Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 14
14 LAUQARDAGUR 20. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Pappalöggur
vinsælar í
Mexíkó
Lögregluyfirvöld í
Mexíkó hafa sett upp nokk-
ur hundruð lögreglubíla úr
pappa víðs vegar við þjóð-
vegi landsins. Þykir þetta
vera ein hagkvæmasta leið-
in til að stemma stigu við
hraðakstri sem er mikið
vandamál þar sem annars
staðar.
Hugmyndin er ekki ný af
nálinni og skemmst er að
minnast tilraunar Sólveigar
Pétursdóttur hér á landi
sem þótti takast afar illa.
Hugmynd Mexíkananna er
þó betri því lögreglubifreið
er mun sýnilegri úr ijarlægð
en einmana lögreglumaður.
Jólasveinn
ákafi
Ferðamönnum
frönsku riveríunni
landi brá heldur
betur í brún þeg-
ar þessum vel-
klædda jóla-
sveini skaut upp
úr sjónum.
Ómuna veður-
blíða hefur verið
á þessum slóð-
um í jólamánuð-
inum og sjórinn
heitari en aldrei
fyrr. Margir ferðamenn
hafa notað tækifærið og
dýft sér í hlýjan sjóinn en
köfun er afar vinsælt sport
á riveríunni.
Færa vindun-
um þakkir
Mikil ílugdrekahátíð fer
nú fram í Kambódíu og
hafa þúsundir safnast sam-
an til að taka þátt víðs veg-
ar um landið. Hátíðin, sem
haldin hefur verið með
sama sniði í hundruðir ára,
er haldin til að færa þakkir
til vindanna fyrir regnið
sem þeir færa þessari fá-
tæku þjóð.
Bensínskort-
ur í olíuríki
Síendurtekin skemmd-
arverk og tíðar rafmagns-
truflanir hafa haft
alvarleg áhrif á
eldsneytisfram-
leiðslu í Irak og
valdið því að
bensín er munað-
ur sem fáir hafa
efni á. Langar
raðir eru við allar
bensínstöðvar í
landinu sem enn
eiga birgðir og
fimm til sex tíma bið eftir
afgreiðslu er algeng. Þykir
þetta sýna einna best
hvernig til hefur tekist með
uppbyggingu í Iandinu en
írakar búa yfir næststærstu
olíulindum í heiminum.
Vinnueftirlitið hefur í harðorðu bréfi skammað stjórnendur Landspítala fyrir að
brjóta vinnulöggjöfina með því að láta unga lækna vinna 24 klukkustundir sam-
fleytt. Ef ekki verður búið að svara í næsta mánuði verður gripið til harðra aðgerða
Landspítal - háskólasjúkrahús
fékk f haust harðort áminningarbréf
frá Vinnueftirlitinu vegna þeirra
brota á vinnulöggjöfmni. að ungir
læknar standi
vaktir í 24
klukkustundir
samfleytt.
Félag ungra
lækna hefur
lengi barist
gegn því að
spítalinn bryti á
þeim lög og
reglur með því
að gera þeim að
vinna 24 kukku-
stunda vaktir, en án árangurs. Eftir
að bréflð barst spítalanum þá var
sett á laggirnar nefnd sem ætlað var
að vinna að hugmyndum til úrbóta.
Að sögn Odds Steinarssonar í stjórn
Félags ungra lækna hefur ekkert
gerst í því máli enn. „Það hefur lítið
gerst í þessum efnum og við vinn-
um jólin eins áður enda veikist fólk
á helgidögum sem öðrum dögum."
Oddur er einn þriggja nefndar-
meðlima en hann segist lengi vel
hafa verið hikandi við að taka sæti í
henni. Menn hafi þá tilfinningu að
úrræði spítalans að skipa nefnd sé
eingögnu til að drepa málinu á
dreif. „Við ætlum einnig að fara
fram eftir áramótin og viljum fá frí-
tökurétt í stað þessara vakta. Á
næstu árum verða mun stærri ár-
gangar unglækna sem skila sér úr
námi og í versta falli ættu þessar
vaktir að verða úr sögunni með tím-
anurn."
