Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2003, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2003
Sport DV
Með Hou er
YOU'LL NEVERWALK ALONE
LIVERPOOL
Það er ekki auðvelt að vera stuðningsmaður Liverpool þessa dagana. Hvorki
gengur né rekur hjá þessu sigursælasta félagi enskrar knattspyrnu fyrr og síðar
en það situr í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir sextán umferðir og er
löngu úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn - þeir eru sextán stigum á
eftir toppliði Arsenal. Þessi árangur er í engum takti við þær væntingar sem
gerðar voru til liðsins fyrir tímabilið. Stefnan var tekin á toppinn enda sagði
Gerard Houllier að hann ætlaði sér að gera Liverpool að meisturum á fimm
árum. Sú áætlun hefur engan veginn gengið upp og í stað þess að færast nær
bestu liðunum virðist félagið færast fjær og fjær með hverju árinu sem líður.
Það er knattspymustjórinn sem er ábyrgur fyrir gengi síns liðs og því heyrast æ
háværari raddir innan herbúða Liverpool sem segja að tími sé kominn á að reka
stjóra félagsins, en slíkt hefur ekki gerst hjá Rauða hernum síðan 1956.
Gerard Houllier kom til félagsins sumarið
1998. Hann stýrði liðinu til að byrja með ásamt
Roy Evans en það samstarf gekk ekki upp og
því var Evans látinn víkja í nóvember sama ár.
Endurreisn Liverpool undir stjórn franska
kennarans hófst samstundis. Hann byrjaði á
því að losa sig við leikmenn sem honum
fannst ekki passa inn í hópinn hjá sér. Skipti
engu máli hvað þeir hétu. Ef Houllier
fannst þeir ekki hafa rétta karakterinn og
hugarfarið þá voru þeir farnir. Það kom best í
ljós þegar hann losaði sig við Robbie Fowler
sem af mörgum stuðningsmönnum félagsins
var kallaður „Guð“.
Sú ákvörðun var hugsanlega ein af hans
bestu því Fowler var á þeim tíma farinn að
stunda gjálífið meira en góðu hófi gegndi og
það hefur lftið breyst. Um daginn var hann
myndaður með bjór og sígarettu á
skemmtistað tveimur dögum fyrir leik.
Frammistaða hans innan vallar endurspeglar
þetta líferni.
Léleg leikmannakaup
Frá því Houliier skrifaði undir samning við
Liverpool hafa 39 leikmenn gengið í raðir
félagsins en 44 hafa farið frá félaginu. Marga
þessara 44 leikmanna keypti Houllier sjálfur.
Ein helsta ástæða þessa slaka gengis er að
Houllier hefur verið lygilega slakur á
leikmannamarkaðnum. Hann hefur eytt stórfé
í ijölmarga miðlungsleikmenn og enn meiri
„Houllier hefur
mistekist hrapallega
og fram hjá því er ekki
hægt að líta.
Stuðningsmönnum
félagsins er nóg boðið
og þeir vilja nýjan
mann í stjórastólinn.
Það er þeirra ósk til
Éálasveinsins í ár."
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@dv.is
peningur fór í að kaupa hreinlega lélega
leikmenn. Meðal hans „bestu kaupa" má
nefna menn eins og Vegard Heggem, Frode
Kipp Jean-Michel Ferri,
Rigobert Song, Titi Camara,
Erik Meijer, Bernard
Diomede, Nick Barmby,
Igor Biscan, Bruno
Cheyrou, Alou
Diarra, Patrice Luzi
og Salif Diao.
Mörgum
stuðnings-manna
Liverpool verður
hreinlega óglatt
þegar þeir heyra
nöfn þessara
manna. Svo má
ekki gleyma að
hann eyddi 11
milljónum punda í
Emile Heskey, sem
hrein-lega hefur farið
aftur frá því hann gekk
til liðs við félagið, og 10
rnillur fóru í El-ITadj
Diouf, sem reyndar er
aðeins að
braggast.
Þetta
ekki glæsilegur listi en hann ber vott um það
hversu gott „nef“ Houllier hefur fyrir sterkum
leikmönnum.
Ágæt byrjun
Endurreisnin gekk ágætlega í byrjun og
þegar Liverpool tók þrjár dollur 1999 voru
flestir sannfærðir um að Houllier væri á réttri
leið. Hann var með góða varnarmenn í Sami
Hyypia og Stephane Henchoz.
Dietmar Hamann kom síðar
með jafnvægið
á miðjuna.
L Í “
Sóknarleikurinn var reyndar ekki burðugur en
Owen skilaði sínu og menn voru sannfærðir
um að hann myndi slípast til. Grunnurinn að
meistaraliði byrjaði á aftasta manni, og 1999
var Liverpool með eina bestu vörn í Evrópu, og
í kjölfarið kærni sóknarleikurinn.
Enn er auglýst eftir sóknarleiknum en hann
hefur undanfarin ár verið svo
hugmyndasnauður og leiðinlegur að hörðustu
stuðningsmenn félagsins hafa oft ekki nennt
að horfa á liðið spila. Það er þeim hreinlega
ofviða.
í baráttu við Bolton
Staðreyndirnar ljúga ekki. Þegar jólatörnin
hefst er Liverpool stigi fyrir ofan Bolton og á
eftir Fulham, Southampton, Charlton og
Birmingham á töflunni. Ekki amalegur
félagsskapur það. Liðið hefur þar að auki nú
þegar tapað fjórum leikjum á heimavelli.
Samkvæmt áætlun Houlliers átti liðið að vera
fullmótað í ár og að berjast um
meistaratitilinn. Honum hefur mistekist
hrapallega og fram hjá því er ekki hægt að lfta.
Stuðningsmönnum félagsins er nóg boðið
og þeir vilja nýjan mann í stjórastólinn.
Það er þeirra ósk til jólasveinsins í ár.
Houllier er kominn á leiðarenda.
Liverpool er aftur á móti félag sem
ekki er þekkt fyrir að reka
knattspyrnustjórana sína. Það
gerðist síðast árið 1956 og það
var Don Welsh sem þá fékk
sparkið. Hann fékk fimm ár
með liðið, rétt eins og
Houllier ,og nú er tími
á að Houllier fari
sömu leið og
Welsh á sínum
tíma.