
Allir sem taka þátt fá viðurkenn-
ingjarskjal fyrir þátttökuna. Þau
sem lenda í 1.- 3. sæti fá verðlauna-
pening og sigurvegari í hverjum
flokki lilýtur vandaðan bikar. í
happdrættinu verða dregnir út
hundrað vinningar frá fjölmörgum
fyrirtækjum.
Þátttaka í mótinu er ókeypis en
fullorðnir greiða 500 kr. í aðgangs-
eyri. Hægt er að skrá sig með því að
fara inn á heimasíðu mótsins,
www.hrokurinn.is/jol2003, eða
senda póst á
skakskoli@hotmail.com. Hátíðin
hefst klukkan 12 og stendur til 17,
allir eru velkomnir.
Sveppi Les úrþjóðsögum Jóns Árnaso,