Oddur bendir á að þessar vaktir
Fresturinn sem við
gáfum var ekki tiltek-
inn en efekkert gerist
í þessu þessu í janúar
munum við þrýsta
verulega á
hljóti að koma niður á gæðum þjón-
ustunnar. Menn séu orðnir þreyttir
eftir sólahring í vinnu án hvfldar og
dómgreindin eftir því. „Þessu bar-
áttumáli okkar hefur verið sýndur
lítill skilningur fram að þessu en við
vonum að það sé að rofa til og 24
stunda vaktir lækna heyri brátt sög-
unni til. Spítalinn getur ekki hunsað
bréf vinnueftirlitsins og vinna
nefndarinnar verður að miða að því
að leysa þetta mál.“
Steinar Harðarson hjá Vinnueft-
irliti ríkisins staðfestir að harðort
bréf hafi borist spítalanum. „Frest-
urinn sem við gáfum var ekki tiltek-
inn en ef ekkert gerist í þessu þessu í
janúar munum við þrýsta verulega
á. Við teljum að það séu grunnrétt-
indi á vinnuverndarsviði að menn
fái lögbundna hvfld og vaktir standi
ekki of iengi.
Hann bendir á að það sé enn al-
varlegra að horft sé á þennan vinnu-
tíma út frá faglegum rökum. Þá
mælir það mjög gegn þessum löngu
vöktum. „Það má segja að þeir sem
vinni störf þar sem mistök geta orð-
ið afar afdrifarík ættu enn fremur að
njóta betri hvídartímaákvæða en
annað fólk,“ segir Steinar.
Oddur Steinarsson
Bókhaldsóreiða, stórfellt tap og málaferli
eftir sjö ára starfsemi
Sorgarsögu Þróunarfé-
lags Vestmannaeyja lokið
Vestmannaeyjabær ætlar að
kanna hvort bærinn á endurkröfu-
rétt vegna Þróunarfélags Vest-
mannaeyja, sem formlega var lagt
niður á fimmtudag. Bæjarstjórnin
telur sig eiga endurkröfu þar sem
tugir milljóna voru greiddar eða lof-
að að greiða, án samþykkis stjórnar-
innar. Sjö ára sögu Þróunarfélagsins
er þar með lokið, en það átti að
stuðla að jákvæðri þróun atvinnulífs
í Vestmannaeyjum. Félagið fjárfesti í
ýmsum fyrirtækjum, en mikið tap
hlaust af. Endanlegt uppgjör liggur
enn ekki fyrir, þar sem veruleg
óreiða var á bókhaldi, og hafa til
dæmis reikningar og dollaraseðlar
fundist í flutningum. Samkvæmt
heimildum eyjar.net verður meðal
annars könnuð leiga á húsnæði hjá
Samskipum þar sem forstöðumaður
Þróunarfélagsins skrifaði undir fyrir
hönd bæjarins en óvíst er hvort
hann hafði heimild til þess. Sá
samningur virðist vera óuppsegjan-
legur. Einnig verða könnuð kaup á
bréfum í íslandslaxi af fyrrum
stjórnarmanni í Þróunarfélaginu,
þar sem virðist hafa verið farið fram
úr heimildum stjórnar. Félagsmála-
ráðuneytið tók Þróunarfélagið til
sérkstakrar skoðunar vegna mikilla
hnökra á bókhaldi félagsins. Ráðu-
neytið gerði alvarlegar athugasemd-
ir við rekstur og bókhald Þróunarfé-
lagsins og tengsl Vestmannaeyja-
Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri.
Vestmannaeyjabær kannar endurkröfurétt á
tugmilljónum vegna Þróunafélagsins.
bæjar við það, en bærinn átti 80% í
félaginu. Engum viðurlögum var þó
beitt. Minnihluti bæjarstjórnar í
Vestmannaeyjum hyggst kæra fjár-
reiður Þróunarfélagsins til efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra.